Vísir - 28.01.1975, Síða 5
Vlsir. Þriðjudagur 28. janúar 1975.
5
REUTER
AP/NTB
MORGUN UJLÖND í MORGUN ÚTLÖND I MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
26 sterðust í
sprengingum
Tuttugu og sex
manns særðust I sex
sprengingum sem urðu
i Manchester og Lon-
don i gærkvöldi og ollu
miklu tjóni.
Lögreglan segir, að
sprengjur þessar hafi á
sér allt handbragð
hryðjuverkamanna
irska Iýðveldishersins.
Fjórar sprengingar urðu i
Londonderry á Norður-lrlandi i
gær, en þær gerðu litinn skaða.
Fyrsta sprengjan varð i verzl-
un einni i Manchester og olli hún
meiöslpm nitján manna.
Skömmu á eftir fylgdu fimm
sprengingar i London. Fyrst i
klæðskeraverzlun „Gieves’s”,
en þar særðist einn. Þvi næst
komu tvær sprengingar i En-
field, sem ollu litlum skaða. Sið-
ast urðu sprengingar i skart-
gripaverzlun i Kensington og i
verzlun einni nálægt Viktoriu-
stöðinni, en þar særðust sex.
Aður en þessi sprengjuhrina
gekk yfir, var hringt i lögregl-
una og henni gert viðvart. Tal-
aði viðkomandi með irskum
hreim.
Menn hafa nú gefið upp á bát-
inn vonir um, að IRA fáist til að
gera nýtt vopnahlé.
ij 1
t r '0 )Bt%A * |
k * j
Þannig var umhorfs i klæðskeraverzlun „Gievesc’s” í I.ondon i gærkvöldi eftir sprengju hrvðjuverka-
manna.
Tólfti dagurinn
úti í geimnum
Sovézku geimfararnir
Alexei Gubarev og
Georgij Greshko eru nú
búnir að vera tólf daga
upp i geimstöðinni
Saljut 4.
Daglega vinna þeir að
rannsóknum sinum á
jörðinni, likamsæfing-
um og athugunum á þvi,
hvernig þeir sjálfir
bregðast við þyngdar-
leysinu.
Geimfar þeirra, Sojus 17, biður
þeirra tengt við geimstööina, en
ekkert hefur verið sagt um,
hvenær það á að flytja þá félaga
aftur til jarðar. — Þvi var skotið
upp 11. janúar og eftir fjögurra
daga flug tengdu Gubarev og
Greshko geimfarið við Saljut 4.
Saljut 4 hefur verið á lofti siðan
26. desember.
Fyrsta geimstöð þeirra Rússa,
Saljut 1, var 23 daga I notkun.
Reynslan af henni og hálfsmán-
aðar geimflug Saljut 3, svo og
hinna löngu dvala bandarlskra
geimfara I Skylab-geimstöövun-
um, hefur sýnt geimvlsinda-
mönnum, að þyngdarleysiö hefur
slæm áhrif á geimfarana.
Af þeim sökum var Saljut 4 út-
búinn iþróttatækjum, sem þeir
Gubaraev og Greshko eru látnir
æfa sig á tvær og hálfa stund dag
hvern. Ella eiga þeir á hættu að
vöðvar þeirra rýrni og steinsölt I
beinvefum þverri. — I þyngdar-
leysinu eyðir maðurinn daglega
ekki nema 450 hitaeiningum á
móti 1200 á jörðu niðri. Getur það
reynzt honum hættulegt, þegar
hann kemur á jörðu niður aftur og
t.d. hjartað hefur tapað einhverju
af slagkrafti sinum.
Geimfararnir, Gubarev og Greshko, þegar þeir lögðu upp I geimferðina
með Sojus 17, sem flutti þá til Saljut 4, en þar hafa þeir dvaiið 12 daga.
Vilja senda
Kissinger á
hafréttarráð-
stefnuna
„Við teijum, að mögu-
leiki til þess að ná alþjóð-
legu samkomulagi t sam-
bandi við hafréttarmál sé
alveg að lokast," skrifuðu
22 öldungadeildarþing-
menn í bréfi til Fords
Bandaríkjaforseta í gær.
Þingmennirnir leggja mjög fast
að forsetanum að hann gefi fyrst
og fremst gaum hafréttarráð-
> stefnunni, sem á að hefjast aftur i
Genf I marzmánuði.
Stinga þeir upp á þvi, að Ford
setji Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra, til þess að stýra við-
ræðunefnd Bandaríkjamanna á
ráðstefnunni.
„Það er alger nauðsyn, að þess-
um viöræöum ljúki með sam-
komulagi á þessu ári. Teygist
ráðstefnan fram yfir þann tlma,
sem henni var áætlaður, minnka
mjög möguleikarnir á þvl, að
henni ljúki með árangri”, segja
þingmennirnir.
Hafréttarráðstefnan hófst I
Caracas i fyrra, eins og menn
muna. Eitt af helztu umræðuefn-
um hennar var um, hvort rlki
ættu almennt að taka upp 200
milna efnahagslögsögu, sem er
einmitt okkur Islendingum mikið
hagsmunamál vegna ætlana okk-
ar að færa fiskveiðilögsöguna út i
200 milur.
Þegar hafréttarráðstefnan stóö
yfir i Caracas, samþykkti öld-
ungadeild Bandarikjaþings að
færa fiskveiðilögsögu USA úr 12
milum út i 200 milur. En fulltrúa-
deildin afgreiddi aldrei frum-
varpið. — Sama frumvarp hefur
nú skotið upp kollinum á ný á
yfirstandandi þingi Bandarikj-
anna.
Tveir Italonna áminntir
fyrir að sparka
undir bridgeborðinu
Tveim itölskum bridgespiia-
mönnum á heimsmeistaramót-
inu á Bermudaeyjum var veitt
alvarleg áminning I gær, þar eð
þeir þóttu hafa óeölilega fótatil-
buröi undir spiiaborðinu.
Mönnunum varð svo um þessa
áminningu heimssamtaka
bridgemanna, að þeir treystu
sér ekki til að spila leiki Italiu
við Bandarikin, en honum hafði
verið frestað.
Forseti heimssambandsins,
JuliusRosenblum (USA),sagði,
að mönnunum hefði veriö veitt
alvarleg áminning. Fyrirliði
bandarlsku sveitarinnar, Alfred
Sheinwold, sem hafði fyrir
heimsmeistaramótið gefið i
skyn, að það kynni að vera
eitthvað óhreint við spila-
mennsku Itala, neitaöi þvi, aö
bandariska sveitin hefði verið
komin á fremsta hlunn með aö
hætta þátttöku og fara heim. —
En i yfirlýsingu sinni sagði
hann, að bandarisku sveitinni
þætti miður, að heimssamband-
ið hefði ekki sent itölsku spila-
mennina Ivo heim.
Fyrirliði itölsku sveitarinnar,
Sandro Salvetti, sagðist ekki
trúa þvi, að félagar hans hefðu
svindlað, ella hefði hann sent þá
beint heim.
Þetta er fyrsta heims-
meistaramótið, sem hinir
áminntu spilarar, Franco Facc-
hini og Sergio Zucchelli, taka
þátt I, en þeir hafa tvivegis
keppt með góðum árangri fyrir
hönd þjóðar sinnar á Evrópu-
mótum. — Það var einkanlega
Facchini, sem var áminntur um
að gæta að fótum sinum,en hann
þótti hreyfa þá óeðlilega og
snerta fætur félaga sins, meöan
ásögnum stóð og áður en félagi
hans spilaði út I fyrsta slag.
Fyrir mótið höfðu menn búizt
við þvi, að aðdróttanir Banda-
rikjamanna kynnu að koma
itölsku spilamönnunum úr jafn-
vægi — einkanlega i leik þeirra
innbyrðis. — Ýmsir eldri meist-
arar Italiu, sem að mestu
höfðu dregið sig i hlé, eins og
t.d. Pietro Forquet, bankastjóri,
vildu óðir og uppvægir fara og
keppa á heimsmeistaramótinu,
þegar þeir heyröu, hvernig and-
inn blés. En þá var búið að velja
liðið fyrir nokkru, og þvi var
ekki breytt.
En i leiknum i gær við banda-
risku sveitina sönnuðu Italirnir
enn einu sinni yfirburði sina og
sigruðu með 20 stigum gegn 0.
A öðru borðinu spiluðu Gar-
ozzo og Belladonna, sem enginn
var i vafa um, að hefur
verið bezta bridgepar heimsins
siðustu árin. En á hinu borðinu
voru nýliðarnir, Arturo Franco
og Vita Pittala. Spiluðu þeir
með ágætum og sýndi Franco,
að hann getur orðið verðugur
arftaki gömlu meistaranna.
Undanrásirnar eru nú hálfn-
aðar, en allir eiga að spila tvo
leiki við alla. Italia hefur
nú 83 stig, Frakkland 60 st„
Bandarikin 53 st., Brazilia 31 st.
og Indónesia 31 st.
Verður samþykkt vantraust á Hartling?
Minnihlutastjórn
Frjálslyndra i Dan-
mörku bjó sig undir að
mæta vantrauststillögu
stjórnarandstöðunnar,
sem líklegt þykir að lögð
verði fram i dag.
Þar eiga nú að fara fram um-
ræður um fjárlögin, en mikill á-
greiningur er um, hvaða leiðir
skuli fara til að leysa efnahags-
vanda Dana.
Frjálslyndir hafa aðeins 42
þingsæti I þjóðþinginu, þar sem
179 fulltrúar eiga sæti. Horfurnar
voru þvi allt annað en bjartar
fyrir Poul Hartling forsætisráð-
herra, þegar hann lagði fyrir
þingið, strax og það kom saman
eftir jólahlé á föstudaginn var,
tillögur sinar um efnahagsaö-
gerðir.
í flokki Frjálslyndra rlkir þó
bjartsýni um, að sósialdemókrat-
ar og Framfaraflokkurinn muni
ekki vilja fella stjórnina eins og
komið er.