Vísir - 13.12.1974, Blaðsíða 3
Vlsir. Föstudagur 13. desember 1974.
3
Ragnhild ólafsdóttir — höfund-
ur bókarinnar „Forfald.”
Bók íslenskrar konu hlýt
ur lof í Kaupmannahöfn
islenzk kona, búsett i
Kaupmannahöfn, hefur gefiö út
bók þar i borg, sem heitir „For-
fald.” Bókin fjallar um
vandamál aldraös fólks og hefur
fengiö mjög góöa dóma hjá
dönskum gagnrýnendum.
Konan heitir Ragnhild Olafs-
dóttir, fædd á Tálknafirði árið
1918, dóttir Jónu Gisladóttur og
Ólafs Kolbeinssonar á Vind-
heimum i Tálknafirði.
Nltján ára að aldri fór hún til
Danmerkur á Danebod Höjskole
á Als. Hún giftist dönskum
manni og ilentist i Danmörku.
Hún skildi við mann sinn og
vann i nokkur ár á elliheimili i
Kaupmannahöfn, og kynntist
þannig náið þeim vandamálum,
sem hún fjallar um i bók sinni.
1 gagnrýni um bókina er þess
getið að Ragnhild reyni hvergi
að predika I bók sinni, heldur
leggi málin raunsætt og eðlilega
fyrir, þannig að vandinn verði
ljós án þess að predikana sé
þörf.
Formáli bókarinnar er bréf,
sem Halldór Laxness skrifaði
Ragnhild, eftir að hann hafði
lesið handrit að bók hennar. Þar
segir meðal annars:
„Ég þakka þér fyrir að gefa
mér tækifæri til að lesa handrit-
ið þitt, þar sem þú lýsir þeirri
sorgarsögu, sem felst I þvi aö
slita þá elztu úr fjölskyldunni,
afann og ömmuna, upp úr eöli-
legum jarðvegi sinum og koma
þeim fyrir I framandi búðum,
elliheimilunum, sem eru jafn
táknræn fyrir iðnríki okkar
daga og útskúfun holdsveikra
var fyrir miðaldirnar.
Þakka þér lika fyrir að þú
reynir hvergi að prakka upp á
mig boðskap, lesanda þinn,
heldur gefur mér möguleika á
aö bregðast beint við kaldri
lýsingu á staðreyndum.”
„Forfald” er ekki skáldsaga I
eiginlegri merkingu, öllu frem-
ur heimildarleg lýsing á siðustu
stöð ævinnar, lýsing á draunm-
um sem var og þránni eftir þvi,
sem koma skal. -SH
• LTINN
Lesið um Jóhann Cruyff — Peter Shilton — Paul Breitner
Jóhannes Eðvaldsson
Einnig litmynd af Arsenal
Getraunaspó — Cesar Middelsboro og ýmislegt fleira
Fœst ó nœsta blaðsölustað
Misræmið i
útreikningnum
Framfærsluvlsitala, Hækkun
frá 9. nóvember 1964 til 9.
nóvember 1974.
Framfærsluvlsitala, Hækkun
frá 9. nóvember 1964 til 9.
nóvember 1974. Visitala I nóv.
1964 164 stig, 7. nóv. 1974 741 stig.
Hækkun er 351.83% Rétl
reiknaöar vísitölubætur á kr.
1.000,- voru þvi kr. 3.518.30.
Seölabankinn reiknar
vlsitöluna þannig:
1965 8.98%
1966 7.14%
1967 10.97%
1968 9.00%
1969 22.94%
1970 14.93%
1971 1.30%
1972 12.82%
1973 28.41%
alls 116.29%
Fyrir árið 1974 eru engar bætur
reiknaöar vegna þess að gjald-
dagann ber ekki upp á áramót!
Kr. 2.036.51
70/71 0.90% Kr. 18.33
Kr. 2.054.84
71/72 12.76% Kr. 262.19
Kr. 2.317.03
72/73 28.95% Kr. 670.78
Kr. 2.987.81
73/74 51.22% Kr. 1.530.36
Með visitölubótum en
án vaxta 9/11 ’74 Kr. 4.518.17
Vegna þess að vextir af bók
þessari, og sennilega öllum
slikum, eru lægri en af venju-
legum 10 ára bókum, hafa sjálf-
sagt margir þeir, sem i að-
gæzluleysi lögðu inn töluvert
hærri upphæðir en hámarkið kr.
1.000.- tapað hærri upphæð i
vaxtamun en þessum svoköll-
uðu verðbótum nemur. Sýnir
þetta þriöja íhugunarverða
atriði, að engu hafa þeir gleymt,
sem ætluðu sér að kenna börn-
um og unglingum sparnað.
Jólatréð kemur:
Þjóðverjar hafa leyst
samgönguvandann"
„Skeyti barst um þaö frá
Þýzkalandi, aö jólatré þaö, sem
árlega er gefiö Reykjavlkurhöfn,
legöi af staö I dag meö Mánafossi.
„Samgönguvandamálin hefur
nú tekizt aö leysa og viö sjáum
okkur fært aö senda tréö,” segir
I skeytinu.
Eins og fram hefur komið,
töldu Þjóðverjar sér ekki fært
vegna samgönguerfiðleika að
senda jólatréö af stað. Þetta var I
siðasta mánuði á sama tima og
þýzki togarinn var tekinn I land-
helgi við ísland. Nú er aftur á
móti að lægja, svo tréð verður
sent á siðustu stundu.
SELJA JÓLAGLAÐNING
- OG STYÐJA BLINDA
Blint fólk og sjónvernd i landinu
eru studd meö ráöum og dáö af
Lionsklúbbi Reykjavikur, elzta
„ljóna”-klúbbi landsins. Hafa
félagarnir nú ákveöiö aö gangast
fyrir sölu á ýmiss konar sælgæti
og jólaglaöningi i þessu skyni.
t kvöld og á morgun selja
Lionsfélagarnir jóiaglaöninginn
aö Laugavegi 15, en þar var
Vegamótaútibú Landsbankans
áöur. Þar getur fólk keypt ýmis-
legt sem kaupa þarf, og stutt um
leið gott málefni.
runnið út eins og heitar
lummur. Samt má fullyrða að
fæstir kaupenda hafi gert sér
grein fyrir, aö framfærslu-
visitala er ekki sami mæli-
kvarði og byggingavisitala, en
samkv. þeirri vlsitölu auglýsir
Seðlabankinnaðkr. lOOO.-spari-
skirteini útg. árið 1964, verði
þann 10. jan. n.k. greitt með
rúmum kr. 13.000.- Fyrir þetta
sama tlmabil vill Landsbankinn
greiöa kr. 1.162.- sem er aðeins
33.03% af hækkun frámfærslu
visitölu nóv. 9. 1964 til nóv. 9.
1974. — Nú geta forsjálir
eigendur áðurgreindra skulda
bréfa velt fyrir sér þvl, hvort
þeir muni án mótmæla veita
viðtöku tilsvarandi verðbótum
þann 15. marz 1982.
Lika mátti reikna vísitöluna frá
ári til árs, en þá á sama hátt og
vexti, eða þannig:
Kr. 1.000.-
1964/65 9.76% Kr. 97.60
Kr. 1.097.60
65/66 8.33% Kr. 91.43
Kr. 1.189.03
66/67 5.64% Kr. 67.06
Kr. 1.256.09
67/68 15.05% Kr. 189.04
Kr. 1.445.13
68/69 22.36% Kr. 323.13
Kr. 1.768.26
69/70 15.17% Kr. 268.25
Stefnt er að þvi, að þýzki sendi-
herrann kveiki á jólatrénu 20.
desember, eða næsta föstudag
klukkan 4.
Þetta er niunda árið, sem
jólatré er sent frá Þýzkalandi.
Upphafsmaður þessarar árlegu
gjafar eru þeir Schlunz, starfs-
maður norður-þýzka útvarpsins
og Hönig, skrifstofustjóri Flug-
leiöa I Hamborg.
Þeir hafa i hyggju að koma
hingað báðir næsta ár við tiundu
afhendinguna. I ár verður aftur á
móti enginn fulltrúi gefenda
viöstaddur.
Siöustu árin hefur félags-
skapurinn „Vikinger Runde”
gefið jólatréð, en þessum félags-
skap tilheyrir bæði sjómanna-
sambandið i Hamborg og féiag
blaðamanna.
Vegna landhelgisdeilnanna
vildi sjómannasambandið hætta
við jólagjöfina. Þetta þóttu heldur
ómerkilegar aðgerðir og fengu
þýzki sendiherrann hér og aðrir
aðilar sjómennina loks ofan af
vitleysunni. -jr.
JÓLATRÉ ,
TENDRAÐ A
AUSTURV
— og jólasveinar
ó Lœkjartorgi
ó sunnudaginn
óslóarbúar hafa aö venju sent
Reykvikingum fagurt grenitré I
jólagjöf. Kveikt veröur á trénu á
sunnudaginn kl. 16. Thor
Bronder, sendifulltrúi, mun af-
henda tréö, en Birgir tsl.
Gunnarsson, borgarstjóri veitir
þvl viötöku. Lúörasveit
Reykjavikur leikur undir stjórn
Jónasar Þ. Dagbjartssonar og
Dómkórinn syngur jólasálma
undir stjórn Ragnars Björns-
sonar.
Að athöfn lokinni á Austur-
velli, þar sem tréð stendur,
munu jólasveinar koma I
heimsókn á Lækjártorg undir
stjórn Askasleikis. Munu þeir
skemmta börnunum þar og gefa
skýrslu um ferðir sinar til
borgarinnar.