Tíminn - 04.06.1966, Side 9

Tíminn - 04.06.1966, Side 9
9 LAUGARDAGUR 4. jún.í 1966 TÍMINN Bifröst í BorgarflrSi. Guð gefi að við, sem 'hér í ’Bifröst eigum að 'ávaxta þann arf sem nær 50 ár hafa skap- að Iþessum skóla, gætum reynzt þess trausts maklegir, sem svo mikil ábyrgð og svo mikil eggj un leggur okkur á herðar. Það er sagt, að tvær skóla- hugmyndir hafi verið uppi í veröldinni. Önnur er hugmynd in um lærða skólann, emhætt- isskólann, sem skilur einttakl- ingana fhá og á að gera þá öðru vísi en aðra menn. — Hitt er hugmyndin um þjóð- skólann, skóla hins venjulega manns, sem reynir að hamla gegn aðskilnaði í þjóðfélaginu, undirstrika að við séum öll eitt þótt við séum ekki öll eins. — Það er hiri síðari hugmynd sem vakti fyrir fyrsta skóla- stjóra Samvinnuskólans, Jónasi Jónssyni og var baráttumál hans og er enn. Skólinn á ekki að mennta menn frá samfé- laginu heldur til þess. — Ég veit, að þær gjafir, sem við höfum tekið á móti í dag eiga að verða þessari hugmynd hins aldna og merka skóla- manns til framdráttar, hans sem á þessum degi fyllir 81. árið. Þær eru öðrum þræði hylling til Jónasar Jónssonar og samkennara hans, en eru stílaðar til skólans, er hann mótaði og unni. Hafið þökk fyrir.“ A® síðustu flutti skóla- stjóri skólaslitaræðu sína og fer hún hér á eftir. Hann beindi aS venju orS- um sínum til hinna braut- skráðu nemenda. Það kemur í minn hlut að lýsa yfir skólaslitum og binda enda ó starfsemi Samvinnuskól ans í Bifröst veturinn 1965— 1966. Sú skylda er í senn ljúf og leið. Það er lj.ú'ft að hætta leik' í fagnaði góðs árangurs. Það er sælt að hverfa á brott að lokinni prófþraut, sem ber vitni um atorku og einbeittni. Hitt er leitt að skynja ang- urværð skilnaðarins, að sætta sig við þá staðreynd, aö upp- lausn okkar litla samfélags sé á nœsta leiti, einkurn þegar sér- stæðir töfrar þess eru hafðir í huga, töfrar jafnt átaka sem einangrunar. Skólaslit eru okkur starfs- fólki Bifrastar endurtekning sama eðlis og árstíðaskiptin boða, stundarhlé starfseminnar, en fela í sér fyrirheit um nýjan starfsdag og áframhald. Því er annan veg farið um nemendur sem brautskráðir eru hverju sinni. Þeim verða skólaslitin annað og meira. Það er lokið upp dyrum. Heillandi hvatning berst að eyrum: Hér kallar lífið til starfa. Verkefn- in blasa við. Að undirbúningi verður ekki horfið sem áður. Þetta er ástæðan fyrir því, að skólaslitaræða verður hverju sinni ávarpsorð til brautskrá- inna. — Ég mæli til þín að lokum, nemandi minn, sem héðan leitar vorið 1966. Það, sem ég hef að segja þér við leiðarlok á þessum stað, er ekki nýr sannleikur, sem aldrei fyrr hafi hljómað eyrum þínum. Ég tala ekki af sagnaranda. Ég ávarpa þig ekki af því að mér hafi fallið í skaut opinberun og hyggist gefa þér hlutdeild í henni. Ég mæli heldur ekki til þín þessum orðum, af því mér finnist ég knúinn til að lýsa yfir um- hyggju minni og vinsemd eða þurfi að undirstrika hve annt mér sé um framtíðarhag þinn og heill. Ef ég þyrfti sérstak- lega að taka það fram á stundu sem þessari, myndi mér finn- ast það vitnisburður vondrar samvizku. Það sem ég hef hér fram að færa eru 'hversdagslegar hugsanir og ábendingar. Mín skoðun er sú, að einmitt slík- ar séu sannastar og einlægast- ar. Sú er hin fyrsta ábending, sem ég vil koma á framfæri við þig, að vekja athygli á kafla úr grein, sem ég rakst á nýlega. Þar segir svo: „Það er vafalaust rétt, sem haldið hefur verið fram, að það að lifa sé í því fólgið að komast að raun um merkingar ýmissa orða. En orðin sem máli skipta eru ekki löng, vandasöm og torkennileg. Það þarf ekki að grípa til orðabókanna og heim- ildarritanna. Orðin, sem mikil- vægust munu reynast og drýgst til sannrar þekkingar eru stutt, lótlaus og einföld. Þau eru meðal annara: Vinna, von, gleði, harmur. trú.“ Mikilvægi einfaldra orða eru ekki ný sannindi. Um það ber sagan af Sókratesi og Xenofón glöggt vitni. Sókrates mætti ungum manni á þröngri götu. Hann rétti út staf sinn og lok- aði þannig leiðinni fyrir unga manninum. Sókrates hóf að spyrja ungmennið eins og vandi hans var. Hann þóttist vilja fræðast um merkingar algengra orða. Orðin lutu að störfum borgaranna og þörfum þeirra margvíslegum. Xenofón ungmennið gat leyst úr hverj- um vanda. Að lokum kom sak- leysisleg en óvænt spurning. Sókrates sagði: „En hvar og hvernig verða mennirnir heið- virðir og sannir?“ Að þeim vanda hafði Xenofón aldrei hugað. En til þeirra verkefna var horfið næstu ár, og reynd- ust erfið. Líklega hafa fáir undirstrik- að jafn oft og ákveðið og Sókrates, hve mikilvægt það væri manninum að gera sér í senn grein fyrir eðli þekk- ingarinnar og gildi hennar. Hann talaði um eina dyggð, að þekkja, og einn löst, að þekkja ekki. — Honum bjó lík hugsun í brjósti sem Jane Welch Car- lyle. Hún fullyrti: „Af öllu sem Guð hefur skapað, getur maðurinn einn skynjað fátækt sína, vöntunina. En í þeirri skynjun er líka fólginn auður hans mestur". Sagan segir, að Sókrates hafi við ævilok sannað, hve sterk ur þáttur þessi lífsvitund reynd ist. Eins og kunnugt er var Sókrates dæmdur til dauða vegna afbrigðilegra skoðana. Er hann beið dauðans í klefa sínum gerðist hversdagslegur atburður. Sagnameistari átti leið fram hjó fangelsinu, en sem hann gekk þuldi hann kvæði, sem nýlega hafði verið ort. Ljóðið vakti athygli fang- ans, Sókratesar. Honum lán- aðist að fá sagnameistarann til fundar við sig og bar fram þá bón, að hinn síðarnefndi kenndi honum kvæðið. Það var auðsótt, en kvæðamanninum þótti með ólíkindum, að dauða dæmdur fangi skyldi hafa sinnu á slíku. Er hann lét undrun sína f ljós, hlaut hann svar, sem ekki hefur gleymzt: „Mig langar,“ sagði Sókrates, „að deyja svo, að þekking mín vaxi, í fögnuði nýrrar reynslu vil ég fara héðan.“ En er ekki allt þetta þekk- ingarhjal óraunhæft? Hvaða er- indi eiga slík orð við þig, nem- andi minn, sem ert að kveðja skólann? Finnur þú ekki ein- mitt til fagnaðar að vera laus við kvaðir námsins? Er það ekki einmitt ljúfleiki þessarar stundar að finna höftin bresta, sem skólaveran hefur óneitan- lega haft í för með sér og komið hafa harðast niður á frelsi þínu? — Allar eiga þess- ar athugasemdir rétt á sér. En hitt er jafn víst, að lífið ger- ir ekki minni kröfur til þín heldur en skólinn. Þvert á móti. Þú ert ekki að hætta að læra. Þú ert að byrja örlaga- rika námsbraut. í skóla lífsins varðar miklu að skilja. En þar er ekki minna um vert að hver skilningsauki leiði til áforms og síðar athafn- ar. Sambandið nána milli þekk ingar og starfs er önnur ábend ingin, sem ég vil koma á fram- færi við þig, nemandi minn. á skilnaðarstund. Til er gamall orðskviður, sem enginn veit um höfund að. Orðskviðurinn er á þessa leið: „Hugsýn án athafnar er hverfull draumur. Athöfn án draums er dapur- leg kvöð. En sameinist draumur og athöfn eignast veröldin von og dáð.“ Þetta undarlega samband, sem hér er vikið að milli draumsins, þ.e. hugsýnarinnar annars vegar og athafnarinn- ar, þ.e. starfs og atvinnu hins vegar er engan veginn augljóst alltaf. Sú er líka ástæðan til hversu oft er spurt: „Til hvers er erfiði mitt og amstur? Hver er tilgangurinn með lffi mjnu og hvert takmark þess?“ — Svörin við þeim spurningum reynast oft óljós og þokukennd. — Það er ekki alltaf auðvelt að fylgja ábendingunni, sem Charles Mayers gaf. Hún var þessi: „Reyndu að ganga úr skugga um, að það ,sem þú lifir fyrir, sé þess virði að deyja fyrir það.“ En svörin óljósu' stafa ekki af því, að enginn hafi fengizt til að leiða hugann að sam- bandinu milli þekkingar, til- gangs og athafnar. Hitt er sönnu nær, að mennirnir hafi látið hugfallast, þegar í ljós hefur komið, hve erfitt er að láta draumana rætast í dáðum. En flestar þrautir manna hafa reynzt þroskandi. Og svo er einnig um þá hina hörðu glímu við gátu tilgangsins, tak- marksins, draumsins. Árangur- inn hefur næsta oft veri" meitl- aður í ógleymanlegar setning- ar. Ég vil minna þig á tvær slíkar, nemandi minn. — Önn- ur eru orð Newmanns kardí- nála, þessi: „Á æðri tilverustig- um kann því að vera öðruvísi farið. En hér á jörðunni er hitt staðreynd, að það að lifa er að breytast, að vera full- kominn er að breytast oft og algjörlega.“ — Orð Newmanns eru auðskilin: Tilgangurinn með lífinu er ekki sá að þræða beina braut, eins alla tíð. Til- gangurinn er vandi umbreyt- ingarinnar. í kyrrstöðunni og stöðnuninni er fólginn dauði og upplausn. — Hitt er setn- ing Disraeli: „Lífið er of stutt til þess að láta það eyðast í lágkúru og smámunasemi.' — Aðeins só, sem eygir hið ósýni- lega, háa, getur látið hið ómögu lega og stóra verða að veru leika. Sú er þriðja og síðasta abend' ingin á þessari stundu, nem- andi minn, að víkja að tilfinn- ingu og hugblæ. Þýaki heim spekingurin.i og líffræðingur- Framhald a bls. 14. ListaverkiS „Lífsorka" eftir Ásmund Sveinsson hefur verið sett upp við Bifröst.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.