Vísir - 04.01.1975, Side 2
2
Vlsir Laugardagur 4. janúar 1975
Tísnsns:
Finnst þér íslendingar
klæða sig eftir veðri?
Ingdlfur Ingólfsson: — Þaö er
óskaplega misjafnt og einstak-
lingsbundið. Þó held ég, að fólk
fari yfirleitt í betri skjólflikur en
fyrir nokkru árum.
ólafur Sigvaldason, fulltrói: —
Það finnst mér. 1 þaö minnsta
meira en áður. En vafalaust ætti
aö klæöa sig enn betur I kulda eins
og núna.
Hjalti Þorsteinsson, vaktmaöur:
— Þaö finnst mér ekki. Þó hefur
þaö batnað sfðustu árin. Unga
fólkið klæðir sig meira i ull á
vetrarferðum en það gerði áður.
Enn má þó bæta á til að
klæönaðurinn verði virkilega i
samræmi viö kuldann.
Adda Jensdóttir, keuuarl á
Laugarvatni: — Já, jó, alveg
ógætlega. Klæöaburöurinn hefur
aö þessu leytinu batnaö mikið frá
þvi ég var ung.
Sólveig Halldórsdóttir, hdsmóóir:
— Nei, yfirleitt ekki. Ég held fólk
taki meira mið af tizku en veöri.
Þó verður að játa, að tizkan nú
tekur meira mið af veðri en áöur
var.
Þór Arnason, bakari: — Ekki
kvenfólkið. Frekar held ég, aö
karlmennirnir geri það. En al-
mennt tekur fólk ekki nægilegt
tillit til veðurs. Af hverju það
stafar, veit ég ekki. Sennilega
kæruleysi.
Vandamól
vegna stððu-
mtela við
Grettisgötu:
Guðlaug Sveinbjarnardóttir,
Grettisgötu 35, hefur sent
blaðinu eftirfarandi afrit af
bréfi, sem hún sendi lögreglu-
stjóra þann 20. desember. Afrit
af bréfinu voru sömuleiðis send
dómsmálaráðuneytinu og
borgarráði:
Hr. lögreglustjóri
Sigurjón Sigurðsson!
Meö bréfi, dags. 10. desember
1974, tilkynnið þér mér undir-
ritaðri, skráðum eiganda
bifreiðarinnar 3-40139, að yður
hafi borizt skýrsla um, að
bifreiö min hafi staðið ólöglega
viö stöðumæli 287 viö Grettis-
götu 18. október 1974 kl. 14:08. I
bréfi yöar er jafnframt rakið, að
samkvæmt tilkynningu, sem
fest hafi verið á bifreiðina, hafi
ökumanni hennar verið gefinn
kostur á að ljúka máli út af
brotinu með greiðslu aukaleigu-
gjalds innan viku. Þar sem þvi
boði hafi eigi verið sinnt, sé nú
gefinn kostur á að ljúka máli
þessu án dómsmeðferðar með
greiðslu sektar kr. 500,- til rikis-
sjóðs.
Mér eins og öðrum ibúum
Grettisgötu,hafa að undanförnu
borizt fjölmargir miðar vegna
stöðu bifreiðar við rauð-merkta
stööumæla á Grettisgötu. 1
fjölskyldu minni er ekki haldin
dagbók yfir notendur bifreiðar-
innar hverju sinni. Þar sem efni
bréfs yðar, hr. lögreglustjóri, er
beint til ökumannsþess, er lagði
bifreiðinni við stöðumæli 287 i
þaö sinn, er þér tilkynnið, verö
ég aö fara þess á leit við yður,
iaö þér beinið sektarkröfum yðar
aö ökumanni þeim nafn-
greindum, er þér teljið hafa
framiö meint brot. '
Meðal miða þeirra, sem I
minum fórum eru, er tilkynning
sú, er þér greinið frá i bréfi yðar
og sendi ég hjálagt ljósrit af þvi
skjali. Tilkoma skjals þessa i
minar hendur svo og efni þess
vekja upp nokkrar spurningar,
sem hér með er leitaö svara viö.
1. Stöðumælavörður G.S.,
starfsmaður Reykjavikur-
borgar, hengir á bifreið mina
tilkynningu frá lögreglunni i
Reykjavik, sem er rikislög-
regla. Mér eru ekki kunnir
neinir samningar rlkis og
sveitarfélaga né lög, er
heimila slikar gjöröir starfs-
manna sveitarfélaga á
ábyrgð rikislögreglu né
Þörf
ábending
„Rjúpnaskytta” hringdi:
,,Mér þótti það þörf ábending,
sem verzlunarstjóri Skátabúð-
arinnar kom með i Visi i dag
(þriðjudag).
Hann sagði, að menn ættu
ekki að treysta I blindni á neyð-
arhjálpartæki, né láta það ógert
að prófa þau fullkomlega áöur
en farið er að treysta á þau.
Þetta er mjög einfaldur sann-
leikur hjá verzlunarstjóranum,
og ég tel, að allir, sem á ein-
hvern hátt þurfa að treysta á
slik tæki, ættu að fara eftir
þessu.
Hugsið ykkur t.d. ef það hefði
gerzt I raun og veru, aö þetta
neyöartæki, sem bilaði, hefði
ekki verið prófað fyrr en uppi á
reginfjöllum, af einhverjum fót-
brotnum göngugarpi. Það heföi
ekki þýtt mikið þá að hugsa illa
til framleiðanda tækisins.”
EINKAMAL EÐA
OPINBERT MÁL?
heldur um heimild til handa
sveitarfélögum til að dreifa
seðlum með nafni lög-
reglunnar i Reykjavik.
Starfar stöðumælavörður
G.S. i umboði yðar og eru
gjörðir hans, sem sliks á
ábyrgð rikisins?
2. Skv. ákvæöum reglna nr.
185/1966 eru gjöld f stöðumæla
leigugjöld fyrir afnot
stöðumælareits i ákveðinn
tima sbr. ákv. 4. gr. Standi
bifreiö fram yfir tilsettan
tima, skal greiða „auka-
leigugjald” 50 kr. sbr. 4., 6. og
14. gr. Leigugjöld og auka-
leigugjöld renna til stöðu-
mælasjóðs, sem er eign
Reykjavikurborgar. A skjali
þvi, sem hér um ræðir, er
skrifstofa lögreglustjóra til-
greindur innheimtuaðili
þessara leigugjalda.
Eru ákvæði laga eða
samninga, er heimila lög-
reglustjóra að taka að sér
innheimtu fyrir sveitarfélög
eða ábyrgð á fjárreiöum
þeirra?
3. Allt frá þvi að bifreiðar tóku
að flytjast til Islands, hefur
Ibúum húseignarinnar
Grettisgötu 35 svo og þeim,
sem þangað hafa átt erindi,
verið heimilt að leggja bifreið
sinni hér við götu endur-
gjaldslaust. í október sl. var
farið að krefja mig leigu-
gjalds fyrir bifreiðastæði við
götuna og nam þvi hækkun
gjaldsins hinu óendanlega að
hundraðshluta. Hefur farið
fram athugun á þvi hjá
embætti yðar, hvort hækkun
þessi striði eigi gegn ákvæð-
um laga nr. 88/1974 um við-
nám gegn verðbólgu (verð-
stöðvun)?_
4. Á skjalinu er „aukaleigu-
gjald” talið vera 100 kr. Skv.
ákvæðum 6, og 14. gr. reglu-
gerðar nr. 185/1966 er auka-
leigugjald þetta ákveöið 50 kr.
Mér er kunnug auglýsing
borgaryfirvalda frá sl. sumri
um, að gjald þetta skuli vera
100 kr.
Að undanförnu hefur gilt i
landi hér bann við verðhækk-
unum nema þar til bær
verðlagsyfirvöld leyfi
hækkanir. Með hliðsjón af
þessum ákvæðum ákvað
dómsmálaráðherra t.d. að
biöja saksóknara um rann-
sókn á þvi, hvort eigendur
Iðnó mættu hækka leigugjöld
af þvi húsi.
Hefur embætti yðar
athugað eða fengiö um það
úrskurð, að umrædd hækkun
á aukaleigugjaldi hafi verið
heimil?
5. I bréfi Höskulds Jónssonar,
Grettisgötu 35, til borgarráðs,
dags. 1. október sl„ sem jafn-
framt birtist i dagblöðum, er
aö þvi vikið, að uppsetning
stöðumæla við Grettisgötu
væri óheimil. I þvi sambandi
var vitnað til itaks eða hefðar
um rétt til gjaldfrjáls stæðis
fyrir bifreið svo og að aukin
umferð vegna tilkomu
mælanna ylli óhóflegri röskun
á stöðu og högum ibúa við
Grettisgötu. Ljóst má vera,
að ágreiningur um þessi
atriði er einkamálalegs eðlté.
Leiða má og aö þvi rök, að
vangreitt stöðumælagjald sé I
sjálfu sér vangreidd leiga og
þvi einkamál en eigi
lögreglumál.
Hver eru rök yðar sem
starfsmanns rikisins til
afskipta af deilu einkamála-
legs eölis milli ibúa Grettis-
götu og borgaryfirvalda
Reykjavikur?
Ljóst má vera, að með
afskiptum yðar og fullyrðingum
um „brot”, sbr. bréf yðar frá 10.
desember 1974, gerist þér, á
ábyrgð rikissjóðs, úrskurðar-
aðili i mjög flóknu máli án þess
aö aðili sá, er þér nefnið brot-
legan, hafi haft tækifæri til að
kynna yður rök sin i máli þessu.
Virðingarfyllst,
Guðlaug Sveinbjarnardóttir,
Grettisgötu 35,
Reykjavik.
ÓÞARFA FYRIRHÖFN
LÖGÐ Á BÍLEIGENDUR
„Bíleigandi” hringdi:
„Það var mikið rætt um það
fyrir nokkrum mánuðum, að
flestöll þessi aukagjöld, sem
sett voru á bileigendur, skyldu
felld niður. Atti þar með að
minnka skriffinnsku, en i stað-
inn ná inn töpuðu tekjunum með
hækkuðu benzínverði.
Sum gjöldin voru felld niður,
önnur ekki, og benzin hækkaði.
Af þeim, sem ekki voru felld
niður má nefna vátryggingu
ökumanns og skoðunargjald.
Að fella ekki niður öll gjöldin
er einhver mesti ógreiði, sem
gerður var bileigendum. Fyrir
utan það nú, að vátrygging öku-
manns var hækkuð mikið, eða I
rúmar tvö þúsund krónur og svo
kosta þessi tvö skyldugjöld
sérstaka ferð á skrifstofu toll-
stjóra, til þess að greiða þau.
Bfll fær ekki skoðun, ef þessi
gjöld hafa ekki verið greidd. Þá
er ekki annað að gera en fara
niður I miðbæ, til þess að greiða
gjöldin. Sú ferð kostar langa leit
að bflastæðum, þvi að öll bfla-
stæöi i nágrenni skrifstofu toll-
stjóra eru upptekin allan dag-
inn. Svo er að koma sér upp á
fjórðu hæð og greiða.
Það er furöulegt, að 40 þúsund
bileigendum skuli stefnt á þessa
skrifstofu, til að greiða auvirði-
leg gjöld, sem allir hefðu fegnir
viljaö borga með bensinverðinu.
Gjalddagi þessara gjalda var
2. janúar i ár. Gaman hefði ver-
ið, ef allir bfleigendur hefðu
stormað á skrifstofu tollstjóra,
til þess aö greiða gjöldin.
1 þessu tilfelli má ekki heldur
gleyma öllum tilkostnaðinum
við innheimtu og prentun eyðu-
blaða.
Ég vona, að þetta verði lag-
fært fyrir næsta ár.”