Vísir - 19.12.1974, Blaðsíða 7
Visir. Fimmtudagur 19. desember 1974.
DULARFULLT
I Klausturhólum
sprettur Fanney Jóns-
dóttir fram í dagsljósið
og sýnir 41 olíumálverk.
Við vitum lítið um Fann-
eyju/ og forráðamenn
Klausturhóla virðast
litlar upplýsingar getað
gefið. Sömuleiðis er
ekkert verkanna með
ártali. Væri æskilegt að
þeir sem setja saman
sýningarskrár, hversu
litlar sem þær eru,
reyndu að gefa fleiri
upplýsingar en um nafn
og verð verks.
Fanney er sögð hafa numið i
Danmörku og er ekki laust við
að sum verka hennar beri svip
af Slésvik-Holstein „skólanum”
svonefnda, sem að einhverju
leyti tók mið af Emil Nolde.
„Gleðskapur” nr. 7 er klaufaleg
tilraun til að nálgast kabarett og
kaffihúsaverk Noldes. Ég hef
grun um að Fanney hafi ekki
haldið áfram nægilega langt i
námi slnu, þvi verkin bera vott
um að þótt hún hafi náö
sæmilegu valdi yfir mynd-
byggingu og lit er teikning
hennar veiki punktur. Hún
reynir að fela þennan veikleika i
skærum, þykkum litum og
gengur þá oft of langt, litand-
stæðurnarhitta ekki á réttan tón
og myndirnar verða hráar. Best
er Fanney þegar hún þynnir liti
sina, eins og i „Reynitré” nr. 4.
og „Girðingin” nr. 6. og nær hún
þá skikkanlegúm hrynjanda.
Tvær andlitsmyndir hennar
MYNDLIST
eftir Aðalstein
Ingólfsson
nr. 35 — 36 (eldri ?) eru einnig
frambærilegar, en aðrar (nýrri
?) detta alveg um sjálfar sig
bæði hvað form og litaval
snertir.
Fanney Jónsdóttir: nr. 6: Girðingin.
BÆKUR
Draumabók
Bókaútgáfan Hildur hefur sent
frá sér kver, sem heitir Drauma-
bók, og er undirtitill Drauma-
ráðningar ásamt draumaráðn-
ingum nafna. — Leiöarvisir til aö
spá I spil og kaffibolla. Bibi Gunn-
arsdóttir tók kverið saman, en
það er 87 blaðsíður og kostar kr.
399.-
^&tiiwtuvúidningat
ásamt StaxmMÍÍninfam aaéna.
JlstÚateíni
tii ffiá s ifiit tfy kaWiklU
Hanna Maria
Hanna Maria og Viktor verða
vinir heitir ný saga Magneu frá
Kleifum, sem Bókaforlag Odds
Björnssonar gefur út. Þetta er
fjórða bókin um Hönnu Mariu,
sem á heima I Koti, hjá afa slnum
og ömmu, segir á bókarkápu.
Bókin er 153 bls. að stærð og verð-
ið er kr. 952,-.
MUNIÐ
RAUÐA
KROSSINN
Smaauglýsingar
VÍSIS eru virkasta
verðmætamiðlunin
STÓRFRÉTT FYRIR
SJÓNVARPSTÆKJAKAUPENDUR:
Kaup á svart-hvítu tæki nú= innborgun
á litsjónvarpstæki framtíðarinnar.
í september s.l. varð íslenzka sjónvarpið átta ára.
All mörg þeirra sjónvarpstækja, sem keypt voru í
tilefni af opnun stöðvarinnar, eru nú þvi komin eða
að komast á endurnýjunarstig. Það, að endurnýja
sjónvarpstæki, er þó ekki jafn einfalt mál og það
ætti að vera. Ástæða þess er sú helzt, að stjórn-
völd hafa dregið það óhóflega, að ákveða, hver
þróun sjónvarpsmála á fslandi skuli verða, hvort
koma skuli hér litsjónvarp eða ekki og þá hvenær.
— Hefur sú óvissa, sem þetta afstöðuleysi ráða-
manna hefur valdið, orðið til þess að gefa alls kon-
ar sögusögnum um málið byr undir báða vængi, og
er nú svo komið, að menn vita vart sitt rjúkandi ráð.
— Er hér þó ekki um neitt smámál að ræða, því
24ra þumlunga svart-hvít sjónvarpstæki kosta nú frá
50 upp í 80 þús. kr. og littæki þre- til fjórfalt meira,
og kemur málið til með að varða flestar fjölskyldur
landsins áður en yfir lýkur. — Nokkrar sjónvarps-
tækjaverzlanir hafa hafið innflutning og sölu litsjón-
varpstækja, og skipta þeir menn sennilega nokkr-
um tugum, sem keypt hafa slík tæki dýrum dómum
i von um, að fregnir blaða og fullyrðingar sölumanna
um, að litútsendingar væru á næsta leiti, væru á
rökum reistar. — Ekki höfum við haft geð í okkur
til að taka þátt í þessum leik, enda ekki talið það
ábyrga viðskiptahætti, að selja mönnum litsjón-
varpstæki á margföldu verði svart-hvíts tækis,
meðan ekkert liggur fyrir um, hvort eða hvenær
umfram tækni littækisins muni nýtast. — Eins og
fram kemur þykja okkur kostir hins almenna sjón-
varpskaupanda ekki góðir, og höfum við nú ákveð-
ið að taka af skarið og veita hverjum þeim, sem af
okkur kaupir svart-hvítt sjónvarpstæki, þriggja-ára-
skiptarétt á því, þ.e. rétt til að skipta því upp i lit-
sjónvarpstæki i allt að 3 ár frá söludegi á grundvelli
15% affalla fyrsta árið og 10% affalla á ári eftir
það. — Við vonum, að þetta verði talið gott átak
í þeirri viðleitni okkar að veita viðskiptavinum okk-
ar, jafnt sjónvarpstækjakaupendum sem öðrum,
aukna þjónustu og fyrirgreiðslu.
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviói sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150-19192-27788