Tíminn - 05.07.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.07.1966, Blaðsíða 12
ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR 12 TÍMINN England vann Danmörk 2:0 Enska landsliðið í knattspyrnu lék sáðasta upphitunarleik sinn í Norðurlandsförinni á sunnudag og mætti þá danska landsliðinu á Idrætsparken í Kaupmannahöfn. England sigraði með 2:0 og skor- uðu þeir Jack Charlton og East- ham mörkin. Alf Rarnsey landsliðsþjálfarinn enski var ekki eins ánægður nieð þennan leik og leik enska liðsins gegn Norðmönniun í Osló s.l. mið vikudag. Keppni í 3. deild hafin Alf-Reykjavík, mánudag. Um helgina fóru fram tveir merkilegir knattspyrnuleikir, ann- ar á Selfossi en hinn á Sauðár- króki, fyrstu leikirnir, sem leiknir eru í 3. deild. Á Selfossi léku heimamenn gegn Borgnesingum og unnu 3:2, en á Sauðárkróki léku heimamenn gegn Ölfusingum — og unnu hinir síðarnefndu með 1:0. Víkingur og Haukar í kvöld Víkingur og Haukar leika í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fer fram á Melavellinum og hefst kl. 20.20. Dómari verður Eysteinn Guð- mundsson. Dregið 15. júlí Drætti í Happdrætti Fram hef- ur verið fresttað uim 10 daga, eða til 15. júlí, þar sem full skil hafa ekki enn borizt. Vinningsnúmer in munu birtast í dagblöðunum þann 16. júlí. (Fram) Eins og sagt var frá f blaSinu á laugardag, lék landslið Brazilíu upphitunar leik gegn sænska landsliðinu og fór leikurinn fram í Gautaborg. Brazilíu- menn unnu 3:2. Myndin að ofan er frá leiknum og sést Brazilíu-maðurinn Fidelius í sókn. ÞRIÐJUDAGUH 5. júlí 1966 Fjónskt úr- valsliö kom- ið til Rvíkur Leikur fyrsta leikinn annað kvöld i f nótt var væntanlegt til Reykja víkur úrvalslið knattspymufélag- anna á Fjóni, Fyns Boldspil Union. Liðið kemur hingað á vegum K.R. R. og leikur 3 lelki í Reykjavík. Fyrsti leikurinn verður á mið- vi'kudagskvöld á Laugardalsvelli gegn Reykjavíkurúrvalsliði. Hefst leikurinn kl. 20.30. Forsala að- göngumiða er í dag og á morgun við Útvegsbankann. Annar leikurinn verður á föstu- dagskvöld kl. 20.30 og mæta Dan imir þá íslandsmeistutum K.R. Þann leik dæmir danski milliríkja- dómarinn Frede Hansen, sem er í stjóm F.B.U. og fararstjóri liðs ins. Síðasti leikurinn verður við úr- valslið af Suðvesturlandi og velur landsliðsnefnd það lið. Sá leikur fer fram á mánudagskvöild á Laug- ardalsvelli og hefst kl. 20.30. í danska liðinu eru 23 menn, 18 leikmenn og 5 manna fararstjórn. Aðalfararstjóri er varaformaður F.B.U., Hartvig Johansen, en með honum stjórnarmennimir Frede Hansen og Svend Áge Petersen. Stjórnandi liðsins er Jörgen Les chly Sörensen, sem frægur var fyr ir nokikrum árum' sem atvinnumað- ur á Ítalíu og lék tvívegis með úrvalsliði Evrópu, og þjálfari liðs- ins er Jaok Johnson, þjálfari B 1913. Þrír af leikmönnum F.B.U. voru þátttakendur í landsleiknum í gær- kvöldi á Laugardalsvellinum, Paul Johansen, markvörður, Bent Jen- sen, innherji og Niels Kildemoes, útherji. Þeir verða eftir hár og lika með F.B.U. • Leifcmennirnir eru allir frá fé- Framhald af bls. 12. Breiða- blik kom- ið í úrslit Alf-Reykjavík, mánudag. Á laugardaginn unnu Breiða- bliks-menn þýðingarmikinn sigur í B-riðli 2. deildar gegn ísfirð- ingum, 3:1, en leikurinn fór fram á ísafirði. Með sigrinum er Breiða blik komið í úrslit í 2. dcild, hef- ur hlotið 9 stig eftir 5 leiki, og á aðeins einn leik eftir, sem ekki skiptir máli. ísfirðingar era í 2. sæti í riðlinum, með 4 stig eftir 5 leiki. Siglufjörður er með 3 stig eftir jafnmarga leiki og FH er „ botninum með 2 stig, og er í al- varlegri fallhættu. Siglf irðingar ^ unnu FH á laugardaginn með 2:1. Þá léku í 2. deild, A-riðli, Suð- urnesjamenn og Vestmannaeying ar. Fór leifeurinn fram í Njarðvík- um og unnu Vestmannaeyingar 3:0, en fyrri leikinn unnu þeir 8:1. Vestm. hefur forystu í a-riðli, með 6 stig, en Haukar koma næst- ir með 5 stig og Fram er í 3. sæti með 4 stig, en fæsta leiM. Fram hefur leikið á móti Suður- nesjam. og vann þá 6:0 og Vík- ing 9:0. - segir Þórólfur Beck, sem staddur er hér í stuttu sumarleyfi. t I \ V ■ „Ég hverf frá Glasgow Rang- ers vegna þess, að ég var orð- inn óánægður hjá félaginu. Það er allt annað en gaman að vera í varaliði, jafnvel hjá stóru félagi eins og Rangers. Ég gekk því á fund fram- kvæmdastjórans, Scott Symon, og sagði eins og var, að ég væri óánægður. Það væri sama hvort það væri hjá Rangers eða Real Madrid, ég kærði mig ekki uni að vera í varaliði til lang- frama. Og Scott Symon heldur ekki óánægðum leikmönnum." Þannig fórust Þórólfi Beck orð, þegar ég ræddi við hann í gær, en Þórólfur dvelst hér um þessar mundir í stuttu sum arleyfi. Þórólfur hélt áfram: „Það er geysilegur munur á því að leika með aðalliði og varaliði. Það koma að meðal- taii 30 til 40 þúsund áhorf- endur á leiki aðalliðsins, en ekki nema 2 til 3 þúsund á leiki varaliðsins. Stemningin er allt önnur — og maður vex tæplega sem knattspyrnumaður að leika lengi með varaliðinu." „Ég hef heyrt, að ensk fcnatt spymulið hafi áhuga á að kaupa þig. Hefurðu áhuga og máttu leika með enskum lið- um?“ „Ég hef ekkert heyrt um það, að ensk lið hafi áhuga á að fá mig, en það er kannski ekki að marka það, því ég er búinn að vera í löngu ferðalagi og ekki haft samband við neina. Vissulega hefði ég áhuga á að leika á Englandi, og t.d. vildi ég alveg eins leika með góðu ensku 2. deildar liði og skozku 1. deildar liði, svo framarlega, að ég fengi gott tilboð. Erlend- ir knattspyrnumenn eru ekki gjaldgengir í ensfeu knattspyrn unni, en ég er búinn að vera það lengi í Skotlandi, eða allt frá 1961, að ekkert væri því til fyrirstöðu að ég léki á Eng- Iandi.“ „En þú hefur ekki hugsað neitt út í það að setjast að hér heima strax?“ „Nei, fyrst ég fór út í at- vinnumennsku á annað borð, held ég áfram á þeirri braut, þar til ég hef náð þrítugsaldri. Annars fer sá aldur að nálg- ast,“ sagði Þórólfur hlæjandi, „því ég er orðinn 26 ára gam- all og enginn unglingur leng- ur.“ „Hefur tíminn hjá Rangers verið lærdómsríkur?" „Já. Vissulega. Ég hef lært margt hjá Rangers, en þetta var orðið niðurdrepandi undir lokin.“ „Og þú hefur stutta viðdvöl hér heima í þetta sinn?“ „Já, óvenju stutta, ég fer ut- an eftir rúma viku. Þá held ég ttí Skotlands og ætla að skoða mig dálítið um í norðurhéruð- um landsins og ég hlakka til að skoða mig um þar.“ „Að lokum, Þórólfur, verður nofekur ákvörðun tekin í þínum málum strax“ Þórólfur Beck. „Nei, nú liggur knattspyrna alveg niður á Skotlandi og það skeður ekkert fyrr en í ágúst í fyrsta lagi.“ Lengra varð viðtalið ekki, en til gamans má skjóta því inn í hér, að sá, sem þetta ritar, spurði framkvæmdastjóra Dun- dee Utd., Jerry kerr, þegar hann var hér á ferð, hvort hann hefði áhuga á að kaupa Þórólf til Dundee Utd. Kerr sagði, að Þórólfur væri mjög skemmtilegur leikmaður, en hann væri of dýr fyrir Dundee Utd. — alf. J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.