Vísir - 22.02.1975, Page 3
Vísir. Laugardagur 22. febrúar 1975.
3
Rafmagnsveitan þarf 25,6-29,9% hœkkun — hitaveitan 30%
Ekki rafmagn í 600 nýjar
— fóist hœkkun ekki, segir borgarstjóri
Borgin getur ekki
lagt rafmagn i um 600
ibúðir, sem verður lok-
ið við að byggja i ár, ef
ekki fæst heimild til
verulegrar hækkunar á
rafmagnsverði, sagði
Birgir ísleifur Gunn-
arsson borgarstjóri i
viðtali við Visi.
Eftir gengisfellinguna er
hækkunarþörf Rafmagnsveitu
Reykjavikur 25,6-29,9%, eftir
þvi hve hækkun Landsvirkjunar
á heildsöluverði rafmagns verð-
ur mikil. Hitaveitan þarf að
minnsta kosti 30% hækkun til að
geta sinnt sinum framkvæmd-
um, sagði borgarstjóri.
Birgir sagði, að fyrir áramót,
er f járhagsáætlun var gerð fyrir
Rafmagnsveituna, hefði verið
beðið um 11,9% hækkun um-
fram þad 9,3%, sem rafmagn
hækkaði i heildsölu hjá Lands-
virkjun. Þetta mál hefði enn
ekki fengið afgreiðslu.i rikis-
stjórn, en við gengislækkunina
eykst halli Rafmagnsveitunnar
gifurlega. Hún er mjög háð er-
lendu efni og hefur neyðzt til að
taka mikið af erlendum lánum
að undanförnu. Þetta hækkar
við gengislækkunina. Orsök lán-
tökunnar hefði helzt verið, að
borgin hefði ekki fengið að
hækka rafmagnsverð eins og
þörf hefði verið siðustu ár.
„Við höfum gert rikisstjórn-
inni grein fyrir þessari þörf”,
sagði borgarstjóri. Afleiðing
þess ef verðið fengist ekki
hækkað um nálægt 25,6-29,9%,
yrði að.Rafmagnsveitan yrði að
segja upp allmörgum starfs-
mönnum og hætta við ívrir-
hugaðar framkvæmdir eins og
að framan greindi, taldi hann.
„Fólki finnst rafmagnsverð
nokkuð hátt”, sagði borgar-
stjóri, „en við getum ekki frem-
ur en aðrir eytt meiru en við öfl-
um. Þess ber einnig að gæta, að
i haust var lagður á Rafmagns-
veitu Rvfkur 13% skattur, það
er verðjöfnunargjald, til að
greiða halla á Rafmagnsveitum
rikisins. Með söluskatti eru
þessar álögur á rafmagnsveitu.
borgarinnar yfir 30%. Fjárþörf
rafmagnsveitunnar er 467,8
milljónir,” sagði borgarstjóri.
„Við mótmæltum verðjöfnunar-
gjaldinu, en það er lögbundið og
viö vitum, að það tekur tima að
vinda ofan af sJiku, en þörfin er
bryn”.
Ekki byrjað á hita-
veituframkvæmdum
siðan um miðjan des-
ember
Hitaveitan sótti um heimild til
9,4% hækkunar i desember,
miðað við að geta haldið áfram
framkvæmdum i nýjum hverf-
um og nágrannabyggðum. Ekk-
ert svar hefur komið frá rikis-
stjórn enn, sagði borgarstjóri.
Eftir gengislækkun óx vandi
Hitaveitunnar geysilega, svo að
nU þarf minnst 30% hækkun,
sagði Birgir. Hitaveitan hefur
mikið af erlendum lánum á
herðum sér. „Siðan um miðjan
desember hefur ekki verið byrj-
að á nýjum verkefnum, og all-
miklar tafir hafa þegar orðið á
íbúðir
framkvæmdum hitaveitu”,
sagöi Birgir.
„Reykjavikurborg hefur haft
forgöngu um orkuöflun fyrir
IbUa sina og reyndar höfuðborg-
arsvæðið. SU forganga hefur að
þvi er tekur til hitaveitu sparað
borgarbUum mikiö fé. Við
þyrftum 200 þUsund tonn af oliu
á ári til að hita upp borgina, ef
ekki nyti við hitaveitunnar. 1
rafmagnsmálum hefur verið
staöið þannig að verki, að raf-
magnstruflanir á svæðinu eru
fátlðar, og þær eiga eingöngu
rætur að rekja til tilviljana-
kenndra óhappa, þegar þær
verða. A sama tíma búa heilir
landshlutar við orkuskort og of
veik dreifikerfi. Það er einlægur
áhugi borgaryfirvalda að geta
áfram haldið uppi þessari þjón-
ustu með jafnmiklum sóma og
veriö hefur, en til þess að svo
megi verða er nauðsynlegt, að
greitt sé fyrir þessa þjónustu
það, sem hUn kostar i raun og
veru”, sagði borgarstjóri. —
—HH
Herranótt Menntaskólans:
Shannon Castle Singers syngja og dansa á Loftleiðum
— þykir mörgum fögur hljóð og sjón.
— Ljósm. BG.
Óttast íslendingar
sprengjuregnið?
— írar kynna hinn
vaxandi ferða-
mannaiðnað sinn
Sprengjufréttir og hryðjuverk á
Norður-írlandi virðast hræða
venjulegan Islenzkan ferðamann.
A.m.k. hefur straumur ferða-
manna héðan ekki beinzt i þeim
mæli til irlands sem e.t.v. væri
eðliiegt. „Ferðamenn verða
aldrei varir við ógnaröldina á ír-
landi, enda er hún viðsfjarri
ferðamannaslóðum”, sagði Pat-
rick J. Gleeson, sölustjóri frska
ferðamálaráðsins I gær, en þá var
verið að opna Irska viku á Hótel
Loftleiðum.
„Við aukum ferðamanna-
strauminn jafnt og þétt, i fyrra
jókst hann um 9%, sagði Gleeson.
Og lrar bjóða sem fyrr upp á
sitt sérstæða og skemmtilega
land. Þar er hægt að ferðast fyrir
sáralitið fé á okkar mælikvarða.
Hægt er að leigja hestvagna, sem
menn stýra sjálfir og leigja fyrir
litið, eða þá ef menn hafa meira i
pyngjunni að leigja sér lysti-
snekkju fyrir 200 pund vikuna,
en þá geta 6—8 manns verið sam-
an um leiguna. Enn aðrir leigja
herbergi á bændabýlum, — verðið
með irskum morgunveröi er
minna en tvöfaldur viskisjUss i
Reykjavik, sagði John Grenn,
fulltrUi hjá ferðamálaráðinu. Ir-
arnir sýndu i gærdag örlitið inn i
15. öldina og skemmtanir sinna
manna á þeim timum. Það var
söngflokkurinn Shannon Castle
Singers sem kom fram og gerir
það á sunnudagskvöldið á Loft-
leiðum.
Loftleiðir hafa á matseðlinum
irska fæðu, að sjálfsögðu. Emíl
Guðmundsson kvað þá ætla að
bjóða fólki upp á irskar brauð-
snittur, Limerick Ham, léttreykt
grisalæri, ástarbrunn (Topar An
Grádh) og að sjálfsögöu irskt
þokukaffi. —JBP—
Strókarnir fórnuðu hórinu
„Stúlkurnar saum-
uðu sina kjóla sjálfar,
en herrafötin fengum
við i einni tizkuverzlun-
inni, sem býður upp á
Gatsbytizkuna, ” sagði
Kjartan Ragnarsson i
viðtali við Visi, en
Kjartan leikstýrir
tveim stuttum leikrit-
um eftir Bertold
Brecht, sem flutt verða
á Herranótt Mennta-
skólans i Reykjavik i
ár.
Annað leikritanna heitir
„SmáborgarabrUðkaup” og er
gamanleikur, sem lýsir brUð-
kaupi i Þýzkalandi fyrir Hitlers-
timann.
Visismenn litu á menntskæl-
ingana, þar sem þeir voru að
æfa sig i dag niðri i Austurbæj-
arbiói, en frumsýning verksins
verður á mánudaginn.
Leikendurnir glitruðu i gerv-
um sinum með sleikt hárið,
kringlóttar gleraugnaglyrnur,
tannburstaskegg, langar perlu-
festar og höfuðband eins og ku
hafa tiðkazt áumræddum tima.
„Ja, þau hafa miklu fórnað.
Strákarnir hafa til dæmis allir
oröið að klippa sig og það er
sannarlega virðingarvert,”
sagöi Kjartan, og áður en Visis-
menn sneru á braut stilltu leik-
endur sér upp fyrir eina fjöl-
skyldumyndatöku.
—JB
Leikendurnir Magnús, Hilmar, Margrét, Birna, EUert eru i aft-
ari röð frá vinstri, en I fremri röðinni eru þau ólöf Einarsdóttir,
formaöur leiklistarfélagsins, Tryggvi, Herdis og Jón Viðar.
Ljósm. Bragi.
Folalda
skrokkar
Úrbeining,
pökkun og
merking.
kg.kr. 270
[MID{D©1T^[Ð)D[Ka
Laugalæk 2 Sími 35020