Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 7
Vlsir. Laugardagur 26. október 1974. 7 Getur þú verið tilbúin eftir klukkutíma, ef þér er boðið út með litlum fyrirvara? Þú getur það, ef þú skipuleggur tímann vel, þótt oft sé allt gert á síðustu stundu þegar þú hélzt, að þú hefðir nógan tíma. Þú biður bara barnapíuna að koma klukkutíma fyrr en hún er vön. Þú getur þá beðið hana að taka barnið í sína umsjá og haft heilan tima fyrir sjálfa þig til aðtaka þig til. Þá byrjum við. Láttu renna í baðið, en ekki heitara en 40 gráður, svo þú hressist nú reglulega vel. Af of heitu vatni verðurðu bara mátt- laus og syf juð. Þú mátt gjarnan hella út í það reglulega góðu baðsalti eða olíu, sem mýkir húðina. Settu rúllur í hárið á meðan baðkerið er að fyllast. Af gufunni, sem myndast, færðu góðan ilm í hárið og nægan raka til að lyftingin verði mátuleg. Með smáhárlakki á hártoppana geturðu verið viss um að greiðslan helzt f ram á morgun. Upp úr baðinu eftir svona 7 mínútur. Þú þurrkar þér vel og úðar og mátt gjarnan bera á þig olíu. Hún fer betur inn í húðina, þegar hún er rök eftir baðið, en eftir að hún er orðin þurr. Tíndu fram snyrtiáhöldin. Reyndu ekki nýtt makeup heldur haltu þig við það, sem þú ert vön og f Ijótust að, með því spar- ar þú tíma. Þú setur á þig augnskugga og augnháralit í einum hvelli og getur dregið með augnpennanum breiðan eyeliner og fengið skugga um leið. Mjó rönd undir augnlínunni kemur skemmtilega út í kvöld- Ijósinu. 1Q OCL -“-’^^'Þegar augun eru afgreidd eftir um það bil 15 mínútur, tínir þú út úr klæða- skápnum allt það sem þú ætlar að vera í ásamt skónum og skartgripunum, sem þú ætlar að nota. smávegis. En bara f imm mínútur, þær geta gert sama gagn og klukkutími, ef þú liggur í réttri stellingu, með höfuðið lægra en fæturna. Reyndu að slaka nú reglulega vel á, gera kroppinn alveg máttlausan og hugsa ekki um neitt annað en hve gott sé að liggja svona og slaka á. Þessar fimm mínútur hjálpa meira en þig grunar. 18.40 Nú er komið að hárinu. Taktu rúllurn- ar úr því,túperaðu það aðeins og greiddu yf- ir það. Smávegis meira hárlakk heldur því betur í skorðum. 1&50 nú eru bara tíu mínútur eftir. Þær nægja þér vel til að klæða þig, án þess að þurfa að f lýta þér allt of mikið, og setja upp skartgripina sem þú varst búin að velja. Þú hefur tíma til að fara yfir hárið og máln- inguna í síðasta sinn og bæta á þig einum dropa af ilmvatni. Síðasttekur þú munninn fyrir, burstar tennurnar vel því það er stórt atriði að hafa hreinar tennur og ferskan andardrátt. Síðan seturðu á þig varalitinn og smávegis varaglans. Tíminn er búinn,árangrinum er náð. Þær sem ekki gátu fylgt okkur eftir missa af öllu fjörinu og verða að gjöra svo vel og sitja heima. ICQT) -“-J^v,Þetta tók ekki nema fimm mínútur. Rúllurnar eru ennþá í hárinu og nú eru það neglurnar. Lakkaðar neglur tilheyra, ef þú vilt vera reglulega f ín og vel snyrt. Þú skalt velja lakk með mildum lit, sem ekki þarf eins mikla nákvæmni við. Ein umferð dug- ar alveg og þornar fljótt. icqe meðan neglurnar eru að þorna, skaltu halla þér afturábak og hvíla þig / Umsjón: Júlía Hannam Þetta er kvöldkjóll úr siffoni meö bláu, grænu og blágrænu munstri og ermarnar eru nokk- urs konar vængjaermar. A þessari mynd sýnlr Laura Biagiotti okkur vlöa, bláa og hvita kápu og dragt úr silki og ull, teknar saman i mittinu. Hvltir filthattar eru notaöir viö. Takiö eftir skónum. Svona vilja Frakkarnir hafa kjólana okkar: vlöa og létta nieö hringskornu pilsi eins og þennan Michel Pelta kjól sem er óneitanlega anzi fallegur. Og þá er ekki úr vegi ef tir snyrtinguna að skoða í rólegheitum nokkrar myndir frá tízkusýningu í Flórens á ítalíu þar sem viðsjáum hvernig ítalskir tízkufrömuðir vilja láta kvenfólkið klæða sig vor- ið og sumarið 1975. En ítalir eru eins og við vit- um annálaðir kvenna- menn og ættu þess vegna að hafa eitthvað fyrir sér i þessum efnum. Þegar hitinn er alveg aö kæfa okkur getum viö brugöiö okkur I bikini eins og þetta á myndinni. Þaö er úr bómullarfrotté I bleiku og grænu munstri. Skyldu þeir ekki hafa heyrt um pjötlurnar frægu sem eru aö gera allt vitlaust?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.