Vísir - 28.02.1975, Side 7

Vísir - 28.02.1975, Side 7
Vlsir. Föstudagur 28. febrúar 1975 7 „Einungis ógiftor konra til greina" - flett í gegnum gömul blöð „Karlmenn eru að verða jafn-tildurslegir og kvenfólk.” — „Leyndardómurinn við að ganga dömulega út er sá...” — „Eiginmaðurinn var skikkaður til eldhússtarfa” — „Eftirlætiskonan i dag”. Þannig setningar sáum við meðal annars þegar við tókum okkur til og flettum i gegnum rúmlega 10 ára og eldri Visisblöð. Meiningin var að for- vitnast svolitið um skrif sem sérstaklega voru þá ætluð kvenfólkinu. Á kvennasíðum, i auglýsingum og i fréttum komum við auga á ýmislegt sem við getum ekki stillt okkur um að leyfa lesendum i dag að sjá. Við birtum hér klausur úr greinum og einnig auglýsingu sem við sjáum sem betur fer ekki i dag- —EA „Skikkaður" til eldhússtarfa Góður eiginmaður kom að máli við Kvennasíðuna fyrir skömmu og sagði henni frá upp- götvun, sem hann hefði gert, er hann eitt sinn sem oftar var skikkaður til eldhússtarfa. Bað hann Kvennasíðuna að koma uppgötvuninni áleiðis til starfs- bræðra sinna. Eiginmanninum góða var feng inn fullur pottur af heitum kar- töflum, honum sagt að afhýða þær og pressa þær síðan í kar- töflupressu. Er hann hafði af- hýtt eina, sá hann að svona gæti það ekki gengið — datt honum því í hug að reyna að nota hið alkunna hyggjuvit, sem karlbjóðinni er gefið og fór því að hugsa. Lítið um öxl með //kveðju,/-brosi AÐ KOiMA INN: Smeygið þér yður inn úr gættinni með augun á hurðinni eða handfanginu og því næst á góifinu eða ioftinu? Eða komið þér ef til vill æðandi inn með fyrirgangi og látið hurðina sveiflast stjórn- lausa? Eða ef til vill byrjið þér að tala eins og hundrað manns án þess að taka tillit til þess hvort sá, sem þér talið til er: (a) að tala við einhvern annan, (þ) að tala í símann eða (c) önnum kafinn við að leggja saman töl- ur á blaði? Leyndardómurinn við fágaða inngöngu er f þvf fólginn að koma hávaðalaust inn og loka dyrunum með báðum höndum að baki yður, þannig að þér horfið inn í herbergið. Myndin er jafnvel ennþá skemmtilegri ef þér færið yður í miðjar dyrnar, sem þá „innramma" yður. Lítið á þann, eða þá, sem inni eru með bros á vör og bjóðið góð- an daginn o.s.frv. ef tiiefni er til. AÐ GANGA ÚT: Læðizt þér að dyrunum og laumizt út um gættina eins og feimið.-barn?. Eða sveiflið þér ef til vill hurðinni frekjulega og kærið yður kollótta þótt hún skelli harkalega að stöfum? Þegar þér réttið út höndina til að taka um handfangið skjótið þér yður þá í keng og rekið sitjandann aftur? Leyndardómurinn við að ganga dömulega út er sá, að ganga rólega til dyranna, standa bein og rétt um leið og þér opn- ið. Og um leið og .þér gangið út lítið þér um öxl með „kveðju“-brosi eða jafnvel snúið höfðinu aðeins til hliðar. Þér megið ekki ofleika þetta. Lokið dyrunum án hiks og umfram allt hljóðlega. Frúrnar — 110 þúsund Eiglnmennirmr — 8 þúsund Meðan frúrnar velta þvi fyrir sér hvort þær eigi að fá sér kjól fyrir 10.000, eða pels fyrir 110.000, skima eiginmennirnir varlega 1 kringum sig eftir ódýr- um fötum eða frakka, sem í hæsta lagi gætu kostað 8000 kr. saman, og teldist þá jafnvel ekki ódýrt lengur. Tízkan hefur haldið innreið sfna I hinn áður svo þægilega klæðaskáp karl- mannsins, og þess gætir ekki slzt 1 verðinu. Ekki siður „tildurslegir" en kvenfólk Það er nokkuð almennt sagt nú orðið, að karlmenn séu að verða ekki síður tildurslegir en kvenfólk. Sannleikurinn er hins vegar sá, að fatasmekkur karí- manna hefur batnað stórkost- lega mikið á siðustu árum, þó að hann, eins og svo margt ann- að, hafi farið út í nokkrar öfg- ar hjá ýmsum. Þœr sjú fyrir sér hina sólbrúnu kvikmyndastjörnu Cpurningin er þá einfaldlega þessi: — Eru yfir höfuð enn- þá til karlmannlegir karlmenn? Kannski eru konumar ósanngjarn ar þegar þær eru að leita að þeim og þykjast hvergi finna þá. Þær virðast þá hafa einhverja frumstæða og barnalega Imyndun um það, hvernig karlmenn eigi að vera, ímynd sem þær hafa skapað sér eftir auglýsingum og kvikmyndum. Þær sjá fyrir sér hina sólbrúnu kvikmyndastjörnu, íþróttamannlegan vöxt, glæsileika £ framgöngu, pípu f munnvikinu, sterklegar hendur á stýri lúxus- bíla. 1 ímynd lronunnar verður hinn karlmanniegi maóur að hafa til að bera fyrst og fremst mikla samkvæmishæfileika, hann þarf að vera stór, sver og kraftalegur, baráttudjarfur og hetjulegur eins og Gunnar á Hlíðarenda, sem barðist einn gegn þrjátíu. En slík- ar hetjur eru auðvitað ekki til nú á dögum. I ll\ll\l 1 = síqan m Umsjón: Edda Andrésdóttir Einungis ógiftar koma til greina Flugfreyjur Ver oskum at5 ráða íslenzkar stulkur, sem flugfreyjur til starfa á flugleiCum utan U.S.A. Fyrstu 6 mánuöina eru launin kr,-13. 00Q. 00 á mánuCi, sxðar geta þau orðiC kr. 26. 000. 00. Einungis ogiftar stulkur koma til greina c>£ verða þær. að uppfylla eftirfarándi lagmarksskilyrCi: Aldur ^ 21-27 ára. Haéð : 158-173 cm Þyngd : 50-63 kg. Menntun : Gagpfræða þ.róf eða önnur hliCstæð' ménntun. GÓC kunnáttk í ensku ásamt einuöCru erlendu tungumáli ér nauCsynleg. Þær stulkur, sem til j;reina koma,verCa aC sækjá 5. vikna namskeiC, sér aC kostnaCarlausu, x aCalstöCvum félagsins í New York, áCur en endanleg ráCning á sér staC. Skriflegar umsóknir berist skrifstofu Pan American, Hafnarstr. 19 Reykjavík fyrir 8. apríl 1964, Umsækjendur komi til viCtals í Hotel Sögu, fimmtudaginn 9. apríl kl. 10. 00 - 17. 00. PA.IV AtVIERtCAIV íslenzkar konur kunna ekki aðganga Það hefur þótt við brenna, að íslenzkar konur kynnu ekki að ganga — þær hreyfðu sig of luralega og þyngslalega (eig- inlega grófar í hreyfingum) eða frekjulega eins og valkyrjur. — eiga konur að koma fyrst niður með hælana, þegar þær ganga?" „Alls ekki — þær eiga að stíga fyrst f tærnar". „Eiga þær að vera innskeif- ar?" „Fremur útskeifar en inn- skeifar". „Eiga þær að þenja út brjóst- kassann?" „Það er ókvenlegt að þenja út þrjóstkassann, eins og kon- an hafi gieypt hrffuskaft". „Er það satt, að konur séu nú látnar ganga með sandpoka á höfðinu í staðinn fyrir bækur, svo að þær beri sig vel?“ „Það hef ég ekki heyrt — nú er hætt að nota bækur til að kenna göngulag. Það skiptir máli, að konan gangi þannig, að hvorki axlirnar né rassinn hristist eins og f rúmsjó ...“. Gód ar ^arrialt Bókamarkaóurinn I HUSI IÐNAÐARINS VIÐ INGÓLFSSTRÆTI argus

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.