Vísir - 27.01.1975, Blaðsíða 20
VÍSIR
Mánudagur 27. ianúar 1975.
Fljótandi
brœðsla
fylgir
báta-
flotanum
,-Verulegar vonir
voru bundnar við að fá
kannski drýgri skerf af
kökunni en verið hefur",
sagði Heirnir Ingimars-
son, sveitarstjóri á
Raufarhöfn, en hrepps-
nefndir og verkalýðsfé-
lög á bræðslustöðum
norðan og austan hafa
mótmælt og krafizt þess,
að sjávarútvegsráðherra
afturkalli leyfiö.
,,Af hálfu hins opinbera hefur
meira aö segja veriö ýtt undir,
að eytt hefur verið talsveröu fé
til aö endurbæta og lagfæra aö-
stööu svo sem á Vopnafiröi, en
meö tilkomu bræösluskips á
miöunum er grundvelli kippt
undan þvi, og allt útlit fyrir' aö
bræöslustaöirnir á noröan- og
austanveröu landinu veröi fyrir
verulegu atvinnutjóni af þess-
um sökum.
Viö heföum frekar lagt til, aö
fengiö yröi flutningaskip til aö
flytja aflann af miðunum til
þessara staöa. Verksmiöjurnar
á Vopnafiröi, Raufarhöfn,
Krossanesi og Siglufiröi geta
annaö 3000tonnum á sólarhring,
móti 2500 hámarksgetu skips-
ins. Þessar bræðslur hafa svo
30-40 þúsund tonna geymslu-
rými, en skipið aöeins 4000, en
þar á móti kemur svo gifurleg
afkastageta þess og nálægö við
miöin.
Þar aö auki teljum við, aö
þetta sé hættulegt fordæmi.
Mikiö er til af erlendum verk-
smiöjutogurum, sem viöast eiga
erfitt uppdráttar vegna vaxandi
veiöitakmarkana. Meö þessu
fordæmi er opin leiö fyrir
islenzka aöila aö þykjast taka
þannig skip á leigu og láta þau
vinna úr aflanum úti á sjó i staö
þess aö koma meö hann aö landi
og leggja hann til vinnslu i is-
lenzkar vinnslustöövar fyrir is-
lenzkt vinnuafl”.
Þetta er meginkjarninn úr
mótmælum frá bræðslustöðun-
um.
______________— SH
ENGIN
VARÐSKIP
í FLÓ-
ANUM ENN
— friður í
rœkjustriðinu
ó Húnaflóa
„Nökkvi kom i gær meö rúmt
tonn af rækju og hefur þá fariö
eina sex róöra frá áramótum”,
sagði Kári Snorrason, útgerðar-
maöur á Blönduósi, i viötali viö
VIsi i morgun.
„Viö hofum ekkert heyrt frá
yfirvöldunum og ekkert oröiö
varir viö varöskip i flóanum.
Það er sem sagt ekkert aö frétta
héöan. Þaö er vestanátt og
sæmilegasta veöur, en ég veit
ekki enn, hvort Nökkvinn hefur
róiö i morgun”. —SH
Brœðslustöðvarnar norðan og austan:
Skora á ráðherra
að afturkalla leyfið
— telja leigu á norsku brœðsluskipi kippa grundvelli
undan atvinnulifi staðanna og skapa varhugavert fordœmi
„Þetta er auövitaö geysimikiö
fyrirtæki og áhætta nokkur, en viö
erum reiöubúnir aö taka þessa
áhættu i von um, aö okkur farnist
vel,” sagöi Jón Ingvarsson,
framkvæmdastjóri tsbjarnarins
h.f., en tsbjörninn og Hafsild h.f.
á Seyöisfiröi hafa I sameiningu
tekiö á leigu norskt loönubræöslu-
skip, sem mun fylgja loönuveiöi-
flotanum í vetur.
Bræösluskip hefur ekki verið
notaö af tslendingum siöan Hær-
ingur var seldur. „Þetta var
kannað fyrir um tveimur árum,
en ekki varð af þvi þá, að skip
væri fengiö,” sagði Jón.
Skipiö, sem heitir Norglobal, er
26000 lestir aö stærð og getur
brætt allt að 2500 lestir á sólar-
hring, og er þá miðað viö há-
marksafköst. Lágmarksafköst
fara ekki niöur fyrir 1500 lestir,
þegar nóg hráefni er.
Skipið er óháö aöstööu I landi.
Þaö getur tekið meö sér miklar
birgöir vatns, vista og oliu, og
vatn til vinnslunnar er eimað um
borö úr sjó meö eigin tækjum
skipsins.
Skipiö veröur að likindum losað
á miöunum um borð I flutninga-
skip, sem hafa aðstöðu til aö
flytja ósekkjað mjöl, og lýsiö i
lýsistankskipum. Þessi flutninga-
skip munu flytja vöruna þangað,
sem hún er seld. Það, sem verður
I skipinu, veröur flutt með þvi til
Kristiansand, þegar það fer heim
aftur, og flutt þaðan til viöeig-
andi staöa.
Skipiö veröur leigt til 45 daga,
og er þá miöað viö timann að og
frá höfn I Kristianssand. Ekki er
vitað nákvæmlega, hvenær skipiö
kemur hingaö, en þaö á aö leggja
af staö ekki siöar en 1. febrúar.
60 manna áhöfn er á skipinu og
er þaö leigt meö allri áhöfn.
Skipiö er leigt til að bæta úr
þörf á bræðslustööum, eftir að
tvær bræöslur á Austfjörðum
skemmdust svo, aö þær eru úr
leik á þessari vertiö. Með lág-
marksafköstum hefur skipið 400
lestum meiri afkastagetu en þær
verksmiöjur tvær —SH
Þaö getur veriö ágætt aö skyggnast svolitiö inn I framtiöina, og Jóna Rúna Kvaran leikkona er einmitt
aö spá þarna I bolla. Þeir slappa þarna af yfir kaffibolla leikararnir I Hvernig er heilsan? en þaö veröur
frumsýnt innan fárra daga. Greinilega hefur Bessa hrotið af vörum: „Nú, þaöer bara svona”.
Hvernig er heilsan?
Ekki spillir kaffið
svona rétt fyrir œfingu
Þaö getur veriö ágætt aö
hressa sig á smákaffisopa
rétt á meðan fariö er yfir hand-
ritiö. Bjarnleifur smellti þessari
mynd af i Þjóöleikhúsinu, þegar
hann kikti þar inn, en nú er
veriö aö leggja siöustu hönd á
Hvernig er heilsan?
Leikritiö veröur frumsýnt
núna þann 30., og eru leikendur
samtals 14. Einnig kom fram
nokkrir aukaleikarar.
Leikstjóri er Sigmundur örn
Arngrimsson, en hann leikstýrir
nú I fyrsta skipti i Þjóðleikhús-
inu.
Ófœrt
víða
ó
landinu
— skóla aflýst
á Sauðárkróki
í morgun, en bezta
veður var
eftir stuttan tíma
„Viö aflýstum kennslu hér i
morgun, en nú er komið bezta
veöur”, sagöi skólastjóri Barna-
skólans á Sauöárkróki, þegar við
spjölluöum viö hann i morgun.
„Undir morguninn geröi mjög
slæmt veöur, en þaö hefur nú
alveg lægt”, sagöi hann.
Hann sagöi, aö færð heföi að
mestu veriö komin i lag, og bjóst
ekki viö, að snjókoman i morgun
heföi mikið breytt þvi.
En ekki er alls staðar sömu
sögu að segja. 1 Vik I Mýrdal
geröi mikiö fannfergi um helgina,
og skólabilar til heimavistarskól-
ans á Klaustri voru beðnir að
leggja ekki af staö, fyrr en búið
væri aö tala viö þá, sökum ófærö-
ar.
Hjá vegaeftirliti Vegageröar-
innar var okkur sagt, að ekki
væru enn komnar alveg nákvæm-
ar fregnir af færöinni á landinu.
Frá Reykjavik austur um
Hellisheiði og austur undir Sól-
heimasand er þó greiöfært. Upp i
Borgarfjörö er einnig vel fært.
A Snæfellsnesi þyngdi færö um
helgina og er ekki að fullu vitað
um ástand þar. Ofært er norður i
land og allt I kringum Vik I Mýr-
dal er ófært. Einnig á Austur- og
Noröurlandi.
— EA
Hekla beið 6 annan sólarhring
— eftir að komast inn á Raufarhöfn með matvœli
„Eftir að Skipaútgerðin sýndi
okkur þá þolinmæöi aö láta Hekl-
una biöa hérna úti fyrir á annan
sólarhring eftir þvl aö geta kom-
izt inn, er ástandið gott hjá okk-
ur”, sagöi Heimir Ingimarsson,
sveitarstjóri á Raufarhöfn, i
morgun.
„Ef þetta hefði ekki verið gert,
er hætt við að farið hefði að
þrengja aö okkur meö matvæli,
en nú erum viö vel birg.”
Um áramótin var tilfinnanleg-
ur skortur á oliu á Raufarhöfn.
„Viö höfum nú nóga oliu”, sagöi
Heimir. „Þegar fært varö, kom
Litlafellið meö oliu á laugardegi
og Kyndill sunnudaginn eftir, svo
þar var bætt fljótt og vel úr.
Viö höföum'samgöngur á sjó og
i lofti, þegar gefur, en vegar-
samband á jörðu er lokað I allar
áttir. Það eina, sem okkur skort-
ir,er mjólk, en nú verður mokaö i
dag eöa á morgun, og þá veröur
bætt úr þvi líka.
Snjór er alls ekki að ráöi hjá
okkur, þvi sléttlendi er svo mikið,
aösnjóinn hefurriíiöaf — úr þvi
aö ekki snjóaöi á vestan. En þaö
hefur skafiö töluvert, og þá eru
ruddar slóðir fljótar aö fyllast.
Okkur liöur I alla staöi vel, höf-
um haldið þorrablót og fært upp
söngleikinn Rjúkandi ráð og
skemmt okkur konunglega”.
— SH