Tíminn - 05.05.1966, Síða 2
FIMMTUDAGUR 5. maí 1966
2
TÍMINN
Véladeild SÍS Hafði um síðustu helgi sýningu á hinum ýmsu bílategundum sem hún hefur umboð fyrir.
Á sýninguni voru rúmlega tuttugu bílar af gerðunum Opel, Vauxhall, Chevrolet, Buick og Bedford.
Fjöldi manns skoðaði þessa bíla, enda voru beir girnilegir á að lita og margbreytilegir í útliti. Dýrasti
bíllinn, Chevrolet kostaði 540 þúsund krónur cn sá ódýrasti Vauxhall kostaði aðeins 150 þúsund.. Ákveð
ið hefur ver.ið, að Véladeildin hafi bílasýningu við byggingu Aðalstöðvarinnar í Keflavík á laugardag-
inn frá kl. 1 til 5 síðdegis, en síðar í þessum mánuði verða bílarnir sýndir í Stykkishólmi og í ðorgar-
nesi, og þar á eftir verða bilasýningar á Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík.
Frager held-
ur tónleika
FB—Reykjavík miðvikudag.
Bandaríski pianóleikarinn
Malcolm Frager er kominn
hingað til lands í annað sinn.
Mun hann halda tónleika í Þjóð
leikhúsinu mánudaginn 9. maí
kl. 20.30. Viðfangsefni Fragers
að þessu sinni eru Sónata í D
dúr K 311 ef'tir Mozart, Sónata
í h moll eftir Chopin og Mynd
ir á sýningu eftir Moussorgsky.
Aðgöngumiðar að tónleikunum
verða seldir í Þjóðleikhúsinu.
Fjárkláði stingur niður kollinum
IGÞ—Reykjavík, miðvikudag.
Vart hefur orðið við kláðamaur
í þrem til fjórum kindum á Hafra
felli II í Reykhólasveit á Barða-
strönd. Virðist ætla að ganga erf-
iðlega að ráða niðurlögum þessa
gamla vágests, því hann lætur á
sér kræla á ný, þegar farið er að
baða annað hvert ár í stað árlega
áður. Engin allsherjarböðun fjár
getur farið fram að Hafrafelli,
þar sem komið er að sauðburði.
Þegar reglum um fjárböðun var
breytt, var leitað áiits fjölda
manna um allt land. Voru allir
oddvitar landsins spurðir um álit
og var mikill meirihluti þeirra
meg því að taka upp böðun annað
hvort ár. Bæði v«r það álit manna
Framsóknarkonur í
Reykjavík
Hinn árlegi bazar kvenfélagsins
verður haldinn 8. maí. Þær kon
ur, sem gefa vilja muni góðfús
lega komi þeim tíl Rannveigar
Gunnarsdóttur Grenimel 13 og
Guðnýjar Laxdal Drápuhlíð 35,
og Sólveigar Eyjólfsdóttur Ásvaila
götu 67.
Bazarnefndin.
að tekizt hefði að útrýma maurn-
um við fjárskiptin og svo hitt, að
fjárböðun er hið versta verk. Þá
er á það að líta, að fjárböðun á
öllu landinu kostar ekki undir
fimm milljónum.
Vart varg við kláða í fé á fimm
bæjum í Svínavatnshreppi og var
allt fé baðað á þeim bæjum. Þá
varð einnig vart við kláðamaur í
fé fyrir sunnan Hafnarfjörð og
var það fé baðað.
Baðlyfin eru góð og örugg og
engin hætta á ferðum. Hins vegar
þykir mönnum sem maurinn sé
furðulega lifseigur, eins og hann
geti lifað og tímgazt í fjárhúsum,
þótt þeir á Tilraunastöðinni á
Keldum geti ekki haldið -lífinu í
honum lengur en í nokkrar vikur.
Þar er hann þó í höndum vísinda-
manna og fóstraður við beztu skil-
yrði.
Kosningahappdrættið
SKRIFSTOFA HAPPDRÆTTISINS ER Á HRINGBRAUT 30,
JARÐHÆÐ. SÍMAR 1-29-42 OG 1-60-66, OPIÐ FRÁ KL. NÍU
TIL TÓLF OG EITT TIL TÍU. VINSAMLEGA GERIÐ SKIL
SEM ALLRA FYRST.
Verzlið þið...
Verzlið þið landhelgi vorri,
virðingu fargið og sæmd.
Eitt sinn skal öll sú verzlun
ómerk sem Gissurar dæmd.
Fyllið þig loftið af flúor
flæðið þið eitri í sæ-
Einhver ykkar á Gróu,
ísleif og Hall í bæ.
Höggvin og brennd er bárust
brúðar og sona lík
Gissuri gæfan þótti
gerast umskiptarík.
Þeim verður einnig elli
ástvana, köld og grett
svissneskum Gullskó er seldu
sinn og annarra rétt.
Sigurður Jónsson frá Brún.
Hverfaskrifstofur
B-Hstans í Rvík
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30, sími 1-29-42.
Fyrir Miðbæjarskólann: Tjarnargata 26, sími 1-55-64.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168, sími 2.35-19.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-18.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-17.
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54, sími 3-85-48.
Fyrir Breiðagerðisskólann: Búðargerði 7, sími 3-85-47.
Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91, símar
3-85-49 og 3-85-50.
Allar skrifstofurnar verða opnar frá kl. 2—10 nema
hverfamiðstöðin að Laugavegi 168, sem verður opin frá
kl. 10—10, sími 2-34-99.
Stuðningsfólk B-listans! Hafið samband við hverfaskrif-
stofurnar á viðkomandi stað. Veitið þeim allar þær upp-
lýsingar, sem að gagni mega koma við kosningaundir-
búninginn.
Olíufarmur mengast
IGÞ—Reykjavík, miðvikudag. i né hvort þessi mistök kunni að
Sjópróf hafa staðið yfir í tvo i valda einhverjum erfiðleikum í ol-
daga út af því, að olíufarmur, sem ; íusölunni hér.
gamalt finnskt olíuskip kom með__________________
hingað, spilltist á leiðinni. Bland-í
aðist benzín í olíu og olía í benzín!
en hér á landi eru engin tök á að I
skilja þetta. \
Undanfarið mun það hafa kom-|
ið fyrir nokkrum sinnum, að olíu-
farmar hafa mengazt á leiðinni
hingað. Rússar flytja olíuna hing
að yfirleitt í gömlum leiguskipum
frá ýmsum löndum, og virðist sem
umbúnaður um borð hafi ekki allt-
af verið sem skyldi. Þessi mengun
á farminum nú sýnir, ag svo hef
ur verið í þessari ferð. Enn liggja
ekki fyrir upplýsingar um tjónið
Þrjú slys
Seinnipartinn í dag og í kvöld
urðu þrjú umferðarslys í Reykja
vík, en ekkert þeirra alvarlegt.
5 ára drengur varð fyrir bifreið
á móts við Lynghaga 4, 8 ára
drengur fyrir bifreið á Laufásvegi
og tveir menn á mótorhjóli lentu
í árekstri við bifreið á mótum
Álfheima og Suðurlandsbrautar.
Vönduð og stór kjörbúö viö
Þinghólsbraut í Kópavogi
AK—Rvik miðvikudag.
Um páskaleytið var opnuð að
Þinghólsbraut 19—21 í Kópavogi
stór rúmgóð og vel búin kjörbúð.
Var þess mikil þörf því að þetta
er orðið fjölbyggt hverfi og vant-
aði þar verzlanir. Eigendur kjör-
búðarinnar eru þeir Sigurður Guð
mundsson og Haraldur Einarsson
og vinna þeir báðir við verzlunina
báðir vanir verzlunarmenn.
Framhald á 14. síðu.
Slgurður Guðmgndsson (til vinstri) og Haraldur Einarsson I nýju kjörbúðinni að Þinghólsbraut 19-21.
(Jjósmynd Bj.
Bj.)