Tíminn - 17.06.1966, Page 9

Tíminn - 17.06.1966, Page 9
FÖSTUDAGUR 17. júní 1966 TÍMINN bankastjóri í LandSbanka Islands. Jafnframt tók Helgi þá sæti í stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda til ársins 1958. f Framleiðsluráði landbúnaðarins var Helgi óslitið frá 1949—62 og í stjórn Osta- og smjörsölunn ar 1959—62. Þá var hann og marg oft skipaður í samninganefndir rík isstjórnarinnar um verzlunarvið- skipti við önnur lönd, þ. á.m. við Danmörku, Rússland, Finn land, Tékkóslóvakíu, m.m. Af öllu þessu má sjá, að He'gi Pétursson hefur átt óvenjulegu trausti að fagna, enda vann hann alla tíð störf sín af frábærri alúð og kostgæfni. Hann var aldrei hræddur við að taka ákvarðanir um þýðingarmikil viðskipta- mál, því að hann breytti alltaf eft ir beztu sannfæringu og eftir ýtar egri yfirvegun. Að ailra dóoni reyndist hann framleiðendum til sjávar og sveita hinn ötulasti liðs maður og góður fulltrúi samvinnu hreyfingarinnar íslenzku heima og erlendis. Því standa íslenzkar framleiðendastéttir og samvinnu- menn í mikilli þakkarskuld við Heiga Pétursson. Hann var heil steyptur drengskaparmaður, sem ekkj mátti vamm sitt vita í neinu. Einstakt prúðmenni, hvort heldur seim var á vimnustað eða. í góðra vina hópi. Helgi kvæntist eftirlifandi konu sinni Soffíu Björnsdóttur, Jens sonar, yfirkennara I Reykjavík, ár ið 1924, hinni glæsilegustu konu, og eignuðust þau þrjú mannvæn leg börn, Björn lögfræðing í Kópa vogi, Helgu, sem starfar á tú- raunastöð Háskólans á Keldum og Gunnlaug Pétur , flugmann í Reykjavík. Eiga þau frábærilega ástríkum eiginmanni og föður á bak að sjá. Við hjónin vottum frú Soffíu og fjölskyldunni innilega hluttekn ingu í þeirra miklu sorg og hörm um, að Helga auðnaðist ekki að njóta heilbrigður ævikvöldsins eft ir langan og farsælan starfsdag. Agnar Tryggvason. Sjötugur í dag; Séra Friðrik A. Friðriksson Séra Friðrik A. Etriðriksson, fyrrum prófastur á Húsavík, nú prestur að Hálsi í Fnjóskadal, er sjötíu ára í dag. Karl Kristjáns son, alþingismaður, hringdi til Tímans og bað blaðið að flytja séra Friðriki — frá vinum hans í Þingeyjarþingi — i tilefni 70 ára afmælisins, hugheilar heilla óskir og alúðarþakkir fyrir aldar priðjungsdvöl í héraðinu og mik- ilsverð störf að fjölþættum og viðtækum menningarmálum. Bændur verða að standa saman þegar hagsmunir stéttarinnar eru í veði! Rætt við Stefán Jasonarson, bónda, Vorsabæ Stefán Jasonarson, bóndi í Vorsabæ, var einn þeirra fjög- urra manna, sem boðuðu til Selfossfundarins um verðlags- mál bænda fyrir rúmri viku síðan, og var hann kjörinn í þá 15 manna nefnd, sem bænd- ur kusu á fundinum til þess að fylgja eftir ályktun fundar- ins um verðlagsmálin. Blaðið ræddi við Stefán á dögunum um fundinn sjálfan og mál þessi eins og þau standa í dag. — Hver var aðdragandi Sel- fossfundarins, Stefán? — Segja má, að aðdragandi fundarins hafi verið tilkynning Framleiðsluráðs landbúnaðar- ins, sem lesin var í útvarpinu fyrir nokkru síðan, um að hið svokallaða innvigtunargjald á nýmjólk væri komið á. Það fór fyrir mér eins og fleiri sunn- lenzkum bændum, að við urð- um all undrandi á þessu. Og á sama tíma var ákveðið að lækka smjörið, sem sagt að hefja útsölu á smjöri, þessari vöru, sem hefur fram til þessa verið talin eftirsótt vara og gæðamatur, sem að hefur verið frekar talinn í lúxusflokki held ur en á hlið við eitthvert óút- gengilegt góss. En það fór sem sagt alda um sunnlenzka bændur, svo að ekki sé meira sagt, og þeir óskuðu skýringa. Það voru margir, sem höfðu samband við mig persónulega, ýmist símleið- is eða komu I heimsókn, og voru að spyrja mig um hvað ég hefði frétt, og hvers mætti vænta í þessu máli. Og það má vera, að það hafi verið m.a. af því að ég er í 'stjóm Búnað- arsambands Suðurlands, að þeir leituðu til mín í þessu efni. Ég verð að segja, að ég hefði talið æskilegast að Bún- aðarsambandið hefði haft for- göngu í þessum máli, en at- yikin höguðu því, að bændur í Rangárvallasýslu urðu fyrri til og voru þegar búnir að panta SeIfos9bíó fjrir væntan legan bændafund, þegar við höfðum rætt málið. Ég ræddi við formann Búnaðarsambands Suðurlands um þennan fund, og ég vil einmitt af gefnu tii- efni nota tækifærið og mót- mæla því, að hann hafi neitað að halda slíkan fund. Það var síður en svo. En hann var fjar verandi þessa dagana, og ég náði í hann í síma uppi a Laug- arvatni og hann taldi það síður en svo fjarstæðu að Búnaðar- sambandið gengist fyrir þess um fundi. En Rangeyingar voru sem sagt fyrri til, hafa kannski trúað því, og lái þeim hver sem vill, að allt væri í stakasta lagi í íslenzkum landbúnaði en þegar þeir heyrðu þessi ósköp í útvarpinu, þá hafi þeir hrokkið við fyrr en við í Ár- nesþingi. Og ég þarf ekki að útskýra það nánar, en raunin varð sem sagt sú, að það voru fjórir bændur, sem stóðu að þessu fundarboði — tveir sjálf stæðismenn og tveir framsókn- armenn. Það skipti ekki öllu máli hver hélt fundinn, aðal- atriðið var að fundurinn var haldinn, og það sem mestu máli skiptir að mínum dómi var, hvað hann varð fjölmennt ur, og hvað bændur komu þar fram sem sterk samstillt heild Þeir komu stéttarlega sterkari af þessum fundi heldur en þeir komu á hann. Sannleikurinn er sá, að a.m.k. sunnlenzkir bændur gera of lítið af þvi að sameinast, þegar hagsmunir stéttarinnar eru í veði. Rakið hefur verið í blöðum hvernig fundurinn gekk til bæði Tíminn og fleiri blöð hafa skýrt þar frá málavöxtum og gangi mála. Það var okkar ásetningur, sem boðuðum þennan fund, að formaður Stéttarsamband bænda, Gunn- ar Guðbjartsson kæmi á fund- inn og skýrði málin fyrir bænd um. Og ég hygg, að bændur hefðu ef til vill tekið þetta með dálitlu meiru jafnaðargeði hefði jafnhliða þessari tilkynn ingu í útvarpinu komið ofur- lítil skýring á hlutunum. En tilkynningunni var ausið yfir landsbyggðina án athugasemda og bændur sáu að hér varð að setja punkt. Eins og ég sagði áðan, þá komu bændur stéttarlega sterk ari af fundinum. Þeir fóru að hugsa um þessi mál af meira raunsæi heldur en þeir hafa gert. Og ég tel, að það hafi verið okkar óhamingja oft á tíðum, íslenzkra bænda, að við höfum ekki hugsað eins um okkar hagsmunamál og ýmsar aðrar stéttir. Hvort að það sé æskilegt, að við séum eins mikl- ir baráttumenn og aðrar stétt- ir, það er önnur saga, en við verðum að gá að því, að við lifum á öld mikilla breytinga. Miðaldra menn muna eftir kyrr stöðu í íslenzkum landbúnaði. Nú hefur vélvæðingin komið til okkar, og við höfum tekið ríf- lega á móti henni — okkur hefur líka verið sagt að gera það — auka framleiðsluna, stækka búin, rækta meira. Þetta er jú gott og biessað, en það er eðlilegt. að ýmis feil- spor séu stigin, og þjóðlífið hefur verið þannig að undan- förnu, að dýrtíðin vex og þeir sem ekki gá að sér í þessum hrunadansi, mega gera ráð fyr- ir því að verða undir í lífsbar- áttunni, ef að ekki er fuU að- gát höfð á hiutunum og samtök Stefán Jasonarson og sanngirni höfð að leiðar- ljósi. — Hvað lögðu ræðumenn helzta áherzlu á á Selfossfund- inum? — Það sem kom fram á fundinum, var ekki fyrst og fremst ádeila á Framleiðsluráð heldur óskuðu menn skýringa og létu óspart í ljósi, að þeir væru ekki ánægðir yfir þeim gangi. sem málin höfðu tek- ig að undanförnu. En vissulega vita menn það, að Framleiðslu- ráð skapar ekki vandann. Það tekur við vandanum, en vanda málin eru af dýpri rótum runn in heldur en úr höndum Fram- leiðsluráðs. Við vitum, að dýr- tíðin er að sliga atvinnuveg- ina, og valda ýmsum erfiðleik um. Fyrir nokkrum árum nægðu útflutningsuppbætur, sem eru 10% af heildarverð- mæti búvaranna í landinu, en dýrtíðin hefur valdið því, að nú vantar mikið á að útflutn- ingsuppbæturnar nægi til þess að greiða upp það, sem flytja verður úr landinu. Það kom greinilega fram á fundinum, að menn sjá, að það er ákaflega erfitt fyrir bændur, að á sama tima og rekstrarvörurnar t.d. áburður, hækka, þá skuli sölu vörur bænda lækka i verði. Þetta geta bændur ekki við unað. Sumir eru á þeirri sboðun, að að þetta lagist af sjálfu sér. Það kann að vera, en meiri- hluti bænda mun ekki vera á þeirri skoðun, og telja, að eitt hvað verði að gera, og því fór sem fór á þessutn fundi, að samþykkt var tillaga sem að skoraði á Framleiðsluráð land búnaðarins og ríkisstjórnina, að semja um þá lausn, sem bændur gætu vel við unað. Ég hef séð þau ummæli í Morgunblaðinu nýverið, að nú hafi hlutur bænda loksins verið leiðréttur til samræmis við aðrar stéttir. Það kann vel að vera en hvað segja bændur sem að berjast í bökk um og geta tæpast keypt áburð á túnin sín eða heyvinnuvélar o. s. frv. o, s. frv. Ég veit 'ehki hvort þeir undirstrika þessi ummæli. Ég hef verið bjartsýnn, og það er nauðsyn legt, en bjartsýni verður að vera á rökum reist. — Þið kusuð 15 manna nefnd á fundinum? — Já, fundurinn kaus fimm menn úr hverri sýslu í eina nefnd, sem á að þoka þessum málum áfram og vinna að því. að samþykkt fundarins verði meira en pappírsgagn, að þess ir aðilar, ríkisvaldið og Fram leiðsluráð, reyni að finna þá lausn, sem við má una. Nefnd in hélt fyrsta fund sinn á Hvoli í Rangárvallasýslu sl. sunnudag, og ræddi um ýmsar leiðir, sem hún áleit að væru heppilegastar í þessu efni. Og ég á von á því, að áður en um langt líður, verði géngíð á fund Framleiðsluráðs og ráð- herra I ríkisstjórninni og heyra hvað fæst fram af þeim óskum. sem fram verða bornar. og hvers má vænta. — Þið hafi samstöðu með nefndum úr öðrurn landnhlut- um, er það ekki? — Jú, það er sföðuet verið í símasambandi við nefndir úr öðrum landshlutum. og ég geri ráð fyrir því, að fyrsti áfangi í þessu máli verði, að forvstu menn þessara nefnda gangi á fund Framleiðsluráðs og heyri hvernig málin standa, og hverju er hægt að fá um þok- að, án þess að grípa til róttæk ari aðgerða. Og ég vil mótmæla því algerlega, að hér sé um neina uppreisn að ræða, eða „uppreisnarbændur", eins og ég Ias í einu dagblaðanna í Reykjavík. Það er síður en svo. Við viljum þvert á móti styðja við bakið á Framleiðsluráði og hjálpa því í þeirri baráttu, sem það hlýtur að heyja fyrir okk ur bændurna. — Hvað viltu segja um áhrif fundarins? — Ja, ég vil segja að lokn um þessum fundi, að hann mun hafa varanleg áhrif í sunnlenzk um sveitum, og ég, sem fundar boðandi fagna því innilega, að forystumenn bændasamtak- anna á Suðurlandi, formaður Mjólkurbús Flóamanna og for maður Búnaðarsambands Suð urlands, komu á móti okkur fundarboðendum á fundinum, og byggðu upp bæði þá sam þykkt, sem gerð var á fundin um, og einnig nefndarskipun- ina — sem sagt, að þeir voru með okkur til þess að vinna að því, að árangur af þessum fundi yrði sem mestur. Þá vil ég einnig nota tækifærið og flytja öllum, er fundinn sóttu og Gunnari Guðbjartssyni, for Fvamhald á bls. 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.