Vísir - 26.10.1974, Blaðsíða 16
16
Vísir. Laugardagur 26. október 1974.
| í DAG | í KVÖLD | f DAG | I KVÖLP | í DAG
Útvarp/sjónvarp sunnudag:
Á 300. órtíð
sr. Hallgríms
Péturssonar
„Sálin í útlegð er...”
heitir mynd, sem sjón-
varpið lét gera i sumar
og sýnir annað kvöld.
Útvarpið er sömuleiðis
með talsvert á dagskrá
sunnudagsins um
sálmaskáldið. Ástæð-
an: 300. ártið sr. Hall-
grims Péturssonar.
t fyrramálið verður útvarpað
kirkjuvigsluguðsþjónustu i Hall
grimskirkju. Biskup Islands
mun þá predika og vigja nýjan
kirkjusal. Vigsluvottar verða
forsætisráðherra, dómprófastur
og tveir Sóknarprestar, en ann-
ar þeirra, sr. Ragnar Fjalar
Lárusson, þjónar fyrir altari
með biskupi. Auk orgelleiks
verður strengjasveit frá Tón-
listarskólanum i Reykjavik með
tónlist i kirkjunni.
Strax eftir hádegi verður að
nýju tekið til við að minnast sr.
Hallgrims Péturssonar. Jón
Hnefill Aðalsteinsson ræðir þá
viö þrjá valinkunna menn um
sálmaskáldið. Þessi upptaka
var gerð áriö 1970, en einn við-
mælenda Jóns Hnefils i þessum
þætti er dr. Sigurður Nordal
heitinn.
Aö loknum fréttalestri i út-
varpi annað kvöld les svo
Andrés Kristjánsson útvarps-
stjóri ljóð Matthiasar Jochums-
sonar um sr. Hallgrim, „Atburð
sé ég anda minum nær.” Þá les
Gunnar Stefánsson dagskrár-
stjóri úr kvæðum og sálmum
Hallgrims.
Myndin, sem sjónvarpið sýn-
ir, er gerö eftir handritum
Jökuls Jakobssonar og Sigurðar
Sverris Pálssonar. Rekur
myndin æviferil sr. Hallgrims á
þann hátt, að leiðsögumaður
sést visa hópi ferðafólks um
helztu söguslóðir skáldsins. Inn
á milli er fléttað leiknum atrið-
um úr lifi sr. Hallgrfms og fer
Jón Jóel Einarsson með hlut-
verk hans.
—ÞJM
Sjónvarp sunnudag kl. 21,50:
Þótturinn, sem
endurvakti vin-
sœldir Júlíu...
Julie Andrews, sem þekkt er
jafnt hér sem annars staöar fyr-
ir leik sinn og söng f myndum
eins og t.d. „Sound of Music”,
„Camelot” og „Mary Poppins”,
hafði haft lftið að starfa um
nokkuð iangt skeiö og var nán-
ast að falla i gleymsku, þegar
henni var boðið að stýra sjón-
varpsþáttum I Bandarikjunum.
Þættirnir náöu vinsældum og
nafn Julie Andrews náði fyrri
stærð sinni á skömmum tima.
íslenzka sjónvarpið hefur
keypt nokkra þessara þátta til
sýninga og verður sá fyrsti á
dagskrá annað kvöld. 1 þessum
þáttum er söngur og dans helzta
skemmtiefnið og Julie Andrews
þá mest á skerminum, en hún er
þó ekki alveg ein, hún fær að
jafnaði tvo góða gesti i hverjum
þætti.
I þessum fyrsta tekur hún á
móti góðri eftirhermu og svo
einnig söngkonu, sem söng meö
henni i söngleiknum „Boy-
friend” á Broadway. Lögin, sem
Julie syngur sjálf að þessu
sinni, eru flest úr kvikmyndun-
um þrem, sem getiö er um i
upphafi. Næsti þáttur verður
þins vegar allur helgaður Walt
Disney og söngvamyndum
hans, en þar hefur Julie sjálf
komið allverulega viö sögu.
—ÞJM
Útvarp laugardag kl. 16,40:
Rödd Magnúsar
aftur í útvarpi
Magnús Bjarnfreðsson fer af
stað með nýjan þátt i útvarpinu
i dag. Er það þáttur með dag-
skrárkynningum, en hann er að
þvi leytinu tii ólikur fyrri þátt-
um af þvi taginu, að nú er einnig
tekin til meðferðar dagskrá
sjónvarps.
Og Magnús Bjarnfreðsson er
sá rétti til að annast umsjón
þáttar þar sem þarf að gera
bæði útvarpi og sjónvarpi jöfn
skil. Magnús hefur nefnilega
ekki minni starfsreynslu i út-
varpi en sjónvarpi.
Það var einmitt i útvarpi, sem
Magnús hóf feril sinn i fjölmiðl-
um. Hann var þá þulur og náði
strax vinsældum i þvi starfi. Af
útvarpinu hvarf hann til að rit-
stýra Frjálsri þjóö. Þaðan fór
hann svo i blaðamennsku við
dagblaöið Timann og siðar
vikublaðið Fálkann.
Um siöir hóf hann störf við út-
varpið að nýju, en þar hafði
hann ekki verið lengi þegar
sjónvarpið tók til starfa og hann
var ráðinn þangað á fréttadeild.
Og nú er hann sum sé aftur
byrjaður i útvarpi, jafnhliða
störfum við áætlanagerð hjá
sjónvarpi.
—ÞJM
ÚTVARP #
Laugardagur
26.október
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttir. Jón Ásgeirsson
sér um þáttinn.
14.00 Háskólahátiðin 1974: Út-
varp frá Háskóabió. a.
Háskólakórinn syngur
nokkur lög: Rut Magnússon
stj. b. Afhending prófskir-
teina til brautskráðra
kandidata. c. Háskólarekt-
or, Guðlaugur Þorvaldsson
prófessor, flytur yfirlits-
ræðu.d. Forseti heimspeki-
deildar, Sigurjón Björnsson
prófessor, lýsir kjöri
tveggja heiðursdoktora. e.
Rektor ávarpar nýstúdenta.
15.30 Stúdentalög a. Cornelis
Vreeswijk syngur söngva
eftir Bellmann. b. Serner
Muller og hljómsveit hans
leika.
16.00 Fréttir
16.15 tslenskt mál Dr. Jakob
Benediktsson talar.
16.40 Vikan framundan
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrár útvarps og
sjónvarps.
17.30 Sögulestur fyrir börn og
unglingaGunnar Stefánsson
les söguna „Þórð þögla”
eftir Sigurbjörn Sveinsson.
18.00 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vetrarvaka.
21.20 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Dans-
skemmtun útvarpsins i
vetrarbyrjun Auk danslaga-
flutnings af plötum leikur
dixilandhljómsveit Árna Is-
leifssonar i hálfa klukku-
stund. (23.55 Fréttir i Stuttu
máli. 01.00 Veðurfregnir.)
02.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
27. október
8.00 Morgunandakt Séra
Pétur Sigurgeirsson flytur
ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög. Lou
Whiteson og hljómsveit
hans leika.
9.00 F"réttir. Útdráttur úr
forystugreinum dag-
blaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Svita i D-
dúr fyrir selló og strengja-
sveit eftir Telemann. Juraj
Alexander og Kammersveit
Slóvakiu leika: Bohdan
Warchal stj. b. Kvartett i
Es-dúr fyrir blásturshljóð-
færi eftir Stamitz. Félagar i
Eichenhorn kvintettinum
leika. c. Oktett i E-dúr op. 32
eftir Spohr. Vinaroktettinn
leikur. d. Sónata nr. 1 i fis-
moll op. 11 eftir Schumann.
Maurizio Pollini leikur á
pianó.
11.00 Kirkjuvigsluguös-
þjónusta i Hallgrimskirkju
á 300. ártið séra Hallgrims
Péturssonar. Biskup
tslands herra Sigurbjörn
Einarsson, prédikar og
vigir nýjan kirkjusal.
Vigsluvottar: Geir Hall-
grimssón forsætisráðherra,
séra Óskar J. Þorláksson
dómprófastur og sóknar-
prestarnir dr. Jakob
Jónsson og séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Hinn
siðastnefndi þjónar fyrir
altari með biskupi. Organ-
leikari: Páll Halldórsson.
Einnig leikur strengjasveit
frá Tónlistarskólanum I
Reykjavik.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.10 Hailgrimur Pétursson og
Passiusálmarnir Jón
Hnefill Aöalsteinsson fil. lic.
ræðir viö dr. Sigurð Nordal,
herra Sigurbjörn Einarsson
biskup og Arna Björnsson
cand. mag. — Aður
útvarpað i des. 1970 —
14.00 A listabrautinni Jón B.
Gunnlaugsson kynnir
listafólk.
14.40 Óperukynning: „Don
Pasquale” eftir Donizetti.
Flytjendur: Fernando
Corena, Juan Oncina,
Graziella Sciutti, Tom
Krause, kór og hljómsveit
Vinaróperunnar. Stjórn-
andi: Istvan Kertesz. Guð-
mundur Jónsson kynnir.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 „Vonir” saga eftir
Einar H. Kvaran Ævar R.
Kvaran leikari les söguna
og gerir grein fyrir ritun
hennar. Með þessum lestri
lýkur Ævar þáttum sinum
frá Islendingum i Vestur-
heimi, en þar samdi Einar
H. Kvaran söguna, sem
einnig gerist vestanhafs.
17.20 Tónleikar: Danshljóm-
sveit austurriska útvarpsins
leikur.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim”
18.00 Stundarkorn meö ung-
verska planóleikaranum
Andor Foldes.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Atburö sé ég anda
minum nær” Andrés
Björnsson útvarpsstjóri les
ljóð ■ Matthiasar Jochums-
sonar um Hallgrim
Pétursson, kveðið á ártiö
hans fyrir hundrað árum, og
flutt verður lag Askels
Snorrasonar við ljóðið.
Einnig les Gunnar
Stefánsson dagskrárstjóri
úr kvæðum og sálmum
Hallgrims.
19.50 Sinfóniuhljómsveit
islands leikur Stjórnandi:
Páll Pampichler Pálsson. a.
Lýrisk svita eftir Pál
ísólfsson. b. „Hugleiöingar
um islenzk þjóðlög” eftir
Franz Mixa.
20.15 Frá þjóöhátiö Múlaþings
að Eiöum 6. og 7. júli.
Formaður þjóðhátiðar-
nefndar, Jónas Pétursson
fyrrum alþingismaður setur
hátiðina'. Jóhannes Stefáns-
son framkvæmdastjóri i
Neskaupstað flytur hátiðar-
ræðu. Lúðrasveitin
Þröstur leikur og blandaðir
kórar úr héraðinu syngja.
Stjórnandi: Magnús
Magnússon. Ljóð eftir aust-
firzk skáld flytja Jónbjörg
Eyjóífsdóttir, Armann Hall-
dórsson, Magnús Stefánsson
og Elin óskarsdóttir.
Kynnir Birgir Stefánsson.
21.30 Leiklistarþáttur i umsjá
örnólfs Arnasonar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskráriok.
NAGLABYSSUR
MEÐ HLJÖÐDEYFI
JCX KKISLIAK S. jjjjjjjgM
Dugguvogi 2 Reykjavik simi84lll Pbstholf1046