Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 1
65. árg. Föstudagur 14. marz 1975 — 62. tbl.
BÍLLINN KUBBAÐIST í SUNDUR - baksíðo
„Einsmannsfyrirtœki" á íslandi
stendur í stórrœðum:
samning við
Gerir fimm milljarða
erlent fyrirtœki
Fyrirtæki aö nafni
Cebere, sem bæði er með
starfsemi í Belgíu og í
Englandi hefur gert samn-
ing við fyrirtæki Péturs
Einarssonar, Sjávarvörur
h.f., um að annast
flutninga á fljótandi
efnum og jarðborunar-
vörum, svo eitthvað sé
nefnt, á milli Evrópu og
Ameríku
Sjávarvörur h.f. gera þennan
samning fyrir hönd dótturfyrir-
tækis sins, sem skráð er i Kanada
undir nafninu Icelandic Products.
Cebere fyrirtækið á að flytja hrá-
efni og vélar til fyrirtækisins i
Kanada. Flutningasamningurinn
gildir i eitt ár og hljóðar upp á
hvorki meira né minna en 5,4
milljarða.
Vegna þessa samnings hefur
Cebere tilkynnt það opinberlega i
Englandi, að það hafi i hyggju að
kaupa 18 skip innan árs. Eiga skip
þessi að vera ný eða nýleg og ekki
eldri en fjögurra ára.
Tvö skipanna i það minnsta
eiga að flytja fljótandi efni. Að
sögn forstjóra Englandsdeildar
Cebere fyrirtækisins, herra Gest,
eru þeir mjög bjartsýnir á þennan
samning, sem nú hefur verið
undirritaður eftir tveggja mán-
aða fundi.
„Samningurinn er undirritaður
annars vegar af Pétri Einarssyni,
forstjóra Seagoods Ltd. i Reykja-
vik, og hins vegar herra Gabé,
aðalforstjóra Cebere fyrirtækis-
ins,” sagði Gest i sijntali við Visi.
„Bæði höfum við rætt við Pétur
isima og haldið með honum fundi
i London,” sagði Gest.
Að sögn Gest felur samningur-
inn i sér flutninga á fljótandi
efnum til fyrirtækis Péturs i
Kanada svo og flutning á oliubor-
unartækjum. Að sögn Cebere er
samningurinn baktryggður af
banka i miðvesturrikjum Banda-
rikjanna, en fyrirtækið vildi ekki
að svo stöddu gefa upp nafið á
honum.
„Við erum mjög ánægðir með
þennan samning og höfum enga
ástæðu til svartsýni”, sagði Gest i
viðtalinu við Visi.
Yfirleitt, þegar islenzk
fyrirtæki gera samninga af þessu
tagi, kunngjöra þau viðskipta-
ráðuneytinu um það með nokkr-
um fyrirvara.
Að sögn viðskiptaráðuneytisins
hefurþeim þó ekki borizt nein vit-
neskja um þessa fimm milljarða
samninga.
Blaðið reyndi árangursiaust að
hafa samband við Pétur Einars-
son eða fyrirtækið Sjávarvörur
h.f. tii að fá nánari fréttir af þess-
um mikla vexti fyrirtækisins.
—JB
Hvoð hafa
þeir raun-
verulega
borgað af
þotunum?
— bls. 3
Hjónamiðlun
tekur til
starfa
— baksíða
LÆKKA
ÚTSVÖRIN
LÍKA?
— bls. 3
Slys á fimmtán
mínútna fresti
Miklar annir voru hjá
sjúkraflutningamönnum i
gærdag. Siðari hluta dagsins
i gær lá við, að sjúkrabill
væri kallaður Ut á fimmtán
minútna fresti vegna slysa.
Um fimmleytið lenti
skellinöðrustrákur fyrir bil á
mótum ArmUla og Háaleitis-
brautar. Blll og skellinaðra
skemmdust töluvert, en
strákurinn stóð upp eftir
slysið og sagðist ómeiddur,
þótt hann yrði að haltra fram
og aftur. Hann var fluttur á
slysadeild.
Skömmu siðar fóru tveir
sjUkrabilar upp að Rauða-
vatni vegna siyssins þar, og
varla voru þeir búnir að
flytja sjáklingana Ibæinn, er
nokkuð harður árekstur varð
I ÁrtUnsbrekkunni. Þar
munu þó ekki hafa orðið al-
varleg meiðsl á mönnum.
—JB
Sígarettu- l„$annar hversu illa er
«iárSflunin:| ag íþrÓttUIWm bÚíð"
- segir varastjórnarmaður FRÍ, sem segir af sér vegna málsins
A næstu þremur mánuðum er
gert ráð fyrir, að reyktar verði
20 milljón Winston sigarettur á
íslandi, eða kannski allt að 24
milljón sigarettur. Þetta kemur
fram I fréttatilkynningu Frjáls-
iþróttasambands islands varð-
andi söfnun þá á tómum Win-
stonpökkum, sem sagt var frá I
VIsi I gær.
FRI vonast til að fá til baka,
af þeim 1-1,2 milljónum pakka,
sem reykt verður úr, að minnsta
kosti 500 þúsund pakka, sem
gefur þá FRÍ 1,5 milljónir
króna, sem veitir ekki af, þvl
sjóðir sambandsins eru heldur
rýrir I roöinu.
Eins og Visir sagði frá í gær,
hefur þessi sameinaða auglýs-
inga- og söfnunaraöferö mælzt
æði misvel fyrir og hafa jafnvel
þegar verið samþykkt mótmæli
vegna hennar. A það hefur aftur
á móti verið bent af hálfu
þeirra, sem fylgjandi eru söfn-
uninni, að fþróttasamtökin fá
mikið fé af sigarettusölu I
landinu, fá 50 aura af hverjum
pakka. Þá telja þeir að t.d. ung-
mennafélögin sum ættu að llta
sér nær, megnið af rekstrarfé
þeirra komi fyrir fylliriisböll i
félagsheimilum úti um landið.
A plastpokum, sem dreift
hefur verið til Iþróttafélaganna,
sem beðin hafa verið að hiröa
pakkana, stendur orörétt: ÉG
TEK VIÐ TÓMUM WINSTON
PÖKKUM FYRIR FRl.
Vísir haföi I morgun samband
við Einar Frimannsson, sem
um árabil hefur veriö fyrsti
varamaöur I stjórn FRI og sótt
stjórnarfundi sem slikur.
„Það er rétt,” sagði Einar,
„aö ég geröi samþykkt þessarar
aðferöar að brottfararefni. Hún
var mikið ágreiningsmál innan
stjórnarinnar. Hins vegar er
þeim, sem þarna stjórna, mikill
vandi á höndum, og eftir siöustu
gengisfellingu er ekki annað
framundan en skera mikið niður
af þvi, sem til stóð að gera á
þessu ári.
Þessi pakkasöfnunaraðferð
sannar kannski hrikalegar en
margt annaö, hversu illa er búiö
að iþróttamálum okkar, aö for-
ráðamenn Iþróttanna skuli
freistast til að fara út I svona
fjáröflun. En þetta gerist vegna
þess, að mennirnir hafa brenn-
andi áhuga á að gera það, sem
þarf aö gera aö freistast þess
vegna til að fara jafnvel óheppi-
legar fjáröflunarleiðir,” sagði
Einar Frímannsson.
—SHH
| SKAÐBRENNDIST í ELDI í SÚTUNARVERKSMIÐJU í MORGUN
Annað sinn, sem
slíkt slys verður
Eldur gaus upp i tromiu i sút-
unarverksmiðju Sláturfélags
Suðurlands við Grensásveg i
morgun. Tromla þessi er notuð
til að hreinsa fitu úr skinnum.
Tromlan er fyllt af skinnum,
sagi og benzíni og virðist sem
neisti hafi komizt i þetta geysi
eldfima efni með þeim afleið-
ingum, að eldur gaus upp i
tromlunni og i klefa kringum
hana.
Benzinmettað loftið logaði
stafnanna á milli og starfsmað-
ur sútunarverksmiðjunnar
skaðbrenndist. Fyrir nokkrum
árum slösuðust nokkrir starfs-
menn verksmiðjunnar I svipuð-
um bruna og voru þá gerðar
ýmsar ráðstafanir, til að slíkt
endurtæki sig ekki. Þær ráðstaf-
anir hafa þó ekki dugað og enn
einn starfsmaður verksmiðj-
unnar hefur nú slasazt við
tromlu þessa.
Eyjólfur Jónsson lögreglumað-
ur á slysstaðnum I sútunarverk-
smiðjunni I morgun. Bak við
hann sést opið inn I tromluna.
(Ljósmynd VIsis BG)