Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 13

Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 13
Vísir. Föstudagur 14. marz 1975. 13 Elskan, við getum ekki haldið áfram að hittast hér — ég hef bætt við mig þrem kilóum....! Minningarkort Líknarsjóðs Áslaugar Maack eru seld á eftir- töldum stöðum: Hjá Helgu Þor- steinsdóttur Drápuhlið 25, simi 14139. Hjá Sigriði Gisladóttur Kópavogsbraut 45, simi 41286. Hjá Guðriði Ámadóttur Kársnes- braut 55, simi 40612. Hjá Þuriði Einarsdóttur Álfhólsvegi 44, simi 40790. Hjá Bókabúðinni Veda Álf- hólsvegi 5. Pósthúsinu Kópavogi. Sjúkrasamlagi Kópavogs Digra- nesvegi 10. Verzluninni Hlið Hlið- arvegi 29. Auk þess næstu daga i Reykjavik i Bókaverzlun Lárusar Blöndal Skólavörðustig 2 og Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar Austurstræti 18. ÍVÍinningarkort Flugbjörgunar- sveitarinnar fást á eftirtöldum stöðum. Sigurður M. Þorsteinsson, Goð- heimum 22, simi 32060. Sigurður Waage Laugarásvegi 73, simi 34527, Stefán Bjarnason, Haíðar- garði 54, simi 37392. Magnús Þó.rarinsson, Álfheimum 48. simi 37407. Húsgagnaverzlun M3uð- mundar Skeifunni 15, simi 82898 og Bókabúð Braga Brynjólfs- sonar. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa nú þegar. Uppl. i sima 36737 og 37737. *2* * * spa -*t-K-k-k-k-k-k-k-k-k'k-K+-k-K-k-K-k-k-k-k-k-k-k-K-K-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-K-»t->tH ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ * ★ ★ * ★ ★ t t ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ES C3 Nt m áí Spáin gildir fyrir laugardaginn 15. marz. Hrúturinn, 21. marz-20. april. Þú laðast að skemmtilegu fólki i dag. Reyndu að auka við að- dráttarafl þitt og fegraðu heimili þitt. Vertu friðsamur(söm). Nautið,21. april-21. mai. Farðu i verzlanir, ekki endilega þær sem eru i miðbænum. Farðu á stefnumót í dag. Skoðaðu söfn og auktu viðsýni þitt. Tvlburarnir,22. mai-21. júni. Þú ert mjög bjart- sýn(n) i skoðunum þinum og vinur þinn ýtir mjög undir þá þróun. Faröu á skiði eða stundaðu aðrar iþróttir. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú ferð frekar eftir hugboði þinu heldur en skynsemi I dag. Anægja og vinna fara saman I dag. Taktu lifinu með ró. Ljónið,24. júli-23. ágúst. Samskipti þin við fólk, sem er fjarri dvalarstað þinum eru mjög ánægjuleg. Reyndu að öðlast hugarjafnvægi með rólegu liferni. Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Dagurinn er heppi- legur til innkaupa, og þinn góði smekkur hjálpar þér til að kaupa fallega hluti. Eitthvaö óvænt kemur upp I kvöld, þú ferö jafnvel i smáferöa- lag. Vogin,24. sept.-23. otk. Fyrir þá (þær) sem eru giftir(giftar) ganga málin sérstaklega vel. Þú hefur mikinn áhuga og hefur mikla ánægju af lærdómi. Drekinn,24. okt.-22. nóv. Þetta er hentugur dag- ur til aö hugsa vel um heilsuna, gera við bilaða hluti heima við og snyrta til I kringum þig. Bjóddu heim gestum I kvöld. Bogmaöurinn, 23. nóv.-21. des. Þú verður mjög heppin (n) I dag. Þú hittir einhvern(ja) af gagn- stæðu kyni og nýtur þin vel. Ef þú tekur þátt i fjárhættuspili, leggðu þá á uppáhaldstölur þinar. Steingeitin, 22. des.-20. jan. Hresstu upp á heimili þitt i dag. Einhver óvæntur gestur kemur i heimsókn. Vertu hugulsamur(söm) við maka og foreldra. Vatnsbcrinn, 21. jan.-19. feb. Þú bætir töluvert við þekkingu þina i dag, og mjög liklega I gegn- um samræður. Þú færð tækifæri til að láta ljós þitt skina. Fiskarnir, 20. feb.-20. marz. Allar verzlunar- ferðir ganga mjög vel i dag, og þú hefur mögu- leika á aö kaupa marga fallega hluti. Þú skalt kaupa einhverja góða gjöf. ★ ★ t i ★ ★ ★ ★ í t í 1 i & ★ $ ! t n □AG | D KVÖLD | n □AG | Lí KVÖLD | n □AG j Sjónvarp kl. 20,35: Karlmönnum ekki vandaðar kveðjurnar — mynd um stöðu konunnar fyrr og nú Konan heitir mynd, sem sjónvarpið sýnir i kvöld. Þetta er sænsk teiknimynd um þjóðfélagsstöðu kvenna fyrr og nú. Það má segja, að myndin eigi vel við á kvennaári, en þýðandi hennar, Jóhanna Jóhannsdóttir, sagði þó að sér fyndist fyrir sitt leyti sem myndin væri ekki of vel lukkuð, og mætti samhengi i henni til dæmis vera meira. Karlmönnum eru ekki vandaðar kveðjurnar i þessari mynd, sem er að mestu teiknimynd. Inn i hana eru þó fléttaðir kaflar úr fegurðarsam- keppni, þar sem karlmenn þenja vöðvana og stúlkur dilla rassinum. Tekin er fyrir staða konunnar á ýmsum timabilum. Konan þarf að dýrka manninn. Á meðan hann er i hernaði er hún vel menntuð og stjórnar jafnvel búi. Eftir að hernaði lýkur lækkar staða konunnar og menntun um leið, þ.e. þegar eiginmaðurinn er heima við. Tekið er fyrir álit Forn- Grikkja á konunni. Hún á að vera tákn frjósemi og guðirnir eru myndaðir i karlmanns- mynd. Þá er fjallað um galdra- brennur, iðnbyltinguna i Evrópu og ódýra vinnuaflið, sem samanstendur af konum og börnum. Þá snúa Sviar sér að eigin þjóð. Þar hefur konan verið alin upp til að annast börn og bú. Hún hefur orðið að ná sér i fyrir- vinnu, og ef það tekst ekki er hún næstum fyrirlitin. Ef svo konan þarf að vinna utan heimilis, heitir það ,,að fá að vinna.” ,,Konan” er á dagskrá klukkan 20.35. -EA UTVARP # 13.00 Við vinnuna. Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Himinn og jörð” eftir Carlo Coccioli. Séra Jón Bjarman les þýðingu sina (21) 15.00 Miðdegistónleikar. Jean- Pierre Rampal og hljóm- sveitin Antiqua Musica leika tvo stutta flautu- konserta I barokkstil eftir Johann Gottlieb Graun og Friðrik mikla, Jaques Roussel stjórnar. Franco Corelli syngur gömul, itölsk lög. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir) 16.25 Popphornið. 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Vala” eftir Ragnheiði Jónsdóttur.Sigrún Guðjóns- dóttir les (3) Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 19.55 Kammertónleikar frá útvarpinu í Helsinki. Kammerhljómsveit Filharmóniusveitar Varsjár leikur undir stjórn Karols Teutsch. Einleikari: Marek Marczyk. a. Introduktion, aria og presto eftir Bene- detto Marcello. b. Konsert fyrir lágfiðlu og hljómsveit eftir Johann Christian Bach. c. Sinfónia nr. 2 i G- dur eftir Antonia Vivaldi. 20.35 Minningar bjölluhljóma. Stefán Agúst Kristjánsson flytur frásöguþátt. 21.05 Triö nr. 2 I g-moll op. 26 eftir Antonin Dvorák. Jean Fournier leikur á fiðlu, Antonio Janigro á knéfiðlu og Paul Badura-Skoda á pianó. 21.30 Ctvarpssagan: „Köttur og mús” eftir Gunter Grass. Guðrún B. Kvaran þýddi. Þórhallur Sigurösson leikari les (3) 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (41) 22.25 Húsnæðis-og byggingar- mál. Ólafur Jensson ræðir viö Kristinu Guðmunds- dóttur, hlbýlafræðing um innréttíngar I eldhúsum o. fl. 22.40 Áfangar.Tónlistarþáttur I umsjá Asmundar Jóns- soriar og Guðna Rúnars Agnarssonar. Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. SJÖNVARP • 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.35 Konan. Sænsk teikni- mynd um þjóðfélagsstöðu kvenna fyrr og nú. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 21.00 Kastljós. Fréttaskýr- ingaþáttur. Umsjónarmað- ur Guðjón Einarsson. 21.50 Töframaðurinn. Banda- riskur sakamálamynda- flokkur. Flekkað mannorð. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 22.40 Dagskrárlok. ■k-k-k-k-k-K-k-k-K-K-K-K-K-K-K-K-K-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-K-K-k-k-k-k')*-4-)*-)*->*-)é >ó)4-4-4-)f)*->*->e)f4-)f)f)f)f)f )*-)«>)*-)f)<-)f>*-+>f>f)f)é)f>*-)f)*-)*-)f)*-)f)f)4-jf)f)*-)fj*-)*-)f)f)*-j«-)4-)*-)f)*-)f )*-)*.)*-*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.