Vísir


Vísir - 22.02.1975, Qupperneq 9

Vísir - 22.02.1975, Qupperneq 9
Vlsir. Laugardagur 22. febrúar 1975. 9 Þeir fóru í sjö - en trompásinn vantaði Eitt af þeim spilum, sem Italir græddu mest á í undankeppni heims- meistaramótsins, var á móti Bandaríkjamönn- um. ítalirnir notuðu eina af sínum sérstöku sagnaðferðum til þess að ná besta samningnum í fjórum sögnum, þegar Bandaríkjamennirnir notuðu helmingi fleiri til þess að komast í óvinn- andi samning. Staðan var n-s á hættu og norður gaf. AD-4 y A-4 A 10-2 4 A-K-D-9-7-6-5 4 A-9-6 VG-6 £ K-D-G-8-3 10-8-2 4 8-5-3 y 9-7-3-2 * 7-6-5-4 4-3 4 K-G-10-7-2 V K-D-10-8-5 ♦ A-9 4 G Sagnir i opna salnum voru þannig: Norður Austur Suður Vestur Bellad. Hamman GarozzoWolff 34 P 34 P 3 ^ P 6G P p P Opnunarsögn Belladonna þýddi nákvæmlega — þéttur sjölitur i laufi og ás til hliðar —. Þrir tiglar hjá Garozzo spurði i hvaða lit ásinn væri. Þegar Belladonna upplýsti að það væri hjartaásinn, þá þurfti Garozzo ekki meiri upplýsingar og fór rakleiðis i sex grönd. Wolff spilaði náttúrlega út tigulkóng og fékk þess vegna aldrei spaðaásinn — sagnhafi tók alla slagina, af þvi að hjartagosinn var annar. En nú skulum við athuga sagnirnar i hinum salnum: Norður Austur Suður Vestur Soloway Franco Swanson Pittala 14 P 14 24 if 44 4G P 54 P 5f P 54 p v4 D P P P Hvar mistókst Bandarikja- mönnunum? Fimmlaufasvarið við fjórum gröndum var lykil- spila-Blackwood. Soloway áleit, að lauf væri samþykktur tromplitur og þvi sagði hann frá laufakóngnum sem ás (fimm lauf þýða annaðhvort enginn eða þrir ásar). En Swanson áleit að spaði væri samþykktur tromplitur og þvi væru fimm lauf sama sem þrir ásar. Hann sagði þvi fimm tigla, sem er spurning um spaðadrottningu. Fimm spaðar þýddu? Ég á spaðadrottningu. Nú var einfalt að segja sjö og það gerði Swanson. Þegar doblið kom, þá vökn- uðu efasemdir, en allt var þá um seinan. Bridgefélag Oxfordháskóla heldur keppni á íslandi Fimmtudaginn 27. febrúar gengst Bridgesamband islands fyrir riðli (eða riðlum) i alþjóð- legri tvimenningskeppni ungs fólks, sem skipulögð er af bridgefélagi Oxfordháskóla. Sömu spil eru spiluð i keppninni alls staðar, þar sem hún er haldin. Þátttaka er heimil öllum háskólastúdentum og öðrum ungum bridgemönnum undir þritugu. Spilað verður i Félags- heimili stúdenta við Hringbraut og hefst keppni kl. 20 stundvis- lega. Þátttaka tilkynnist til Jakobs R. Möller, simi 19253 fyrir sunnudagskvöld 23. febrúar. HJALTI ER BUINN AÐ VINNA BR-MÓTIÐ Nú er aðeins ein umferð eftir i aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavikur og hefur sveit Hjalta Eliassonar þegar tryggt sér fyrsta sætið. Röð og stig efstu sveitanna eru nú þessi: 1. Sveit Hjalta Eliassonar 245. 2. Sveit Þóris Sigurðssonar 208. 3. Sveit Helga Sigurðssonar 203. 4. Sveit Þórarins Sigþórssonar 175. 5. Sveit Jóns Hjaltasonar 172. 6. Sveit Björns Eysteinssonar 158. 7. Sveit Gylfa Baldurssonar 154. 8. Sveit Hermanns Lárussonar 144. Siðasta umferðin verður spil- uð nk. miðvikudag kl. 20 i Domus Medica og spila þá sam- an m.a. sveitir Hjalta og Þórarins. Næsta keppni Bridgefélags Reykjavikur er tvimennings- keppni með Butlerfyrirkomu- lagi og er mönnum ráðlagt að tilkynna þátttöku sem fyrst til stjórnarinnar. BR-sveitir á toppnum í Reykjavíkurmóti Að tiu umferðum loknum I undankeppni islandsmótsins, sem jafnframt er Reykjavikur- meistaramót, er staða efstu sveitanna þessi: 1. Sveit Þórarins Sigþórssonar BR 159. 2. Sveit Helga Sigurðssonar BR 156. 3. Sveit Þóris Sigurðssonar BR 154. 4. Sveit Hjalta Eliassonar BR 152. 5. Sveit Jóns Hjaltasonar BR 122. 6. SveitJóns Stefánssonar BDR 98. 7. Sveit Ólafs Lárussonar BR 90. 8. Sveit Braga Jónssonar TBK 89. Næstu umferðir verða spilað- ar n.k. þriðjudag kl. 20 i Domus Medica. Kvenmannslausir kennarar Nú er búið, eins og alþjóð veit, að gera efnahagsráðstafanir. Þær voru fólgnar I þvi að fella gengið, enda komin mikil og góð reynsla á slikar aðgerðir. Hliðarráðstafanirnar voru svo að sjálf- sögðu þær að hækka verð á tóbaki og brennivini, bilum og utanlandsferðum. Ég er hlynntur þessum aðgerðum. Þær gætu nefnilega, auk þess að spara þjóðar- búinugjaldeyri,komið i veg fyrir að fjöldi manns deyi úr lungnakrabba, lifrarbólg- um, kransæðasjúkdómum og sólsting. Það má sem sagt með sanni segja að áðurnefndar aðgerðir séu mjög mannúð- legar. Ég er á þvi að islensk stjórnvöld ættu að fá einhver verðlaun fyrir þetta. Það er hvort sem er alltaf verið að veita verðlaun og stundum af miklu minna tilefni. Er pervisið gerist pyngjutetur, peningarnir farnir. Enginn þunnur orðið getur, utan ráðherrarnir. Þegar þetta er ritað stendur þing Norðurlandaráðs enn yfir. Eitthvert slangur af þingmönnunum okkar verður þvi að vera á stöðugum þeytingi á milli leikhúsa. Ekki eru þeir þó jafn margir og sagt er i næstu visu. Okkar góðu þingmenn, þeir I Þjóðleikhúsi vaða reyk. Þangað fóru tugir tveir að taka þátt i gestaieik. Það er stutt frá stjórnmálum yfir i list- ina. Ég ætla ekki að blanda mér i þær deilur sem nú standa yfir um Kjarvals- staði. En mér finnst listaverk eigi ætið að vera i sem eðlilegustu umhverfi. T.d. ætti að sýna arfasátur i hlöðu og brauð bakarii svo eitthvað sé nefnt. 1 borgarráði er stöðugt strit við stjórn á andans vistum. Ætli þeir hafi eitthvert vit á öðru en framboðsiistum. Fyrir um það bil tuttugu árum kváðust á i útvarpssal nemendur úr Kennaraskóla íslands og Menntaskólanum i Reykjavik. Hér eru nokkur sýnishorn af þessum kveðskap. 1 fyrstu visunni byrjar K.l. en Mennta- skólinn botnar. Draugagangur mikill mun á Menntaskólans lofti. Hjá oss það vekur illan grun þú örgum beitir hvofti. 1 næstu visu er það Menntaskólinn sem byrjar. Krit upp reiða kennarar klókir breiða út viilurnar. Okkur leiðist ekki par út þó freyði skammirnar. Svo virðist á næstu visu, að i liði Menntaskólans hafi verið kvenmaður, þvi að K.l. byrjar hana þannig. Ljóshærða stúlku leit ég þar úr liði Menntaskólans var. Liðsmenn Menntaskólans botna skemmtilega. Kvenmannslausir kennarar kúra fullir öfundar. Næst er hér hringhenda, sem Mennta- skólinn á upphafið að. Suma eltir ólánið, öðrum veltir heimska. Oss fær hrellt um sónar svið sálarhelti og gleymska. Þegar hér er komið sögu virðast menn hafa verið búnir að hita sig vel upp og ber næsta visa þvi vitni. Menntaskólinn byrj- ar. Upp með klakkinn, bikkjan brokkar, blakkan makkann vindur skekur, alltaf frakkur áfram skokkar óðar Blakkur nokkuð frekur. Liðin enduðu svo kveðskapinn á þessum visum. Sú fyrri er eftir lið K.í. List og skemmtun óðsmið er andann löngum skerpir. Visdómsugian ekki hér eggjum fleiri verpir. Visa liðs Menntaskólans er þannig Ekkert fleira yrkja þeir óður deyr úr minni. Valla meir úr ljótum leir láta heyra að sinni. 1 siðasta þætti birti ég visu, sem hring- henduvinur hafði endurbætt. Hér kemur Yfir þveran eyðisand einn ég fer að sveima. Nú er farið Norðurland, nú á ég hvergi heima. Næsta visa, sem jafnframt er siðasta visan i þættinum i dag er eftir Sigurð Ö. Pálsson. Nætur vorsins ástareld undra heitan kveikja. Dætur Evu kannske I kveld kalla þig til leikja. Ég vil svo geta þess, að ég hef sennilega komist að alrangri niðurstöðu i rannsókn minni i siðasta þætti. Að minnsta kosti barst þættinum engin einasta visa að þessu sinni. Svo bregðast krosstré sem önnur. Fyrripartur þessa þáttar hljóðar þann- >g- Nú hækkar verð á vörum ótt, vist það dæmin sanna. Ben. Ax.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.