Tíminn - 17.04.1966, Blaðsíða 12
Hrafnista, dvalarheimHi aldraSra sjómanna.
HAPPDRÆTTISVINNINGAR
DAS ERU 35 MILLJÓNIR
SJ—Reykjavík, laugardag.
Borgarstjóri Grimsby, Dennis
Petchell og frú hans, Kristín
Petchell, eru væntanleg hingað til
til Reykjavíkur annað kvöld,
sunnudagskvöld, í boði borgar-
stjórnar Reykjavíkur. Með í för-
inni eru ennfremur borgarritari,
varaborgarstjóri, fjórir borgarfuil
trúar og þrír togaraútgerðarmenn.
Verkalýðsnefnd
Fundur verður í verkalýðsnefnd
Framsóknarflokksins á mánudags
kvöld kl. 9 að Tjarnargötu 26.
Nefndarmenn eru áminntir um
að mæta vel og stundvíslega.
Bátur strandar
GS—ísafirði, laugardag.
Hér hefur verið talsvert þykk
þoka í tvo daga og hefur varla séð
úr augum. Hafa bátar átt talsvert
erfitt með að komast leiðar sinn
ar af þessum völdum.
Tvö smáslys urðu á sjó af völri
um þokunnar. Vélbáturinn Gunn-
hildur strandaði við Öskuibak, sem
er vestan við Skálavík, en náðist
strax á flot aftur. Gunnhildur er
60 tonna bátur.
Á sundunum við ísafjörð rák
ust tveir bátar á í þokunni og
skemmdist borðstokkur annars
þeirra, Vers, dálítið. Hinn bátur
inn, Guðmundur Pétur, mun ekki
hafa skemmzt, en bátarnir voru
á mjög hægri ferð.
Heimsókn þessi er endurgjald
á boði borgarstjórnar Grimsby.
Gestirnir frá Griimsby munu skoða
ýrnsa staði hér í Reykjavík, fljúga
með flugvél Landhelgisgæzlunnar
og aka um nágrenni Reykja\dkur.
Heitt vatn
á Flúðum
SG-Hrunamannaihreppi, laugard.
Að undanförnu hefur verið bor-
að eftir heitu vatni á Flúðum hér
í hreppi. Þar hefur alltaf verið
heitt vatn, sem notað hefur verið
til upphitunar húsa, en það sýndi
sig í vetur, að það var ekki nægi-
lega mikið. Magnið, sem fékkst af
því, voru þrír sek.lítrar. Nú hefur
fengizt heitt vatn á 205 metra dýpi
og eru það 20 sek. lítrar. Að öllu
óbreyttu á það að nægja staðnum
til margra ára.
Á Flúðum hefur verið sl.arfTjVf.
ur sfeóli, sundlaug og gróðurhus.
Framhald á bls. 11.
AKRANES
Framsóknarfélag Akraness heidur
skemmtisamkomu í félagsheimili
sínu, Sunnubraut 21, í kvöld,
sunnudagskvöld, kl. 20,30 siðd. Til
skemmtunar: Framsóknarvist og
kvikmyndasýning. Öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir;
FB—Reykjavík, laugardag.
Nýtt happdrættisár er nú að
hefjast hjá DAS, er það þrettánda
starfsár happdrættisins. Vlnning
um fjölgar nú í 250 að jafnaði
á mánuði. Bflum fjölgar í 62, og
verða nú alltaf 5 á mánuði, fyrir
150 til 200 þúsund hver, og í 1.
flokki verða 7 bflar. Hiisbúnaðar
vinningar verða fyrir 5 þúsund
mmnst, en einnig fyrir 10, 15, 20,
25, og 50 þúsund krónur. íbúðir
verða eftir eigin vali vinnenda
fyrir hálfa milljón og eina milljón
en happdrættið hefur nú hætt
byggingu aðalvinnings, sem ann-
arra íbúða, og verður því aðalvinn
ingurinn að þessu sinni einbýlis
hús eftir vali vinnanda fyrir tvær
milljónir króna. Heildar verð-
mæti vinninga verður 35.095.000.00
krónur.
Tala útgefinna miða er óbreytt
frá því sem verið hefur, og mán
aðarverð verður 75 krónur. Árs
miðinn kostar 900 krónur. Sala á
lausum miðum og endurnýjun
flokksmiða og ársmiða er hafin,
og dregið verður í 1. flokki 3. maí.
Blaðamönnum var í gær boðið
að koma að Hrafnistu, Dvalarheim
ili aldraðra sjiómanna, en það hef
ur verið byggt fyrir hagnað af
happdrætti DAS. Er nú verið að
hefja byggingu síðustu álmu hei'm
ilisins, verða þar herbergi fyrir 48
vistmenn á tveimur hæðnm, enó á
1. hæð hússins verður hjúkrunar
deild, þar sem rúm verður fyrir
31 vistmenn. Forstöðumenn heirn
ilisins sögðu, að mikið vandamal
hefði verið hingað til, að ýmsir
vistmenn hefðu verið illa færir
um að hugsa um sig sjálfir að
næturlagi, en þó efeki það veifeir
að þeir þyrftu að vera á sjúkra
deild. Nú yrði þessi vandi leystur,
því hjúferunarkona yrði á vakt á
hverri nóttu, og gæfi hugsað um
fólkið. Kostnaðaráætlun þessarar
álmu hljóðar upp á 9 milljónir
króna, og vonazt er til, að hún
verði tilbúin undír tréverk árið
1967.
Þegar lokið verður við byggingu
dvalanheimilisins sjálfs er röðin
komin að byggingu húsa fyrir öldr
uð hjión. Hafa DAS-menn mikinn
áhuga á að byggja hús þessi á lóð
heimilisins, en skipulag borgarinn
ar hefur enn ekki tekið ákvörðun
um það, hvernig því verði við kom
ið, og þvi efeki farið að undirbúa
þessa byggingu. Hugsa menn sér,
að í þessum húsum geti nldruð
hjón búið, en síðan notið allrar
þjónustu frá heimilinu sjálfu, bæði
fengið þar mat og hei'milisaðstoð.
Sjómannadagsráð hefur í nofck
ur ár rekið sumardvalarheimili fyr
ir börn sjómannsefckna. Heimilið
er í skólanum að Laugalandi i
Holtum, og hafa þar dvalizt á milli
60 og 70 börn. Nú hefur veri'ð fest
kaup á Hraunkoti í Grímsnesi, og
er fyrirhugað að reka þar sumar
heimili fyrir börn í framtíðinni.
Fondur lögfræðinga
Á morgun, mánudaginn 18. apríl
halda Lögfræðingafétag íslands
og Orator, félag laganema, sam-
eiginlegan fund í Sigtúni við Aust
urvöll. Á fundinum halda þeir
Benedikt Sigurjónsson, hæstarétt-
arlögmaður og Garðar Gíslason,
stud. jur. framsöguerindi um efn-
ið „Friðhelgi einkalífsins". Eins
og áður er sagt, verður fundur-
inn haldinn í Sigtúni og hefst
hann fcl. 20,30.
Síðasta Framsðknarvistin
Síðasta Framsóknarvistin í 5
kvölda keppninni verður spiluð
á Hótel Sögu fimmtudaginn 21.
Óðinn Rögnvaldsson
apríl (sumardaginn fyrsta), og
hefst hún klukkan 8,30 stund-
víslega.
Ræðumaður kvöldsins verður
Óðinn Rögnvaldsson, prentari,
4. maður á Iista Framsóknar-
flokksins við borgarstjórnar-
kosningarnar.
Stefán Þ. Jónsson söngkenn-
ari stjórnar almennum söng og
hljómsveit Ragnars Bjarnason-
ar leikur fyrir dansi til kl. 1
e. m.
Aðgöngumiðapantanir eru á
skrifstofu Framsóknarflokksins,
Tjarnargötu 26, í símum 15564
og 16066.
Tryggið ykkur aðgöngumiða
í tíma.
PROFARKALESARI OSKAST
upplýsingar gefnar á ritstjórn Tímans. Sími 18300.
Valtýr
Guðjónsson
Margeir
Jónsson
Pétursson
Eiríksson
Jónsson
Guðnason
Kristjánsson Stefánsson Guðmundsdóttir
86. tbl. — Sunnudagur 17. apríl 1966 — 50. árg.
LISTI FRAMSOKNAR-
MANNA í KEFLAVÍK
Borgarstjárínn /
Grímsby í heimsókn
Listi Framsóknarmanna til þæj
arstjómarkosninga í Keflavík í
maí næstkomandfi, hefur verið
lagður fram: Þessir menn eru á
listanum:
Valtýr Guðjónsson, útihússtjóri.
Margeir Jónsson, útgerðanm.
Hflsnar Pétursson, skrifstofum.
Bewmann Eirfksson, sikóllastjóri.
Páfl Jónsson, gjaldkeri
Birgir Guðnason, mállari
Sigfús Kristjónsson, tollþjónn
Guðjón Stefánss. skrifstofustj.
Aðalhjöirg Guðmundsdóttir
Öm Erlingsson, skipstjóri
Kristinn Danívalss. bifreiðairstj.
Kristinn Bjömsson, rafvirki
Ólafur Hannesson, matsveinn
Albert Altoertsson, lögregluþjónn
Jón Arimbjörnsson, sjómaður
Ingitoergur Jónsson, verkam.
Guðmundur Gunnlaugss. trésm.m.
Höxíley Ólafss. framfevæmdarstj.