Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 14.03.1975, Blaðsíða 16
VÍSIR Föstudagur 14. marz 1975. Verðhœkkanir í ríkjum í QECD Enginn komst í hálf- kvisti við íslendinga Enginn kemst i hálfkvisti viö islendinga um veröbólgu af rikj- unum I stofnuninni OECD, en þar eru flest helztu iönrikin og fleiri. Veröbólga var á islandi 51,3% en Tyrkland komst næst meö 24,6% á siöustu tólf mánuöum, sem skýrsla OECD greinir. Miöaö er viö neyzluvöruverölag og yfirleitt tekiö slöasta 12 mánaöa timabil fram til janúar- loka siöastliöins. 1 þriöja sæti um veröbólgu er Italla meö 24,4%, Irland slöan meö 20,0% og aörir fyrir neöan. A öörum Noröurlönd- um hefur veröbólgan veriö þessi: Danmörk 15,5%, Finnland 19,1%. Noregur 12,6%, Svlþjóö 9,8%. Meöalveröbólgan I OECD var „aöeins” 13,5% þessa tólf mán- uöi. 1 Bandarlkjunum var veröbólg- an 11,7%. Minnst var hún 6,1% I Vestur-Þýzkalandi og 7,3% I Sviss. I greinargerö meö skýrslunni segir, aö nú hafi aö undanförnu dregiö úr veröhækkunum I ýms- um löndum meö minnkandi fram- leiöslu, svo sem I Bandarlkjun- um, Kanada, Frakklandi, Japan, Hollandi, Sviss og V-Þýzkalandi. — HH Tíundin er ekki alls staðar sú sama Fasteignagjöld geta veriö æriö misinunandi fyrir sam- bærilega fasteign, eftir þvi hvar hún er I sveit sett. t Kópavogi er fasteignagjaldiö fyrir 500 rúmmetra einbýlis- húsiö 1800 fermetra lóö þannig 46.587,00 krónur, en I Hafnar- firöi 31.070,00 krónur. Frá þessu skýrir Hafnar- fjaröarblaöiöHamar og tekur dæmi úr fleiri sveitarfélögum. 1 Garöahreppi væru fasteigna- gjöld af þessari eign kr. 39.820,00, á Akureyri kr. 38.352,00, i Reykjavlk kr. 36.840,00, á Seltjarnarnesi kr. 36.340,00 og Keflavlk kr. 35.260,00. Slöan segir Hamar: „Heimilt er aö innheimta fasteignaskatt meö 50% álagi og er þaö vlöast gert. Hér I Hafnarfiröi var nú hins vegar samþykkt aö lækka þetta álag niöur I 37,5%. Þá innheimta nokkur bæjarfélög sérstakt holræsagjald af fasteignum, en þaö er ekki gert hér. Enn- fremur er vatnsskattur lægri I Hafnarfiröi en vlöast annars staöar.” — SHH BÍLAFERJAN TIL NORÐUR- LANDA VERÐUR FÆREYSK Draumurinn gœti rœtzt strax í sumar Draumurinn um bil- ferju milli Islands og Norðurlanda rætist kannski fyrr en menn höfðu þorað að vona — fyrir milligöngu Fær- eyinga. Það verða sem sé þeir, sem eiga að reka skipið, en við fá- um að sitja i. Færeyingar hafa nú keypt Kattegatfer juna „Morten Mols,” og er kaupveröiö 25,7 milljónir danskra króna, eöa sem svarar röskum sjöhundruö milljónum Islenzkra króna. Skipiö liggur nú I Arósum, þar sem það verður snyrt fyrir heimferöina til Færeyja, og hlýtur jafnframt nýtt nafn: Snirtil. Val Færeyinga stóð um þetta skip eöa láta gera sér nýtt farþegaskip, sem hefði kostað hátt á annaö þúsund milljónir króna. Morten Mols þótti henta vel til sins verkefnis. Það getur tekiö 800 farþega, 110 bfla og 1000 tonna fragt samtimis. Fyrst um sinn á Snirtil að vera I förum milli Þórshafnar og Suöureyjar, en siðar mun þaö þjóna einnig á leiðinni til Klakksvíkur, en yfir sumar- mánuöina er fyrirhugað, aö Snirtil verði I vikulegum feröum milli Islands, Færeyja, Shet- landseyja og Bergen. Samkvæmt upplýsingum Árhus Stiftstidende mun Snirtil þó aðeins fara fjórar slikar feröir i sumar. Blaöiö segir ennfremur, aö Snirtil veröi 18 klukkustundir á leiöinni frá Þórshöfn til Bergen, og má þá állta, að ekki taki nema helmingi lengri tima að sigla frá Reyðarfirði til Bergen. Færeyingar ætla á, að árlegar tekjur af skipinu verði sem svararum 190 milljónum króna, þegar það er komið I gagnið. —SHH Snirtil — áöur Morten Mols — liggur I höfn I Árósum og veröur mál- aöur upp meö nýju nafni, áöur en hann heldur heim til Færeyja um mánaöamótin. Vonandi sést þetta snyrtilega skip sem oftast i Is- lenzkri höfn. Hjónabandsmiölun Kristjáns S. Jósefssonar er rétt farin af staö. Hér heldur hann á skýrslu þeirri, sem viökomandi aöiiar veröa aö fylla út. Ljósm: Bragi. „Tel þetta meraiingaratriði" — segir Kristján S. Jósefsson, sem nú hefur komið á fót hjónabandsmiðlun „Þörf? Já, og svo tel ég þetta bara vera menningaratriði. Ég veit að þetta getur bjargað mörgum börn- um frá þvi að lenda hreinlega á götunni. Það hefur lika sýnt sig, að það eru margir, sem hafa áhuga á þessu, þvi siminn hefur ekki stoppað”. Það er Kristján S. Jósefsson eigandi Islenzka dýrasafnsins, sem þetta segir, en Kristján hefur nú komið á fót hjóna- bandsmiölun hér á landi. Hann hefur þegar sett auglýsingar I blöðin, en enn er þetta svo ný- byrjað að engin reynsla er kom- in á þaö. „Erlendis, til dæmis I Þýzka- landi og á Norðurlöndum hefur þetta hjálpað fleiri tugum manna. Það eru tvö ár slöan mér flaug þetta I hug. Og fólk, sem hefur vitaö af þessu, hefur ýtt mikið á eftir að ég kæmi þessu I framkvæmd”. „Ég reikna ekki með, aö fólk innan við þrltugt þurfi á þessu aö halda, nema þá um eitthvað sérstakt sé að ræða. Ég býst viö þvl, að fólk á fertugsaldri noti þetta mest. Þaö eru líka mjög margir, sem til dæmis eiga Ibúðir og hafa komið sér sæmi- lega fyrir, en eru orðnir þreyttir á einverunni”. Hjónabandsmiðlunin gengur þannig fyrir sig, að viðkomandi kemur og fyllir út skýrslu, sem Kristján hefur. Þegar nokkrar skýrslur liggja svo fyrir frá ýmsum aðilum, velur Kristján þá úr, sem honum viröast eiga bezt saman, gefur upp síma- númer, og það sem eftir er, verður svo einkamál viðkom- andi aðila. „Ég reikna með ao»*þetta gangi vel og vona að enginn prakkaraskapur eigi sér stað. Ég ætla að reka þetta á föstum og góðum grundvelli, og hér verðurfastur skrifstofutlmi. Ég vona bara, að fólk noti þetta ekki til þess að skilja við maka sinn og sjái tækifæri til þess aö ná sér I annan”. —EA Gífurlega harður árekstur í gœrkvöldi við Rauðavatn: AMERÍSKUR BÍLL KUBBAÐIST j SUNDUR Fólksblll gjöreyöilagöist og rúta og leigubill skemmdust I geysihöröum árekstri viö Rauöavatn rétt fyrir klukkan 6 I gærkvöldi. Þaö var Hverageröisrúta á leiö til Hveragcröis, sem lenti I árekstrinum, og voru I henni sex farþegar auk bllstjóra. Tveim nemendum I Garöyrkjuskólan- um á Reykjum, sem voru meöal farþega, segist svo frá: „Viö vorum að aka fyrir Rauöavatn, þegar leigubfll kom á móti okkur. 1 beygju, sem þarna er, hægöi leigublllinn á sér, er hann sá rútuna koma á móti. Amerískur fólksbill, sem á eftir kom átti erfiðara meö aö hægja á sér I hálkunni, og sner- ist hann á veginum, þannig aö afturendinn skall glfurlega hart framari að rútunni. Viö höggiö snerist rútan á veginum og stóö þvert er hún stanzaöi. Amerlski fólksblllinn snarsnerist eftir veginum rakst aöeins I leigubllinn, sem var á undan honum og hafnaði aö lok- um þvert fyrir framan hann.” Höggiö var glfurlegt, og sögöu farþegarnir aö heföi fólksblllinn lent meö framendann framan á rútunni, hefði ekki þurft aö spyrja aö leikslokum. Viö áreksturinn hreinlega rifnaði afturendi amerlska blls- ins af og hlutar úr bllnum dreiföust um allt nágrenniö. Kistulok og benzíngeymir höfn- uöu úti á Isilögöu Rauöavatninu I um 80 metra fjarlægö frá slys- staönum og segir þaö til um, hversu höggiö var mikiö. „Viö stukkum þegar út til aö huga aö farþegum bflsins”, segja piltarnir tveir, sem ásamt bflstjóra rútunnar og leigubil- stjóranum komu fyrst að þeim slösuöu. „í bilnum var bllstjóri og farþegi I framsæti, og voru þeir báðir mikiö skornir I andliti, sérstaklega þó farþeginn, sem var mjög illa farinn. Þeir voru báöir meö meövitund og farþeg- inn baö okkur fyrir alla muni aö safna saman varahlutum, sem hann hafði aö láni og voru I blln- um,” sögöu piltarnir tveir. Lögreglan I Arbæ kom strax á staöinn og siöan tveir sjúkrabll- ar. Á meöan rannsóknarlög- reglan rannsakaöi vettvanginn og lögreglumenn geröu skýrsl- ur, var Suöurlandsvegur lokaöur allri umferð fyrir ofan Arbæinn. Fá þurfti kranabll til aö draga rútuna af staönum og krana og vörubil til aö fjarlægja flak amerlska bflsins. —JB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.