Vísir


Vísir - 28.02.1975, Qupperneq 4

Vísir - 28.02.1975, Qupperneq 4
4 Vlsir. Föstudagur 28. febrúar 1975 reuter ÚTLÖNDÍ morgun útlönd í morgun utlöndí morgun útlönd í morgun i ap^ntb SLUPPU EFTIR ÆÐISGENGINN ELTINGALEIK Franska' lögreglan leitar nú tveggja banka- ræningja, sem komust undan, eftir að hafa sleppt fimm gislum, sem þeir tóku i banka- ráninu. Þessi slmamynd var tekin i biti I morgun i Parls, þegar ræningjarn- ir voguöu sér út úr bankanum. Sést, hvar einn þeirra meö hött yfir höf- uðið heldur byssu við gagnauga eins gislanna. ► OUVfltT! m lumoi m nmmo * r a mo tf «c t5* 50 á 90 1 biti i morgun fóru ræningjarn- ir úr bankanum, þar sem þeir höfðu búið um sig i gær, þegar ránið fór út um þúfur og lögreglan umkringdi bygginguna. Þriðji ræninginn var skotinn til bana, þegar hann reyndi að flýja. Ræningjarnir höfðu skotið einn bankastarfsmanninn til bana, þegar hann hringdi neyðarbjöllu. Til að gislunum yrði hlift, neyddist lögreglan til að láta ræningjana hafa bifreið til undan- komu. Óku þeir burt i henni, en höfðu mér sér tvær milljónir franka (70 milljónir isl. kr.) og þrjár bankameyjar, sem þeir héldu áfram i gislingu. Æðisgenginn eltingaleikur hófst um götur Parisar. Skiptu ræningjarnir um bifreið á flóttan- um og slepptu stúlkunum. Höfðu þeir að lokum af að hrista eftir- reiðarmennina af sér. 1 ljós kom, að hinn látni félagi þeirra var þekktur bófi frá Tou- louse. Þvargað um Kýpurmálið í öryggisráðinu í gœr öryggisráö Sameinuðu þjóöanna varö að gera hlé á umræöunum í gærkvöldi um Kýpurmálið, vegna þess hve áliðið var orðið. Ekki var tiltekið, hvenær þeim skyldi fram haldið. Þvi fór fjarri, að bólaði nok'kuð á samkomulagi milli deiluaðilanna á Kýpur, eða að fulltrúarnir eygðu samstöðu um ályktun, sem báðir aðilar gætu sætt sig við. Það var ekki einu sinni unnt að ná samkomulagi um, á hvaða tungumáli ályktun örygg- isráðsins yrði höfð. Allar ályktunartillögur höfðu strandað á þvi, að þær voru á tungu, sem annar aðilinn eða báðir gátu ekki unað. — Siðast var þrefað um tillögu, sem Guyana og Irak höfðu soöið saman á ensku, frönsku og itölsku. Fulltrúar V-Evrópu höfðu lagt til, að ráðið ályktaði, að harma bæri einhliða yfirlýsingu Kýpur- Tyrkja um sjálfstæði norðurhluta Kýpur. En eðlilega voru stuðningsmenn Tyrkja litt hrifnir af þeirri hugmynd. hann Sovétmönnum og Banda- rikjunum, hvernig komið væri Kýpurmálinu. Sakaði hann Rússa um að hafa reynt að spilla viðræðum aðilanna, og fór hann háðulegum orðum um tillögur Rússa til lausnar málinu. Jakob Malik, fastafulltrúi Sovét, sat ekki undir ádrepunni án þess að bera hönd fyrir höfuð stjórn sinni. Sakaði hann Kina um,,rógburð” og ,,fjandskap” við Sovétrikin. Drjúgur hluti umræðnanna i gær fór i orðahnippingar milli fulltrúa Kina og Sovétrikjanna. Huang Hua, fastafulltrúi Kina, kastaöi fyrsta steininum. Kenndi Stóð i þessu stappi drjúga stund, og þegar þvargið sýndist greinilega ekki ætla að leiða til neinnar niðurstöðu, var fundinum frestað. Listaverkin fundin Berlinarlögreglan hefur haft aftur upp á flestum málverkanna og teikninganna, sem stolið var úr safni i Hannover I siðustu viku. Voru tveir menn handteknir við- riðnir þjófnaðinn. Þýfið var metið á 64 milljónir '-;r. Komin eru i leitirnar tiu þeirra nitján málverka eftir Wilhelm Busch, sem stolið var, og allar 25 teikningarnar eftir Heinrich Zille. Voru þær i ibúð, þar sem lögregl- an kom að mönnunum tveim. Ekkert hefur hins vegar spurzt til niu málverka Busch. UTSALA UTSALA ^ Tökum fram í dag og ó morgun mikið úrval af ☆ FLAUELSBUXUM ☆ GALLABUXUM ☆ VINNUSKYRTUM ☆ FLAUELSSKYRTUM ☆ ULPUM ☆ NYLONBLUSSUM ☆ FLAUELSJÖKKUM ☆ BARNAULPUM ☆ DENIMBUXUM ☆ OG MARGT FLEIRA ☆ MIKIL VERÐLÆKKUN Hr Opið til kl. 12. ó laugardögum VINNUFATABUÐIN LAUGAVEGI 76 - HVERFISGOTU 26

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.