Tíminn - 20.04.1966, Qupperneq 3
3
MIimKUDAGtTl? 20. april 1966
TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Antoinc hcitir ungur dægur
lagasöngvari í Frakklandi og
nýtur mikilla vinsælda um
þesar mundir. Hann er síð-
hærður eins og bítill og syng-
Þegar nýja vaxmyndasafnið
í Hollywood bætti nýrri vax-
mynd í safnið fyrir skemmstu,
en (hún var af Charlton Heston
í hlutverki Móses í kvikmvnd-
inni „Boðorðin tíu“, sendi
Charlton Heston einkasminkara
sinn þangað til að láta hann
lagfæra skeggið á styttunni.
Lögreglan í Houston í Texas
setti fyrir skömu tvær fyllibytt
ur sín dægurlög jafnframt því
sem hann leggur stund á nám
í stærðfræði og efnafræði í há
skóla. Að því er sögur herma,
er hann trúlofaður ungri
ur undir lás og slá. Það telst
nú reyndar ekki í frásögur fær
andi, þótt fyllibytfcur séu sett
ar undir lás og slá, en þar sem
hér var um að ræða einn mann
og einn krókódíl, sem maður-
inn hafði sér til fylgdar, þá var
ekki hægt að telja það a.m.k.
daglegan viðburð.
Lögregian átti ekki í nein
um teljandi erfiðleikum með
að fást við manninn. Hann sofn
aði bara strax á bekknum sín
sænskri stúlku, sem einnig
syngur dægurlög og nefnist
Karine. Hér á myndinni sjást
þau svo Antoine og Karie.
um. Hins vegar vissu lögreglu-
mennirnir ekki alveg, hvað
þeir ættu að gera við krókó-
dilinn, þag fór helzt til mikið
fyrir honum. Dýralæknir, sem
leitað var ráða hjá, fullyrti, að
krókódíllinn væri álíka drukk
inn og eigandi hans og var
krókódílnum komið fyrir í
kassa, þar sem hann var lát-
inn sofa úr sér vímuna. Hvern
ig þeir höfðu orðið svona
drukknir, gat maðurinn ekki
gefið neina skýringu á.
Tuttugu og ein spænsk
nunna ætlar nú að fara að
syngja inn á plötur til þess að
afla peninga til þess að gera
við klaiustur sifct. Ef þær
syngja inn meiri peninga en
þær þarfnast til viðgerðanna á
það, sem afgangs er, að renna
til vegamála. Nunnur þessar
munu því innan skamms
■syngja ásamt móður Fransiscu
sem spilar á gítar, nokkra
sálma inn á plötur.
Yfirvöld Mexíkó hafa bann-
að Frank Sinatra að koma til
Mexilkó, þar sem þeim finst
nýjasta kvikmynd haus, „Marr-
iage on the Bocks“ miður vin
samleg í garð Mexíkó. Frar/k
Sinatra á miklar eignir í Aca-
pulco, og er það nú sagt í
gamni í Hollywood, að Frank
hyggist kaupa alla borgina og
flytja hana til Hawai.
Salvador Dali málarinn frægi
hefur oft komið fólki á óvart
fyrir afkáralegar myndir og
höggmyndir, og hefur hann ver
ið frægur fyrir þetta. Nú hefur
hann þó gert alla enn meira
undrandi en nokkru sinni fyrr
því hann hefur nýlokið við, að
gera brjóstmynd af Kennedy
forseta, og það kom upp úr
kafinu að myndin var alveg
venjuleg brjóstmynd.
Charlie Chaplin varð 77 ára
16. apríl síðastliðinn, og var
haldið mikið afmælisboð i kvik
myndaverinu, þar sem hann
vinnur við það að kvikmynda
myndina „Greifafrúin af Hong
Kong. Hér á myndinni sést
Chaplin mynda sig til að ráð-
ast á afmælistertuna, sem var
sex hæða, ef svo mætti segia.
Sophia Loren getur ekki varizt
brosi og undrun við þessar að
farir. Stúlkan, sem er lengst
111 hægri, er leikkonan Tippi
Hedren, sem fer með eitt af
aðalhlutverkunum í mynd
Chaplins.
Á VÍÐAVANGI
„Hefur ekki áhrif á
lífskjör manna".
Morgunblaðið ber eftirfar-
andi á borð fyrir menn — með
dýra fiskinum — i forystugrein
í gær:
„Að sjálfsögðu hækkar fisk
ur og smjörlíki í verði vegna
afnáms niðurgreiðslnanna, en
það hefur þó ekki áhrif á lífs-
kjör manna, því að vísitalan
hækkar sem því nemur, og
þar með kaupgjaldið."
Og Morgunblaðið bætir enn
við:
„Sjálfsagt verður reynt að
nota afnám þessara niður-
greiðslna til að telja mönnum
trú um ,að þar sé um lífskjara
skerðingu að ræða. En slíkar
fuUyrðingar eru gersamlega úr
lausu lofti gripnar eins og áð-
ur segir, því að þessar hækkan
ir fá menn að fuUu bornar uppi
með hækkuðu kaupgjaldi vegna
vísitöluhækkunarinnar4*.
Nei, þetta hefur engin áhrif
á lífskjör manna, segir Moggi,
því að þessar hækkanir fá
menn að fuUu bornar uppi með
hækkuðu kaupgjaldi vegna vísi
töluhækkunar.
Er Moggi farinn að
borga?
Ung húsmóðir hafði hlustað
á þessa vizku Mogga í útvarp
inu í gærmorgun, og hún
hringdi til Tímans og bað hann
að spyrja þá MoggapUta að þvi
fyrir sig, hvort þeir væru farn
ir að borga út vísitöluhækkun
ina vegna fiskverðsins. Ef svo
væri kvaðst hún gjarnan vilja
sækja hýruna til þeirra sem
fyrst, því að sér veitti ekki af
henni til þess að senda I fisk-
búðina núna. Af þessum skrif
um Mogga er helzt svo að ráða,
að hann telji kauphækkun af
þessum sökum þegar komna til,
svo að fólk tapi engu við fisk
verðshækkunina. En það er
öðru nær.
Eins og allir vita, líða einnn
eða tveir mánuðir, þangað tU
þessi mikla fiskverðshækkun
kemur inn í vísitöluna, og enn
nokkur tími þar frá, þangað til
af því Ieiðir kauphækkun. Fólk
verður því að bera fiskverðs-
hækkunina bótalaust á þriðja
mánuð, og þá verður hún bú-
in að leiða af sér aðrar hækk-
anir sem fólk verður að bera
bótalaust næstu mánuði og svo
koll af kolli. Þetta er saga
örra verðhækkana og síhækk-
andi dýrtíðar. Þótt fólk fái
um síðir kaupuppbót fyrir verð
hækkanir, sem orðið hafa fyrir
tveimur eða þremur mánuðum,
er það aUt af með á herðunum
bagga vegna nýrra verðhækk-
ana, og þennan nýja bagga verð
ur það ætíð að bera bótalaust.
Þegar einn bagginn kemur inn í
vísitöluna, eru komnir tveir
eða þrír nýir synir hans á bak
ið í staðinn. Þetta er tapsaga
fólks í óðadýrtið, og Mogga
þýðir ekki að vera með neinar
blekkingar um þetta.
Undir merki Borgar-
kaupmannsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
löngum talið sig sérstakan
flokk einstaldingsframtaks í at
vinnurekstri og frjáls einka
framtaks. Mætti því ætla, að
framboðslisti flokksins í höfuð
borginni bæri sérstakt vitni uin
þetta og þar væri raðað dug-
miklum, ungum framtaksmönn
Framhald á bls.