Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 28. janúar 1975. „Skellti mér í að lesa Laxdœlu og Njálu" — Rœtt við bandaríska stúdenta ó leið til Danmerkur „Aður en ég kom hingað vildi ég nú fræð- ast svolitið um ísland. Ég las mér til og svo skellti ég mér i að lesa Laxdælu og Njálu. Ég hafði mjög gaman af þvi, en ég býst ekki við, að nokkur i þessum hóp hafi lesið þessi verk”. — Trtfðiröu þvi, sem þtf last? „Ég held, að undirstööuatrið- in séu rétt”. Þetta sagði banda- riskur sttfdent frá New York, Stephen Alden, þegar við hittum hann að máli á Hótel Loftleiöum i morgun. Stephen er einn af all- stórum hópi stúdenta frá Bandarikjunum, sem ntf er á leiö til Danmerkur, en þetta er fastur liður meðal sttfdenta að fara slika ferð á ári hverju. „Við stoppum ekki nema tvo daga hér. t Danmörku ætla ég Stephen var i Noregi fyrir 3 árum og hefur verið á nám- skeiöi i norrænum fræðum. En annar sttfdent, sem við ræddum við og kvaðst heita Peter sagðist aldrei hafa komið til Evrópu fyrr. „Ég er þvi mjög spenntur að sjá mig um. Við verðum mis- jafnlega lengi i Danmörku, sumir ætla að verða f allt sum- ar, en ég verð i 4 mánuði. Ég ætti þvi að geta ferðazt nokkuð um”. Peter kvaðst vita fremur litið um ísland og ekki hafa lesið mikið. Hann kvaðst þó hafa heyrt, að hér gæti verið von á öllum veörum, og oft yrði hér mjög hvasst. Ekki fannst hon- um neitt sérstaklega kalt, „en ekki vildi ég búa hér”. — EA Nærri ellefu þúsund bilar voru keyptir til landsins á siðasta ári. Það var rúmlega 2.600 bilum meira en áriö áöur. Fluttir voru inn 10.633 bilar, þar af 8.947 nýjar fóiksbifreiðar og 789 notaöir fólksbilar. Ariö áöur voru fluttar inn 6.332 nýjar og 1.019 notaöar fólksbifreiöar, svo aö innflutningur hinna not- uöu dróst saman. 422 nýir og 95 notaðir vörubil- ar voru keyptir til landsins i fyrra. Einnig þar jókst innflutn- ingur nýrra bila en innflutning- ur notaöra bíla minnkaðí. Tæplega 300 sendibifreiöar voru fluttar inn i fyrra, sem var aukning um tæplega 50 frá fyrra ári. „Eg las Laxdælu og Njálu áöur en ég kom,” sagöi Stephen Alden frá New York. að verða fram i júni. Ég ætla mér aö reyna að sjá sem mest, á meöan við erum hér. Að visu þurfum við að hitta fulltrtfa frá Kaupm.höfn, en seinni partinn I dag eigum við frjálsan. Ég mundi gjaman vilja fara I skoðunarferð”. — Hvernig lizt þér á veðrið? „Ja, nógur er snjórinn. Annars get ég vist ekkert sagt um veðrið, þvi ég stökk út tfr flugvélinni inn I flugstöðina, þaðan inn I rtftu og svo hingað! En nú bið ég spenntur eftir, aö sólin komi upp, ef htfn þá kemur »> „Ekki vildi ég búa hérna,” sagöi bandariski stúdentinn Peter. Hann ætlar að veröa 4 mánuöi i Danmörku. ’ Þau fá tvo daga til þess aö skoöa sig um og ætla aö reyna aö sjá sem mest. Og þaö má notast viö allt til þess aö skrá sig inn á hóteiiö Ljósm: Bragi. Af einstökum gerðum kemur Ford Bronco frá Bandarikjun- um I fyrsta sæti. 674 voru fluttir inn i fyrra. i ööru sæti er Ford Cortina frá Bretlandi 648. 464 Fiat 127 bilar voru fluttir inn frá Italfu og 415 Fiat 128. 402 Austin Mini bilar komu frá Bretlandi og 94 frá Belgfu. 208 Mazda 818 voru fluttir inn frá Japan og 211 Volvo 144 frá Sviþjóö. Þá komu 284 Ford Mercury / Comet / Cougar bflar frá Bandarikjun- um og 253 Ford Escort frá Bret- landi. Af einstökum gerðum komust aðrar ekki yfir 200 þótt helztu bilategundir fari yfir það mark, ef allar gerðir eru lagöar saman. Þannig voru alls fluttar inn 1034 Fiatbifreiöar á árinu, og er það hið mesta fyrir utan Ford-geröirnar. Fordbilar voru alls 2130 I inn- flutningnum i fyrra. Volkswag- enbílar voru 504, Mazda 471, Toyota 407, Saab 320, Volvo 312, Citroen 310, Chevrolet 253, Datsun 254, Peugeot 218. —HH visir LANDSSÍMINN GAF tf* •» w* ARÖBUM LÍTIÐ EFTIR þrefölduð * Landssiminn gaf Aröbunum ekki mikiö eftir. Hækkun gjalda af tækjabúnaöi vegna fréttamóttöku frá norsku fréttastofunni NTB hefur rúmlega þrefaldazt á einu ári. Skiptar skoöanir hafa verið um, hvort Islenzkir fjölmiðlar ættu að halda áfram aö kaupa þjónustu NTB. Norska fréttastofan byggir á fréttum hinna stærri erlendu fréttastofa, svo sem Reuter, AP og UPI. Allir Islenzkir fjölmiðlar fá fréttir beint frá Reuter og sum- ir auk þess frá AP. Þvi er deilt um nytsemina af NTB, en fylgjendur þess, aö þjónusta sé keypt af norsku fréttastofunni, telja það kost, aö Færeyingar njóti góðs af sendingum NTB til Islands. Landssiminn innheimtir 77.804 krónur af Visi fyrir leigu fyrir fyrsta ársfjórðunginn i ár á tækj- um vegna NTB. Fyrir fyrsta fjóröung árs I fyrra var reikning- urinn 24.579 krónur. Þrátt fyrir alla verðbólguna er slik hækkun býsna fátíð. Gjaldiö var 35.810 krónur fyrir annan og þriðja ársfjórðunginn i fyrra og 36.422 krónur fyrir 4. árs- fjórðung. Ntf innheimtir Landssiminn 46.800 krónur fyrjr leigu á fjarrita á VIsi, en 14.000 fyrir ári. Fyrir linuleigur innheimtir siminn nú 6.882krónur, en 4.251 kr. fyrir ári. 11.700 eru teknar fyrir fjórða hluta af monitorfjarritara I Gufu- nesi, en 3.500 fyrir ári. Þá eru 12.422 krónur teknar I söluskatt af þessu, en hann er 19% nú, en i fyrra voru 2.828 krónur innheimt- ar i söluskatt, sem þá var 13%. —HH Nœrri 11 þús. bílar fluttir inn í fyrra Keyptum 2600 bílum meira en úrið úður URÐU AÐ SNÚA VIÐ VEGNA ÓKYRRLEIKA farþegarmr 13 komust ó Flugvél frá Flugfélági tslands lenti I svonefndum „Clear-air tur- bulence” I gær, er hún var á leið til Egilsstaöa. Af öryggisástæö- um var vélinni snúiö viö til Reykjavikur og beöiö átekta fram eftir degi. Fokker Flugfélagsins, Gljá- faxi, fór áleiðis til Egilsstaða frá Reykjavik kl. 91 gærmorgun með 13 farþega. Þegar vélin varkomin i námunda við Egilsstaði, lenti htfn I óveöraskilum með miklum ókyrrleika, clear-air turbulence. Lægð mun hafa verið á ferðinni á afangastao i þrið|u tilraun þessum slóöum, og myndaðist ókyrrleikinn I jaöri hennar. Aö sögn Flugfélagsmanna var þetta þó ekki meira en oft gerist I innanlandsflugi, en svo ókyrrt, að ástæða þótti til að sntfa við. Það var i annað sinn, sem þessi far- þegar máttu hverfa frá lendingu á Egilsstöðum. Egilsstaðaflugið var svo farið klukkan 6 i gærkvöldi. Þá komust þessir farþegar á leiðarenda og nokkrir I viðbót, þannig að fullbókað var i vélina. — SH Þyrlan var yfirhlaðin - mátti aðeins bera 43 kíló auk flugmanns Nú liggur fyrir hluti niðurstaðanna úr rann- sókn, sem fram fór eftir þyrluslysið á Kjalarnesi, í morgun lýsti rannsóknarnefnd flugslysa þvi yfir opin- berlega að komið hefðu fram þrjú mikilvæg atriði i sambandi við flugslysið. 1 fyrsta lagi var þyrlan viö flugtak frá Reykjavikurflug- velli yfirhlaðin um 429 kiló. Leyfður hámarksfarmur þyrl- unnar fullhlaöinnar eldsneyti eru aðeins 43 kiló auk flug- manns. 1 ööru lagi var þyngdarpunkt- ur þyrlunnar aftan viö leyfileg mörk og i þriðja lagi var veður mjög ókyrrt á þeim slóðum, er þyrlan fórst. Hér á landi er nú staddur sérfræðingur Sikorskyverk- smiðjanna, sem safnað hefur saman staöreyndum um þyrl- una, er fórst, og aðdraganda slyssins. Þessi gögn voru send til Bandarlkjanna fyrir helgi og var svars við ýmsum tæknileg- um spurningum að vænta slðar I dag. Verksmiðjurnar hafa meðal annars verið beönar um að kanna áhrif þessarar ofhleðslu á þyrluna og jafnframt, hvort þyrlunni hafi verið fært aö bera þann þunga. Jafnvel kemur til greina, að verksmiðjurnar fari i reynslu- flug I samsvarandi þyrlu til að ganga tfr skugga um þessi atriði viðkomandi slysinu. — JB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.