Vísir - 13.12.1974, Síða 10
Vlsir. Föstudagur 13. desember 1974.
Vísir. Föstudagur 13. desember 1974.
ón: Hallur Símonarson
Islandsmet
í öllum kast-
greinunum!
Kastgreinarnar voru aöall islenzkra frjáls-
iþrótta I ár — islandsmet sett i þeim öllum.
Mest yljaði, þegar óskar Jakobsson, ÍR,
bætti 25 ára gamalt islandsmet Jóels
Sigurössonar, ÍR — elzta islandsmetiö. Fyrst
um 77 sm eöa i 67.76 m og svo I 73.72 m I
keppni i Sviþjóö. Hreinn Haiidórsson, HSS,
náöi islandsmetinu i kúluvarpi og kom þaö
ekki á óvart. Þar lét hann vera skammt
stórra högga á milli — 6. ágúst bætti hann
metið á Laugardalsveliinum I 18.59 m og
daginn eftir I 18.90 metra á móti á Selfossi.
Siöar I þeim mánuöi — eöa 25. ágúst — þeytti
Erlendur Valdimarsson, ÍR, kringlunni 64.32
metra á móti I Breiðabliki og bætti met sitt
verulega. Þetta afrek Erlends var eitt hiö
bezta i kringlukasti i Evrópu á árinu. i
sleggjukastinu bætti Erlendur svo met sitt I
60.74 metra 10. september, en þaö er sem áö-
ur algjör aukagrein hjá honum.
Afrekaskráin 1974 i köstunum litur annars
þannig út.
íflplSflÍ
Kúluvarp
Hreinn Halldórsson
Erl. Valdimarsson
Guðni Halldórsson
Óskar Jakobsson
Erling Jóhannesson
Stefán Hallgrimsson
Sigurþór Hjörleifsson
Guöni Sigfússon
Elias Sveinsson
PállDagbjartsson
Kjartan Guðjónsson
Þóroddur Jóhannsson
Hrafnkell Stefánsson
Jóhann Hjörleifsson
Ólafur Þórðarson
Guðm. Jóhannesson
Emil Hjartarson
Þráinn Hafsteinsson
Hafsteinn Jóhanness.
Gunnar Pálsson
Kringlukcst
Erlendur Valdimarsson
Hreinn Hálldórsson
Óskar Jakobsson
Guðni Halldórsson
Páll Dagbjartsson
Elias Sveinsson
Þráinn Hafsteinsson
Sigurþór Hjörleifss.
Erling Jóhannesson
Stefán Hallgrimsson
Þorsteinn Alfreðsson
Guöm. Jóhannesson
Jón Þ. Ólafsson
Ásbjörn Sveinsson
Stefán Jóhannsson
Vilm. Vilhjálmsson
Kjartan Guöjónsson
Guðni Sigfússon
Sveinn J. Sveinsson
Páll Ólafsson
Spjótkast
Óskar Jakobsson
Snorri Jóelsson
Ásbjörn Sveinsson
Elias Sveinsson
Stefán Hallgrlmsson
Þráinn Hafsteinsson
Jón Björgvinsson
Stefán Jóhannsson
Kjartan Guðjónsson
Hörður Harðarson
Karl W. Frederiksen
Logi Sæmundsson
Hafsteinn Jóhanness.
Sigfús Haraldsson
Baldvin Stefánsson
Hörður Hákonarson
Pétur Högnason
Sigm. Hermundsson
Emil Hjartarson
Vilm. Vilhjálmsson
Sleggjukast
Erl. Valdimarsson
Óskar Sigurpálsson
Þórður B. Sigurösson
Óskar Jakobsson
Jón ö. Þormóðsson
Jón Magnússon
Björn Jóhannsson
Guðni Halldórsson
Guðni Sigfússon
Valbjörn Þorláksson
Guðm. Jóhannesson
Marteinn Guðjónsson
Hafsteinn Jóhanness.
Guðm. Sigurðsson
Sigurbjörn Lárusson
Karl W. Frederiksen
Hrafnkell Stefánsson
HSS
ÍR
HSÞ
ÍR
HSH
KR
HSH
A
ÍR
HSH
1?T4
UMSE
HSK
HSH
IA
UMSK
HVÍ
HSK
UMSK
HVl
ÍR
HSS
1R
HSÞ
HSÞ
IR
HSK
HSH
HSH
KR
UMSK
UMSK
ÍR
UMSK
A
KR
FH
A
HSK
HSK
IR
1R
UMSK
ÍR
KR
HSK
A
A
FH
UMSK
UMSK
FH
UMSK
HSÞ
KA
1R
HSH
UMSB
HVÍ
KR
m
18.90
16.55
15.91
15.65
13.96
13.89
13.74
13.68
13.56
13.50
13.44
13.15
12.88
12.87
12.86
12.40
12.37
12.30
12.23
12.17
m
64.32
51.32
50.48
46.00
45.24
44.90
44.12
43.82
43.30
42.20
41.00
40.82
39.00
38.42
38.16
37.88
37.44
37.32
37.30
37.12
m
73.72
63.90
61.74
61.54
59.24
56.68
55.84
55.42
52.98
52.84
51.54
51.42
51.10
50.40
49.68
48.86
48.86
48.10
48.06
47.84
m
60.74
51.46
46.22
44.92
44.84
43.60
43.02
39.14
34.96
34.50
31.56
31.22
30.10
29.28
28.42
27.44
18.44
* V
7'" i iúf’
Önnu-Mariu fagnað eftir að hún sigraði i stórsvigi I Val d’Isere. Þar
sjáum við skinandi plastikföt hennar. Til vinstri er Monika Kaserer,
Austurriki, sem varö I ööru sæti og til hægri Fabienne Serrat, Frakk-
'landi.
Ungi Víkingurinn kominn
ó somning hjá Liverpool
— Óskar Tómasson, landsliðsmaðurinn, sem verður 19 ára í nœsta
mánuði, heldur aftur til Liverpool eftir áramót
Já/ ég hef skrifað undir
samning hjá Liverpool og
mun ieika með varaliðinu
og æfa hjá liðinu eftir ára-
mótin og til vors. Þetta er
áhugamannasamningur
eins og ungir knattspyrnu-
menn á Bretlandseyjum
gera við atvinnufélögin#
sagði Víkingurinn ungi/
óskar Tómasson/ í
morgun. óskar er aðeins 18
ára — verður 19 ára 29.
janúar næstkomandi — en
hann hefur þegar leikið
landsleiki fyrir Island og
marga unglingalandsleiki
og erlendu knattspyrnu-
þjálfararnir/ sem störfuðu
hér í sumar/ telja hann
efnilegastan yngri leik-
manna Islands.
Óskar er nýkominn heim eftir
dvöl i Liverpool og Glasgow, þar
sem hann æföi með frægustu leik-
mönnum hinna þekktu knatt-
spyrnufélaga Liverpool og Celtic
ásamt félaga sinum úr Viking,
Gunnlaugi Þór Kristfinnssyni.
En viðdvölin heima verður
stutt. Einhvern fyrstu daga janú-
ar heldur óskar til Liverpool á ný
— forráðamenn félagsins vildu
ólmir fá hann til sin. Hann er
kominn á áhugamannasamning
hjá félaginu — en þarf að taka
með sér bréf frá Knattspyrnu-
sambandi tslands og félagi sinu,
Viking, þegar hann heldur út eftir
áramótin.
— Ég mun leika með varaliði
Liverpool i „central-ligunni”, þar
sem þar má nota erlenda leik-
Fengu vitneskju um bonn
20 mínútum fyrir keppni
Ég frétti gegnum rabbtæki mitt
tuttugu minútum fyrir keppnina,
aö skiöafötin heföu veriö bönnuö.
Þaö var enginn timi fyrir
stúlkurnar til aö skipta um föt,
auk þess, sem viö höföum enga
vissu fyrir þvi, aö þetta væri ekki
gabb, sagöi þjálfari austurriska
skiöafólksins, Herbert Janko, á
fundi dómnefndar alþjóöaskiða-
sambandsins i gær I Cortina
d’Ampezzo.
Fundurinn var haldinn út af
þýzk-svissneskri kæru vegna fata
þeirra, sem austurrisku skiða-
konurnar klæddust i keppninni.
Símskeyti frá formanni alþjóða-
skiðasambandsins dr. Marc
Holder, barst á keppnisstað 20
minútum fyrir keppnina i heims-
bikarnum i Cortina — og I þvi
kom fram, að sambandið hafði
bannað hin fisléttu plastik-skiða-
föt, þar sem þau væru of hættuleg
ef keppandi félli — veittu enga
mótstöðu á hálum brautunum.
Þetta skapaði mikla ólgu I gær I
Cortina, en dr. Holder, sem er i
Bern, sagöi I gær, að stjórn skiöa-
sambandsins mundi taka til at-
hugunar aö dæma austurrisku
skiðakonurnar úr leik—eða fella
úrslit keppninnar niður. Þær
austurrisku voru i fjórum af tiu
efstu sætum og klæddust léttu
búningunum, þrátt fyrir sim-
skeytið. Hins vegar sagöi fulltrúi
FIS I Cortina, Hilda Schmied, að
árangur keppninnar stæði, þar
sem simskeytið hefði borizt kl. 10
um morgunin, klukkustund fyrir
keppnina, og ómögulegt hefði
verið aö sjá frá hverjum þaö var.
Hún bætti þó viö að framhald
málsins væri þó i höndum FIS.
Anna-Maria Pröll Moser
sigraði I brunkeppninni i gær á
1:28,98 min. og var 47
hundruöustu úr sekúndu á undan
Cindy Nelson, Bandarikjunum.
Hún er nú I efsta sæti keppninnar
um heimsbikarinn með 54 stig —
það er að segja ef úrslitin I
Cortina eru tekin meö — en i öðru
sæti er Wiltrud Drexel, Austurriki
með 41 stig og Cindy Nelson i
þriðja sæti meö 31 stig. En þetta
er semsagt allt i lausu lofti enn,
og þess má geta, að þýzka skiða-
fólkið neitaði að taka þátt i mót-
mælunum gegn búningunum, þó
svo þeirra eigið skiðasamband
hefði bannað þeim að klæðast
þeim. -hsim.
Allir helztu keppendurnir I
heimsbikarnum eru i hinum fis-
léttu plastfötum, sem FIS telur of
hættuieg detti keppandi. A mynd-
inni til hliöar eru Franz Klammer
á fullri ferö I brunkeppninni, sem
hann sigraöi i, þegar keppt var I
frönsku ölpunum.
menn — en hvað skeður i vor er
ómögulegt að spá i. Ensku félögin
vinna að þvi, að erlendir leik-
menn fái að leika með liöum
þeirra i deildakeppninni — og
gera sér vonir um, að það nái
fram að ganga. Þess vegna er
framtiðin alveg óráðin hjá mér,
sagði óskar ennfremur I morgun.
Ég gæti hugsanlega ilengst hjá
félaginu, bætti hann við.
• Vikingur greiddi götu þeirra
Öskars og Gunnlaugs, þegar þeir
fóru til Glasgow og Liver-
pool. í siðari borginni bjuggu þeir
hjá Anthony Sanders, sem þjálf-
aði Vikinga i sumar. Óskar verð-
ur hjá honum eftir áramótin — en
Liverpool greiðir Sanders fyrir
uppihald Óskars.
— Með varaliði Liverpool mun
ég leika einn til tvo leiki á viku og
fæ þvi fleiri leiki þar til vors en
hér heima I allt sumar. Þetta er
skemmtileg keppni — og þar leika
oft kunnustu leikmenn Englands,
sem kannski eru að jafna sig eftir
meiðsli, eða hafa dottiö út úr
aðalliðunum á annan hátt. Þetta
verður þvi mikill lærdómur — og
svo að fá tækifæri til að æfa með
nokkrum af beztu knattspyrnu-
mönnum á Bretlandseyjum, sem
leika með Liverpool eins og Keeg-
an, Heighway, Lindsay og öllum
stóru nöfnunum. Það er stórkost-
legt — eins og ég komst að raun
um á dögunum, sagði Óskar.
Þess má geta, að þeir Óskar og
Gunnlaugur léku meö varaliði
Celtic gegn Queen of South. Jafn-
tefli varð 2-2 og skoraði Óskar
annað mark Celtic — en lagði hitt
upp. 1 Liverpool lék Óskar með
félagi Anthony Sanders, Altrin-
cham, gegn varaliði Liverpool og
sigraði lið Tony 3-2. Ekki skoraði
Óskar I þeim leik — en lék svo vel,
að hann komst undir smásjá
Liverpool. Gunnlaugur gat ekki
tekiö þátt I þeim leik, þar sem
hinar gifurlega erfiöu æfingar,
sem hann og Óskar urðu að leggja
á sig hjá Celtic og Liverpool, voru
erfiðar fyrir vöðva hans.
Óskar Tómasson hefur lokiö
námi I Réttarholtsskóla — og
áhugi hans beinist nú mjög að
knattspyrnunni. Hann er eitt
mesta „efni” sem hér hefur kom-
ið fram lengi og framtiðin blasir
við honum. Að lokum spurðum
við hann hvort hann kæmi heim I
vor — og þá með Anthony Sand-
ers.
— Það er allt á huldu — en ég
vona af heilum hug, að Sanders
sjái sér fært að verða þjálfari hjá
Viking næsta sumar. — hsim.
Óskar Tómasson — til Llverpool.
Flokkaglíma
Reykjavíkur
á sunnudag
Reykjavikurmótið I glimu, eöa
Flokkaglima Reykjavikur, eins
og mótiö er kallaö.fer fram I leik-
fimisal Melaskólans i sunnudag-
inn og hefst kl. 14,00.
Keppt verður i sex flokkum —
þrem þyngdarflokkum karla og
þrem unglingaflokkum — og eru
skráðir keppendur tuttugu og
tveir, þar af tólf i karlaflokkun-
um.
Ef allt fer eftir bókinni getur
orðið skemmtileg keppni i öllum
flokkum. t 1. flokki kemur hún
liklega til að standa á milli Péturs
Ingvarssonar UV og Jóns
Unndórssonar KR, en þó geta hin-
ir blandað sér i baráttuna.
1 2. flokki verður keppnin trú-
lega á milli Ómars Úlfarssonar
KR og Hjálms Sigurðssonar UV,
en i 3. flokki á milli Halldórs Kon-
ráðssonar UV, Rögnvaldar Ólafs-
sonar KR og Guðmundar Fr.
Halldórssonar Armanni. En úr
öllu þessu fæst skorið á sunnu-
daginn I Melaskólanum.
~klp—
Vinnur Fram allt sem eftir er?
— Reykjavíkurmótinu í handknattleik lýkur
um helgina og Fram á möguleika á sigri
í öllum flokkum, sem eftir er að keppa í
geta orðið anzi skemmtilegir.
Þessa dagana stefnir Fram aö
titlinum „Bezta handknattleiks-
félag Reykjavikur”. Þegar er
félagið búiö aö sigra i einum
flokki I Reykjavikurmótinu i
handknattleik, sem staöiö hefur
yfir undanfarnar vikur, og um
helgina á Fram möguleika á aö
sigra i sex flokkum i viöbót.
Ef það tekst, hefur Fram sigraö
i sjö af niu flokkum, sem keppt er
i á þessu móti — Valur hefur þeg-
ar sigrað I meistara og 1. flokki
kvenna — en Fram á enn mögu-
leika á að sigra I öllum fimm
karlaflokkunum.
Siðustu leikirnir I Reykjavikur-
mótinu — þ.e.a.s. ef ekki þarf að
leika aukaúrslitaleiki — fara
fram i Laugardalshöllinni um
helgina og ættu margir þeirra að
Staðan i einstökum flokkum fyrir
þessa leiki, er sem hér segir:
1. flokkur karla. Þar hefur
Fram tapað 3 stigum og á að
mæta KR. Vikingur hefur aftur á
móti tapað 2 stigum og á leik við
Leikni. Ráðast.úrslitin i þessum
flokki af þeim leik.
I 2. flokki karla er Fram svo til
öruggur sigurvegari — hefur ekki
tapað leik — en hin félögin öll tap-
að meira og minna. t 3. flokki
karla eru tvisýn úrslit. Þar mæt-
ast KR og Fram, sem ekki hafa
tapað leik, og er það þvi hreinn
úrslitaleikur.
Strákarnir i 4. flokki úr Fram
og Viking mætast einnig I hrein-
um úrslitaleik, en þeir sigruðu i
sinum riðlum I þessum flokki.
1 2. flokki kvenna standa Fram
og Fylkir jöfn að vigi, og sigra
trúlega i sinum leikjum um helg-
ina. Er þvi útlit fyrir að þarna
þurfi að fara fram aukaúrslita-
leikur á milli þessara félaga.
1 3. flokki kvenna var leikið i
riðlum eins og i 4. flokki karla, og
sigraði Fram i sinum riöli og ÍR i
sinum Mætast þau á sunnudag kl.
14,00 en þá verður einnig leikið i 4.
flokki karla og 2. flokki karla og
kvenna. Á morgun — laugardag
— verðurafturá móti leikið i 1. og
3. flokki karla og hefst keppnin þá
einnig kl. 14,00. — klp —
Bönnuðu knattspyrnubók
— og þá fyrst vakti hún verulega athygli og nú seld á margföldu verði
Bönnuö bók, þar sem sagt er
frá mútum og ööru heldur miöur
skemmtilegu innan Knatt-
spyrnuhreyfingarinnar I Ung-
verjalandi, er aö veröa met-
sölubók þar I iandi. Bók þessi
ber nafniö „Þvi er ungversk
knattspyrna sjúk?” og er
skrifuö af rithöfundinum Antal
Vegh, sem er mikili knatt-
spyrnuaödáandi, og þekkir vel
til málanna i Ungverjalandi.
Hann hefur alltaf þótt heldur
frjálslyndur I skoöunum, og var
rekinn úr rithöfundasamtökun-
um fyrir 10 árum fyrir að segja
einum of mikið, eins og frétta-
maður UPI i Ungverjalandi
oröar það i fréttaskeyti sinu
þaðan.
Þegar bókin kom út fyrir
nokkru, var hún bönnuð af yfir-
völdunum og tekin úr öllum
bókabúðum, sem hún haföi
verið sett i daginn áður. Var þaö
mest gert fyrir orð fyrrverandi
þjálfara landsliðsins, Rudold
Illovszky, sem segir, að i henni
sé að finna niðrandi orð um sig
— og hefur hann þar nokkuð til
sins máls, enda fær hann góðan
„vals” hjá Vegh.
Bókin kostaöi upphaflega sem
samsvarar 60 krónum Islenzk-
um, en nú er hún seld á vel yfir
2000 krónur á svörtum markaöi,
segir i ungkommúnistablaðinu
„Magyar Ifjusag” sem hefur
birt kafla úr henni og þykist
vera hneykslað á skrifunum.
Menn eru þó almennt á öðru
máli og segja að með þessu hafi
blaðið viðurkennt, að eitthvað
sé til i þvi, sem Vegh hefur fram
að færa.
Hann segir, að öll forustan I
ungversku knattspyrnunni sé
rotin og leikmenn og forráða-
menn félaganna hugsi um þaö
eitt að græða sjálfir sem mest á
iþróttinni.
„Undir stjórn Illovszky
hrapaði Ungverjaland niður I
23ja sæti i Evrópu. Hann var
ekki neinn leiðtogi eöa þjálfari,
heldur puntudúkka,” segir Vegh
i bókinni sem er 170 blaðsiöur á
stærð.
Þá segir hann, að staða knatt-
spyrnunnar heima fyrir sé mjög
einkennileg. Laun leikmanna
séu ekki gefin upp, en þó viti
allir Ungverjar, aö þeir hafi góð
laun, aukagreiðslur fyrir unna
leiki, fria bila og fritt húsnæöi.
Bendir hann á margt þvi til
staðfestingar.
„Það er erfiöara að komast að
tekjum þeirra en hernaðar-
leyndarmálum rikisins,” segir
Vegh — „Og er ástæðan sú, að
verið er aö fela það fyrir öðrum
þjóðum og þvi hægt að senda at-
vinnumennina i knattspyrnu-
keppni Olympiuleikanna sem
áhugamenn.”
Hann segist geta bent á mörg
dæmi um mútuþægni og ýmis-
legt annað i ungverskri knatt-
spyrnu og gefur i þvi sambandi
ákveðna punkta. Annars getur
hann þess, aö formaður ung-
verska knattspyrnusam-
bandsins, Istavan Kutas, hafi
hótaö sér öllu illu, ef hann
skrifaði bók um þetta mál, og
gert allt til að koma i veg fyrir
að bókin kæmi út.
Margt af þvi, sem Vegh segir i
bókinni, hefur vakið geysilega
athygli og um fátt meira talað
meðal ungverskra knattspyrnu-
unnenda þessa dagana. Hann
segir t.d. að Illovszky hafi
komið á leik á milli ungverska
landsliðsins og lélegs félagsliðs
á Spáni og sagt heima fyrir að
það hafi verið landsleikur.
Þetta hafi verið gert til að láta
lita svo út, að ungverska lands-
liöið gæti eitthvaö á alþjóða-
vettvangi, og peningar á bak við
þaö — „liklega bæði fyrir Spán-
verjana og Illovszk-y” segir
Vegh.
Illovszky hefur ákveðið að
fara I málaferli við Vegh út af
þvi, sem hann segi um hann i
bókinni, og fleiri munu einnig
hafa hug á þvi. Vegh segir öllum
að gjöra svo vel, þá geti hann
kannski látið ýmislegt annnað
koma fram, sem hann hafi ekki
sagt frá i bókinni, og geti það
orðið fróðlegt fyrir ungverska
knattspyrnuunnendur, sem ekki
fái að lesa bókina nema i laumi,
að fylgjast með þeim réttar-
höldum. -klp-
l£t7KicL4l
Nýjung frá Marks & Spencer.
Kvenfata-samstæður í fjölbreyttu litaúrvali:
Golftreyjur, vesti, blússur, pils, peysur
og síðbuxur.
Fallegur og smekklegur klæðnaður
í völdum litasamsetningum.
Fæst í Gefjun Austurstræti,
Domus Laugavegi 91,
Vöruhúsi KEA Akureyri
og kaupfélögum um land allt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200