Vísir - 28.01.1975, Qupperneq 3
Vlsir. Þriöjudagur 28. janúar 1975.
3
H vernig lízt
þingmönnum
„KOMIÐ FRAM AÐ FJÁR- :sa9íi Geirt.
•• w Gunnarsson, þingm.
LOGIN VORU ORAUNHÆF" A.|,ýiUb.nd.ia9s(ns
„Ólafur Jóhannesson segir,
aö þetta hafi versnaö, siöan þeir
tóku viö,” sagöi Geir Gunnars-
son, þingmaöur Alþýöubanda-
lagsins og kimdi.
„Þeir ætla vist ekki að gera
neitt i efnahagsmálunum, fyrr
en Geir er kominn heim frá
Ameriku. Annars vil ég segja
það, að nú er komið fram, hve
óraunhæf fjárlögin voru og hve
langt frá þeirri stefnu, sem nú-
verandi stjórn segist vilja i
efnahagsmálum.”
Þarf ekki að fara að spara?
„Jú,” sagði Geir Gunnarsson,
„og það hefði mátt reyna fyrr að
skera niðúr útgjöldin. Það ætti
þó frekar að spara einkafram-
kvæmdir heldur en hinar félags-
legu.”
Annað vildi Geir ekki segja
um hugsanlegar aðgerðir i efna-
hagsmálum, fyrr en málin
heföu verið betur rædd i flokki
hans.
—HH
á hlikuna?
„FYRST OG
FREMST AÐ
HINDRA AT-
VINNU'
LEYSI##
— sagði Oddur
r
Olafsson, þingm.
Sjálf stœðisf lokksins
„Ég vil segja þaö fyrst, aö ég
er oröinn svo gamall, að ég
kippi mér ekki upp viö það, þótt
efnahagserfiðieikar séu á ts-
landi,” sagöi Oddur ólafsson,
þingmaöur Sjálfstæöisflokksins,
laust fyrir byrjun funda á Al-
þingi I gær eftir jólahlé.
„Við verðum að reyna að
halda i við okkur og spara, svo
að gjaldeyrisástandið fari ekki
með okkur I hundana.
Fyrst og fremst verður að
hindra atvinnuleysi og sjá til
þess, að atvinnullfið geti gengið.
Við þurfum að fara okkur
hægar að öðru leyti.” —HH
„BÝST EKKI VIÐ STÓR-
AÐGERÐUM
NÆSTU
DAGA"
r
— sagði Olafur G.
Einarsson, þingm.
Sjálf stœðisf lokksins
„Viö erum vlst sammáia um,
aö útlitiö sé ekki eins gott og
menn höföu vonaö,” sagöi ólaf-
ur G. Einarsson, þingmaöur
Sjálfstæöisflokksins, þegar
Vlsismenn litu viö i byrjun
funda Aiþingis i gær.
„Menn hafa mestar áhyggjur
af viðskiptakjörunum.
Afurðirnar seljast ekki.”
Býst þú við aðgerðum næstu
daga?
„Nei, ég býst ekki við neinum
stóraðgerðum næstu daga. Lík-
lega munu stærri aðgerðir tekn-
ar i tengslum við kjarasamn-
ingana. Ég geri mér vonir um,
að sýndur verði skilningur á öll-
um hliðum og ekki gripið til
verkfalla, þegar svona stendur
á.
Viö verðum að koma flotanum
af stað.”
—HH
Vísir tók nokkra þingmenn
tali i gœr, þegar fundir
hófust eftir jólahlé
„BYRÐUM
SÉ RÉTT-
LÁTLEGA
SKIPT"
— sagði Magnús
r
Torfi Olafsson,
fyrrum róðherra
,,Ég hef lengi álitiö, aö
ástandiö væri iskyggilegt, og at-
vikin hafa þvi miöur sannaö þá
skoöun þvi áþreifaniegar, þvi
lengra sem hefur liöiö,” sagöi
Magnús Torfi ólafsson, þing-
maöur Samtakanna.
Hvað er til ráða?
„Til ráða er eins og endranær,
þegar i þrengingum lendir, að
stjórnvöld geri þær ráðstafanir,
sem sannfæra landsfólkið um,
að nauðsynlegum byrðum á
þrengingatimum sé réttlátlega
skipt. Hver verði þar aö láta af
mörkum eða afsala sér hlunn-
indum i samræmi við getu.”
—HH
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: HVERNIG ER HEILSAN?
„ER AÐ
LAGAST"
— segja þeir í Iðnó
„Nú er GIsli aö hressast”,
segir Jón Hjartarson, leikari og
blaöafulltrúi þeirra I Iönó. Iönó
hefur undanfariö oröiö aö hægja
talsvert á sér vegna veikinda
Gisla Halldórssonar, sem fékk
nýrnakast og þurfti aö koma viö
á sjúkrahúsi. En nú er heilsan
aö komast i bezta lag, og þá
veröur hægt aö sýna Dauöa-
dansinn og Flóna aö nýju.
Jón Hjartarson tjáði Visi að
Flóin yrði sýnd á föstudag og
Dauðadans Strindbergs á
sunnudag. Gestir hafa beðið
þolinmóðir eftir að fá að sjá
þessi verk, en uppselt var á báð-
ar þessar sýningar, þegar fresta
varð þeim.
Sem sé, allt við beztu heilsu
hjá Iðnó-leikurum, og liklega er
þetta svar við spurningu Þjóð-
leikhúsmanna: Hvernig er
heilsan? Það er nefnilega nafnið
á nýjasta leikritinu, sem á að
fara að frumsýna á fjölunum
þar.
—JBP—
Spila um
landsliðs-
möguleika
Tveir þriöju hlutar landsliös-
keppni Bridgesambands tslands
cru nú að baki, en þar er keppt
um, hvaöa átta pör af sextán, sem
mættu til leiks, skuli mynda
landsliöskjarna fyrir Noröur-
landamót og Evrópumót I bridge I
UNDIRSKRIFTASÖFNUN
VEGNA CHILEKVENNA
Samband Alþýöuflokkskvenna
hefur hafiö undirskriftasöfnun
vegna mörg hundruö kvenna,
sem sitja I fangelsum I Chile.
Heimsráð jafnaðarkvenna
gengst fyrir slikri undirskrifta-
söfnun um allan heim. I skýrslu
frá lýðræðishreyfingu Chile
(Chile Democratico) segir, að
konur þessar hafi verið þátttak-
endur i atvinnulifinu, húsfreyjur
og kvennaleiðtogar. Þær búi i
fangelsum herforingjastjórnar-
innar við hörmulegan aöbúnað,
án réttlátrar málsmeðferðar og
löglegra réttarhalda. Margar eigi
við slæma heilsu að búa, og ýms-
ar óttast allt að 20 ára fangelsis-
dóma.
I áskorunarskjölum, sem hafa
verið send kvenfélagasambönd-
um, kvenfélögum og fjölda
kvenna um land allt, er krafizt
stjórnmálalegs frelsis og félags-
legs réttlætis fyrir konur i Chile
og raunar hvarvetna i heiminum.
—HH
sumar.
Eins og stendur eru efstir i opna
flokknum: Hjalti og Asmúndur,
105 st., 2. Hallur og Þórir, 84 st„ 3.
Jakob og Jón, 76 st., 4. Hörður og
Þórarinn, 70 st. 5. Guðmundur og
Karl, 68 st., 6. Bragi og Rfkharð-
ur, 65 st„ 7. Arni og Sævar, 63 st„
8. Jakob og Páll, 56 st.
1 unglingaflokki eru efstir:
Guömundur og Þórir, 95 st„ 2.
Helgi og Logi, 90 st„ 3. Jón og
Valur, 84 st. 4. Skafti og Skúli, 74
st., 5. Helgi og Helgi, 72 st. 6.
Sigurðurog Guðjón, 70 st., 7. Guð-
mundur og Einar, 69 st„ 8. Eirik-
ur og Þórður, 68 st.
Keppninni veröur haldið áfram
um næstu helgi, en henni lýkur i
sömu viku.
GP.