Tíminn - 08.05.1966, Síða 9

Tíminn - 08.05.1966, Síða 9
SUNNUDAGUR 8. maí 1966 TÍMINN 25 frá neðri hæðinni og upp á efri hæðina. Var það auðvitað mjög bagalegt og sérstaklega þreytandi að klöngrast upp stigana með þungar vatnsföt- ur i báðum höndum. >ótt við hefðum ekkert vatn, fengum við nú samt svimandi háa reikninga frá hitaveitunni. Mér finnst sannarlega nokkuð frekt að bjóða fólki upp á svona þjónustu. Sigríður Vilhjálmsdóttir, sem býr á Baldursgötu 31, lenti svipuðum vandræðum og erfiðleikum eins og marg- ar aðrar húsmæður á Holtinu sðastliðinn vetur. — Svo lygilegt sem það nú annars kann að virðast þá er Sigríður Vilhjálmsdóttir það dagsatt, að heita vatnið fraus í pípunum hjá okkur í vetur. Hitinn kom ekki nema þrjá til fjóra tíma á dag í fleiri vikur. í janúar var mað- urinn minn eitt sinn frá klukk- an eitt á hádegi til klukkan fjögur um nóttina að þýða píp- urnar. Við hugsum sannarlega með kvíða til næsta vetrar, ef svipað ástand á eftir að endur- taka sig. Við vorum alveg hita laus í meira en tvo sólarhringa. Þyrftum við að þvo þvotta kom umst við ekki hjá því að hita allt vatnið sem til þeirra þurfti. Það kann að vera að einhverj- um finnist ekkert athugavert við svona ástand en mér finnst hreint ekki forsvaran- legt að bjóða okkur upp á þetta til lengdar. Þóra Jónsdóttir, húsmóðir á Skólavörðustíg 35 segir sínar farir ekki sléttar: — Við vorum rétt dauð úr kulda í vetur. Við urðum hvað eftir annað að kappklæða okk- ur undir nóttina þegar við fór- uim í rúmið bæði í peysur, sjöl og sokka. Allar dúnsængur og teppi, sem til voru á heimil- inu voru notuð. Svona ófremd- arástand ríkti hér í 6 vikur. Ekkert vatn kom úr krönun- um á þessum tíma, nema í mesta lagi einn klukkutíma á dag. Það nær ekki nokkurri átt að láta nýju hverfin taka allt heita vatnið frá okkur héma í gamla bænum. — Þóra ræddi einnig við okkur um aðstöðu unga fólks- ins í borginni til skemmtana og tómstundalífs. — Það er ekkert hús til Þóra jónsdóttir handa unglingum á aldrinum 17—21 árs þar sem þau geta farið og skemmt sér. Það er nauðsynlegt, að borgaryfirvöld in komi sem fyrst upp skemmti húsum fyrir unglinga. Það þyrfti fleira að vera gert til gamans heldur en dans. Iðka mætti þar alls konar tómstunda iðju. Helzt þyrfti það einnig að vera opið jafnt á daginn, sem kvöldin, sérstaklega á laugar- dags og sunnudagseftirmiðdög- um. Það er ansi hart að hér í Reykjavik þar sem nærri helmingur landsbúa býr skuli varla vera til nokkur skemmti- staður fyrir unga fólkið. Mér finnst sannarlega ekkert gam- an að vita af mínum bömum á vínveitingahúsum. En með- an aðrir staðir eru ekki til, neyðast unglingar til að fara þangað. Mér er óskiljanlegt hvers vegna borgaryfirvöldin hafa ekki bætt úr þessu. Á Skólavörðustg 33 býr Hild ur Sveinbjörnsdóttir. Hjá henni búa einnig dóttir henn- ar og tengdasonur ásamt bami sínu. Hildui' fræðir okkur á erfiðleikum sem ungu hjónin eiga L —- Það hefur reynzt mjög erfitt að koma börnum fyrir. Hildur Sveinbjörnsdóttir þurfi konan að vinna úti eða p stunda nám. Ég veit um mörg dæmi þess, að konur hafi þurft að hætta námi vegna þess, að þær gátu hvergi kom- ið bömunum fyrir á daginn. Það er orðið nauðsynlegt að stofna kvöldskóla fyrir þá heimilisfeður eða mæður sem leggja vilja stund á nárn^, en þurfa að vinna fyrir sér á dag- inn. Erlendis eru kvöldskólar þar sem hægt er að taka stú entspróf og jafnvel háskóla- próf og er tími til kominn að koma slíkum skiólum á stofn hérlendis. í þessu hverfi er mjög slæm aðstaða fyrir barna fjölskyldur. Hér er mikill skort ur á leikvöllum, barnaheimil- um eða vöggustofum. Lóðirn- ar, sem fylgja húsunum hérna í hverfinu eru flestar svo litl- ar, að þær geta með engu móti verið aðseturstaður fyrir bömin. Þar eð hér skortir til- finnanlega gæzluvelli er engin önnur leið en að láta börnin á götuna- En mér og öðrum er mjög illa við slíkt, þar eð auðskiljanlega er i því fólgin mikil hætta. — Mörg húsin í þessu hverfi eru orðin næsta gömul. Jlvem- ig reynast þau? — Húsið, sem við búum í er meira en 40 ára gamalt. Þar | eð dóttir mín býr hér með fjöl skyldu sína, er eðlilega mjög þröngt. Þau hjónin hafa reynt að fá sér íbúð, en þau geta með engu móti fengið íbúð, sem þau hafa efni á að taka á leigu. Öll leiga er orðin svo gífurlega há, að fólk, sem stundar nám hefur alls ekki efni á því að leikja sér íbúð. f vetur fór hitaveitan oft um Ihádegi meðan kaldast var. Oft var ekki nokkur leið að þvo upp eða þvo þvotta og og óhreint tau í langan tíma. Þetta ástand er til háborinn- ar skammar og illt að svo slæg- lega Skuli vera búið að íbúum þessa hverfis. Ennfremur getur ástand sem þetta verið mjög hættulegt á heimilum þar sem ungabörn eru. ÞÁTTUR KIRKJUNNAR 1. MAf OG KIRKJAN Þegar helgisiðabók kirkjunn ar verður endurskoðuð ætti 1. maí að eiga þar ákveðið rúm. Þetta er dagurinn, sem orð- inn er ákveðinn baráttudagur fyrir bættum hag hinna smáu og smáðu. Raunar hefur hann ofurlítið annan blæ nú, en með an hann var algerlega undir kjörorðinu: „Öreigar allra landa samein- ist.“ Pólitísk öfl eiginhagsmuna, jafnvel hefnda haturs og grimmdar hafa jafnvel gjört hretviðri þennan dag, skyggt fyrir sól og skapað örvæni, kvíða og ótta. Og sagt er, - að þá sýni herveldi heimsins hin miklu hergögn sín og morð- tæki öðrum dögum fremur. En þetta er að sjálfsögðu fjarri þeim anda einingar, jafn réttis og bræðralags, þeim krafti gróandans, sem 1. maí á að vera helgaður. Hann á að vera dagur ein- ingar en ekki sundrungar, jafn réttis en ekki bróðurvíga, bræðralags en ekki styrjalda. Allar hertækjasýningar og her- kannanir þennan dag eru því hið sama. sem nefnt var i gamla daga að snúa Faðir vori upp á djöfulinn, gef hinu illa ráðrúm og framgang í stað þess að efla tök fyrirgefning- ar og samstarfs. í baráttunni fyrir bættum hag vinnandi og hugsandi fólks er mikilsvert að eiga slíkan dag, sem 1. maí er nú þegar orðinn um allan heim til átaks og hugleiðinga, en um fram allt til að stíga á stokk og strengja heit að hætti nor- rænna heja. Strengja þess heit að hvessa vopn andans: Hugs- un, vísindi og góðleika til and- stöðu gegn kynþáttarmismun, stéttaríg, flokkadrætti og hvers konar kúgun. En allt slíkt er algerlega í anda kristins dóms, ef kirkj- an skilur rétt, boðskap meist- ara síns og Drottins og berst undir merkjum hans, en gleymir öllum annarlegum sjónarmiðum sýndarmennsku og hroka. Samkvæmt eðli sfnu og anda hans, sem sagði: „Allt, sem þér gjörið einum minna minnstu bræðra, það gjörið þér mér, verður kirkian alltaf að standa vörð um rétt lítil- magnans og vinna í anda góð- leikans að takmarki réttlætis og réttlátrar skiptingar lífsgæð anna öllum til handa. Og umfram allt þarf kirkj- an að muna að hið illa, hvort sem það birtist í öfund og ill- girni, ágirnd eða löstum ein- staklinga eða f heilum stjórn- málastefnum og heitu trúarof- stæki, það verður aldrei yfir- onnið með illu. aldrei bugað með vopnum, sprengjum eða véltækni. ekki fremur en vetr- arhjarnið verður yfirbugað og appleyst með nýjum og nýjum vorhretum. sem auðvitað auka lclakann og vetrarvöldin. Það eina, sem dugir er sól- skin og dögg góðleika og víð- sýni, skilnings og göfug- mennsku, sem skilur allt og umber allt, þangað til skafl- inn hverfur úr brekkunni, klak inn af vatninu. Ein helzta gleðifregn þessara síðustu daga og fyrstu daga sumarsins er um vingjamlegt en þó formlegt samtal tveggja stórmenna, sem taldir eru leið- togar og fjöldinn á stórum svæðum setur traust sitt til. En það eru þeir Páll páfi og Gromyko ráðherrann rússneski. Orð eru til alls fyrst, og þarna eru vormerki, sem ekki ættu að gleymast 1. maí. sízt af öllu kirkjunni. Og sannarlega mættu allar kirkjudeildir og trúflokkar heims samfagna katólsku kirkj unni með þann vorhug, sem birtist í páfagarði nú hvað eft- ir annað og vekur athygli um víða veröld. Og fögur var frétt- in, sem of lengi hefur dulizt um allan þann fjölda ísraels- sona og dætra, sem katólsku kirkjunni hefur tekizt að bjarga úr grimmdarklóm Naz- ista í síðustu heimsstyrjöld. Þar var hún svo sannarlega á vegum meistara síns, svo að kirkja Lúthers í Mið-Evrópu má sannarlega bera sig illa, þegar spurt er: Hvers vegna gat hún ekki bókstaflega af- stýrt þessu djöfulæði? Svaf hún á verðinum, með sinn frið- þægða Guð í hásæti? Framveg- is ætti 1. maí að verða sa dag ur, sem talað er vökuorðum til kirkju og kirkjuhöfðingja í hverju landi, að þeir gæti vor- merkjanna i framvindu sög- unnar, tengi hendur um neims kringluna alla til átaks í anda Krists til útrýmingar ranglæt- is og kynþáttahaturs, hroka og fordóma milli stétta, þjóða og kynþátta. Ekki er hér Grikki og Róm- verji, Gyðingur né Samverji, ekki svartur og hvítur, Banda- ríkjamaður eða Rússi, heldur bræður og systur f kærlelka Krists. ,„Ég trúi á kærleiksblæinn blíða sem birtist Jesú fyrst í þér.“ Þar er vorblær veraldar um alla framtíð, sem kyssir kinn líkt og vorgolan 1. maí. Og hún ætti svo sannarlega að vekja hvert sofið fræ til vaxt- ar og þroska á nýju sumri frið- ar og farsældar mannkyni jarð ar til handa. Þrír næstu sunnudagar heita á máli kirkjunnar: Jubilate, Contate,' Rogate, það er á ís- lenzku: Gleðjist, Syngið, Biðj- ið. Látum nú 1. maí, sem heitir Jubilate minna á gleði vors og nýrra tíma, fögnuðinn yfir, að hér „verði gróandi þjóðlff, með þverrandi tár, sem þroskast á Guðs ríkis braut." En ríki Guðs er hið innra i yður og í samfélagi yðar: Réttlæti, friður og fögnuður. Megi 1. mai efla það rfki um ókomin ár og aldir. Árelíus Nielsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.