Vísir - 28.10.1974, Side 6
Vfsir. Mánudagur 28. oktéber 1874.
£
VÍSIR
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
y Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Sfðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Vörumst víti Breta
Það væri misráðið af launþegasamtökunum að
stofna nú til vinnudeilna. Við vitum, að við höfum
lifað um efni fram. Við höfum yfirdregið á
reikningnum, og þann mismun þarf að greiða.
Um það voru stjórnmálaflokkarnir á einu máli i
haust.
Rikisstjórnin hefur tekið eins vægt á málum og
framast er unnt. Gengislækkunin var óhjá-
kvæmileg til að bjarga útflutningsatvinnuvegun-
um, sem voru á heljarþröm. Við hana varð af-
koma útflutningsiðnaðarins yfirleitt bærileg, þótt
enn sé tvisýnt i sumum greinum sjávarútvegs.
Við komumst ekki hjá þvi að bera byrðarnar af
hækkun verðlags, sem af henni stafar.
Aðrar helztu orsakir verðhækkana hér á landi
eru láglaunabætur, sem voru eðlilegar og sjálf-
sagðar, bensinhækkun og verðhækkanir erlendis,
sem við ráðum ekki við, og hækkun söluskatts,
sem var óhjákvæmileg vegna slæmrar stöðu
rikissjóðs. Ef við litum á tillögur stjórnmála-
flokkanna til lausnar vandans, sem fram hafa
komið siðan i vor, kemur i ljós, að þeir hafa allir
verið nokkuð sammála um aðgerðir af þessu tagi.
Vinstri stjórnin lagði til fyrir kosningarnar, að
launahækkanir skyldu skornar niður i 20 prósent
og launþegar með miðlungstekjur og hærri
skyldu greiða skyldusparnað, auk afnáms visi-
töluuppbóta. 1 þeim aðgerðum hefði falizt miklu
meiri kjaraskerðing er núverandi rikisstjórn hef-
ur gengizt fyrir. í viðræðum eftir kosningarnar
um myndun nýrrar vinstri stjórnar samþykktu
allir flokkarnir, að kjaraskerðing af þeirri
stærðargráðu, sem nú er orðin eða meiri væri
óhjákvæmileg. Alþýðubandalagið kom til dæmis
fram með tillögur um nokkru meiri skerðingu
launa en núverandi rikisstjórn hefur staðið að.
Þvi fer og fjarri, að efnahagsvandinn hafi verið
leystur með aðgerðum rikisstjórnarinnar til
þessa. Við striðum enn við mikinn viðskiptahalla.
Staða rikissjóðs er ekki góð og atvinnuvegirnir
standa illa, margir hverjir. Við vissum fyrir, að
við yrðum um hrið að nema staðar i lifskjarasókn
okkar og greiða fallna vixilinn okkar. Rikis-
stjórnin hefur farið hægt i sakirnar. Við þurfum
að æja ögn. Þegar liður á veturinn á að draga úr
verðbólgunni. Með viturlegum fjárlögum, þar
sem rikisútgjöldum yrði i hóf stillt, væri unnt að
skapa jafnvægi, sem illa hefur skort á undanförn-
um árum. Hægfara aðgerðir rikisstjórnarinnar
stefna að þvi að treysta að nýju stoðir efnahags-
ins, svo að hefja megi hið fyrsta nýja sókn með
bættum lifskjörum, en litið má út af bera.
Við getum lært af nágrannaþjóð okkar, Bret-
um, hvernig ekki á að standa að málum. Þar hef-
ur ábyrgðarlitil verkalýðsforysta valdið miklu
um upplausn i efnahags- og atvinnumálum. Har-
old Wilson segir nú, að lifskjör á Bretlandi geti
ekki batnað i næstu tvö ár eða fleiri, meðan verið
sé að koma á jafnvægi.
Slikt viti verðum við að varast. Það er ekki
unnt að taka meira en til er.
HH.
BREZKUR FLUG-
VÉLAIÐNAÐUR
AÐ GEFAST UPP?
Það er sennilega i
fyrsta sinn i sögu flugs-
ins á Bretlandseyjum,
en núna horfa Bretar
fram á, að þeir hafa
enga meiriháttar flugvél
i smiðum i bráð.
Þegar Hawker Siddeley Avia-
tion létu hætta viö hönnun H.S.
146-þotunnar, sem nota átti til
flutninga á skemmri Ieiðum, var
tekiö fyrir framlag Breta til
flugsins f bili. Verðbólgan olli þvi.
Eina umtalsverða flugtækið,
sem Bretar vinna að um þessar
mundir, er yfirhljóðfráa Con-
corde-þotan, en hana smiða þeir
lika I félagi við Frakka. — Jú,
eina hafa þeir i smiðum þar fyrir
utan. Það er 30 sæta flugvél með
túrbinuhreyfli, sem kölluð er SD3-
30. Hana smiða Short-bræður og
Harland. — Þá er það lika
upptalið, nema þá að væri
eitthvað á vegum flughersins.
Þetta er búið að eiga langan að-
draganda og kom engum á óvart,
sem fylgzt hefur með flugtækni og
flugvélasmiði. Allt frá lokum sið-
ari heimsstyrjaldar hefur brezk-
ur flugvélaiðnaður smám saman
veriö að lúta i lægra haldi i von-
lausri samkeppni sinni við hinn
öfluga flugvélaiðnað Bandarikja-
manna.
Timamótin voru á sjötta tug
aldarinnar, þegar De Hafilland
Comet leit dagsins ljós, en það
var fyrsta þotan, sem tekin var i
þágu farþegaflugs. Cometinn
flutti farþega i heilt ár, áður en
fyrstu Boeing 707 var ekið út úr
flugskýli. En árið 1954 urðu tvö
hræöileg flugslys vegna ófyrir-
sjáanlegra afleiðinga þreytu frá
þotufluginu.
Það tók um fjögur ár að finna
lausn vandans, svo að Cometinn
gæti byrjað farþegaflug að nýju.
En á meöan hafði Boeing þróað
707-vél sina svo að hún hafði
meira flugþol og burðarþol.
Þótt Cometinn gæti troðið sér
inn flugleiðina yfir Norður-At-
lantshaf 1959, rétt i tæka tið til
þess að verða fyrsta
farþegaþotan á þeirri leið, þá
náði Boeing 707 fljótlega öllum
yfirráðum á þeirri leið. Cometin-
um voru falin veigaminni hlut-
verk og aðeins einn Comet seldist
á móti hverjum tiu 707.
Helzti sigur Breta á þessum ár-
um i samkeppninni um fram-
leiðslu flugvéla var túrbinuhreyf-
ilsvélin, Vickers Viscount. Vegna
forskots sins á túrbinusviðinu
komst Viscountinn inn á innan-
landsmarkað i Bandarikjunum,
sem er afar mikilvægt hverri
fjöldaframleiðslu á flugvélum.
En strax og þoturnar fóru að
ryðja sér til rúms, hvarf
Viscountinn af sjónarsviðinu, þótt
Flugfélagið hafi lengi vel notað
tvær til flugs til Evrópu.
Sigurför Boeing 707 og Douglas
DC-8, sem fyrsta kynslóð þotunn-
Hawker Harrier lóðfleyga herþotan, sem Hawker Siddeley hefur fram-
leitt.
Illlllllllll
m
UMSJÓN: G. P.
ItollsRoyce — flugvélahreyfla
framleiðendurnir byggja framtlð
sfna á RB-211 hreyflinum fyrir
Jumbo 747, sem hér sést á myndinni.
Hawker Siddeley er aðili að smlði A-300 flugstrætósins, en hér eru
vængirnir fyrir þann grip að koma með Super Guppy til Toulouse I
Frakklandi frá Hawker-verksmiðjunum.
gert ráð fyrir, að vélin kostaði
rétt rúma eina milljón sterlings-
punda, þegar hún yrði tilbúin til
afhendingar sem átti að vera á
árinu 1977.— En nú er þvi spáð,
að H.S. 146 mundi ekki kosta
minna en fjórar milljónir sterl-
ingspunda. Það þýðir nánast, að
hún yrði ekki samkeppnisfær við
Fokker F-28-þotur eða VFW 614,
sem báðar eru komnar langt
i smiði.
Um nokkurra mánaða skeið
hefur framkvæmdastjórn
Hawkers reynt að þrýsta á brezku
stjórnina að auka fjárframlög sin
til H.S. 146-smiðinnar.
Eftir að starfslið Hawker-verk-
smiðjanna hefur haft i hótunum,
liggur brezka stjórnin undir
þrýstingi stéttarfélaga til að
hósta upp með meiru en þeim 46
milljónum sterlingspunda, sem
upphafi hafði verið gerð ráð fyrir
i fjárlögum. En hún hefur verið
svifasein að draga upp budduna
og bólar ekkert á frekari
framlögum.
B..A.C. og Hawker Siddeley
eiga enn töluverð itök I herflug-
vélaframleiðslunni, þar sem eru
Harrier lóðfleyga herþotan frá
Hawker og hlutur B.A.C. i ensk-
frönsku Jagúar-orrustuþotunni.
— v A sviði flugvélahreyfla
framleiðir Rolls Royce jafnt og
þétt fyrir hergagnaiðnaðinn. En
framtið þeirra hvilir að miklu
leyti á RB-211 hreyflinum, sem
nota skal i Boeing 747 og hina
langfleygu Tristar.
Hjáleiga þessa iðnaðar — loft-
siglingartækin — blómstra
hinsvegar hjá Bretum, sem
framleiða mikið af alls konar
hjálpartækjum. Hlutur þessa
þáttar flugvélaiðnaðarins vex
með hverju árinu og eiga Bretar
þar góða samkeppnisaðstöðu.
En þegar kemur til framleiðslu
á heilli flugvél þá virðast Bretar
eiga sér þá einu von að fá að vera
i samfloti með öðrum.
ar, varð til þess að þær tegundir
náðu svo föstum tökum á flug-
vélamarkaðnum, að evrópskar
flugvélaverksmiðjur hafa vart
þurft að reyna að keppa þar við.
Þó reyndi brezk flugvélaiðja að
komast inn á markaðinn, þegar
önnur þotukynslóðin kom i
gagnið. Beitti hún fyrir sig
tveggja hreyfla B.A.C. 1-11. En
DC-9 var þá rétt nýkomin i
gagnið. Þótt B.A.C. næði þvi að
verða framleidd i 210 eintökum og
seld jafnvel bandariskum
flugfélögum, þá seldist DC-9 i
fjórfalt meira upplagi.
Svipaða sögu var að segja af
Trident þeirra hjá Hawker Sidde-
ley, sem tókst ekki að hasla sér
völl utan brezks markaöar, þar til
Kina öllum að óvörum gerði
pöntun i tuttugu vélar 1972.
En á heimsmarkaðnum hvarf
Tridentinn i skuggann af ame-
risku systur sinni, Boeing 727.
Seldust rúmlega þúsund 727, sem
gerir hana að beztseldu flugvél-
inni frá lokum seinni heim-
styrjaldar — nema ef vera kynnu
einhverjar herflugvélar.
Brezka stjórnin tók þátt i
kostnaðinum af hönnun og smiði
H.S. 146. Greiddi rikissjóður
Breta helming. H.S. 146 átti að
vera ódýr vél, fyrir innanlands-
flug eða ámóta flugleiðir. Hún átti
að koma i staðinn fyrir túrbinu-
vélarnar.
Þegar hafizt var handa við
þessa áætlun i ágúst 1973, þá var