Vísir - 22.02.1975, Side 5
Vísir. Laugardagur 22. febrúar 1975.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
Gleraugun fœra
henni sjónina
Það er ekki að undra þótt þær séu ánægðar, mæðgurnar á myndinni.
Hin tiu ára gamla Paula Saraiva frá Sao Paulo i Braziliu sér móður
sina, Eldu, i fyrsta skipti á ævinni. Það var læknir I New York,
VVilliam Feinbloom, sem bjó til þessi gleraugu. Með þeim á henni að
vera unnt að lcsa og skrifa, þvi að hún hefur náð 80 af hundraði af
venjulegri sjón með þeim.
Met í pönnukökuáti
Maðurinn á myndinni, Mark Mishon, er að setja met. Metið, sem
hann setti, er i þvi að borða sem flestar pönnukökur á sem
skemmstum tima. Honum tókst að raða i sig 61 pönnuköku, 15 senti-
metra i þvermál, á sjö minútum, þar sem hann sat á Obelik pönnu-
kökuveitingahúsinu I London. Fyrra met átti Mike Veschio frá Los
Angeles, sem haföi látið i sig „aöeins” 31. Mark sagðist hafa notiö
þess aö borða fyrstu 25, en hinum hafi hann „troðið” niöur.
Jolene Renee Lange
heitir litli stranginn i
höndunum á hjúkr-
unarkonu hér til
vinstri, móðirin innan
við dyrnar. — Lesendur
geta betur virt Jolene
fyrir sér á myndunum
hér fyrir ofan t.h.
Það má segja um Jolene litlu,
aö hún hafi snemma fengið aö
læra, að þetta blessað jarðlif er
mesta basl. — Henni var naum-
ast hugað lif, og barðist hún við
að halda þvi i margar vikur. En
hamingjudagur var það hjá
mömmu hennar, þegar hun Ut-
skrifaðist af sjUkrahUsinu i San
Jose i Kaliforniu með Jolene
litlu.
LIST?
Þaö er ekki bara hér uppi á ts-
landi sem menn eru ekki sam-
mála um list og iistastefnur.
Nútlmalist er I augum ihalds-
samra listskoðenda illskiljan-
leg, en höfundar verkanna telja
þau „túlkandi”. A myndinni er
eitt verk, sem örugglega er I
þessum hópi listaverka. Verkið
er á sýningu i Berlin,
Charlottenburg kastalanum, og
heitir einfaldlega „Stórt höfuö
og hönd” og er eftir Rainer
lýriestler. Einhverjir kynnd aö
lita svo á aö listaverkiö „túlk-
aði” allt aðþvfeins vel skoðanir
niargra á þeim iistaverkum,
sem til sýnis eru á þessari sýn-
ingu, sem opnaði á miðvikudag-
inn var.
Dýr lax
Ted Moynihan, veitingahús-
cigandi I Limerick á Irlandi,
hampar hér laxi harla ánægb-
ur, enda má hann vera það,
þvi laxinn keypti hann á upp-
boöi fyrir 387 pund (138.500
Isl.). Var þetta fyrsti laxinn
sem á land var dreginn á
þessu veiöitimabili, sem hófst
1. janúar. Þess verður aö geta,
aö aö sjálfsögöu bar veitinga-
maðurinn laxinn á borö fyrir
fastagesti sina daginn eftir að
hann keypti þennan eftirsótta
fisk.
Jolene var sU eina af sexbur-
um, sem liföi. Móðir hennar
hafði eignazt f jórbura rUmu ári
áður, en enginn þeirra liföi.