Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 28.01.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Þriðjudagur 28. janúar 1975. 7 „Þegar kreppa er yfir- standandi eða yfirvof- andi, þá er eins og menn hugsi meira um föt. Það má kannski segja, að kreppan breyti fatnaðin- um. Menn velja sér vandaðri og um leið endingarbetri föt. Það er líka sagt, að pelsar seljist meira á kreppuárum!" Þetta sagði okkur verzlunar- stjórinn i Herrabúðinni i Aðal- stræti, þegar við litum þar inn til að forvitnast svolitiö um karlmannafatnað þessa dagana og linuna eins og tizkukóngar segja hana verða I sumar. Ekki kvaðst hann hafa sann- reynt fyrri orð, en hann kvaðst hafa lesið mikið um þetta. En hvort sem kreppa eða eitthvaö annað hefur eitthvað að segja, þá virðast menn nú velja sér vandaðri fatnað, og ekki horfa þeir eins mikið I verð og stund- um áður, var okkur sagt i verzluninni Bonaparte i Lækjargötu, og þar var okkur lika tjáð, að nú væri það hin svo- kallaða „Gatsby-lina”, sem væri rikjandi i karlmanna- fatnaði. Hér sjáum við dæml um jakka- föt, sem eru mjög vinsæl i dag. Ermar eru þröngar aö ofan, en vikka niður. Þessi sáum við I Herrabúöinni. Ljósm: Bragi. Umsjón: Edda Andrésdóttir Sú lina er orðin þekkt hér- lendis, eftir að myndin um Gatsby var sýnd hér i einu kvik- myndahúsanna, en þessi fatnaður virðist hafa tröllriðið tizkuhúsum og - verzlunum er- lendis hingað til. 1 Herrabúðinni var okkur lika sagt, að Gatsbyfatnaður væri vinsæll, en þá helzt roeðal yngri manna, og reyndar viröist það aöeins litill hópur, sem fylgist svo mjög með breytingum á fatnaði. Kvikmyndir hafa mikið að segja fyrir fatnaöinn viröist vera, og kvikmyndin Sting, sem sýnd er hér um þessar mundir, hefur lika haft sitt aö segja, svo sem hvað viðkemur teinóttum jakkafötum. Allir litir virðast rikjandi i karlmannafatnaði, en þó ætlar að bera mest á ljósum lit, er á liður. Svipaður fatnaður og ernú rikjandi verður lika allsráðandi i sumar eftir þvi sem okkur er sagt. Hér sjáum við dæmi um þann fatnaö, sem tizkukóngar vilja iáta karlmenn ganga i i dag. Skytdi ekki einhver geta fundið eitthvað svipað I gamalli fatahrúgu? Leöriö virðist ætla að halda velli, og leðurfrakkar ryðja sér til rúms. Þennan sáum við i Bonaparte. verða alveg jafn eftirsóttir og áður. Leöurfrakkar eru þó nokkuö aö ryðja sér til rúms. Þegar að sparifatnaði kemur þá er smoking alltaf á boðstól- um. Hann er alltaf i sömu litun- um, en ekki er sömu sögu aö segja um skyrturnar sem hon- um fylgja. Þær eru nú hafðar i alla vega litum. Jakkafötin ætla svo sannar- lega að halda velli, en talsvert er um þaö, að menn kjósi stakan jakka og buxur. Meira er um þaö, að vesti fylgi jakkafötum nú en áður. En þó að talsvert miklar breytingar séu nú á karlmanna- fatnaði, þá eru ekki allir tilbúnir að stökkva nein „hasastökk” eins og einum varö að orði, sem við ræddum við. Það virðist ekki vera nema tiltölulega litill hluti, sem fylgist nákvæmlega meö öllum þeim breytingum, sem eiga sér stað. Það eru þá yngri menn, sem frekar eru tilbúnir til þess aö taka hinum ýmsu breytingum. Eldri menn vilja helzt halda sér við það sama, að minnsta kosti fara þeir ákaflega hægt i sakirnar. Annars viröist tizkan alltaf ganga sama hringinn. Við för- um aftur i timann núna, bæöi hvað viðkemur karlmanna- fatnaði og kvenfatnaði. Ef eldri menn hefðu til dæmis geymt föt sin frá þvi á sinum yngri árum, þá féllu þeir sjálf- sagt núna alveg inn i tizkulinuna eins og höfuðpaurar i tizku- heiminum vilja hafa hana. En það er erfitt að fylgjast vel með tizkunni. Fatnaður er mjög dýr nú til dags, en kannski það veröi nú svo, að menn hugi að kaupum á endingargóðum og vönduðum fatnaði svona i kreppunni... Jakkar hafa tekiö þeim breytingum, að hornin hafa stækkað talsvert. Erniar eru nú þröngar að ofan en viðar að neðan i samræmi við buxurnar. Þær buxur, sem eru mest i tizku nú, eru þó mjög viöar. Buxur ná hærra upp og belti eru orðin vinsæl aftur. Flauel er mjög vinsælt i jakkafötum, og stundum er það mynstrað eða „printed” eins og kallað er. Mönnum ber saman um það, að fatnaður sé nú öllu karl- mannlegri en áður, rýmri og vfðari um axlir. Skyrtur eru mikið munstraðar og bindi eru stór og þá oftast munstruð lika. Þykkar jakkapeysur og vesti eru ofarlega á lista og vestin eru þá aö sjálfsögðu prjónuð og mikið munstruð. Hjá þeim, sem hvað mest fylgjast meö tizkunni, eru der- húfur mjög vinsælar og eru þær þá hafðar köflóttar. Hælar á skóm fara lækkandi, en skótizkan er enn mjög svipuð og verið hefur, þ.e. frekar háir hælar og mjög breið tá. Þó að leðurjakkar hafi verið mjög vinsælir um talsvert lang- an tima, þá hverfa þeir ekki strax úr tizkuheiminum. En ekki virðast þeir þó ætla að Mikið er um, að vesti fylgi jakkafötum. Bindi eru stór. Horn á jökkum fara stækkandi. Ekki allir tilbúnir að stökkva „hasastökk" — „Jl/lenn hugsa meira um föt á krepputímum" — Hvað segja þeir annars um karlmannatízkuna?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.