Vísir - 18.01.1975, Qupperneq 2
2
Vlsir. Laugardagur 18. janúar 1975.
riSffiSFTC'-
Hvenær ætlar þii aö skila skatt-
framtaiinu?
Ingi Ingvarsson, húsasmiöur: —
Ætli ég geri það fyrr en um
mánaöamótin. Ég er svona rétt
aö byrja að tína þetta saman.
Sigurjón Magnússon, trésmiöur:
— Ætli það verði ekki einhvern
tima i marz. Ég er búinn að sækja
um frest. A undanförnum árum
hafa launaseðlarnir verið að
tinast inn allt að þrem mánuöum
á eftir áætlun. Þess vegna er ég
svona seinn fyrir meö þetta.
Ragnar Ragnarsson, verka-
maöur: — Tuttugasta og niunda
eða eitthvað svoleiðis. Ég er ekk-
ert byrjaður að garfa I skýrslunni
ennþá. Þetta er ekki það mikil
vinna.
Björn Th. Haraidsson, nemi: —
Ég skila þvi sennilega um miöjan
febrúar. Ég er i skóla og hef ekki
tima til að gera skýrsluna fyrr,
þótt vinnan við hana sé ekki mikil
i sjálfu sér.
Aðalbjörn Gunnarsson, starfs-
maöur Rafmagnsveitunnar. —
Ætli það verði ekki síðast i febrú-
ar. Ég er með smáatvinnurekstur
og fæ því frest þangaö til. Nei,
nei, það er ekki mikil vinna að
koma þessu saman.
Kjartan Bjarnason, húsa-
smiöur:—Ætli ég geri það ekki i
næstu viku. Þetta er svo litið hjá
mér og fáir liðir að fylla út eftir
að ég er búinn að byggja yfir
hausinn á mér. A meöan ég var
að byggja voru liðirnir mun fleiri.
Ólafur Geirsson, blaðamaður:
Fréttin var rétt
„Þaö er rétt, að sam-
komulag varð í nefndinni
sem endurskoða átti lögin
um mjólkursölu. Var þar
gert ráð fyrir, að
Mjólkursamsalan hætti
að vera smásöluaðili en
matvörukaupmenn, sem
uppfylltu viss skilyrðu,
tækju hana í sinar hend-
ur." Þetta sagði Ágúst
Þorvaldsson, fyrrverandi
alþingismaður og bóndi
að Brúnastöðum í Flóa, í
viðtali við Vísi í gær.
Ágúst er formaður
stjórnar Mjólkursam-
sölunnar.
Hann staðfesti einnig að á
sama tíma, i árslok 1973 hefði
verið búið að ganga frá sam-
komulagi um að matvöru-
kaupmenn I Reykjavik tryggðu
Mjólkursamsölunni að keypt
yrði af henni nær allt það hús-
næöi, sem i eigu hennar er og
notað undir mjólkurbúðir.
Bæði breytingin á smásölu
mjólkur og kaupin á húsnæðinu
voru byggð á þeirri forsendu, að
Alþingi samþykkti nauðsyn-
legar breytingar á lögum um
mjólkursamsölu.
Fulltrúi Mjólkursamsölunnar
i áðurnefndri nefnd var Stefán
Björnsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar. Nefndin skilaði
áliti sinu til landbúnaðarráð-
herra i desember 1973, þ.e. fyrir
rúmu ári.
Gleyminn eða
hvað?
Rúmum mánuði siðar, eða 31.
janúar 1974, hafði Morgunblaðið
eftir samsöluforstjóranum, að
enginn fótur væri fyrir sölu á
mjólkurbúðum og ennfremur
væri enginn fótur fyrir þvi, að
Mjólkursamsalan hætti dreif-
ingu mjólkur á næstunni. Frétt
um það hafði birzt i Visi daginn
áður.
Visi þykir rétt að vekja at-
hygli á, að þarna fór forstjórinn
með rangt mál og að þvi er
virðist fullkomlega vitandi vits.
Annað er ekki hægt að álykta,
mánuði eftir að hann skrifar
undir nefndarálitið og fær
tryggingu fyrir sölu nær allra
búða Samsölunnar. Er þá geng-
ið út frá þvi, að frásögn
Morgunblaðsins sé rétt.
Frétt Visis um að breyting
væri i vændum I mjólkur-
sölumálum var I öllum atriðum
rétt. Ef eitthvað mátti aö henni
finna, þá var þaö, að ekki var
kveðið nægilega fast að orði um
að sala allra verzlananna væri
tryggð.
Hreinn Sumarliðason, for-
maöur Félags matvöru-
kaupmanna i Reykjavik,
staðfesti orð Ágústs Þorvalds-
sonar algjörlega. Hann tók sér-
staklega fram, að algjör sam-
staða hefði orðið i nefndinni um
að Samsalan hætti smásölu-
dreifingu — og kaupmenn
tryggðu henni, að hún losnaði
við nær allt það húsnæði, sem
mjólkurbúðirnar væru i.
Frumvarpið tilbúið
í fyrravor
„Landbúnaðarráðherra tjáði
okkur, að frumvarpið til
breytinga á mjólkursölulögun-
um væri tilbúið, þegar við
töluðum við hann siðastliðið
vor.” sagði Hreinn Sumarliða-
son.
Frumvarpið var ekki lagt
fram á þinginu i fyrravor og
sagði Agúst Þorvaldsson i
viðtalinu i gær, að það hefði ver-
ið vegna óvenjulegra anna þar,
eins og Öllum væri i fersku
minni.
Frumvarpið fyrir
Alþingi fljótlega
Ágúst Þorvaldsson, formaður
stjórnar Mjólkursamsölunnar,
sagðist hafa nokkuð traustar
heimildir yfir þvi að frum-
varpið mundi koma fram fljót-
lega eftir að þing hæfist aftur.
Um úrslit málsins gæti hann að
sjálfsögöu ekkert sagt.
í stefnuræðu forsætisráðherra
i þingbyrjun siðastliðið haust
kom fram, að rikisstjórnin
hygðist beita sér fyrir
breytingum á mjólkursölu-
lögunum. Er málið nú i höndum
nefndar, sem skipuð er þing-
mönnum stjórnarflokkanna og
er búizt við að það tengist ýms-
um öðrum breytingum á lögun-
um um Framleiðsluráð land-
búnaðarins.
— en fór
forstjóri Sam-
sölunnar með
vísvitandi
ósannindi?
Hér til hliðar eru þær tvær
fréttir, sem rætt er um I
greininni. Til hægri er
greinin i VIsi, frá 30. janúar I
fyrra, þar sem segir, að
Samsaian hyggist hætta
rekstri mjólkurbúða. Tii
vinstri er siðan fréttin I
Morgunblaðinu daginn eftir.
Þar er haft eftir Stefáni
Björnssyni, samsölufor-
stjóra, að enginn fótur sé
fyrir frétt VIsis. í greininni
hér á slðunni er sýnt fram á
að forstjórinn fór ekki með
rétt mál. Ekki sakar að lifga
svolitið upp á myndina með
svipmyndum úr mjólkurbúð-
um i Reykjavlk og af af-
greiðslustúlkum I þeim. Að
likindum verður þess ekki
langt að blða að mjólkur-
búðir heyri sögunni til. Ein
af kröfum Mjólkursam-
sölunnar var sú, að matvöru-
kaupmenn tryggðu af-
greiðslustúlkunum atvinnu i
framtiðinni. Margar þeirra
hafa unnið lengi hjá Samsöl-
unni, sumar i áratugi. Kaup-
menn munu hafa lofað að
gera sitt bezta I þeim mál-
um.
Fjórða
heilrœðið er
fró Reese
Af þeim stórmeistur-
um, sem skrifa að stað-
aldri um bridge, er
sennilega enginn fræg-
ari en sá, sem gefur
bridge-heilræði i þætt-
inum i dag, Englend-
ingurinn Terence
Reese.
Þetta er fjórða heilræðið af
átta I keppni, sem hollenzka
stórfyrirtækið BOLS stendur
fyrir.
Mitt heilræði, segir Terence
Reese, er að taka vel eftir fyrstu
afköstum varnarspilaranna og
hugleiða eftirfarandi: Frá
hvaða lit er sennilegt að varnar-
spilarinn hafi verið að kasta?
Svarið leysir oft þýðingarmikla
ákvörðun.
Tökum dæmi, varnarspilari,
sem hefur A-5-3-2 eða K-5-3-2
kastar oftar frá þvi, heldur en
D-5-3-2 eða G-5-3-2. Þetta gefur
þér upplýsingar I eftirfarandi
stöðum:
liklegra að hann hafi átt A-5-3-2
en D-5-3-2.1 (2) þá kastar vestur
strax frá litnum. Ályktun: Það
er liklegrí að hann hafi kastað
frá A-5-3 en D-5-3.
(3) A-8 (4) K-10-8
G-9-4 K-7-5-3-2 A-5-3-2 G-7-6
D-10-6 D-9-4
1 (3) þá kastar austur tveimur
spilum strax. Þegar þú spilar ás
og áttu, þá lætur hann 5 og 7. Þú
skalt frekar spila hann upp á K-
7-5-3-2 en G-7-5-3-2.1 (4) þá kast-
ar vestur tveimur spilum. Það
er liklegra að hann eigi A-5 eftir
frekar en G-5, en drepi austur
meö ásnum, þá er betra að spila
austur upp á A-G-7.
Þessar ályktanir eru sérstak-
lega hagstæðar, þegar blindur
hefur lit, sem að áliti varnar-
spilara er auðvelt að fria, eins
og I þessu spili:
Suður gefur, allir utan hættu.
« 10-5-2
¥ K-G-6-3
♦ A-7-3
Suður spilar 4 spaða eftir 1
spaða — 1 G, 3 spaða — 4 spaða.
Vestur spilar út laufaþristi og
suður trompar þriðja lauf. Það
kemur stift til greina að spila
hjarta strax og setja pressu á
vestur ef hann á ásinn, en I stað-
inn spilaði sagnhafi fjórum
sinnum trompi, og kastaði tigli
úr bhndum. (Það er góð spila-
mennska að geyma hjartað).
Vestur kastar laufi og tigli,
austur laufi og hjarta. Eftir að
hafa tekið þrisvar tigul, spilar
suður hjarta og áttan kemur frá
vestri. Suður á að svina gosan-
um. Af hverju? Vegna þess að
austur kastaði hjárta. Með A-9-
5-2 kastar austur hjarta, af þvi
að hann reiknar með þvi að
samningurinn standi og falli
með hjartaiferðinni og þvi ekki
nauðsynlegt, að halda öllum
hjörtunum. En með D-9-5-2,
myndi hann ekki kasta hjarta,
ef svo kynni að vera að sagnhafi
ætti ásinn.
Eins og svo oft, þá segir af-
kastiö alla söguna.
Sveit Hjalta nú efst hjó
Bridgefélagi Reykjavíkur
(1) G-7-6 (2) G-8-6-2
D-9-4 A-5-3-2 A-5-3 D-9-4
K-10-8 K-10-7
Þetta er hliðarlitur i tromp-
samningi og sagnhafi þarf að
tryggja sér slag strax. í (1) þá
hefur austur kastað tveimur
spilum strax. Alyktun: Það er
4 8-6-4
A 9-3 A G-7
V D-10-8 ¥ A-9-5-2'
♦ 10-9-5-4 4 G-8-6
4 K-G-7-3 *A-10-9-5
A A-K-D-8-6-4
¥ 7-4
4 K-D-2
4 D-2
Nú er lokið nlu umferðum I
aðalsveitakeppni Bridgefélags
Reykjavlkur. Sveit Hjalta
Eliassonar hefur tekið forust-
una — hefur lokið þeim leikjum,
sem hún átti óspilaða frá upp-
hafi keppninnar. Staðan hjá
efstu sveitum er þannig:
1. Svcit Hjalta Eliassonar 161.
2. Sveit Þóris Sigurðssonar 152.
3. Sveit Helga Sigurðssonar 127.
4. Sveit Þórarins Sigþórss. 116.
5. Sveit Jóns Hjaltasonar 115.
6. Sveit Gylfa Baldurssonar 100.
Aðrar sveitir hafa hlotið færri
stig. Næsta umferð verður spil-
uðiDomus Medica nk. miðviku-
dagskvöld kl. 20.00.