Tíminn - 12.05.1966, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur dagiega fyrir augu
80—100 þásund áesenda
Gerizt áskrifendur að
Tlmanuni.
HringiÖ 1 sima 12323.
106. tbl. — Fimmtudagur 12. maí 1966 — 50. árg.
STJORNIN ÞRENGIR AD
ÍSLENZKUM IÐNAÐ!
Veikir atvinnuöryggi fjölda Reykvíkinga
Fátt sérkennir meira þá
ríkisstjórn, sem nú fer með
völd í landinu en vantrú henn
ar á íslenzku framtaki. Á
sama tíma og hún hetur veitt
erlendu auSfélagi margvisleg
hlunnindi umfram íslenzka
atvinnurekendur, hetur hún
Ingvi Þorsteinsson, niagister.
UTGAFA GRODURKORTA
AF HÁLENDINU HAFIN
GÞE-Reykjavík, miðvikudag.
Á morgun, fimmtudag, koma út
á vegum Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs sex gi’óðurkort af hluta há
lendis fslands, en ætlunin er að
kortleggja allt hálendið fyrir 1970
og verða kortin líklega 150 tals-
ins. Að þessari kortlagninu standa ,
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins undir íforystu lngva Þorsteins-
sonar magisters, Landmælingar,
og þá hefur Landgræðslan veitt
til hennar töluverðan fjárstyrk.
Megintilgangurinn með þessari I
kortlagningu er að ganga raeki-
lega úr skugga Lim, hversu mik-
ið er gróið af hálendi íslands,
Rannsóknir a gróðurfari landsins
hófust að nafninu til árið 1955.
en fyrir alvöru ekki fyrr en 1960.
Framhald a bls. 14.
þrengt a8 íslenzkum atvinnu-
fyrirtækjum með sívaxandi
lánsfjárhöftum, hækkandi á-
lögum og óðaverSbólgu Al-
veg sérstaklega bitnar þetta
á iðnaðinum sem er einn höf-
uðatvinnuvegur Reykvíkinga.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að fjöldi iðnfyrirtækja í
ReykjavJk býr nú við hinar ^erf-
iðustu aðstæður og fyrirsjáanleg
an hallarekstur. Þessu veldur ekki
aðeins verðbólgan, sem ríkisstjórn
in magnar með degi hverjum. held
ur beinar aðgerðir ríkisstjórnarinn
ar. eins og sívaxandi álögur og
þó umfram allt síaukin lánsfjár-
höft.
í mörgum tilfelíum hefur því
verið bætt ofan á versnandi rekstr
araðstöðu iðnaðarins. að hafinn
hefur verið í stórum stíl innflutn
Baldur
Bjarni
DaSi
Daníel
Gunnar
Halldóra
HörSur
íL*M.
II
Jón Ólafur Tómas örlygur Krlstin J. Krlstin K. Einar
Fundur unga fólksins
verður í Lidó í kvöld
FUF í Reykjavík býöur maður, Daði Ólafsson, hús- ingur, Ólafur Ragnar Fundarstjóri verður
FUF í Reykjavík býður
ongum kjósendum til tund
ar í Lídó í kvöld kl. 8.30.
Stuttar ræður og ávörp
flytja á fundinum: Baldur
Óskarsson, formaður FUF,
«
Bjarni Bender framreiðslu
maður, Daði Ólafsson, hús-
gagnabólstrari. Danfel Hall
dórsson, fulltrúi, Gunnar
Bjarnason, leikmyndateikn
ari, Halldóra Sveinbjörns-
dóttir, bankagjaldkeri,
Hörður Helgason, forstjóri
Jón A. Ólafsson, lögfrsð-
ingur, Ólafur Ragnar
Grimsson, hagfræðingur
og Tómas Karlsson, blaða-
maður.
Einar Agústsson, borgar
fulltrúi og alhingismaður,
ávarpar fundinn.
Fundarstjóri verður Ör*
lygur Hálfdanarson, for-
maður Sambands ungra
Framsóknarmanna, og
fundarritarar Kristín Karls
dóttir, húsfreyja, og Krist-
ín Jóhannesdóttir, mennta.
skólanemi.
ingur 9 erlendum iðnaðarvörum,
sem að réttu lagi átti alls ekki
að koma til sögu. nema viðkom-
andi iðnaðarfyrirtækjum væri
jafnframt veitt bættir rekstrar-
möguleikar
Á seinasta þingi fluttu Fram-
sóknarmenn margar tillögur um
bætta samkeppnisaðstöðu iðnað
arins. en þær voru allar ýmist
svæfðar eða drepnar af ríkis-
stjórninni og flokkum hennar.
Þessar tillögur voru m. a.:
★ TiIIaga Einars Ágústssonnar o.
fl. um „að láta fara fram í sam
ráði við samtök iðnrekenda og
iðnverkafólks athugun á sam-
drætti, sem orðið hefðj í ýmsum
iðngreinum" og skyldi þessi „at-
hugun beinast að þvi að finna
þær orsakir. sem samdrættinum
valda og hvaða ráðstafanir megi
gera til þess að koma í veg fyrir
hann.“ Meðal þeirra, sem mæltu
með samþ.vkkf þessarar tillögn
var formaður Iðju. og átti sú
sjálfstæða afstaða hans þátt í
því, að hann var ekki lengur tal
inn framboðshæfur fyrir Sjálfstæð
isflokkinn.
★ Tillaga frá Þórami Þórarins-
syni og fleirum um að „Seðlabank
inn endurkaupi framleiðslu- og
hráefnavíxla iðnaðarfjrirtækja eft
ir svipuðum reglum og gilda um
endurkaup á framleiðsluvíxla sjáv
arútvegs og landbúnaðar". Ef iðn
aðurinn fengi þannig jafnréttis-
aðstöðu við landbúnað og sjávar
útveg myndi það meira en nokk
uð annað bæta úr rekstrarlána-
þröng hans.
★ Tillaga frá Þórarni Þórarins •
syni o. fl. um „að framlag ríkis-
sjóðs til Iðnlánasjóðs, verði jafn
hátt og tekjur þær. sem sjóður
inn fær af gjaldi því, sem iðnað
urinn greiðir til sjóðsins". Hér er
farið fram á. að Iðnlánasjóður
njóti sömu aðstöðu og stofnlána-
sjóðir annarra atvinnuvega, en
þetta myndi stórauka tekjur sjóðs
ins. Jafnframt þessu var lagt til,
að lánstími Iðnaðarsjóðslána yrði
lengdur til samræmis við það,
sem er hjá öðrum stofnlánasjóðum.
★ TiIIaga Helga Bergs o. fl. um
stofnun framleiðnilánadeildar,
sem veiti fyrirtækjum sérstök
lán „til að bæta framleiðnina með
aukinni véltækni, fullkomnara
framleiðsluskipulagi og hagræð-
ingu.“
Á sama tíma og ríkisstjómin
felldi eða svæfði þessi mál og
jók erfiðleika iðnaðarins á marg
an hátt, eins og áður er rakið,
veitti hún erlendu auðfyrirtæki
margvísleg hlunnindi til atvinnu-
rekstrar í landinu. Það hefur á
þennan og ýmsan annan hátt marg
sannast, að rfkisstjómin leggur
megintrúnað á erlenda forsjá, en
hefur megna ótrú á fslenzku
Framhald á bls. 14.