Vísir - 27.01.1975, Síða 12
12
Vfsir. Mánudagur 27. janúar 1975.
Ensku meístaramir nötruðu
en bikarmeistararnir féllu
Jafnvel vítaspyrna
nægöi ekki ensku meist-
urunum hjá Leeds, þegar
þeir léku við litla
Wimbledon-liöið úr
suðurdeildinni í fjórðu
umferð bikarkeppninnar
á laugardag. Já, meistar-
ar Leeds nötruðu frammi
fyrir mesta áhorfenda-
fjölda sínum á leiktíma-
bilinu, 46.230, i þessari
viðureign Davíðs og Goli-
ats — og í Ipswich féllu
bikarmeistarar Liver-
pool, en þau úrslit fölna í
samanburði við árangur
Wimbledon. Jafntefli 0-0
á leikvelli jötnanna og á
þriöjudag mætast liðin
aftur í Wimbeldon, smá-
borg í suðurjaðri
Lundúnaborgar, þar sem
völlur félagsins er rétt
við tennisvöllinn, sem
gert hefur nafn borgar-
innar heimsfrægt.
Orslitin i leiknum i Leeds eru
hreint ótrúleg — en þó reyndar
ekki i fyrsta skipti, sem meist-
urum Leeds gengur illa aö eiga
viö „smáliö”. Leikmenn
Wimbledon böröust hetjulegri
baráttu — það var hlaupið og
barizt, aldrei gefinn eftir þuml-
ungur, og taklingarnir voru á
stundum harkalegar. Þaö bar
árangur — Leeds-liöið náöi
aldrei sveiflu i leik sinn, og eftir
leikinn voru 2000 áhorfendur frá
Wimbeldon „trylltir” af gleöi.
En leikmenn liösins þurftu
nokkurn tima til aö jafna sig —
og átta sig á úrslitunum — áöur
en þeir gátu samfagnaö þeim.
Atta min. fyrir leikslok fékk
Dave Thomas, enski landsliðsmaöurinn hjá QPR, skoraði eitt af mörkum liös sins i bikarleiknum við
Notts County á föstudagskvöld. Hin tvö skoruðu Don Givens og Gerry Francis og QPR vann auöveldan
sigur. A myndinni aö ofan er Thomas að skalla á mark Tottenham I deildaleik i vetur, sem QPR vann
2:1. Þeir i hvitu peysunum eru Martin Peters og Phil Beal, Tottenham.
Fimmta
umferðin
A laugardaginn var dregiö I
fimmtu umferð ensku bikar-
keppninnar og varð niður-
staðan þessi! Leikið veröur 15.
febrúar.
Everton-Fulham eða Nottm.
Forest.
Peterbro-Middlesbro
Mansfield-Carlisle
Derby eða Bristoi Rov. -Leeds
eða Wimbledon
Birmingham-Walsall
Conventry eða Arsenal-
Leicester
Ipswich-Aston Viila
West ham eða Swindon-QPR
i Glasgow var dregið i fjórðu
umferð skozku bikarkeppn-
innar. Ctkoman varð þannig:
Montrose eða Ilamilton-Dum-
barton eöa Inverness
Motherwell eöa Partich-Queens
Park
Celtic-Clydebank eða Dun-
fermline
Arbroth-Albion
St. Johnstone eða East Fife-
Dundee
Airdire eða Morton-Ross eða
Falkirk
Dundee Utd. eða Berwich-Aber-
deen eöa Rangers
Queen of the South-Hearts eöa
Leeds vitaspyrnu. Peter Lori-
mer — maöurinn með kröftug-
asta spyrnu brezkra leikmanna
— tók hana, en markvörður
Wimbledon Dickie Gay, varöi. 1
byrjun siöari hálfleiks var einn
bezti maður „litla , liösins”,
Selwyn Rice, borinn af velli illa
meiddur á fæti — en varamaöur
hans átti ekki siöur góöan leik.
Wimbledon, sem sló Burnley
út i fjóröu umferö og þaö á
heimavelli 1. deildarliðsins,
hefur nú möguleika aö veröa
fyrsta liö utan deildanna I 26 ár
aö komast i fimmtu umferö
keppninnar — 16 liöa úrslit. Hin
tvö liöin utan deildanna, sem
léku á laugardaginn, voru slegin
út. Stafford Rangers tapaöi
fyrir liöi Noel Cantwell, Peter-
bro, á leikvelli Stoke 1-2, og
áhugamannaliöið Leatherhead
beiö lægri hlut fyrir Leicester.
Leikið var I Leicester, þó svo
Leatherhead ætti rétt á aö leika
á sinum leikvelli — en pening-
arnir réöu. Ahorfendur voru
32.090 i Leicester — en aöeins
brot af þeim fjölda kemst inn á
leikvöll áhugamannaliösins.
Leikmenn Leicester fengu
heldur betur að skjálfa i leikn-
um, en von Leatherhead, aö
veröa fyrsta áhugamannaliöiö
til að komast 1 5. umferö frá
styrjaldarlokum, brást. Þó var
staðan 2-0 fyrir Leatherhead i
hálfleik og skoruðu þeir Peter
McGillicuddy (hvíllkt nafn) og
Chris Kelly mörkin. I siöari
hálfleiknum náöi Leicester
algjörum yfirtökum — Jon
Sammels, Steve Earle og Keith
Weller skoruðu og sigur 1. deild-
arliösins var i höfn.
Úrslitin i 4. umferð urðu
þessi:
Aston Villa—Sheff.Utd. 4-1
Bury—Mansfield 1-2
Carlisle—WBA 3-2
Chelsea—Birmingham 0-1
Coventry—Arsenal 1-1
Ipswich—Liverpool 1-0
Leatherhead—Leicester 2-3
Leeds—Wimbledon 0-0
Middlesbro—Sunderland 3-1
QPR—Notts County 3-0
Plymouth—Everton 1-3
Stafford—Peterbro 1-2
Walsall—Newcastle 1-0
West Ham—Swindon 1-1
Derby—Bristol Rov. frestað
Fulham—Nottm. For. frestað
2. deild
Millvall—Cardiff 5-1
Oxford—Norwich 2-1
Southampton—Oldham 1-0
En nú skulum viö aöeins lita á
helztu úrslitin i bikarleikjum.
Newcastle, liöið, sem lék til úr-
slita viö Liverpool I keppninni
sl. vor, beiö lægri hlut I „drull-
unni” á leikvelli Walsall. Úrslit-
in urðu þar óvænt eins og svo oft
áöur á þessum velli i bikarleikj-
um. Hetjur 3. deildarliðsins
voru George Andrews, sem
skoraöi sigurmarkiö á 34.min.
meö þvi aö skalla knöttinn innan
á stöng og I mark, og Mick
Kearns, markvöröur, sem varði
hvaö eitir annað af hreinni
snilld, þegar Newcastle sótti
mjög i siöari háifleik. Áhorf-
endur 19.998 og i 5. umferö leik-
ur Walsall viö Birmingham —
en Walsall er útborg Birming-
ham, rétt fyrir noröan eins og
Wolverhampton.
Mikil spenna var i Ipswich og
bikarmeistarar Liverpool
heldur óheppnir aö tapa i leikn-
um. John Toshack átti skot i
þverslá Ipswich-marksins I
fyrri hálfleik, og Kevin Keegan
renndi knettinum rétt framhjá
markinu. Varnarleikur beggja
liöa var. sterkur — en loks fjór-
um min. fyrir leikslok var skor-
aö. Fyrirliöi Ipswich, bak-
vöröurinn Mick Mills, spyrnti á
mark og knötturinn fór framhjá
tveimur varnarmönnum og i
netiö. Áhorfendur voru 44.709 —
mesti áhorfendafjöldi, sem
nokkru sinni hefur veriö i
Ipswich.
Aston Villa lék sér aö mót-
herjum sinum úr 1. deild —
Sheff. Utd. — 1 hávaðaroki.
Keith Leonard náði forustu á 12.
min. og þannig var staöan i leik-
hléi. Chris Nicholl skoraöi
annaö mark Villa á 50.mln. ög
markakóngurinn , Ray
Graydon, þaö þriðja á 61.min. Á
70 min. var eina mark Sheff.
Utd. skoraði — Tony Field — en
þremur min. fyrir leikslok var
Leonard aftur á feröinni og
skoraöi. Áhorfendur 35.881.
Swindon úr 3. deild kom á
óvart á Upton Park I Lundúnum
— náöi þar jafntefli viö West
Ham. Heldur slakur leikur, en
West Ham virtist þó stefna i
sigur, þegar Bill Jennings skor-
aöi á 75.min. eftir fyrirgjöf Tre-
vor Brooking. En Peter Eastoe
jafnaöi fyrir Swindon sjö min.
siðar — og liðin mætast á ný i
Swindon á þriöjudag. Ahorf-
endur 35.679.
Mikil spenna var I leik
Coventry og Arsenal og mörk
liðanna sluppu furöulega áöur
en Brian Alderson skoraöi fyrir
Coventry á 57.min. En Alan Ball
jafnaði tveimur min. siöar og
Arsenal náöi tilgangi sinum —
öörum leik á Highbury á
þriðjudag. Áhorfendur 31.165.
Rokið átti þátt I tapi Chelsea. A
43 min. „plataöi” knötturinn —
eftir fyrirgjöf Howard Kendall,
fyrirliöa Birmingham — mark-
vörö Chelsea, John Philips, og
Ken Burns skoraöi ódýrt mark.
Þaö nægði. Dave Latchford
varöi snilldarlega þegar
Chelsea reyndi allt til aö jafna i
siðari hálfleik. Ahorfendur
35.450.
Þaö var rok og rigning i
Carlisle og varla boölegt af
leika. Frank Clark náöi forustu
fyrir Carlisle á lO.min. en Tony
Brown jafnaöi fyrir WBA úr
vitaspyrnu. Carlisle náði for-
ustu fyrir hlé meö marki Joe
Laidlaw og komst í 3-1 á 60.min.
þegar Bobby Owen skoraöi.
Bakvöröurinn Gordon Nisbit,
sem eitt sinn lék i marki WBA,
lagað'. stööuna i 3-2 á 70.min„ en
fleiri uröu mörk WBA ekki,
þrátt fýrir mikla viöleitni loka-
kafla leiksins. Áhorfendur
14.843.
Pop Robson náöi forustu fyrir
Sunderland — bikarmeistarana
1973 — á ll.min. I Middlesbro,
þegar hann náö sendingu til
markvarðar. Bobby Murdoch
jafnaði á 40.min. og I siðari hálf-
leiknum haföi Middlesbro mikla
yfirburöi. John Hickton skoraöi
úr viti á 55.min. — og aftur úi
viti á 76.mln. Nokkrir aöalleik-
manna Sunderland lágu I flensu.
Ahorfendur 39.400. Everton
skoraði tvivegis I fyrri hálfleik i
Plymouth — Jim Pearson á 7.
min. og Mick Lyons á 37. min.
Barrie Vassallo minnkaði mun-
inn á 59. min. meö glæsilegu
marki — en þaö nægði skammt,
Lyons skoraöi annaö inark sitt
og þriöja mark Everton efsta
liðsins i 1. deild, á 76. min.
—hsim.
Þeir eru markhœstir
Markahæstu leikmenn’ I
deilda- og bikarleikjum eftir
lcikina á laugardaginn eru nú:
1. deild
16 — Brian Kidd, Arsenal.
15 — Malcolm
Ncwcastle.
MacDonald,
14 — Bob Latchford, Everton.
13 — Francis Lee, Derby.
12 — Colin Bell, Manch. City,
Alan Clarke, Leeds, Alan
Foggon, Middlesbro, Don
Givens, QPR, Leighton James,
Burnley, Billy Jennings, West
Ham.
2. dcild
21 — Ray Graydon, Aston Villa.
15 — Bryan „Pop” Robson,
Sunderland.
14 — Mick Channon, Southamp-
ton, Ted MacDougall, Norwich.
13 — Phil Boyer, Norwich.
22 ■
3. deild
• Alan Buckley, Walsall.
21—Peter Eastoe, Swindon.
20 — Bill Rafferty, Plymouth.
19 — Bill McNeil, Hereford.
4. deild
22 — Brian Clarke, Mansfield.
16 — Richard Habbin, Reading.
15 — John James, Chester.