Vísir - 04.03.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 04.03.1975, Blaðsíða 1
65. árg. Þriðjudagur 4. marz 1975 — 53. tbl. Dýrasti sykur í heimi á boðstólum hér? ***, — verðið lœkkar á heimsmarkaði, en ekki hér Samkomulag til bráðabirgða - eða verkfall nœstu daga Kjararáðstefnunni lauk í nótt Ráðstefna Alþýðusam- bandsins/ sem lauk í nótt, skoraði á öll verkalýðs- félög að afla nú þegar heimilda til verkfalls- boðunar og vera viðbúin að beita þeim heimildum, ef atvinnurekendur og rikis- stjórn opna ekki á næstu dögum möguleika á kjara- samningum, sem miðað við allar aðstæður gætu talizt viðunandi til bráða- birgða, eins og segir i ályktuninni. 1 þvi ótrygga og óvissa efna- hagsástandi, sem nú rikir, telur ráðstefnan ekki koma til greina að festa samninga um kaup og kjör nema til mjög skamms tima, heldur verði nú að stefna að settu marki og ná fram i áföngum kaupmættinum, eins og hann var eftir siðustu samninga. Ráðstefnan taldi, að verkalýðs- samtökin hefðu sýnt mikið lang- lundargeð og þau gefið atvinnu- rekendum og rikisstjórn fyllstu tækifæri til að koma i fram- kvæmd ráðstöfunum i þá átt að mæta áföllum þjóðarheildarinnar með þvi meðal annars að vinna að réttlátari skiptareglum þjóðar- tekna og verja rétt og kjör þeirra, sem verst eru settir, sem sé hin eina stefna, sem eigi rétt á sér, þegar minna er til skipta en áður. ,,En nú hefur sannazt,” segir i ályktuninni, ,,að hvorki atvinnu- rekendur né stjórnvöld hafa notað timann til slikrar stefnumótunar heldursifellt ráðiztá garðinn, þar sem hann er lægstur og notað áföll þjóðarbúsins sem tylliástæðu til að skerða almenn lifskjör stór- um freklegar en efni og ástæður hafa gefið tilefni til.” Þá er talað um ,,algert and- varaleysi stjórnvalda gagnvart aðsteðjandi vanda.” í ályktuninni segir, að skerðing kaupmáttar muni verða 30-40% 1. mai, ef ekki verður að gert, og þyrfti kaup- gjald þá að hækka um 50-60% til þess að náð yrði þeim kaupmætti, sem samið var um i febrúár 1974. Sagt er, að framfærslukostnaöur heimilanna muni hækka um 10- 11% næstu tvo mánuði vegna hækkunar viðkvæmustu neyzlu- vara, svo sem búvara, og annarra afleiðinga gengislækkunarinnar. Á sama tima fari atvinna minnk- andi og samdráttarstefna rikis- valdsins ógni atvinnuöryggi. ,,Af þessum sökum öllum stefnir óð- fluga að neyðarástandi meðal alls þorra verkalýðsstéttarinnar,” segir i ályktun ráðstefnunnar. —HH BJARTSÝNN — aflahœsti skipstjórinn tekinn tali við Reykjavíkurhöfn í morgun „Ætli við séum ekki með svona 9200 tonn núna, og það er gott betur en i fyrra. Ég gæti trúað að vertiðin væri svona liálfnuð. En hvað við verðum með þegar hún er búin? Þvi þori ég ekki að spá.” Þetta sagði skipstjórinn á Sigurði RE, Kristbjörn Þór Árnason, þegar Visir brá sér niður að höfn i morgun til þess að hitta hann að máli, en Sigurður er aflahæstur á loðnu- veiðunum núna. „Kraftblökkin bilaði hjá okk- ur, og þess vegna erum við hérna núna. Við búumst við að það taki svona tvo til þrjá daga að gera við hana”, sagði Krist- björn. Ekki var annað að heyra á honum en að hann væri ánægður með skipið. Hins vegar er það stórt og þarf sitt pláss, og það getur orðið nokkuð erfitt þegar þröng er á miðunum. Sigurður RE hefur farið fjór- um sinnum á Siglufjörð með Allt logandi í kœrumálum í íþróttunum Tvö ný kœrumál komu í gœr og beðið eftir dómi í því þriðja - Sjá nánar íþróttir í opnu afla. En hvað á skipið að gera þegar vertiðin er búin? „Það er nú liklega betra að spyrja útgerðarmennina að þvi. Annars var ég að spyrjast fyrir um þetta fyrir stuttu og þá var ekkert ákveðið að því er ég held, en spærlingsveiðar gætu komið til greina”, sagði Kristbjörn. Eftir vertiðina i fyrra var skip- inu lagt. Kristbjörn sagði að sér virtist vera töluvert magn af loðnu núna. Hann sagði að útkoman væri sæmileg, en verðið nokkuð lélegt. „En þýðir nokkuð annað en að vera bjartsýnn?” —EA Sigurður RE er aflahæstur núna. Kraftblökkin bilaði og þess vegna erum við hér, sagði skipstjórinn Kristbjörn Þór Árnason, þegar viðhittum hann að máli niðri við höfn i morgun. Ljósm.: Bragi. Tilboð vinnuveitenda: KAUPMATTUR DAGVINNUKAUPS EINS OG VAR 1972 OG 1973 en ekki hœkkun á eftirvinnu Samkvæmt tilboði vinnuveit- enda um helgina hefði kaup- máttur tfmakaups verkamanna i dagvinnu aftur orðið svipaður og hann var árin 1972 og 1973, en ekki hefði unni/t upp það, sem tapaðist árið 1974. Kaupmátturinn mun nú vera 10-11% undir þvi, sem var 1972 og 1973, að sögn vinnuveitenda. Tilboð vinnuveitenda var ein- göngu um dagvinnukaup, svo að i mánaöarkaupi hefði skort nokkur prósent, að þeir sem eru með 40-65 þúsund kæmust á það stig, sem var 1972 og 1973. A móti þvi mætti hins vegar taka tilboð rikisstjórnarinnar um skattalækkanir, sem hefur laus- lega verið metið til 2-3% launa- hækkunar fyrir fólk með miðlungstekjur og 3,5-7% launa- hækkunar fyrir þá lægstlaun- uðu. Þá hefur skattalækkunin i fyrra verið metin jafngilda 3% kauphækkun. Mat á slikum at- riðum er umdeilanlegt. Kaupmáttur timakaups i dag- vinnu mun hafa verið 2% hærri að meðaltali árið 1974 en hann var árið áður. Kaupmátturinn óx geysimikið við samningana i febrúar t fyrra, en hann hrapaöi hratt strax næstu vikur þar á eftir með miklum verðhækkun- um. ASl telur, að kaupmáttur- inn muni 1. mai verða orðinn 30- 40% minni en var fyrir ári, aö óbreyttum aðstæðum. Þeir sem hafa yfir 50 þúsund á mánuði, hafa ekki fengið láglaunabætur og þvi tapaö nokkrum prósent- um meira en hinir tekjulægri. í tilboði vinnuveitenda var gert ráö fyrir, að 3800 krónur bættust við mánaðarkaup undir 65 þúsundunum, og þeir, sem hefðu kaup á bilinu 65 þús- und til 68.800 hækkuðu i 68.800 krónur. ASt hafnaði þessu tilboði. — HH „OFSALEG LIFSREYNSLA" — segir ísl. stúlka sem þurfti að sitja í 3 1/2 mán. í fangelsi í Bretlandi — bls. 3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.