Vísir - 28.10.1974, Side 8
8
Visir. Mánudagur 28. október 1974.
Verðþróun á
loðnumjölsmörkuðum
Verö á islenzkum sjávarafurð-
um hefur jafnan verið óstöðugt og
er verð á fiskmjöli þar engin
undantekning, siður en svo.
Verösveiflur á loðnumjöli og
loðnulýsi urðu með eindæmum
miklar á árunum 1972 og 1973.
Á þessu ári (1974) fór verðið
lækkandi á ioðnumjöli alit frá
ársbyrjun. Margir vildu halda
dauðahaldi i verðið, eins og það
hafði verið hæst á árinu 1973. Sá
misskilningur varð rikjandi, að
islenzkir framleiðendur og yfir-
völd hér á landi gætu selt mjölið á
kostnaðarverði eða þvi verði, sem
þeir ákvæðu sjálfir, án tillits til
markaðsverðs erlendis.
Á erlendum mörkuðum er, að
sjálfsögðu, við að etja samkeppni
frá mörgum aðilum, sem bjóða
fram hliöstæöa vöru á markaðs-
verði.
Verðiö á fiskimjöli hafði náð
hámarki um US$ 10,2 fyrir
proteiningunu i tonni tvisvar á
árinu 1973 I um það bil einn og
hálfan mánuð I hvort sinn.
1 seinna skiptið stafaði
hækkunin af oliukreppunni og
algeru veiðibanni i Perú fram i
marz 1974.
Þess hafði veriö vænzt, að
Pólverjar yrðu aðalkaupendur
loðnumjöls frá Islandi, sem
framleitt myndi verða á
loðnuvertiðinni 1974, eins og þeir
höfðu verið á árinu 1973 Þetta fór
þó á annan veg.
Pólverjar skáru niður áætlun
um innflutning til landsins á fisk-
mjöli á árinu 1974 úr 300 þúsund
tonnum niður i 160 þúsund tonn.
Taliö var að þessi niðurskurður
væri gerður vegna gjaldeyris-
skorts og ástandsins innanlands i
Póllandi.
Þrátt fyrir minnkandi kaup á
fiskmjöli, buðust Pólverjar til
þess að kaupa allt það loðnumjöl,
sem Islendingar vildu selja þeim
af framleiðslu ársins 1974.
Minna varö úr kaupunum en
efni stóðu til. Leiddi það til stór-
tjóns fyrir Islenzka framleiðend-
ur loönumjöls og landiö i heild.
Astæðurnar fyrir þvi að svo illa
tókst til eru raktar siðar i þessari
grein.
Kemur Höröur Guðmundsson
Albertssonar þar mjög viö sögu,
svo sem siðar mun sagt verða og
tilgreind hans eigin orð þvi til
sönnunar.
I siðari hluta nóvember 1973
virtust Pólverjar vilja greiða fyr-
ir proteinein i nguna I loðnumjöls-
tonni US$ 10,20. Var komu þeirra
vænzt til Islands i lok nóvember
eöa byrjun desember. En pólska
sendinefndin kom ekki til Islands
fyrr en i byrjun janúar 1974. Var
þá komið annað hljóð I strokkinn,
þvi að þá vildu þeir ekki greiöa
hærra verð en US 6,50-7,50 fyrir
proteineininguna I tonni, mis-
munandi eftir afhendingartima.
Misráðin verðlagning
Viö ákvöröun yfirnefndar
Verðlagsráðs sjávarútvegsins
hinn 20. jan. 1974 áætlaði nefndin
hins vegar að fyrir loðnumjölið
myndi fást ÚS$ 9.50 fyrir
proteineiningu i tonni og sala á
25.000 tonnum loðnumjöls myndi
takast til Póllands á þvi veröi.
Var verðið á loðnu til bræðslu
miðað við þetta háa verð á
mjölinu fram til 20. febrúar 1974,
þótt komið væri I ljós, að
Pólverjar höfðu reynzt ófáanlegir
til að greiða meira fyrir mjölið
en US$ 6,50-7.50, eins og áður er
getiö.
Þaö fer ekki á milli mála, að
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins urðu á alvarleg mistök,
þegar hún ákvað hinn 20. jan. 1974
að loðnuverð til bræöslu skyldi
allt fram til 20. febrúar miðað við,
að US$ 9,50 fengjust fyrir protein-
eininguna i tonni. A þeim grund-
velli var loðnuverðið til skipta
ákveöið kr. 3,75 fyrir kg., allt
fram til 20. febrúar, þótt eðlilegra
hefði verið að ákveða verðið i
byrjun til janúarloka.
Þessi ákvörðun og slðari
verðákvaröanir nefndarinnar á
loönuverðinu á vertiöinni virtust
gerðar meira af óskhyggju en
raunsæi og höföu mikii áhrif til
hækkunar kaupgjalds og verölags
i landinu.
Svo fór, að loðnuveiðin varð
mest á þessu fyrsta verðtimabili.
öfugt við það, sem búizt hafði ver-
iö viö eftir reynslu fyrri ára.
Þegar loks tókst sala til Pól-
lands á elleftu stundu, greiddu
þeir US$ 6,50 fyrir proteineiningu
I tonni cost and freight.
Síðar lækkaði verðið á fiski-
mjöli allt niður i US$ 3,80, en fyrri
hluta ársins 1972 hafði það verið
enn lægra, eða aöeins 1,00 til 1,10
pund, þ.e. USS$ 2,,33 til 2,50
proteineiningin i tonni.
Á þessu ári hefur loðnumjöl frá
tslandi þó ekki verið selt á lægra
veröi en US$ 4,30 proteineiningin
c.i.f.
Afleiðingarnar uröu þær, að á
met-loðnuvertiö uröu verk-
smiöjurnar I heild fyrir mörg
hundruö milljóna króna tapi og
sumar þeirra berjast við gjald-
þrot.
Meöal vanskilaskulda hjá sum-
um verksmiöjanna eru um 60
milljónir króna, sem ógreiddar
eru fyrir loönu til útgerðarmanna
og útgeröarfélaga, en þeir hafa
sumir hverjir ekki getaö greitt
skipverjum aö fullu aflahlut af
þessum sökum.
Harðar þáttur
Guðmundssonar
Albertssonar
Þegar fiskmjölsverðið var farið
að lækka á erlendum mörkuðum
eins og áþreifanlega kom I ljós I
ársbyrjun 1974, voru skiptar
skoðanir um það, hvort fram-
leiðendur fiskmjöls ættu að sætta
sig við hið ört lækkandi verð eða
blða átékta.
Höröur var allra manna bjart-
sýnastur um þaö, aö verö á loönu-
mjöli myndi hækka en ekki lækka.
Sveinn Benediktsson
Lét hann þessa skoöun slna I Ijós I
mörgum dreifibréfum og eigi
siöur I viötölum.
í dreifibréfi frá 1. marz 1974
segir hann ma.:
„Orð hefur verið haft á, um
markaðsbréf okkar, að ánægju-
legt væri að finna þá miklu
„bjartsýni”, sem þar kæmi fram
um mjölmarkaði okkar nú i
nánustuframtið. Þá kom og fram
I einu blaði Reykjavikur, vægt
sagt hvassyrt ásökunargrein um
meðferð sölu á mjöli og lýsi.
Undirritaöur vill gjöra þá at-
hugasemd við hið fyrra, að frem-
ur en orðið „bjartsýni”, eigi hér
við orðið „raunsæi”. Eða tilraun
tilaðfinna raunsæi úr ölium þeim
meginatriðum, sem hljóta að
byggja upp áhrifavald I markaðs-
sveiflum. Svo og að greina
timamörk þeirra.....
...„Hin timabundna veiði og
framleiðsla aðalm jölmagns
okkar, úr loðnunni, svo og
„tekknisk” óvissuatriði vegna
framleiðslu, sem hafa þarf sem
fyrirvara I fyrirframsölum,
gjörir okkar söluaðstöðu verri en
flestra annarra mjölseljenda, og
hættir til aö „slita keðjuna” I söl-
um okkar á timabilinu ca. ágúst/-
janúar ár hvert. Sérstaklega er
þetta þó áþreifanlegt þegar
verðsveiflur eru miklar. Þvi að
vl meiri, sem sveiflurnar eru,
vl meiri er yfirleitt tilhneiging
kaupenda til að spyrna við fótum,
og þá verða atriði eins og
veiöifyrirvari að stóratriði, þó
það I eðlilegum og rólegum
markað teljist tiltölulega eðlilegt
smáatriði.
Af þessum ástæðum, aðallega,
er okkur svo mikil nauðsyn á tim-
um eins og rikt hafa á mjöl-
mörkuðum okkar slðan I ca. ágúst
s.l., að gjöra okkur grein fyrir
áhrifavaldi og siöan grundvelli
markaössveiflanna, þ.e. hverjar
séu likur fyrir framgangi
tilbúinnar sveiflu, eins og t.d.
lækkun „markaðsverðs mjöls”,
sem verið hefur rikjandi siðan ca.
25. janúar s.l. Ahrifavald
lækkunar er búið að sýna sig nú 1
rúman mánuð. En nú er hinn
sanni grundvöllur að ná aftur
yfirhöndinni, þ.e. mjöl er nú ört
hækkandi vegna þess, að hið
tilbúna áhrifavald lækkunar fær
ekki staðizt. Hinar raunhæfu
kringumstæður fyrirsjáanlegrar
raunverulegrar vöntunar á Fisk
roteini eru nú að veröa ráðandi.
purningin er nú aðeins, hversu
langt upp markaðurinn fer.”
í dreifibréfi hans frá 8. marz
1974 segir m.a.:
„Verð á mjöli hefur haldið
áfram að styrkjast, og er ekki
ástæða til að ætla annað en svo
fari fram, sem nefnt var i siðasta
bréfi.”
tbréfiHarðarfrá 28. marz 1974
segir m.a.:
„Að gefnu tilefni vill undir-
ritaður geta þess, að I þau skipti,
sem hér hafa undanfarið verið
ræddar verðbreytingar til þess
ætlað að nálgast hugsanlega
kaupendur, þá höfum við EKKI
verið þvi mótfallnir. Rétt er hins-
vegar, að við höfum eindregið
verið á móti þvi að sinna þvi
furöulega og óraunhæflega lága
verði, sem nokkrir aðilar hafa
látiö hafa sig I að hlusta á og eyða
tima annarra i að ræöa. Ástæður
okkar fyrir þeirri afstööu eru:
1. Ef menn nenna að leita stað-
reynda og beita siðan einhverri
hugsun, ætti hverjum öðrum en
þeim, sem kvarnir hafa I höfðinu,
að vera Ijóst, að ALDREI slðast-
iiðna tvo mánuði hefur verið
raunhæfur grundvöllur að meta
fiskmjöl að verðgildi undir U.S.$
7.50 á einingu. Og enn ekki sjáan-
leg raunveruleg ástæða til að
selja undir US$ 8.00 per einingu.
2. Hráefnisverð fyrir fyrsta
verðtlmabil var sett svo óeðlilega
hátt, og verksmiðjurnar látnar
hafa alla áhættuna af
verðbreytingum. Þetta er hér
sagt með það I huga, að menn
áætluðu að framleiða 70-80
þúsund tonn af mjöli, en verðiö
sett á grunni þess verðs, sem selzt
höfðu aðeins tæp 20 þúsund tonn.
Þegar við bætist öll sú hækkun i
framleiðslu og flutningskostnaði,
sem varð 1. marz, hlýtur hverjum
ábyrgum manni að vera ljóst, að
stutt sé i þá staðreynd, að verk-
smiðjurnar horfist I augu við
hugsanlegt gjaldþrot. Það er ekki
á færi annarra en kannski þeirra
sem riki geta talist I rlkinu, að
selja framleidda vöru ódýrara en
hún er keypt/ og/eða framleidd,
og geta vænr* þess að halda
áfram eins og ekkert hafi i
skorizt. — Framleiðendur hafa
verið settir i núverandi aðstöðu.
ög þeir eiga um tvennt að velja,
annaö hvort aö selja á þvi af-
sláttarverði, sem einhverjir
þeirra hafa sýnt hug á aö sinna,
og væntanlega siðan að pakka
saman flestir. Eða taka ábyrga,
réttlætanlega og eðlilega afstöðu
(áhættu?) til ástandsins, og
þeirra möguleika, sem ætla má
að markaðir skapi þeim, til að sjá
fótum sinum forráð. Það hefur
ennþá ENGINN TAPAÐ NEINU,
sbr. núverandi verð, srb. línurit.
Vextir koma enn ekki inn i
dæmið, þvi hartnær ómögulegt
hefur verið að fá skip til
flutnings, jafnvel fyrir áður selt
mjöl.
Endurtekið skal hér, að i bréf-
um okkar er og hef ur verið leitazt
við að benda á staðreyndir. Rétt
er, að lögð hefur verið áherzla á
að benda á atriði þau, sem til
þess gætu verið fallin að styðja
hag framleiðanda. Ljóst má þó
öllum vera, að HVERGE (sic)
hefur verið dregin fjöður yfir
þann möguleika hinna veikjandi
áhrifa. Enda vart ástæða til,
þegar þau einmitt á sama tima
eru rlkjandi.
„Þeir hinir sömu, sem hér reyna
að „blammera” „bjartsýni” okk-
ar, fletta með framkomu sinni
ofan af eigin ábyrgðarleysi, skort
á raunsýni, og áberandi tilhneyg
ingu til að velta allri ábyrgð af
eigin herðum yfir á aðra,
væntanlega af þvi þeir hvorki
kunna né geta bctur.”
„t Ijósi þess er að ofan greinir,
er erfitt að gjöra sér grein fyrir
ástæðum til aö hefja sölur nú
undir U.S. dollar: 8.00-8.10, eink-
anlega þar sem nú fer i hönd sá
tlmi (april/júni), sem kjúklingar
og smá grisir eru að koma i fóðr-
un i helztu markaðslöndum okkar
hér I Norðurálfu.
Aður héfur veriö tæpt á þvi, að
hvergi séu raunverulega til
óseldar birgðir fiskimjöls nema
hér á tslandi. Það mætti i fullri
alvöru hreyfa þvi, að eins og er,
virki tsland eins og birgða-
skemma fyrir þurfandi, ódekkaða
neytendur fiskmjöls i Norður-
evrópu. Neytendur vita af
magninu óseldu, og álita réttlæt-
anlega áhættu að bíða. Þegar
sölur fara að verulegu marki i
gang, er ekki ómögulegt, að
kaupendur komi fram með slik-
um hætti, að hækkunar mætti
vænta að verulegu leyti. Það
hefur fyrr sýnt sig, að ekkert
viröist ómögulegt I þessum
efnum.”
Dreifibréfum Harðar. fækkaði
eftir þvi sem markaöurinn féll
meira. Slðast kom eitt bréf
I mai. Slðan þagði kempan
þunnu hijóði, þegar með öllu hafði
tekið fyrir sölur á loðnumjöli frá
þvi I lok aprflmánaðar fram I
september 1974.
Þeir framleiðendur, sem tekið
höfðu ráðleggingum hins sjálf-
umglaða manns og ekki selt nema
hluta af loönumjölsframleiðslu
sinni meðan þess var kostur að ná
viðhlitandi verði, nöguðu sig i
handarbökin fyrir að hafa hlitt
ráðum um að selja ekki mjöl-
framleiðslu slna I tæka tlð I hinum
ört lækkandi markaði.
Er markaðshorfur á mjölinu
skánuðu og unnt reyndist að fá
kaupendur að liðlega heimingi
loönumjölsbirgðanna, sem þá
voru eftir, fyrir US dollar 4,30 til
5,10 taidi Höröur eftir 5 mánaða
þögn, aö spor hans frá þvi .1 vor
væru nægilega sandorpin til þess
aö vera gleymd og grafin.
Hóf hann slna fyrri iðju I
dreifibréfi dags. 12. okt. 1974.
Bréf þetta fékk hann birt I dag-
blaðinu VIsi hinn 19. okt. s.l.
Er ritsmlö þessi rituö I sama
anda og kóngar gáfu til kynna
visdóm sinn forðum daga, meðan
þeir voru og hétu:
„Vér einir vitum”.
Tilgangurinn með þessari
Harðar-ritsmlð virðist vart geta
verið annar en sá aö klóra yfir og
hylja hinar hrapallegu
ráöleggingar sinar á s.l. vorí til
framleiðenda loðnumjöls og
annars fiskmjöls.
Hörður fullyrðir, að tölur þær
um áætlaða framleiðslu Perú i
október/desember 1974 ”3-4 mill-
jónir tonna og 650/860 þúsund
tonn fiskmjöls” sé algjör heima-
tilbúningur minn.
I vor höfðu Perúmenn ákveöið
að veiða fram i malmánuð aðeins
1.000-1.500 þúsund tonn af
ansjóvetu, sem þeir siðan
hækkuðu upp I 2.380 þúsund tonn.
Úr þessum afla framleiddu þeir
547 þúsund tonn af mjöli.
Sjávarútvegsráðherra Perú
hefur á fundi Alþjóðasambands
fiskmjölsframleiðenda, sem er nú
haldinn I Lima, sagt að veiðikvót-
inn fyrir tlmabilið okt.-des. 1974
hafi verið ákveöinn allt aö 2.500
þúsund tonna. Um þessa yfir-
lýsingu ráðherrans farast „Oil
World” svo orð hinn 18. okt. 1974:
„Hin raunverulega spurning er
sú, hvort og að hve miklu leyti
muni verða farið fram úr þessum
kvóta.”
Að fengnum þessum
upplýsingum er það síður en svo
fjarstæöa að segja að rætist vonir
Perúmanna um veiði til mjöl- og
lýsisframleiðslu, þá kunni veiðin I
haust að fara upp I 3-4 milljónir
tonna. Engin vetði til bræðslu var
á þessum tlma I fyrra hjá
Perúmönnum. Mjölframleiðslaii
á árinu 1973 nam aðeins 423.000
tonnum eða um 1/5 hluta þess,
sem hún hafði verið áður en
ofveiöin á ansjóvetunni kom fram
I ört minnkandi veiöi árin 1972 og
1973.
Línurit um söluverð
Perú’manna á fiskmjöli cif
Hamborg sanna litið um
raunverulegt verö, sökum þess,
að þeir hafa margsinnis selt
mjölið langt undir skráðu veröi til
þess að reyna að ná sölu á sem
mestu magni. Hversu hátt hið
raunverulega verð er, eða hverjir
séu sérskilmálar, kemur þá
stundum.ekki fram fyrr en löngu
slðar.
Það er illa farið með timann að
eltast við firrur Harðar. T.d. telur
hann það mjög vltavert af mér að
skýra frá birgðum af fiskmjöli I
landinu. Veit hann ekki, að öllúin
helztu erlendum innflytjendum á
fiskmjöli I Evrópu og einnig I
Amerlku er kunnugt um þessar
birgðir? Mun Hörður sjálfur hafa
lagt sig mjög fram um að kynna
hugsanlegum kaupendum birgðir
loðnumjöls og annars fiskmjöls.
Er það sjálfsagt mál I sambandi
við sölu.
Hörður rengir, að Haraldur
Haraldsson hjá Andra h/f fari
rétt með að Perúmenn hafi um
miðjan september s.l. selt mjöl á
US dollar 3,80 proteineininguna i
tonni cif. Slldarverksmiðjur rik-
isins fengu staðfest'hjá einum
kaupanda mjölsins i Þýzkalandi
aö þetta væri rétt með farið.
Þegar rætt er um hvort sala á
fiskmjöli eða öðrum varningi,
eignum eða hlutum, sé góð eða
léleg, verður að miða við þann
tlma, þegar salan fer fram, en
ekki allt aðra tíma, er aðstæður
kunnaað veia gjörbreyttar, en
slikur ruglingur kemur fram hjá
Herði.
S a m k v æ m t áskorun
fiskim jölsframleiðenda og
ákvörðun þáverandi sjávarút-
vegsráðherra, Lúðviks Jósefs-
sonar, voru þeir Þórhallur
Asgeirsson, ráðuneytisstjóri I
viðskiptaráðuneytinu og Gunnar
Petersen hjá firmanu Bernhard
Petersen, sendir til Pólands á
páskum 1974. Skyldu þeir gera úr-
slitatilraun um sölu á loðnumjöli
til Póllands, en óseldar birgðir af
þvi voru þá um 40 þúsund tonn.
Þegar til Póllands kom, skýrðu
Pólverjar frá þvi, að þeir hefðu
þá alveg nýlega keypt frá tveim
löndum samtals 17.500 tonn af
fiskmjöli á US dollar 6,38-6.46
proteineinunguna og vildu þvi
ekki greiða meira en US dollar
6,50 fyrir eininguna til íslenzkra
framleiðenda cost. and freight
pólska höfn. Buðust þeir til að
kaupa allar óseldar loðnu-
mjölsbirgðir landsins á þessu
verði. Þvl miður voru Pólverjum
ekki seld nema 17.100 tonn af
loðnumjöli upp i þetta tilboð og
leiddi það til þess aö selja varð
loðnumjölið á miklu lægra verði
siðar. AUt fimbulfamb Harðar
um þessa sölu er ein botnleysa frá
upphafi til enda.
Sendimen n i rnir fengu
almennar þakkir frá þeim mjöl-
framleiðendum, sem seldu, fyrir
aö hafa bjargað þcssum hluta
loðnumjölsins frá enn meira
verðhruni. Hinir, sem ekki seldu,
sátu eftir með sárt enni.
Loðnumjölsmarkaðirnir
kolféllu
„Hörður „skildi ekki fyrr en
skolliö hafði i tönnunum” og fisk-
mjölsmarkaðurinn var kolfallinn,
aö „raunsæi” það sem hann
gumaði af, hafði brugöizt. Þá
varð honúm fyrst fyrir að kenna
Perúmönnum ófarirnar:
I dreifibréfi slnu 29. april 1974
kveöur hann svo að orði:
„Með tiivlsan til fyrri bréfa,
fær nú sá orðrómur vaxandi fylgi,
að Perú ætli ennþá einu sinni að
verða uppvist að blekkingum.
Visvitandi eða af nauðþurft. Það
er nú fullyrt, að þeir ætli að setja"
veiðikvóta ársins I 4 milljónir
tonna i staö 3 milljóna, sem þýðir
2 milljónir fyrri hluta árs, (Þ.e.
ca. 400 þúsund tonn af mjöli I stað
áður áætlaðra ca. 300 þúsund).
Orðrómi þessum heyrðist fleygt
þegar i siðari hluta marz
mánaðar.”
„Um nýafstaðna sölu á Islenzku
loönumjöli til Póllands er það eitt
gott aö segja, og gott er að vita,
að óseldar birgðir hafa minnkað
að sama skapi. — Varla verður
séð mikið annað áunnið við að
selja islenzkt mjöl niður fyrir
Perúmjöl.”
Lok Harðar þáttar.
Þjóðarnauðsyn að
hagnýta loðnuna
Loönuveiðarnar og afurðir þær
sem úr loönunni fást, mjöl, lýsi
og fryst loðna til útflutnings og I-
beitu hafa tvö siðustu árin verið
ein helzta grein sjávarútvegsins.
OHukreppan hefur orðið loðnu-
veiðunum og vinnslu loðnunnar
þung i skauti.
Verðbólgan, innlend og erlend,
samfara margfaldri hækkun á
veröi ýmsra nauðsynja til starf-
semi sjávarútvegsins á sjó og i
landi og fiskiðnstöðva i landi,
hefur nú sligað fjölda fyrirtækja.
Þegar haft er I huga, aö loönan
mun vera nær eina fisktegundin
hér við land, sem fiskifræðingar
telja að vænta megi að gefi góða
veiði á komandi vertlð 1975 og
jafnframt haft i huga, að þegar
hefur verið lagt i glfurlegan
kostnað viö loðnuflotann,
veiöarfæri og annan útbúnað hans
og einnig i stofnkostnað og undir-
búning verksmiðjanna til mót-
töku og vinnslu aflans, er þjóðar-
nauðsyn að þessi auðsuppspretta
verði hagnýtt eftir þvi sem föng
leyfa. Allir ættu að vera sammála
um að stuðla að þvi að svo megi
verða. Sveinn Benediktsson
P.S. Ég hefi leyft mér að.láta
prenta með feitu letri nokkrar
linur i bréfum Harðar, en
tilvitnanir i bréfin eru innan
gæsalappa. s.B.
Þvœttingi um sölu
loðnumjöls svarað