Tíminn - 08.05.1966, Page 5

Tíminn - 08.05.1966, Page 5
SUNNUDAGUR 8. maí 1966 TÍMINN LEIKFÉLAG KÓPAVOGS Óboðinn gestur Sveinn Halldórsson, höfundur leiksins, í gervi Páis gæzlumanns, til vinstri. Feilan Iæknir, leikinn af Júlíus Kofbcins, í miði'ð og Björn Magnússon sem Páll gæzlumaður til vinstr. Auk þess leikur Sigurður Jóhannesson bílstjóra í eliknum. (Ljósmyndirnar tók Bjarnleifur). Fyrir aMarfjórðungi, kringum 1940, gerðist sá atburður í Reykja- vík, að „rólegur" vistmaður á Kleppi hvarf þaðan á brott og fannst ekki um hríð, þótt leitað væri. Loks fannst maðurinn þó, þar sem hann hafði hreiðrað um sig í ágætum og vistlegum sumar- bú=tað fyrrverandi borgarstjóra í P=ykjavik. — Blöðin gerðu sér tí irætt um atburðinn, ekki sízt m =ðan mannsins var leitað, svo o, um fund hans og vist í sumar- bústaðnum, óg var ekki trútt um, að gamanmálum væri í blandað — að minnsta kosti í Speglinum, og þar kom bragur langur um æv- intýrið. Þar í var þessi vísa: Allt hagldabrauðið át hann og skonrok, skyr og svið og skolpaði í sig brennivíni úr tíu potta kúti. En einhvem veginn kunni hann ekki svíasultu við, svo að hún varð eftir handa Knúti. En vestur í Bolungavik var mið- aldra skólastjóri, sem heyrði auð- vitað fréttimar og sá í blöðum. Öll félög í Bolungavík voru eitt leikfélag í þá daga, og það þótti ekki boðleg samkoma, ef þar var ekki sýndur sjónleikur. Skólastjór inn hét Sveinn Halldónsson, og fólk var alltaf að koma til hans og segja: Sveinn, áttu nú ekki eitthvert gott leikrit handa okkur að leika á næstu samkomu. En leikrit uxu ekki á trjám í þá daga, og auk þess voru engin tré í Bolungavík þá — og Sveinn var orðinn uppiskroppa með öll þau leikrit, sem hann hafði kom- izt höndum undir og leikandi voru. En sem hann er í þessum vanda detta honum í hug fréttirnar af Kleppsmanninum fyrir sunnan. Hvernig væri að skrifa gamanþátt um það? Og af því að í Bolungavík vom menn því vanastir að hafa ein- hver ráð með að bjarga sér sjálfir, þá settist Sveinn skólastjóri niður og skrifaði leikrit um ævintýri Kleppsmannsins, þótt hann hefði aldrei snert á slíku fyrr. Auðvitað breytti hann mörgu, skeytti þetta allavega saman bætti við og dró frá, svo að þetta var ekki þekkj anlegt, en upphafið og þráðurinn var nú samt úr þessu. Svo var leik- ritið leikið á samkomu í Bolunga- vík, menn skemmtu sér vel, og Sveinn skólastjóri fór að leita að nýjum leikritum handa Bolvíking- um, stjóma leikjum þeirra og leika með þeim, þegar krakkarn- ir voru farnir heim úr skólanum. En leikritið um Kleppsmanninn, — Óboðinn gestur — var lagt niður í skúffu og enginn taldi það eins vist og Sveinn, að hlut- verki þess í íslenzkri leikhúsögu væri með öllu lokið. Svo líður aldarfjórðungur. En á vordögum 1966 kemur í ljós, að Leikfélag Kópavogs er að æfa ís- lenzkan gamanleik, sem ekki hef- ur sézt á sviði hér syðra, og er þar komið leikrit skólastjórans í' Bolungavík. Sveinn Halldórss. hef ur átt heima í Kópavogi síðasta áratuginn, var einn af stofnendum Leikfélags Kópavogs, hefur leikið þar mörg hlutverk við góðan orð- stír, og verið félaginu stoð og stytta. Klemenz Jónsson er leik- stjóri, og það er líf og fjör á svið- inu. Við hittum Svein Halldórsson niðri í búningsklefa Kópavogsbíós. Hann er þar kominn á sjö mílna skó, í belgbuxur og með derhúfu — albúinn í leit að manninum, sem strauk frá Kleppi, og við spyrj um hann svolítið um leikritið. — Blessaður minnstu ekki á það, segir Sveinn. — Mér datt aldrei í hug að sýna þetta framar. Þetta er endemis vitleysa, og af- leitt af Leikfélaginu að vera að setja þetta á svið. En vinur minn, Árni Sigurjónsson, hafði séð þetta hjá mér, og hann ber alla ábyrgð á því gegn viija minum, að verið er að æfa þetta. Ég er ekki leik- ritahöfundur, og það geturðu reitt þig á, að þó þetta fái ef til vill hina verstu dóma — leikritið en ekki leikendur á ég við — þá verða þeir aldrei verri en hjá sjálfum mér. En félagar mínir hérna í Leikfélaginu segjast vilja gera þetta mér til heiðurs, og mér þyk- ir auðvitað ósköp vænt um vinar- þel þeirra og ástúðina, sem býr að baki til mín. Þetta fólk er svo gott — og gaman að vera með því. — Þú hefur leikið oft og lengi, Sveinn? — Ég er ekki heldur neinn leik- ari — hef bara verið ósjálfrátt í þessu leiklistargutli í marga ára- tugi. Ég var svo hrifinn af sjón- leikjum allt frá barnsaldri, og það var heimsviðburður í lífi mínu, þegar ég fékk að stíga á leikfialir í smáhlutverki í Öskudeginum eft ir Þorstein Erlingsson hjá stúk- unni suður í Garði. Það var 1907, og ég var 16 ára. Og þegar ég kom til Bolungavíkur voru allir að leika þar, og ég dróst í dans inn, réð ekki við mig, og var með í mörgu. En þeir voru gagn- rýnir í Bolungavík, og maður varð að leggjt sig fram, og fólkið horfði og hlnstaði á sjónleikina af at- hygli, og hafði sitt að segja um leikara og leikri. Það fór ekki fram hjá þeim, sem illa var gert eða fór í handaskolum. Karlmenn- irnir fengu sér heldur ekki tár fyrr en sjónleikurinn var búinn á hverri samkomu. Og svona hefur þetta gengið. Eg sagði oft við konu mína: Nei, nú gemgur þetta ekki lenigur. Nú hætti ég alveg að eyða öllum frístundum í þetta. En eftir vikuna er njaður orðinn við- þolslaus aftur og kominn á kaf Framhald á bls. 31. Hér er læknisfrúin, Auður Jónsdóttir, og vinnustúlkan, Guðrún Hulda Guðmundsdóttir. FIMMTUGUR: Ármann Halldórsson t Nú er sem betur fer liðinn sá tími þegar atvinnuleysi ríkti á Austurlandi. Silfur hafsins hefur skapað efnahagslegt góðæri við sjávarsíðuna og þrátt fyrir ka. 1 túnum og mikil snjóalög síðast- liðinn vetur, mun hagur þeirra, sem landbúnað stunda mun betri en áður var. Því veldur fyrst og fremst meiri ræktun og aukin vinnutækni. Skyndileg breyting á kjörum fólks og afkomumöguleikum veld- ur jafnan róti í hugum manna. Fólkið gerir imeiri kröfur til lífsins ekki sízt yngri kynslóðin og ber slíkt varla að harma, ef kröfurnar eru skynsamlegar. Vegleg íbúðar- hús rísa nú víða í þéttbýli á Aust- urlandi og gljáfægðir bílar teljast til sjálfsagðra lífsþæginda, þrátt fyrir misjafna vegi. Á sama tima nýta sum hreppsfélögin ekki til fulls tekjumöguleika sína vegna skorts á vinnuafli og tregðu á nauðsynlegum leyfum til íram- kvæmda að því er sagt er, Víða vantar þó fullnægjandi skóiahús og viðunandi aðstæður til íþrótta- iðkana og félagsstarfsemi. Farskól- ar eru enn við lýði og kennara- skortur tilfinnanlegur, enda lítill síldargróði í embættistekjum þeirra. Ekki eru allir jafn viðkvæmir fyrir örum breytingum samtíðar- innar: náttúruhamförum, hávaðan um, hraðanum og dansinum kring- um gullkálfinn. Sumir láta ekki glepjast og halda fullu jafnvægi. Einn slíkur situr að Eiðum, menntasetri Austurlands. Hanri er þéttur á velli og þéttur i lund. glottir við tönn, bítur góðlátlega á jaxlinn, brosir við og gerir tvi- ráðar athugasemdir um tilveruna þó í fullri vinsemd og án atlrar græsku. Hann les fræði sín af samvizkusemi og hógværð og miðl- ar nemendum Eiðaskóla með stó- iskri ró ákveðnum skammti af mál fræði og sögulegum fróðleik til andlegs viðurværis og uppbygging- ar. Maður þessi er Ármann Hall- dórsson, kennari við Eiðaskóla. Hann er nú fimmtugur. Ár- mann er fæddur á Snotrunesi í Borgarfirði eystra 8. maí 1916. For eldrar hans, Gróa Björnsdóttir og Halldór Ármannsson, eru bæði ætt uð af Fljótdalshéraði. Ármann stundaði nám við alþýðuskólann á Eiðum árin 1934—36. Gagn- fræðaprófi lauk hann frá Flens- borg 1937 og kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1939. Hann dvaldi við nám í „Den Internat- ionale Höjskole" Helsingjaeyri sumarið 1947. Ármann hefur afl- að sér mikillar viðbótarmenntun- ar. Hann hefur t. d. sótt mörg nám skeið bæði hér á landi og erlendis. Hann er viðurkenndur ágætis kennari og farsæll. Ármann hefur lengst af verið kennari við Eiða- skóla eða frá 1944. Þar af eitt ár skólastjóri meðan Þórarinn Þór- arinsson, skólastjóri var í orlofi. Árin 1939—41 var hann kennari í Eiðahreppi og 1941—44 í Seyðis- fjarðarhreppi. Ármann hefur mikið sinnt fé- lagsstörfum þar eystra. Ég þekki bezt til félagsstarfa hans fyrir Ung menna- og íþróttasamband Austur lands og Kennarasambands Aust- urlands. Ármann var í mörg ár ritari ungmennasambandsins og um skeið ritstjóri Snæfells, tíma- rits þess. Snæfell var viðurkennt gott tímarit, og var það fyrst og fremst að þakka ritstjóra þess, en Ármann er ágætlega ritfær. Ár- mann átti sæti í framkvæmdanefnd 8. landsmóts Ungmennafélags fs- lands, sem haldið var að Eiðum sumarið 1952. Landsmótið að Eið- um var mikill viðburður eystra og vakti raunar athygli um land allt. Ármann hefur einnig starfað í mörgum nefnduip fyrir U.Í.A. Þá hefur Ármann einnig átt sæti í stjórn Kennarasambands Austur- lands og starfað í nefndum á veg- um þess. Bæði þessi samtök eiga Ármanni mikið að þakka. Hann er jafnan hinn trausti, hógværi og tillögugóði félagi. Létfcur f lund og drjúgur á sprettinum, þótt hann láti ekki mikið yfir sér. Margar ánægjustundir hef ég átt á heinjili Ármanns og hinnar ágætu kfitu hans, Ingibjargar Kristmundsdóttur. Þau hjón kunna vel að fagna gestum. f til- efni af fimmtugsafmælinu tjái ég Ármanni beztu þakkir mínar og fjölskyldu minnar fyrir liðin ár og árna honum allra heilla. Sk, Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.