Vísir - 04.01.1975, Page 3
Visir Laugardagur 4. janúar 1975
3
Nú streyma inn pantanir ó megrunarkúrum:
Losa sig við
aukakílóin sín
Eftir allar kræsingarnar og
ofátið, sem svo oft vill verða um
jólin og áramótin, hefur aðsókn-
in aukizt hjá þeim, sem bjóða
upp á megrunarfæði eða kúra.
Þær upplýsingar fengum við,
þegar við forvitnuðumst svolitið
á þeim stöðum.
Það er heldur ekki furða, þótt
einhverjir hugsi sitt ráð. Sam-
vizubitið gerir oft illa vart við
sig, þegar búið er að troðfylla
magann allt of oft, og það eykst
að mun, þegar stigið er á vog-
,ina, enda sýnir hún oft nokkra
ábót.
„Það er mikið hringt og spurt
um megrunartima”, var okkur
sagt i Heilsuræktinni Hebu i
Kópavogi. Stúlkan, sem við
ræddum við, sagði, að nú væri
einmitt sá timi, þegar fólk færi
afturaðhugsa um linurnar. Það
kvartaði yfir þvi að eiga óeðli-
lega óhægt um hreyfingar, var
okkur tjáð.
1 Hebu er boðið upp á sérstaka
tima fyrir þá, sem vilja megra
sig, og er þar stunduð almenn
leikfimi og svo matarkúrar.
Og hvað má svo ekki borða?
Það er svo margt, t.d. ekki
brauð eða smjör. En okkur var
sagt, að óhætt væri að borða
yoghurt, þurrsteikt nautakjöt,
fisk, hrásalat (án sykurs) o.fl.
„Jú, það er óneitanlega meiri
hreyfing eftir jólin”, var okkur
sagt, þegar við höfðum sam-
band við Heilsuræktina i Glæsi-
bæ.
Þar fengum við þær upp-
lýsingar, að aösókn lægi tölu- pantanir frá þeim, sem hug nata
vert niðri um jólin, en núna eru á að losa sig við aukakilóin.
svo farnar að streyma inn —EA
JARÐAR-
FÖRIN í NES-
KAUPSTAÐ
Otför Norðfirðinganna, sem
iétu lífiö, f snjóskriðunum fyrir
jól, var gerð frá félagsheimilinu
Egilsbúð mánudaginn 30.
desember. Þá voru til moidar
bornir tiu af tóif, sem iétust hinn
örlagarika dag. Tvö likanna
hafa enn ekki fundizt, þrátt fyrir
mikla leit.
Myndin er frá útförinni, en
séra Páli Þórðarson, sóknar-
prestur i Neskaupstað, jarðsöng
Honum til aðstoðar var séra
Sigurður H. Guðnason, sóknar-
prestur á Eskifiröi.
— JBP —
Ahríf
frá ár-
dögum
Á nýja árinu opnar Þór-
steinn Þórsteinsson sina
sjöundu einkasýningu i
Klausturhólum við Lækjar-
götu. Þórsteinn er 44 ára
gamaii, og hefur stundað
máiaralist mestan hiuta ævi
sinnar.
Á sýningunni er fjöldi
mynda, þar sem Þórsteinn
leitast við að sýna verur eða
fólk, sem leikur fyrir hugskot-
sjónum hans. Myndirnar sýna
goðum líkar figúrur, minna
helzt á hellaristur frá þvi ein-
hvern timann I árdaga.
Myndirnar eru allar til sölu og
stendur sýning tii 15. janúar.
-JB.
Þórsteinn Þórsteinsson við
eina myndanna á sýningunni.
Ljósm. Bj. Bj.
DISILRAF-
MAGNIÐ
KOSTAR
TÆP 700
ÞÚS. Á DAG
— og er óœtlað að kosta það ó
þessu ári, þótt unnt verði að
stöðva margar dísilvélarnar
Rafmagn var hvergi á landinu
skammtað i gær klukkan um
þrjú, samkvæmt upplýsingum
Valgarðs Thoroddsen, sem þá
boðaði til blaöamannafundar til
að skýra frá starfsemi og
ástandi Rafmagnsveitna rlkis-
ins.
Aukning rafnotkunar hefur á
siðustu fjórum árum verið 94%,
mest 128% á Austurlandi en
minnst 42% i Reykjavik. Hin
mikla aukning á rafmagnsnotk-
un á Austurlandi stafar að veru-
legu leyti af mikilli aukningu á
rafhitun og auknum atvinnu-
rekstri, en vitundin um væntan-
legt rafmagn frá Lagarfoss-
virkjun hefur orðið til þess, að
eftirspurnin hefur aukizt svo
verulega.
Eigin framleiðsla Rafmagns-
veitna rikisins hefur á sama
tima aukizt um 67%, en orku-
kaup um 60%. Framleiðsla Raf-
magnsveitnanna með vatns-
aflstöðvum hefur aukizt um
40%, og eru vatnsaflstöðvarnar
nú nýttar til siðasta dropa.
Aukning rafmagnsframleiðslu
með disilstöðvum er á þessum
fjögurra ára bili, frá 1970 til
1974, að báðum árum meðtöld-
um, 126% en fast að helmingur
hennar er á Austurlandi.
Árið 1970 kostaði olia til disil-
stöðva Rafmagnsveitna rikisins
26 milljónir króna, 35 milljónir
1971, 41 milljón 1972, 93 milljónir
1973, en hvorki meira né minna
en 250 milljónir árið 1974, eða
um 685 þúsund krónur á dag til
jafnaðar.
A siðasta ári var lokið við raf-
linu frá Andakilsárvirkjun að
Vegamótum á Snæfellsnesi.
Þessu var lokið á aðfangadag
siöasta og við svo slæmar að-
stæður, að þrjá starfsmannanna
kól. Þá var Snæfellsnes sunnan-
vert komið i samband við
Landsvirkjun um Andakil.
Lagðir hafa verið staurar um
Kerlingarskarð til Stykkis-
hólms, og verður strengt á þá
þegar gefur. Þegar sú lina er
komin i gagnið, verður unnt að
nota tvær disilstöðvar á norðan-
verðu Snæfellsnesi aðeins til
vara, ■ sparast við það 65 millj.
króna á ári. Siðasta. sumar var
lina lögð frá Vik aílt að Núps-
vötnum, og disilstöðin á Kirkju-
bæjarklaustri stöðvuð. Þegar
Lagarfossvirkjun kemst af stað,
væntanlega um niiðjan febrúar,
verður hægt að stöðva fjölda
dfsilvéla á Austfjörðum. Þrátt
fyrir þessa fækkun disilstöðva
er gert ráð fyrir, að oliukostnað-
ur disilstöðva Rafmagnsveitn-
anna verði sá sami i ár og i
fyrra, eða um 250 milljónir.
Hvert kilówatt úr disilstöð
kostar um kr. 5.50, en úr vatns-
orku um 2,50. Miöað viö núgild-
andi verðlag kostar um 20 þús-
und á kilówatt að koma upp
disilstöðvum, en i þeim eru nú
framleidd um 30 þús. kilówött,
svo stofnkostnaður þeirra er um
600 þúsund, ef miðað er við dag-
inn I dag. Stofnkostnaður vatns-
aflsvirkjana mun vera 60-70
þús. kr. á kw„ en rekstrar-
kostnaður þeirra er hverfandi,
„þvi að vatnið þarf að renna
hvort sem er,” eins og komizt
var að orði á fundinum.
Háspennulfnur, 11 til 132 kiló-
volta, eru nú orðnar um 8000 km
að lengd, og sagði Valgarð, að
það myndi samsvara linu frá Is-
landi til Peking.
Með Valgarði Thoroddsen
sátu þennan fund verkfræðing-
arnir Sverrir Olafsson og Ind-
riði Einarsson.
— SH.