Tíminn - 21.04.1966, Page 9
9
FOIMTUDAGUR 81. aprfl 196«
í Egilsstaðakauptúni fékk ég
gistingu í húsi nr. 1 við götu,
sem nefnist Laufás, og þar búa
hjónin Sigríður Vilhjálmsdótt-
ir og Einar Stefánsson bygg-
ingafulltrúi, nú ein á bænum,
því að synir þeirra tveir eru
uppkomnir og búsettir annars
staðar, Vilhjálmur skóiastjóri
í Reykholti og Stefán verkfræð
injznr í Svfþjóð.
Rassar vantar tilfinnanlega
gistQrás með matsölu í vaxandi
stað eins og Egilsstaðakaup-
túni, þar sem margir leggja
leið sína um, bæði sumar og
vetnr. Fáein heimili í kauptún-
inu hafa hlaupið undir bagga
með þvl að hýsa gest og gest.
Og ég get borið um það, að hjá
Sigríði og Einari væsir ekki
um ferðalanga, sem að garði
ber og eru það heppnir að fá
gistingu á annað borð.
Og ekki þarf langt að leita
til að forvitnast um upphaf og
þróun Egilsstaðakauptúns, því
að Einar byggði einmitt fyrsta
'P/A v jg ''f'A’ V ,
fclÍlÉlIÍÍ
ííí;:*:- •
ÉL. WBmmmW' -* - *
Sigríður Vilhjálmsdóttir og Einar Stefánsson á heimili sinu að Laufási 1, einu fyrsta íbúðarhúsinu í
EgilsstaðakauptúnL
Stærsta hús Austurlands rís á Egils-
stöðum - félagsheimili tíu hreppa
.
■
iMiiiiíSíiíí:
húsið þar, sjúkrahúsið, og síð-
an gerðust þau hjón frumbyggj
ar þar á staðnum. Áður hafði
Einar verið bóndi niðri á fjörð
unum í nokkur ár, en húsasmið
ur miklu lengur, og nú allmörg
síðustu ár eftirlitsmaður með
húsbyggingum á Austurlandi.
Þegar ég fór að spyrja Einar
um það, hveniig byggð hafi
byrjað þar sem nú er
staðakauptún, svarar hant
JÞannig hófst nú það, au
ákveðið var að hrepparair á
Fljótsdalshéraði skyldu ráðast
í það sameiginlega að byggja
sjúkraskýli hér á Egilsstöðum.
Þegar laeknissetrið á Brekku í
Fljótsdal brann, fluttist héraðs
læknirinn út á Eiða og sat þar
til bráðabirgða. Þá kom upp
sú hugmynd að byggja héraðs-
læiknissetur hér á Egilsstöðum.
Vorið 1944 var byrjað. að smíða
spítalann hér og siðan dýra-
læknisbústað, við vorum fengn
ir til að standa fyrir því, Guð-
jón snikkari og ég, og þessi
hús komust undir þak um sum
arið. Þetta eru einar fyrstu
byggingarnar, sem komust upp
hér, en þó hafði einn maður
áður byrjað að byggja sér fbúð
arhús, Oswald Nielsen, dansk-
ur maður, sem lengi hafði starf
að á Egilsstaðabúinu hjá Sveini
bónda. Og þetta sama ár var
skipulögð byggð hér, hluti af
því, sem nú er. Ég vann við
spítalann og læknisbústaðinn
til næsta vors, en þá tók ég að
mér fyrstu byggingar Kaupfé-
lags Héraðsbúa hér, bæði verzl
unarhús og bragga tvo fyrir
fólkið að búa og matast í. Og
þá um haustið byrjaði ég á
þessu Ibúðaiihúsi minu, og
þetta ár byrjuðu tveir aðrir að
Grein og myndir:
G.B.
byggja sér fbúðarfiús, Ari
Björnsson og Kormákur Er-
lendsson, eða öllu heldur Er-
lendur faðir hans. Við fluttum
inn í þetta hús 1. desember,
og um líkt leyti Steinþór
Eiríksson í sitt hús, þótt ekki
væri því lokið, varð að flytja
í það þannig, en ég var betur
settur að geta búið í mötuneyti
kaupfélagsmanna þangað til ég
lauk við mitt hús. Svona gekk
þetta næstu árin, að byggð
voru þrjú eða fjögur hús að
meðaltali á ári. Þessi næstu ár
hélt ég áfram að byggja fyrir
kaupfélagið, á eftir verzlunar-
húsinu og mötuneytisbröggun-
um kom sláturhúsið og síðan
mjólkurstöðin. Síðan liðu nokk
ur ár, að ekki lét kaupfélagið
byggja meira fyrr en byrjað
var á trésmíðavericstæðinu og
þar næst byggður söluskálinn,
fyrir þrem árum. Nú síðustu
árin hafa annars verið stærstu
stökkin í byggingamálum hér á
staðnum, í fyrra voru upp und
ir tuttugu hús gerð fokheld, og
í vor verður sennilega byrjað
á 10—20 húsum og þá von-
andi haldið áfram með þau
hús, sem gerð voru fokheld í
fyrra.
— Svo eru iðnaðarhús að
auki?
— Já, ég nefndi trésmíða-
verkstæði kaupfélagsins. En
snemma á árum var byggt hér
búvélaverkstæði, sem Búnaðar-
samband Austurlands byggði
upp að nokkru, en Steinþór
Eiríksson átti áhöldin og hef-
ur veitt því forstöðu síðan. Nú
nýverið var stofnað hér bygg-
ingafélagið Brúná, sem hefur
þegar búið sig allvel að vélum
og tækjum, byggði allmyndar-
legt trésmíðaverkstæði hér, og
þar byggði einn bifreiðaverk-
stæði við hliðina, svo nú eru
hér tvö bíla- og búvélaverk-
FélagsheimiIiS, sem tiu hreppar sameinast um á Egilsstöðum, verSur vígt 17. júni. Enn óbyggð þrílyf
álma tO vinstrt, sem stækkar hóslS nálega um helming.
Björn Sveinsson
stæði og tvær trésmiðjur. Svo
er hér pípuverksmiðja nýrisin
sem framleiðir bæði pípur,
gangstéttarhellur og skilrúma-
steina.
— Og félagdieimilið, þá er
það engin smásmíð?
— Það er víst áreiðanlega
stærsta hús sinnar tegundar á
Austurlandi, og þó er ekki ris-
inn nema rösklega helmingur
af því, en fullsmíðað verður
það trúlega eitt stærsta félags-
heimili landsins. Að bygging-
unni standa tíu hreppar á
Fljótsdalshéraði, Egilsstaðir
með um helming, og hinir
hrepparnir níu mismunandi
stór framlög og einnig afnot,
mest næstliggjandi hreppar, af
því að þeir hafa betri aðstöðu
til að nota húsið en þeir, sem
fjær eru settir, eins og Jökuls-
árhlið, Jökuldalur, Skriðdalur
og Hjaltastaðaþinghá.
— Og komið langt smíði
hússins, sem risið er?
— Já, það var nú byrjað á
þessu fyrir einum sex árum.
en heldur seint hefur gengið
vegna þess, að félagsheimila-
sjóður hefur svo lftið getað
lagt af mörkum af þvf, sem
honum hlutfallslega ber, og
einnig hefur gengið illa að fá
lán í þetta. Nú stendur yfir
síðasti áfangi þessa húss, kost-
ar um hálfa þriðju milljón, og
húsið verður vígt 17. júní í
sumar. En það, sem komið er,
er aðeins samkomuhúsið, stærð
ar salur, sem rúmar um 500
manns í sæti, og veitingasalur.
En eftir er að byggja álmu,
aðeins byrjað að grafa fyrir
henni, og þar á að vera hið
raunverulega félagsheimili.
Iíún verður nærri eins stór að
flatarmáli og á þrem hæðum.
Nú er komin aðstaða fyrir
skemmtanir, leiksýningar, kvik
myndasýningar, en eftir er að
búa út húsnæði fyrir starf-
semi félaganna. Þar á að koma
gott húsnæði fyrir fjórðungs-
bókasafnið og einnig byggða-
safnið, sem er nú í geymslu að
Skriðuklaustri. Bókasafnið fær
inni hér i stofu í kjallaranum
til bráðabirgða, útlánsaðstaða
og dálítið lessalsrými. En um
byggðasafnið er það að segja,
að mig minnir, að Gunnar
skáld Gunnarsson gaf þrjú her
bergi í húsi sínu að Skriðu-
klaustri, er hann fluttist það-
an og gaf ríkinu jörðina, sér-
staklega handa byggðasafni fyr
ir Austurland. En þegar til-
raunastöðin tók þar til starfa
og þurfti á öllu húsnæðinu að
halda, var þrengt svo að safn-
inu, að það var seinast flutt
í herbergi í kjallara, þar sem
það er raunar a'ðeins í geymslu.
Nú mun ríkið hafa gefið vil-
yrði um að kaupa þessi þrjú
herbergi á Skriðuklaustri, sem
Gunnar skáld gaf safninu sér-
staklega, og andvirðið verði síð
an lagt í þetta félagsheimili,
þar sem byggðasafnið fái síðan
inni. Og til að skapa fjórðungs
bókasafninu framtíðaraðstöðu
leggja sýslurnar væntanlega
drjúgan skerf í bygginguna.
— Hvað mun þessi bygging
kosta?
— Ég hef ekki fyrirliggjandi
tölur um það. En ég get ímynd
að mér, að þessi álma muni
kosta nálægt tiu milljónum
króna, það er fullgert að inn-
an, en þá er eftir að múrhúða
það utan, einnig er mikið verk
aJ lagfæra lóðina kringum hús
ið, þar þarf uppfyllingar, útbúa
bílastæði og fleira. Þetta verð-
ur mikil og glæsileg bygging
eins og hún er hugsuð og von-
andi, að hægt verði að halda
áfram með hana sem fyrst, unz
fulllokið er við hana.
★
Héraðsbókasafn Fljótsdals-
héraðs er raunar tíu ára gam-
alt, var stofnað 1956, en hús-
næðisskortur hefur mjög háð
starfseminni þangað til nú, að
það fær fyrst inni í kjallara
félagsheimilisins, lítið húsnæði
og þó visi að lessal 1 einu horni
herbergisins, en síðar verður
því vitaskuld gert hærra undir
höfði, þegar félagsheimilið er
allt risið af grunni og gnæfir
eins og fjall yfir kauptúnið við
Lagarfljót. Einn í bókasafns-
nefndinni og maður, sem lætur
sér mjög annt um vöxt og við-
gang safnsins, er Björn Sveins
son, fyrrum bóndi á Eyvindará,
nú skrifstofustjóri mjólkurbús-
ins og býr í nýtízku smáíbúðar-
húsi að Selási 13, og þangað
skrapp ég til hans eitt kvöldið
til að forvitnast um þetta safn.
— Ég hefði haldið, að hér
væri eldra héraðsbókasafn en
tíu ára, Björn.
— Já, þetta safn var ekki
stofnað fyrr en 1956, en áður
voru hér vitaskuld til bókasöfn
í hverjum hreppi. Og nú, þegar
þeir verða aðilar að Héraðs-
Framhald á 11. síðu