Tíminn - 05.07.1966, Qupperneq 8
8
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 5
. júlí
1966
FÉLAGSHEIMILIS-
,MS í MIÐFIRÐI
í Landnámabók segir:
„Skútaðar-Skeggi hót maður,
ágætur í Noregi- Hans sonur var
Björn, er kallaður var Skinna-
Björn, því að hann var Hólmgarðs
fari. Og er honum leiddust kaup-
ferðir, fór hann til íslands og íiam
Miðfjörð og Línakradal. Hans son
ur var Miðfjarðar-Skeggi. Hann
var garpur miikill og farmaður."
Skeggi bjó á Reykjum í Mið-
firði.
Á Mel, gegnt Reykjum, byggði
fyrstur Ögmundur Kormáks-
son. Hans sonur var Kormákur,'
skáld. Skömmu síðar bjó á Mel
Oddur Ófeigsson, ágætur maður,
er frá segir í Éandamannasögu. Á
Mel hefur verið prestssetur um
margar aldir, og nafn staðarins er
nú Melstaður. Þar sat séra Björn
s-onur Jóns biskups Arasonar, og
síðar Arngrímur lærði. Fleiri merk
isklerkar hafa þar setið.
Skammt norðan við Reyki, þar
sem Miðfjarðará fellur til sjávar,
er bærinn Ós. Þar bjó fyrrum
Þórður hreða, mikill vígamaður,
og íþjóðsmiður, samtímamaður Mið
fjarðar-Skeggja. Innar í sveitinni
austan ár, er bærinn Bjarg. Þar
bjuggu foreldrar Grettis, og þar
óx hanp úr grasi.
Miðfjörður er góð sveit og grös
ug. Sunnan við byggðina taka'við
Arnarvatnsheiði og Tvídægra, með
vötnin óteljandi. Þar eiga Miðfirð
ingar góð afréttarlönd,- á mótí
Borgfirðingum. Fleiri kostum býr
sveitin yfir. Miðfjarðará er ein af
beztu' laxveiðiám landsins.
Sveitin skiptist í tvö hreppsfé-
lög, Ytri- og Fremri-Torfustaða-
hreppa.
Árið 1933 var byggt samkomu-
hús á landi Reykja, á eystri bakka
Miðfjarðarár og var því valið nafn
ið Ásbyrgi. Það var hitað upp með
vatni úr lauginni, sem er í brekk-
unni milli bæjarins og árbakkans.
— Til þeirrar heitu laugar gekk
Sigríður á Ósi, systir Þórðar
hreðu, með iéreft sín, svo sem seg
ir í Þórðarsögu. — Nokkrum árum
eftir að samkomuhúsið var byggt,
var reist véla- og bifreiðaverk-
stæði, ásamt íbúðarhúsi, þar á bakk
anum, og nú eru risin 6 íbúðarhús
til viðbótar á þessum stað. Þorp-
ið, sem þarna hefur myndazt, nefn
ist Laugarbakki. Öll húsin eru hit
uð með vatni úr Reykjalaug, en
þar tókst að auka magn heita
vatnsins með borun fyrir nokkru
síðan. Undirbúningur er nú haf-
inn að því að byggja þar barna-
skólahús fyrir sveitahreppana í
sýslunni.
Skömmu eftir 1940 var byggð
sundlaug austan við samkomuhús
ið á Laugarbakka, og þar er sund
kennsla hvert vor. Og fyrir um það
bil 10 árum var ákveðið, að gera
miklar breytingar á gamla húsinu.
Hefur nú verið byggt við það á
þrjá vegu, svo að úr því hefur ver
ið 'gert allstórt og vandað sam-
komuhús. Oft hefur reynzt erfitt
að byggja við gömul hús, svo að
vel fari, en hér hefur það tekizt
vel. Akritektinn, sem teiknaði nýja
húsið, heitir Halldór Halldórs-
son. en yfirsmiður við það var
ungur Vestur - Húnvetningur,
Björn Traustason byggingameist
ari frá Hörgshóli i Vesturhópi,
maður mjög vel fær i sinni grein.
Allur frágangur byggingarinnar er
Frá dansleik í
prýðilegur. En umsjón með
framkvæmdinni og f járútveg-1
anir í því sambandi annaðist Jó
hannes Björnsson, hreppsnefnd-
aroddviti. — Eigendur hússins eru
Ytri-Torfustaðahreppur, Ung-
mennafélagið Grettir og Kvenfé-
iagið Iðja.
Miðvikudaginn 29. júní sl. var
haldin fagnaðarsamkoma í nýja
félagsheimilinu, í tilefni af opnun
þess. Þangað var öllum hreppshú
um boðið, einnig öllum, sem þar
höfðu átt heima, þó að nú væri
fluttir burt, svo og þeim, sem unn
ið höfðu við bygginguna. Fjöl-
menni var á hátiðinni, svo að nýja
húsið var fullt. Samkoman hófst
kl. 9 um kvöldið, með því að leik-
flokkur Þjóðleikhússins sýndi Aft-
urgöngurnar eftir Ibsen við ágæt-
ar viðtökur áhorfenda. Þegar leik-
sýningunni var lokið, var setzt að
veizluborðum- Kvenfélagskomir í
sveitinni veittu þar af mikilli
rausn og myndarskap. Undir borð
um voru fluttar ræður og kvæði.
Veizlustjóri var séra Gísli H. Kol-
beins. Hann las upp árnaðaróskir,
sem borizt höfðu í símskeytum frá
menntamálaráðherra fræðslumála
stjóra, íþróttafulltrúa og Hall-
dóri arkitekt Halldórssyni. Einnig
flutti hann tilkynningu um rausn
arlega gjöf, 10 þús. kr„ sem heim
ilinu barst frá hjónunum í Reyn
hólum, Ingibjörgu Jónsdóttur og
Bimi Guðmundssyni.
Fyrstur ræðumanna á sam
komunni var Benedikt Guðmunds
son, bóndi á Staðarbakka. Hann
skýrði frá byggingu samkomuhúss
ins fyrir 33 árum, og rakti sögu
þess í stórum dráttum. Hann
ræddi einnig um byggingu sund
laugarinnar og þær miklu breyting
ar, sem gerðar hafa verið á hús
inu. Næsti ræðumaður var Jó-
hannes Björnsson, hreppsnefndar
oddviti, sem lýsiti nýja luisinu,
greindi frá því, hverjir þar hefðu
að unnið, og færði þeim öllum
þaikkir fyrir vel unnin störf. Einn
ig skýrði hann frá heildarkostnaði
við bygginguna. Síðan töluðu þau
frú Helga Þorsteinsdóttir á
Bessastöðum, formaður kvenfé-
lagsins, og Böðvar Sigvaldason á
Barði, formaður ungmennafé
lagsins. Bæði flutttu þau fram ósk
ir um að bygging heimilisins yrði
sveitinni og fbúum hennar til
biessunar. Aðrir sem fluttu ræður
og ávörp á samkomunni voru:
Skúli Guðmundsson, alþingismað-
ur, Valur Gíslason, leikari úr
Reykjavík, Jón fsberg, sýslumaður
á Blönduósi, Helgi Ólafsson, raf-
virki á Hvammstanga, formaður
Ungmennasambands t Vestur-
Húnavatnssýsiu. Rögnvaldur Rögn-
valdsson, burtfluttur Miðfirðingur
búsettur á Akureyri, Valdimar
Daníelsson, bóndi á KollafoSsi, og
Björn Traustason, byggingameist-
ari. Tveir menn fluttu frumort
kvæði, þeir Gunnlaugur P. Sigur-
björnsson frá Torfustöðum og Þór-
arinn Jónsson á. Akranesi. Milli
ræðuhalda var almennur söngur
með undirleik pretskonunnar á
Melstað, frú Sigríðar Kolbeins.
nætur
Fra höfninni i Grímsey
Teikning: Riignar Lar.
Drangev og Kerlingin á Skagafirði.