Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 2

Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 2
2 Vísir. Þri&judagur 28. janúar 1975. risntsm: Hvað er bezta ráðið gegn hiksta? Pétur Sigurgeirsson, verzlunar- maöur: — Ég fæ yfirleitt ekki hiksta. Sennilega væri þó I slikum tilfellum bezt aö standa á haus i fimm minútur, ef viökomandi þolir. Kristinn M. Kristinsson: — Ég fær aldrei hiksta, sennilega er bara engum illa viö mig. Ragnar Ingólfsson, simvirki: — Halda bara áfram aðhiksta, það gerir engum mein. Jóhanna Gunnarsdóttir: —Drekka vatn og halda fyrir nef- ið um leið. Eitt glas af vatni ætti aö duga. Sigurjón Eliasson, verzlingur: — Það er bezt að láta einhvern gera sér bilt við. Þaö er sagt mjög gott, án þess að ég hafi þó reynslu af þvi. Sveinn Magnússon, nemi: — Ég held, að ráðlegast sé að drekka súrmjólk meö eplum út I. Nú, ef þaö dugar ekki, þá með appelsin- um. Eins er Dlat megrunarfæöa sögö góö gegn hiksta, það er hægt að styrkja hana meö nokkrum appelslnudropum. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Þó mun heimsk- Sýnum öldruðum tillitssemi í hálkunni! um mönn- um fjölga.. Guöjón hringdi: „lsland er einangrað land. Það er eyja, og íslendingar hafa mun minni samgang við útlönd heldur en aðrar þjóðir. Þetta er staðreynd, sem öllum er kunnug. Það hefur því verið jákvæð þróun undanfarin ár, að sifellt fleiri Islendingar fara til út- landa, kynnast öðrum þjóðum, siöum þeirra og lifsháttum og koma heim fróðari. Allt i einu er farið að kenna þessum ferðalögum um það, hvernig ástandið er I gjald- eyrismálum þjóðarinnar. Það á að fara að stoppa ferðalög til útlanda með því að setja aukagjöld — og skatta á þau. Þá verða þau aðeins fær ríkis- bubbum. Þetta á að sögn að minnka gjaldeyriseyðsluna. Þarna þykir mér ráöizt á garðinn, þar sem hann er lægstur. Það er helber vit- leysa og kjaftæði, að ferðalög- in til útlanda séu til þess að taka óhóflega af gjaldeyris- foröanum. Gróflegir út- reikningar sýna, að miðað við 50 þúsund manns, sem fóru utan á slðasta ári, þar sem hver fékk að meðaltali 25 þús- undkrónurígjaldeyri, þá hef- ur þessi f jöldi fengið erlendan gjaldeyri til eyðslu fyrir rúm- an milljarð króna. Hins vegar hefur komið fram, að þeir tveir milljarðar króna, sem til eru I gjaldeyrisvarasjóðnum, nema tveggja vikna innflutn- ingi til landsins. Þessar tölur sýna svart á hvltu, að það er ekki reynt að komast fyrir meinsemdina, þar sem hún er mest, heldur byrjað að kroppa I hana á stöðum, sem ekki skipta meginmáli. Hér viröist liggja beinast við aö minnka innflutninginn. Ég mæli með hreinum og beinum höftum I þvl skyni. Ég held, að fólk vilji frekar minnka viö sig erlendar munaðarvörur heldur en að þvl verði gert næstum ókleift aö ferðast til útlanda. Forfeður okkar Islendinga kölluöu þá menn sín á milli heimska, sem ekki höfðu stig- iöfæti slnum á erlenda grund. Ég er hræddur um að „heimskingjunum” eigi eftir aö fjölga, ef staðið verður við þær áætlanir að hefta á þenn- an hátt ferðalög almennings til útlanda.” V.F. hringdi: „Meöan hálkan er sem mest á götum og gangstéttum hér I Reykjavik og nágrenni, er sér- stök ástæða fyrir bllstjóra að sýna öldruðu fólki tillitssemi i umferðinni. Gamalt fólk á mun erfiöara með að fóta sig I hálku heldur en þegar autt er. Fyrir bragðið verður það svifaseinna og treystir sér verr til að fara yfir götur og ganga, þar sem hálka er mikil. Bllstjórar verða að taka sér- stakt tillit til þessa, þegar gamla fólkið er á leið yfir götu. Það er ekki nóg að hægja ferð- ina, heldur verður að stoppa alveg fyrir þvi og gefa þvl bend- ingu, ef óhætt er að fara yfir. Anna skrifar: „Myndasögur og skrýtlur eru það efni, sem allir lesa I Visi. Þó finnst mér, að sumar þeirra mættu batna til að geta verið hlátursefni. Boggi t.d. og Krulli, þaö eru sögur, sem mætti fella alveg úr að mínum dómi. Bella og Fred Flintstone mættu batna að miklum mun. Bella snýst aðeins um, hvernig hún á að komast á rétt- um tlma I vinnu, en kemur alltaf of seint, einhverra hluta vegna. Svo er það eina áhugamál henn- ar, sem allt virðist ganga út á, en það eru náttúrlega karl- menn. Það veröur að sýna gamla fólkinu þolinmæði og gefa þvl tlma til að átta sig I þeim mikla umferðastraumi, sem er I borg- inni. Þeir, sem eru gangandi og ekki eru fótfúnir, geta lika oröiö að liði. Það má styðja þá eldri yfir götur og hálkubletti. Ég vil einnig beina athygli bil- stjóra að þvi, að I sumu tilliti er aldrað fólk likt og börn I um- ferðinni. Það á oft erfitt með að reikna út fjarlægðir og anar út á götur, oft þvert I veg fyrir blla. Bílstjórar verða þvl að sýna sömu varúð, þegar ekið er fram hjá þessum elztu borgurum, eins og þegar ekið er framihjá þeim yngstu.” Fred Flintstone er frekar þung myndasaga og alls ekki til að hlæja að, að þvi er mér finnst. En þó hafið þið góðar myndasögur líka, eins og Hroll og Móra. Móri er þó frekar kvikindisleg saga. Núna um daginn höfðuð þið framhaldssögu um köngulóna I fangelsinu hjá kónginum. (Myndasagan Móri). Hún var alveg sérlega góð. Erfiöleikarnir hjá aumingja köngulónni voru svo miklir á öllum þessum súputimum, að hún var alveg að gefast upp. Hrollur er eiginlega alltaf eins að þvl leytinu, að hann er alltaf að fara I vfkingaherferðir til Englands og fleiri staða, áhyggjur af Hamlet syni hans, af þvl að hann vildi bara lesa bækur og yrði aldrei vikingur. Og ekki er Halla minna vanda- mál fyrir aumingja þreytta föð- ur sinn, vlkinginn. Hún fer vopnuð á öll sin stefnumót og virðist ekki ætla að ganga út. Leifur, aðstoðarmaður Hrolls, er einhver furðuvera, sem er notaðurfyrir akkeri, brú,ef með þarf og svo má lengi telja. Þó eru þetta sögur, sem eru upp- lifgandi i skammdeginu, og hláturinn lengir llfið.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.