Vísir - 18.01.1975, Qupperneq 13
Vísir. Laugardagur 18. janúar 1975. 13
n DAG 1 □ KVOLD | n □AG | D KVDLD | n □AG |
Útvarp, kl. 16.45 laugardag:
„EINHVERN TÍMA Á ÁRINU FINN
ÉG FJÖRUGAN STJÓRNANDA"
••
— segir Orn Petersen
„Einhvern tíma á þessu ári
ætla ég að reyna að finna
fjörugan stjórnanda fyrir þátt-
inn Tiu á toppnum. Ég er nú bú-
inn að vera með þáttinn i tæp
tvö ár, og ætli það endi ekki með
þvi að ég verði með hann í ár
enn.”
Þetta sagði örn Petersen,
þegar við ræddum við hann, en
meðal efnis á dagskrá útvarps-
ins i dag er þátturinn hans, Tiu á
toppnum. Hann hefst klukkan
16.45.
„Það er algjört skilyrði að sá
maður sem starfar að þessu hafi
gaman af þvi,” bætti örn við.
„Sem stendur hef ég það.
Tónlistin, sem ég spila i þættin-
um, er þó ekki alltaf min upp-
áhaldstónlist. Ég kysi frekar að
koma á laggirnar öðrum þætti
með annars konar músik. Með
þættinum Tiu á toppnum er ég
eingöngu að halda vinsælda-
listanum i gangi.”
Örn starfar ýmislegt fleira en
að sjá um þáttinn. Hann starfar
sem flugþjónn hjá Air Viking og
sem leiðsögumaður hjá Sunnu.
Þá er hann einn af stjórnendum
Klúbbs 32 og svo stundar hann
skóla, „þegar ég má vera að.”
„Það er ægilega vont að verða
sérútium plötur,” segir örn. „I
starfi minu sem flugþjónn hef
ég reynt að kaupa inn plötur. En
það er eins og plötuinnflytjend-
ur séu ekki alveg nógu vel vak-
andi fyrir nýjum litlum plötum.
Maður þarf þvi að taka mörg lög
af stórum plötum. Eins og er
eru svo útsölur i plötuverzlun-
um, og þá er ekkert flutt inn.”
örn sendir nú þátt sinn beint
út. „Það er miklu betra að vera
i beinni útsendingu,” segir
hann. ,,Þá er að visu ekki hægt
að vera með neinar stúdióbrell-
ur, en þegar ég sendi þáttinn
beint út, tekur það ekki nema 50
minútur. Upptaka tekur hins
vegar þrjá tima. Við sem erum
1 með poppþætti I útvarpinu send-
um orðið flest beint út.”
Annars virðist útvarpið hafa
fækkað poppþáttum slnum. 1
janúar á siðasta ári var t.d. Tiu
á toppnum I klukkutima hvert
skipti, en nú I 50 mínútur. Fimm
Popphorns-þættir voru i viku
þá en þrir núna. En hvað um
það, einn þeirra er á dagskránni
I dag.
— EA
VAFASÖM AUÐÆFI
Vesturfararnir eru á dagskrá
sjónvarpsins á morgun. Endur-
tekinn verður 6. þáttur og svo
sýndur 7. þáttur annað kvöld, en
hann heitir Vafasöm auðæfi.
Hagur þeirra Kristinar og
Karls Óskars er farinn að vænk-
ast I myndinni, sem við sjáum
annað kvöld. Við fylgjumst með
þvi að Karl Óskar vill fara I her-
inn, þvi þrælastrið er hafið.
Hann grunar bróður sinn um að
hafa orðið sér úti um allt þetta
fé á vafasaman hátt, og indián-
ar koma inn i leikinn.
En allt þetta fáum við betur
að vita ki. 21.45 annað kvöld.
— EA
**-fc+**-fc-fc-fc****+******-fc**-k-k-K-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-K
★
★
★
í
★
★
★
I
★
1
★
★
★
t
k
k
l
!
!
I
!
!
E3
W
Nl
Spáin gildir fyrir sunnudaginn 19. jan.
Hrúturinn,21. marz-20. april. Þú skalt gera ráð
fyrir að þér verði ekki mikiö úr verki fyrri hluta
dagsins en það er enginn skaði skeður. Þú skalt
hafa samband við vini þlna og athuga hvað þeir
hafa I hyggju.
Nautið, 21. aprll-21. mal. Þú skalt lita til ein-
hvers kunningja, sem þú hefur litiö haft af að
segja að undanförnu, hann (hún) gæti þarfnazt
þin. Þú verður mjög heppin(n) I ástamálum i
dag.
Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Þú gætir haft
mikla ánægju af þvi að sækja kirkju I dag. Þú
hittir einhverja (einhvern) sem reynist mjög
samstarfsþýð(ur).
Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú skalt ekki treysta
of mikiö á væntumþykju ástvina þinna i dag,
þaö litur út fyrír að einhver óánægja sé I fjöl-
skyldunni með þig.
Ljónið, 24. júli-23. ágúst. Þú skalt athuga hvort
þú getur ekki breytt einhverju I lifsviðhorfi þinu.
Deginum er bezt að eyða I það að skoða söfn og
;sögufræga staði.
Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Þetta verður sér-
staklega hressandi dagur hjá þér. Þú skalt ekki
taka þér neitt mikilvægt fyrir hendur. Taktu til á
lagernum seinnipartinn.
Vogin, 24. sept.-23. okt. Þér gengur erfiðlega aö
vakna um morguninnog verðurfrekar lítið úr
verki. Þú skalt fara fram á meira samstarf, og
athugaöu einnig hvað þú getur gert i þvl sam-
bandi.
Drekinn, 24. okt.-22. nóv. Það verður einhver
deyfö yfir fyrrihluta dagsins en seinniparturinn
verður fjörugri. Vertu hjálpsamur I dag og
verndaðu heilsu þina.
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Þú færð konung-
legar móttökur er þú ferð i heimsókn til ættingja
þinna eða vina I dag. Þú græðir á þvi að láta eftir
löngun þinni að vinna aðra á þitt band.
Steingeitin, 22. des.-20. jan. Fyrrihluti dagsins
verður mjög neikvæður I alla staði. Farðu mjög
varlega. En þú tekur gleði þina með kvöldinu.
Vatnsberinn, 21. jan.-19. feb. Aðstaða
meðbræðra þinna verður þér umhugsunarefni I
dag. Og hugmyndir þinar koma til með að
breytast. Gættu þess að láta ekki neitt fara fram
hjá þér.
Fiskarnir, 20. feb.-20. marz. Rómantisk mál
leiöa til þess að þú veröur skapbetri og
glaðlyndari i dag. Þú skalt búast við þvi að vinur
þinn fari fram á að fá hjá þér lán.
m
&
já
★
i
★
★
★
★
★
★
★
★
*
-¥
■¥
■¥
•¥
¥■
¥
I
*
$
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
í
¥
¥
■¥-
¥
■¥■
¥
...í allsnœgtanna landi
Þaö lá viö að ég færi aö syngja lagið —
Bjartar vonir vakna — þegar ég fékk
póstinn um daginn. Ég hætti þó viö það
þegar ég var búinn að renna augunum yf-
ir bréfin og sá að þetta voru nær eingöngu
botnar, en litið af vlsum. Ég vil þvi enn
einu sinni biðja ykkur að senda þættinum
visur auk botnanna, ef þið getiö.
Geira I Gröf fannst erfitt að botna fyrri-
partinn, þar sem hann er botn I eðli sinu,
eins og hann segir. Geiriljjó þvl til fyrri-
part og er visan hans svona.
Eftir þessi ofáts jól
I allsnægtanna landi,
sina að herða sultaról
sýnist litill vandi.
Þá eru hér nokkrir botnar við fyrripart-
inn,
Að herða sina sultaról
er sjálfsagt litill vandi.
Reynir nú á stjórnarstól
að stýra voru landi.
Hallæri er heims um ból,
hótar mörgum grandi.
L. Eggertsson á þessa botna báða.
Þvi allir feitir eftir jól,
eru I þessu landi.
Nú er gnægð um byggð og ból
af björg I þessu landi.
Sofus Berthelsen
Biðjum Guð um birtu og sól,
og bjargráð illu grandi.
Engu skipta ætti þig,
þótt ekki nafns til segi,
þvi lifs ég hef um langan stig
leirnum flfkað eigi.
Þótt krónan lækki og blási I ból
bitur verðlagsandi.
Finnbogi R. Guðmundsson
Sértu ekki fánýtt fól
á fögru ættariandi.
Höfundur getur ekki nafns.
En æðstu manna eymdargól
er ömurlegur fjandi.
Erling J. Sigurðsson
Krónan okkar á margt gott skilið,
einkanlega það að vera dálitið verðmeiri.
Nú er svo komið að mönnum mun trúlega
reynast erfitt að sjá hana, jafnvel I sterk-
ustu smásjá. Erling sendir visu um krón-
una.
Aður varstu feit og fögur,
hjá finum mönnum hvildir þá.
Nú eru orðin mædd og mögur,
mikil skelfing er að sjá.
Næsta visa er eftir sama höfund og er
um það, að sjávarútvegsmálaráðherra
óskaöi eftir könnun á fjárhagsstöðu út-
gerðarinnar.
Hér með vottast hörmungin,
hungurvofan bitur.
Miskunna oss Mattaskinn
meðan ennþá flýtur.
Sofus Berthelsen sendir þessar visur.
Þegar sveltur um hálfan heim
hundruð þúsund manna,
er bágt að geta ei bjargaö þeim
og birt þeim mannúð sanna.
Ef við leggjumst öll á eitt
að eygja leið til varna,
éinhverra við getum greitt
götu svangra barna.
37 sendir einnig visu og er hún um
kvennaárið.
Kvennaár nú komið er,
Það konur allar vita hér.
Karlmaður ei kvarta fer,
en kannski biður fyrir sér.
Siöasta visan frá lesendum, I þessum
þætti, er eftir Finnboga R. Guömundsson.
Vakir frétt, sem fram er sett,
fyllt með nettum orðum.
Staka glettin stuðluð rétt
störfin létti foröum.
Einhverra hluta vegna hefur frekar litiö
borist af efni i þáttinn frá kvenmönnum.
Þeir hafa kannski svona mikið að gera i
réttindabaráttunni. Dla trúi ég þvi að
minnsta kosti að þær geti ekki sett saman
vlsu til jafns við karlmennina.
Næsti fyrripartur er þannig.
Enginn lengur yndi fær
i örmum bliðra svanna.
Ég vil taka það fram að lokum, að ég
hef I einstaka tilfelli breytt visum litils-
háttar. I þeirri von að það hafi fremur
verið til hins betra, bið ég höfunda að mis-
virða það ekki við mig.
Ben.Ax.