Tíminn - 05.07.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.07.1966, Blaðsíða 3
BUNBURY VERÐUR FYRST SÍNT Á HELLISSANDI Fram í dal, rétt framan við Bíldudal, ók í eftirmiðdag á fimmtudag stór, ný Mercedes Benz vöruflutninga'bifreið út af veginum, með þeim afleið- ingum, að bíllinn er stór- skemmdur og mikil mildi að akki skildi verða stórslys á mönnum. Bifreiðin B-16 er eign Guð- bjartar Þórðarsonar frá Pat- reiksfirði og ók hann bílnum sn með honum voru bróðir hans Einar og Vilberg Jóns- son. Hlutu þeir skrámur og högg en éi.kert alvarlegt 'meiðsli, að því er virtist. Bíllinn var kominn niður af Hálfdáni á nokkum veginn sléttan veginn, þegar hveil- sprakk á vinstra framhjóli. Rann bíilinn lengi vel í veg- kantinum á meðan Guðbjartur barðist við að halda stjórn á honum, unz hann lenti á mjög stórum steini, sem braut allt undan honum að framan og stakkst hann á endann fram af vegbrúninni nærri því þvert á veginum. Tilraun var gerð til að ná bílnum upp í kvöld en það tókst ekki og verður það reynt aftur á morgun með ýtum. Guðbjartur hefur verið í flutningum fyrir Matvælaiðj- una h.f. hér á Bíldudal og hef- ur ekið þessum nýja bíl aðeins 7500 kílómetra. Er hér um mjög tilfinnanlegt tjón fyrir hann að ræða. Norrænt ungtemplaramót í tilefni fímmtíu ára afmælis HZ-Reykjavík, mánudag. Norræna ungtemplaramótið, sem haldið er í Reykjavík, verður sett á morgun í Dómkirkjunni af for- manni undirbúningsnefndar, Áre- líusi Níelssyni, sem jafnframt er formaður íslenzkra ungtemplara. Þetta mót, sem haldið er í fyrsta skipti á íslandi, er haldið í tii- efni 50 ára afmælis Norræna ung- templarasambandsins, en aðilar að því eru öil Iandssambönd ungtempl ara á Norðurlöndum. Dagskrá mótsins, sem standa mun í viku, er fjölbreytt og fróð- leg. Á miðvikudaginn verður full- trúaráðsstefnan sett, en fulltrúarn- ir eru um 40 talsins. Alls munu um 400 ungtemplarar sækja þetta mót, þar af 195 er- lendir ungtemplarar og nokkrir gestir, m.a. fyrsti formaður Nor- rænna ungtemplara, Óskar Fran- zén, japönsk hjón og Tyrki. Auk ráðstefnufundanna verður farið í nokkur ferðalög, ekið verður i hringferð um Reykjavík, farið í siglingu um Sundin, Jaðar heim- sóttur, og á fimmtudaginn verður farið til Þingvalla, Laugarvatns, Skálholts, Gul'lfoss og Geysis og mun sú ferð verða allan daginn. Haidin verða böll og skemmtikvöld þar sem íslenzkir skemmtikrafatar og hljómsveitir skemmta. Á sunnudaginn munu ungtempl ararnir ganga fylktu liði um borg- ina og staðnæmast á Austurvelli, þar sem lúðrasveitin Svanur leik- ur nokkur lög og haldnar verða ræður. Um kvöldíð verður mótinu slitið að Hótel Sögu. Miðstöð mótsins er í hinu nýja húsnæði IOGT að Eiríksgötu en ráðstefnufundirnir verða haldnir í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. SÝNING Á RÚSS- NESKUM BÍLUM KJ-Reykjavík, mánudiag. Bifreiðar og landbúnaðarvélar h.f. Suðurlandsbraut 14 efna til sýningar á rússneskum bílum í húsakynnum sínum, frá og með föstudeginum 8. júlí til sunnudags- ins 10. júlí n.k. og síðan verður sýningin á Akureyri 12. og 13. júlí Fyrirtaakið efnir til þessarar bif- reiðasýningar vegna komu VM.. Petrov aðalforstjóra Avtoexport hingað til lands, en það fyrirtæki sér um allan útflutning á bifreið- um frá Sovétríkjunum. Sýndir yerða 7—8 bílar og þar á meðal Moskovitch, Volga station sem verður kynntur hér á landi í fyrsta sinn, lítill áætlunarbíil og dieselvörubíll sömuleiðis nýir hér á landi og lítili vörubíll með drifi á öllum hjólum. Lektor / Gautaborg Njörður P. Niarðvík Njörður P .Njarðvík, cand. mag., hefur verið ráðinn lektor í íslenzku við háskólann í Gautaborg, með kennsluskyldu við háskólann í Lundi frá og með 1. júlí s.l. Njörð- ur mun fara utan um næstu mán- aðamót til að taka við þessu starfi og verður hann væntanlega ytra i þrjú ár. Njörður hefur undanfar- ið verið kennari við Menntaskól- ann í Reykjavík, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Skálholts og for- maður landsprófsnefndar. Njörður tekur við lektorsembætti af Ei- riki Hreini Finnbogasyni, sem ný- lega hefur verið skipaður forstöðu- maður Borgarbókasafnsins. 1 HZ-Reykjavík, mánudag. Gestaleikhúsið, sem er nýstofn- aður leikflokkur leikenda úr báð- um leikhúsum Reykjavíkur fer út á land í sumar til þess að sýna Ieikritið „Bunbury“ eftir Oscar VViIde, sem er bráðfjörugt leikrit byggt á orðaleik. Menntaskólinn í Rvík sýndi þetta leikrit i vetur við mjög góðar undirtektir. Leikararnir eru: Helga Valtýs- dóttir, Kristín Anna Þórarinsdótt- ir, Bríet Héðinsdóttir, Sigríður Þor valdsdóttir, Bjarni Steingrímsson, Karl Guðmundsson og Arnar Jóns- son. Leikstjóri hefur verið Kevin Palmer og Una Collins hefur veitt margvíslega aðstoð við undirbún- inginn að landsförinni. Leikflokkurinn sýnir leikritið fyrst á Hellissandi hinn 8. þessa mánaðar og heldur síðan sem leið liggur vestur á firði, um Norður- landið og síðast á Aústurland. Leik ritið verður sýnt á hverju kvöldi Drengur fyrir bíl á Akureyri HZ-Reykjavík, mánudag. Á laugardagskvöldið varð um- ferðarslys á Akureyri um sjöleyt- ið. Lítill drengur, Óskar Vignir Ingimarsson, 10 ára gamall ók á reiðhjóli sínu á fólksbifreið, þeg- ar hann sveigði út af Þingvalla- stræti. Kastaðist Óskar út af göt- unni og hlaut við það mikið höf- uðhögg. Hann var fluttur á sjúkra- húsið, en síðar um kvöldið var hann fluttur flugleiðis til Reykja- vfkur á Landakotsspítala, þar sem hann liggur meðvitundarlaus enn- þá. og hyggst Gestaleikhúsið Ijúka för sinni í ágústmánuði og sýna þá leikritið um hríð í Reykjavík. Hver leiksýning mun taka um tvo klukkutíma og hefjast sýningár kl. 9 flest kvöldin. COUSIN Framhald af bls. 1. t.ilkynnast ríkisstjórninni, og fær hún 30 daga til þess að fialla um málið. Er verkalýðsfélögum bann að að fara í verkfall, eða reyna að hafa áhrif á kröfur sínar á ann an hátt, þennan tíma. Ríkisstjórn in getur síðan visað málinu til nefndar þeirrar, sem fjallar um verðlags- og kaupgialdsmál, og fær nefnd þessi þrjá mánuði til þess að athuga hvert mál. Geta þannig liðið fjórir mánuðir frá því krafa um kauphækkun er lögð fram. og þangað til stjórn völdin hafa afgreitt hana. Brezka útvarpið skýrð frá því í dag, að sú ákvörðun Cousins að' segja af sér vegna þessa frum- varps, hafi verið aðalfrétt allra brezkra dagblaða í morgun. Væri það álit manna, að þeim vinstri- sinnuðu þingmönnum, og verka lýðsfélögum, sem andstæð eru frumvarpinu. hafi þar hlotnazt voldugur leiðtogi. sem gæti orð ið stjórninni erfiður, og að þessi ákvörðun Cousins væri mikill stuðningur við andstæðinga frum- varpsins. Tilgangur frumvarpsins er fyrst og fremst að draga úr hækkun rekstrarkostnaðar og gera brezkan iðnað þannig sam- keppnishæfari við iðnað annarra landa. Yfirlýsing Vegna ummæla, sem höfð eru eftir Jóni Magnússyni, hæstaréttar- lögmanni, framkvæmdastjóra Sam bands veitinga- og gistihúsaeigenda í Morgunblaðinu f dag, vill stjórn Félags framreiðslumanna taka eft- irfarandi fram: 1. Framkvæmdastjórinn telur þá kröfu óaðgengilega, að látið sé haldast það fyrirkomuiag, sem lengi hefur tíðkazt á vínveitinga- húsum hér í borg, og tíðkast enn a.m.k. á Hótel Borg og Lídó, að framreiðslumenn í bar fái varn- ing þann er þeir selja afgreiddan samkvæmt pöntunarseðlum og síð- an sé gert upp við veitingahúsið samkvæmt þeim seðlum, Nokkrir veitingamenn hafa nú upp á síð kastið tekið upp það fyrirkomulag að láta slá hverja einstaka af- greiðslu inn á peningakassa, en af þessu er veruleg tímatöf fyrir framreiðslumanninn, sem aftur veidur því að afgreiðsla gesta gengur seinna fyrir sig en ella. Framreiðslumenn hafa því lagzt gegn þessari nýbreytni, enda verð- ur ekki séð að hún hafi neins konar hagræði í för með sér. 2. í öðru lagi telur fram- kvæmdastjórinn það óaðgengilégt, að veitingamönnum sé óheimilt að breyta vinnutilhögun frá því sem nú er. Samkvæmt tillögum vorum er það áskilið að samkomulag ná- ist um slíkar breytingar við félag vort. Þetta teljum vér nauðsyn- legt til að stemma stigu við van- hugsuðum og óhagkvæmum breyt ingilm á vinnutilhögun framreiðslu manna. 3. í þriðja lagi kveður fram- .kvæmdastjórinn óaðgengilegt að lfjölgun framreiðslumanna í veit- ingahúsum frá því sem var 1. júní 1966, verði háð samþykki Félags framreiðslumanna. f tillögum vor- um er gert ráð fyrir, að reynt verði að ná samkomulagi milli félags vors og S.VG.. um reglur varðandi hámarksfjölda fram- reiðslumanna á hverjum vinnu- stað, en á meðan slíkar reglur hafa ekki verið samþykktar telj- um vér nauðsynlegt', að félagið eigi þess kost að hafa áhrif í þessu efni. 4. Enn telur framkvæmdastjór- ^ inn óaðgengilegt, að ákvörðun á ifjölda aðstoðarfólks framreiðslu- I manna sé í höndum félags þeirra log veitingamönnum óheimil af- | skipti af fjölda þess. Hér er um ! að ræða fólk, sem framreiðslu- jmenn launa sjálfir og hafa allan veg og vanda af og er vandséð hverra hagsmuna veitingamenn eiga að gæta í sambandi við fjölda þess. 5. Um fjölgun daga þeirra, sem hækkað þjónustugjald er krafið er það að segja, að þjónustugjaldið greiða gestir húsanna en ekki veit- ingamenn. Hér er því um að ræða atriði, sem ekki snertir veltinga- menn fjárhagslega. Gestir húsanna hafa mætt með skilningi því sjón- armiði, að framreiðslumenn ættu að fá hærri þóknun fyrir vinnu á hátíðisdögum en aðra daga og ef- umst vér ekki um að svo muni enn verða. Hafi framkvæmdastjórinn löng- un til að ræða þessi mál frekar á opinberum vettvangi mun félag vort ekki skorast undan því. F.h. félags framreiðslumanna Jón Maríasson. form. i Í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.