Vísir - 07.01.1975, Qupperneq 16
Þriöjudagur 7. janúar 1975.
ERU~
DAGA-
TÖLIN
LÚXUS?
Shell hœttir útgáfu
dagatala
— sparar 2,5
milljónir á ári
„Astæöan fyrir þvi, aö viö gef-
um ekkert dagatai út i ár, eru
fyrst og fremst þær tvær og hálfa
milljón, sem þaö kostar aö gefa
vandað dagatal út nú,” sagöi
Ragnar Kjartansson, fulltrúi hjá
oliufélaginu Skeljungi, sem lagt
hcfur niöur dagatalsútgáfu sfna.
Um árabil hafa oliufélögin öll
gefið út sér dagatöl, en nú hefur
Skeljungur helzt úr lestinni.
„Við erum alveg óhræddir við
að spara útgjöldin á þennan hátt.
Við teljum, að peningunum sé
betur varið i eitthvað annað en að
gefa út 20 þúsund dagatöl á ári
hverju,” sagði Ragnar.
„Það er staðreynd, að af öllum
þeim fjölda dagatala, sem gefinn
er út á ári hverju, nýtist aðeins
litill hluti,” sagði Ragnar.
Einn af kostnaðarliðunum viö
útgáfu dagatala eru tvær krónur,
sem greiða þarf af hverju útgefnu
dagatali til almanakssjóðs, sem
stofnaður var 1921.
Þá var fært i lög, að Háskóli Is-
lands hefði einkarétt á útgáfu
dagatala og er almanakssjóður i
umsjá hans.
Sjóðurinn á að stuðla að rann-
sóknarstörfum á sviði stjörnu-
fræði og hafa greiðslur úr honum
siðustu árin runnið til Þorsteins
Sæmundssonar fyrir rannsóknir
hans. I
—JB *
Flogið 23
ferðir með
1720 farþega
Aðeins hœgt að sinna
áœtlunarflugi innan-
lands tvo daga það
sem af er árinu
Það var lfflegt i innanlandsflugi
Flugfélags tslands I gær. Þá flutti
félagiö 1720 farþega I 23 flugferö-
um meö fimm flugvélum.
Það var annar dagur ársins,
sem viðraði til innanlandsflugs.
Fyrri dagurinn var á sunnudag-
inn, þegar Flugfélaginu tókst að
fljúga til Egilsstaða, Hafnar i
Hornafirði og Sauðárkróks, alls
sjö ferðir. Þann dag voru reyndar
9ferðir frá Akureyri, en sjö þang-
að norður. Alls flutti Flugfélagið
1085 farþega á sunnudaginn.
I gær kom svo aftur nokkuð
góður dagur I innanlandsfluginu.
Þá foru farnar fimm ferðir til
Akureyrar, tvær til Egilsstaða,
ein til Sauðárkróks, ein til Þing-
eyrar, fimm til ísafjarðar, þrjár
til Patreksf jarðar, fjórar til Vest-
mannaeyja, og auk þess milii
Akureyrar og Egilsstaða og
Akureyrar og Isafjarðar. 1 slðast-
töldu ferðinni voru fluttir farþeg-
ar og fjögur tonn af vörum.
A þeim tveim dögum, sem fært
hefur verið fyrir innanlandsflugið
það sem af er árinu, hefur flug-
félagið þannig flutt svipaðán
fjölda farþega og venjulegt má
teljast á einni viku við eðlilegar
kringumstæður.
— SH.
Magnari eins áhorfanda
trufíaði sjónvarp um öll
Suðurnes
Sjónvarpsmagnari I heima-
húsi I Grindavlk, reyndist vera
valdur aö sjónvarpstruflunum
um öll Suöurnesin.
I desember höfðu borizt
kvartanir til Landsimans frá
íbúum I Keflavik og Njarðvik-
um um, að móttaka islenzka
sjónvarpsins væri trufluð af
einhverjum ókunnum ástæðum.
Eins og skýrt var frá í VIsi, iét
Landsiminn kanna þessar
truflanir, og kom i ljós, að þær
áttu sin upptök I Grindavik.
Fyrst var talið að fjarskipta-
stöð hersins i Grindavik væri
völd að truflununum, en við
nánari athugun kom i ljós, að
svo var ekki.
Það reyndist vera sjónvarps-
magnari I heimahúsi, sem olli
truflununum. Að sögn Land-
simans var þessi magnara-
búnaður fyrst og fremst ætlaður
i báta og ekki settur upp af
fagmanni. Sennilega hefur það
þó verið bilun i magnaranum,
sem truflunum olli.
Eigendurnir voru beðnir um
að taka magnarann niður og
hættu truflanirnar þar með.
-JB.
Guðmundur í Hastings
Einn af ljósmyndurum Associated Press kom viö I Hastings I gær og tók þessa mynd fyrir Visi af Guö-
mundi Sigurjónssyni viö skákboröiö.
Ekkert var þó teflt I gær, þvi aö keppendur áttu frl, og veitti ekki af, eftir átta strangar umferðir.
Guömundur hefur staðið sig vel og ekki tapaö skák, en tvær biöskákir átti hann þó eftir.
Þaö verður þó upp brattann að sækja fyrir hann þaö, sem eftir er af mótinu, þvl aö hann á ýmsa skæö-
ustu keppinautana eftir.
— GP.
Minnst hálfs
árs fangelsi
Fangarnir tveir sem struku af
vinnuhælinu á Litla-Hrauni á
fimmtudag, sitja nú innilokaöir á
hælinu.
Þeir mega búast við allt frá 6
mánaða til 3 ára refsivist vegna
tilraunar sinnar til þess að
strjúka.
I 110. gr. hegningarl. segir að
ef fangar sammælist um að
hjálpast að til þess að strjúka úr
fangelsi, þá varði þessi refsing
við. Hins vegar er það út af fyrir
sig ekki refsivert athæfi að ganga
einn sins iiðs út úr fangelsi i
heimildarleysi.
Komið hefur i ljós, að annar
fanganna lét einhvern timann þau
orð íalla, að hann ætti farmiða til
Kaupmannahafnar i fórum sin-
um. Þótti þvi ástæða til þess að
vakta sérstaklega flugferðir allar
þangað, éftir að fangarnir struku.
-ÓH.
Ákveðið að
óska eftir
viðrœðum við
vinnuveitendur
Miöstjórn Alþýöusambands ts-
lands hefur nú ákveöiö að draga
ekki lengur aö óska eftir
viöræöum við vinnuveitendur.
Aöalsamninganefnd Alþýöusam-
bandsins hefur nú fengið umboð
frá 100 verkalýðsfélögum, sem i
eru rifur helmingur þeirra
launþega, sem aðild eiga aö
Alþýöusambandinu.
Fundur miöstjórnarinnar, sem
haldinn var slödegis I gær, ákvað
að hefja nú viðræður við vinnu-
veitendur. Samninganefnd ASÍ
sem skipuö er formönnum verka-
iýösfélaganna, kom saman i
morgun tii að ákveöa nánar
hvernig staöiö yröi aö viöræöun-
um og ósk um þær til vinnuveit-
enda. -SH.
HÆKKUN SÍMGJALDA í
REYKJAVÍK ER 71,3%
~ „kemur ekki sem tekjur til stofnunarinnar," segir póst- og símamálastjóri
— Gert til að jafna símkostnað um landið
Raun veruleg hækkun sim-
gjalda á Reykjavikursvæöinu er
71,3%. Þetta kemur fram, þegar
lögð er saman hækkun fasta-
gjaldsins, sem hækkaöi úr kr.
15001 kr. 2040, og gjaldið fyrir þau
100 slmtalaskref, sem felld voru
niður sem innifalin I fastagjald-
inu. Þau kosta kr. 530, svo Reyk-
víkingar verða aö borga kr. 2570
fyrir það, sem þeir áður borguöu
kr. 1500 fyrir.
„Almenn hækkun simgjaida
var 35-36%” sagði Jón Skúlas.,
póst- og simamálastjóri, i viðtali
við Visi i morgun. „Hækkun á
gjaldskrá Pósts og slma var
heimiluð til þess að ná upp tekj-
um til fjárfestingar, en þar sem
þungi simgjalda er meiri i dreif-
býlinu en i þéttbýlinu, ákváðu
stjórnvöld að jafna þennan mun.
Sú hækkun, sem verður á sim -
gjöldum i Reykjavik, kemur ekki
sem tekjur til stofnunarinnar,
vegna þess að þær koma á móti
minni hækkun á langlinugjöldum.
Þetta er tilfærsla gjalda. Simnot-
endur hér i þéttbýlinu hafa lengi
notið lágra gjalda, þar sem
staðarsamtöl hafa verið of ódýr
miðað við langlinusamtöl, og nú
var taliö rétt að jafna þetta.
Hér á höfuðborgarsvæðinu eru
fleiri en nokkurs staðar annars
staðar, sem geta notið að hringja
á staðartaxta. Breytingin nú er
fyrsta skrefið til að gera aðstöðu
simnotenda jafnari, og jafnframt
er áætlað að samræma taxta á
langlinum.”
Á þeim stöðum, þar sem fjöldi
simnotenda er minni en 20 þús-
und, var skrefafjölda ekki breytt.
Hann er þar 525 skref á árs-
fjórðungi eftir sem áður, en á
Stór-Reykjavikursvæðinu er hann
nú 300 skref. Tekið skal fram, að
simalega séð telst Mosfellssveit
ekki til Stór-Reykjavikur. Simtöl
þangað og þaðan kosta kr. 5,30
hverjar 45 sekúndur, meðan sam-
talið varir. Staðarsamtöl — svo
sem innan bæjarsimakerfisins —
kosta kr. 5.30 hvert, óháð tima-
iengd. Stytztu skref eru nú 6
sekúndur, og kostar þá hver
minúta 53 krónur, og er það t.d.
það gjald sem Akureyringar
verða að greiða fyrir simtal til
Reykjavikur.
Við öll þau verð, sem að framan
eru greind, bætist 19% söluskatt-
ur. - SH