Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 7
Vlsir. Föstudagur 14. marz 1975. 7 Þannig smíðum við rúmið M ‘ ■ „» \ . . ;,V'4v ■/ J »3Vt‘ , > : s ' * Þetta getum víð smíðað sjálf Þetta skemmtilega rúm getum viö smíðað sjálf eftir teikningun- um, sem við birtum hér á siðunni. Kúmið er smfðað úr furu og botn- inn er spónaplata. Rúmið er 204 cm á breidd og 217 cm á lengd. Þar með eru þá taldar hliðarplöturnar, sem eru 20 cm langar. Dýnan er 195x160 cm. Þetta er vissulega stórt húsgagn, en þaö þarf svo sem ekki annað aðhafa I svefnherbergi. Þaö má llka segja, að rúmið taki alla fjölskylduna, svo stórt er það. Það gefur rúminu enn skemmtilegri svip, ef dýnan er röndótt eins og myndin sýnir. Áklæðið er saumaö úr 30 cm löngum ræmum. Áklæöiö er rautt og hvltt á þessari mynd. Það getur verið hentugt að sauma rennilás á, þvl þá er hægara að þvo það. -* 207 70 : : • • » 164 «—— Þetta er efnið, sem til þarf: 1. Sökkullinn: 2 fjalir, sem eru 200x15x2 cm, 1 fjöl 196x15x2 cm, 2 fjalir 160x15x2 cm. 2. Rúmbotninn: 16 mm þykk spónaplata , stærð 204x217 cm (reiknið með botninum í tveim- ur hlutum þar sem ekki er vlst, að hægt sé að fá svo stóra plötu.) 3. Ramminn, sem heldur dýn- unni: 2 trélistar, stærð 160x5x2 cm, 2 trélistar stærð 199x5x2 cm. 4. Gaflinn: 5 fjalir stærð 207x10x2 cm, 1 fjöl 164x10x2, 2 fjalir í 18x10x2 cm. 5. Fjalir á hliðum og við fætur: 2 fjalir, sem eru 219x10x2 cm, 2 fjalir 210x10x2 cm, 1 fjöl 207x10x2 cm, 1 fjöl 185x10x2 cm. Ennfremur þarf 64 stykki af 5 cm löngum boltum, 4 stykki af hornvinklum, ca. 3.5 cm löng- um ásamt skrúfum. Smiðin: 1. Sökkullinn: Skrúfið saman fjalirnar 5, þannig að myndist rammi.eins og teikningin sýnir. 2. Rúmbotninn: Skrúfið saman botninn úr spónaplötunni við rammann eins og brotna linan á teikningunni sýnir. 3. Ramminn utan um dýnuna: Byrjið á þvl að skrúfa saman rammann. Skrúfið 4 hornvinkl- ana innan á rammann og skrúf- ið rammann þar á eftir fastan meö hjálp vinklanna við botn rúmsins. Brotnu linurnar á teikningunni sýna þetta nán- ar. 4. Gaflinn: Leggið 6 langar fjal- ir á gólfið og þvert yfir þær fjal- imar tvær, sem eru 81 cm á lengd. Skrúfið saman með bolt- um. Sagið form gaflsins, og festið hann við enda rúmsins meö 4 boltum í sökkulinn. 5. Hliðarfjalirnar: Leggið fjal- imar á gólfið 11 cm fjarlægð frá rammanum utan um dýnuna. Sagiö úr hornunum 45 gráðu vinkil. Borið gat og skrúfið fast með boltum i botninn. SHpið öll skörp horn af og sllpið meö sandpappír. Bæsiö og strjúkið 2- 3 sinnum yfir með glæru lakki. Eða grunnmálið og lakkið, slíp- ið á milli umferða. Ennfremur þarf: Dýnu, sem er 195 cm löng, 160 cm breið og 15 cm þykk. Til þess að sauma áklæöið þarf efni, sem er 225x190 cm. Til þess svo að sauma áklæðið með skáliggjandi röndum, eins og sýnt er á myndinni, þarf 9 stykki af 30 cm breiðum ræmum (gerið ráð fyrir 1 cm í sauma á öllum hliðum). Saumið ræmurnar saman eins og teikningin sýnir. Klippiö úr hverju horni 15x15 cm. Saumið hornin niður frá röngunni. Umsjón: Edda Andrésdóttir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.