Vísir - 27.01.1975, Blaðsíða 13
Visir. Mánudagur 27. janúar 1975.
13
Innlegg i
kjarabaráttuna
Visnasöngvarinn Joe Glazier
frá Bandarikjunum skemmti
viöa um land á dögunum, m.a. á
vinnustað á tsafirði. Var honum
vel fagnað, enda hinn bezti
skemmtikraftur. Eitt laga hans
haföi eftirfarandi viðlag:
„I’m looking for að job with
sky-high pay
A tour-day week and a two-hour-
day” o.s.frv.
Hann var semsé að skyggnast
um eftir vinnu með svimandi
háu kaupi, 4 daga vinnuviku, tvo
tima á dag. Skyldi annars ein-
hver hafa slik kjör á íslandi i
dag? Hvað um það, þetta kyrj-
aði frystihúsafólk með Glazier
og hafði gaman af þessu inn-
leggi I verkalýðsbaráttuna.
Rafknúnir almenn-
ingsvagnar til
Hafnarf jarðar?
í öllum orkuskorti heimsins,
sem raunar kemur ekki eins hart
niður hér á landi og viða annars
staðar, koma upp margar nýstár-
legar hugmyndir. 1 Borgaranum,
sem nýlega kom út i Hafnarfirði
skrifar Brynjólfur Þorbjarnar-
son grein um hugmyndina að raf-
knúnum almenningsvögnum milli
Hafnarfjarðar og Reykjavikur.
Kostir slikra vagna, sem þegar
eru farnir að sjást á götum i Bret-
landi og V-Þýzkalandi eru
margir. M.a. eru þeir kostir að
þeir eru hljóðlausir og valda
engri mengun, en það er meira
en sagt verður um núverandi
strætisvagna.
Nýtt menntamála-
ráð kemur saman
til fundar
Nýkjörið menntamálaráð
kom samán til fyrsta fundar sl.
miövikudag.
Formaður var kjörinn
Kristján Benediktsson, varafor-
maður Baldvin Tryggvason og
ritari Jón Sigurðsson. Aðrir i
ráðinu eru Matthías Johannes-
sen og Björn Th. Björnsson.
Aðsetur Menntamálaráðs og
Bókaútgáfu Menningarsjóðs er
aö Skálholtsstig 7. Þar er opið
alla virka daga milli kl. 9 og 12,
og 13 og 18.
★ VÖNDUÐ HERRAFÖT ★ STAKIR JAKKAR
★ STAKAR BUXUR ★ ÚRVAL AF SKYRTUM
í HERRABÚÐINNI
við Lœkjartorg
múnudag, þriðjudag, miðvikudag.
Útsolon stendur aðeins í 3 daga.
F/W\
V I D LÆKJARTORG
r
Gagnkvæmt tryggingafélag ?
Já, Samvinnutryggingar
gagnkvæmt trygginga
g.t. eru
relag.