Vísir - 14.03.1975, Page 3

Vísir - 14.03.1975, Page 3
Vlsir. Föstudagur 14. marz 1975. 3 Skákkeppni stofnana lokið Þrjár sveitir jafnar í fyrsta sœti Þrjár sveitir urðu jafnar I fyrsta sæti i skákkeppni stofnana, sameiginleg sveit Orkustofnunar og Rafmagnsveitna rikisins, sveit Otvegsbankans og sveit Mennta- skólans i Hamrahlið. Þær fengu 18 1/2 vinning hver. Teflt var á 4 borðum, 7 umferðir eftir Monradkerfi. t B-flokki sigraði sveit Flens- borgar með 19 1/2 vinning. Jafnar i 2.-3. sæti urðu sveit barnaskól- anna I Reykjavik (B-sveit) og sveit Austurfells sf. með 19 vinn- inga. 1 hraðskákkeppni sigraði Útvegsbankinn i A-fíokki með 38 vinninga. Búnaðarbankinn varð i öðru sæti með 35 og sveit Menntaskólans i Hamrahlið i þriðja með 34 vinninga. Tefldar voru 14 umferðir eftir Monrad- kerfi I hraðskákinni. 1 B-flokki sigraði sveit Austur- fells með 43 1/2 vinning . 1 öðru sæti varð Veðurstofan með 43 1/2 einnig, og i þriðja sæti Blaðaprent með 34. —HH Samþykktu mótmœli til vego- mólastjóra Mjklar umræður urðu um þjón- ustu sjónvarpsins og Pósts og sima, þegar Framfarafélag Mos- feilinga hélt sinn fyrsta aðalfund fyrir skemmstu. 1 fréttatilkynningu frá fundin- um segir, að sjónvarpið sjáist frekar illa viðast hvar i Mosfells- sveit og séu ibúarnir að sjálf- sögðu óánægðir með það. Þá finnst Mosfellingum þeir ó- rétti beittir af Pósti og sima. Bæði vegna þes, hve vont er að ná sam- bandi við aðra staði á Stór- Reykjavikursvæðinu og vegna þess, að Brúarland er eina sjálf- virka stöðin á svæði 91 með hærra gjald en aðrar. Fundarmenn ræddu sömuleiðis fram og aftur um framkvæmdir á vegum hreppsins. Þótti þeim hægt miða i gatnagerðar- og hol- ræsaframkvæmdum, að þvi er segir I fréttatilkynningunni. Loks voru samþykkt á þessum fundi mótmæli til vegamálastjóra vegna saltausturs á Vesturlands- vegi. Töldu fundarmenn, aö reynslan hefði synt, að sandur sé sizt verri en salt til vamar hálku á þessum vegi. —ÞJM Hvað hafa Loftleiðir raunverulega borgað í leigu af þotunum? r ■• • * l r , r | * _ *_r_I? » J_ Helgason, einn af forstjórum Flugleiöa. ,,Ég hef þessar tölur þvi miður ekki fyrir framan mig, en þær eru til og frá þeim verður rækilega skýrt á blaða- mannafundi, sem boðað hefur veriö til á morgun föstudag.” Þoturnar, sem um ræðir, eru mjög langfleygar og burðamikl- ar. Þær taka 249 farþega, og voru ófáanlegar um skeið. önnur þessara véla er I flugi um Island milli Bandarikjanna og Evrópu, en hin flýgur með erlendum áhöfnum án viðkomu hér fyrir International Air Ba- hama, sem Loftleiðir eiga. —SHH — maiin eiga ao SKyrasT a maoamannaTunai i aag Loftleiðir hafa borg- að 160 þúsund dollara á mánuði i nærri fimm ár i svokallaða kaup-leigu fyrir hvora DC-8-63 flugvélanna tveggja, sem Flugleiðir h.f. fara nú fram á rikisábyrgð til kaupa á. Þetta kem- ur fram i viðtali við Kristján Guðlaugsson, stjórnarformann Flug- leiða, i Alþýðublaðinu i gær. Kristján staðfesti siðan I við- tali við Visi, að þessi upphæð væri rétt. Þetta væri leigan á mánuði fyrir hvora vél, sem að frádregnum vöxtum rynni upp i kaupverðið, ef af kaupurh yrði. Þetta svarar til þess, að greiddar hafa verið rúmlega niu milljónir dollara inn á hvora vél, þar sem Loftleiðir hafa haft þær á leigu i 5 ár á miðju þessu ári og kaupverðið er upp gefið um ellefu milljónir dollara. Að sögn forráðamanna Flug- leiöa, eru eftirstöðvar af kaup- verði vélanna nú um 6,5 milljón- ir dollara fyrir hvora vél, eða um 13,5 milljónir dollara fyrir báðar, og það er súupphæð, sem farið er fram á i rfkisábyrgð. Miðað við þá leiguupphæð, sem Kristján Guðlaugsson gaf upp, hafa þá um fjórar og hálf mill- jón dollara farið i vexti eða ann- an kostnað af þeim niu milljón- um dollara, sem þarna virðast hafa verið greiddar. „Þessi niu milljóna taia er ekki rétt,” sagði Sigurður hjartabil, sem á að fara til Akur- eyrar, en vegna siðustu gengis- breytinga hækkaði verð bilsins mjög, og skortir nú um 800 þús- und krónur til að endar náist saman. Er búizt við, að bíllinn verði tilbúinn frá verksmiðjunni um næstu mánaðamót. A bingói Eyfirðingafélagsins verða vinningar m.a. Spánarferð- ir og ferðir innanlands, en auk þess ýmsar framleiðsluvörur helztu iönfyrirtækja á Akureyri. Er ótrúlegt anriað en að fréttir beristaf bingóum einhvers staðar I borginni á þriðjudag og mið- vikudag lika, en það er að verða svo, að hægt er að spila bingó ein- hvers staðar i borginni á hverjum degi. Já, jafnvel tvisvar á dag. —ÞJM „Er það ekki gjarnan þannig, að þegar kreppir að fjárhagslega hjá almennningi, eykst alls konar spilafíkn. Bingóæðið, sem nú gengur yfir, er áreiðaniega komið til af þeim sökum”, sagði einn þeirra aðila, sem stendur fyrir bingókvöldum um þessar mundir. Og enn berast fréttir af bingóum. Hér skal sagt frá tveim, sem standa fyrir dyrum. Hið fyrra verður I Sigtúni nk. sunnudagskvöld. Hefur þvi verið gefið nafnið „Kabarett-bingó”, en það er kvennadeild Styrktarfé- lags lamaðra og íatlaðra, sem stendur fyrir þvi. Verðmæti ein- stakra vinninga er frá 10 til 55 þúsund krónur, en á meðal vinn- inga eru þrjár utanlandsferðir. Þá er að nefna bingó Eyfirð- ingafélagsins i Reykjavik, en það verður i Súlnasal Hótel Sögu nk. mánudagskvöld. Rennur allur á- góði af bingóinu tii kaupa á, Félagar úr kvennadeiid Styrktarfélags lamaftra og fatlaftra sýna hér nokkra af vinningunum, sem spilað verður um á bingóinu I Sigtúni n.k. * sunnudagskvöld. — Ljósm: Bragi. Lœkka útsvðrin líka? Til greina kemur, að útsvörin verði einnig lækkuð eins og tekjuskattar til rikisins I tengsl- um við viðræður um kjara- samninga, sem nú standa. Þetta yrði, ef til kæmi, gert með hækkun persónufrádráttar. „Þetta er enn i óvissu,” sagði Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri i viðtali við blaðið, þegar hann var spurður um ráð- gerðan niðurskurð á fram- kvæmdum borgarinnar. Niður- skurður er óhjákvæmilegur vegna slæmrar afkomu borgar- sjóðs og fyrirtækja borgarinnar. „Við biðum eftir að sjá, hvað ríkið sker niður, þvi að það getur skipt miklu um okkar áform. ” Um sumar framkvæmdir gildir, að það eru bæði riki og borg, sem standa undir kostnaðinum. Þvi kveðst borgarstjóri verða að biða þess, hvarrikið skeri. „Það er jafnvel rætt um,” sagði hann, „að að- gerðir rikisins kunni að hafa áhrif á útsvarið, með hækkun persónufrádráttar. Þetta er þvi I óvissu.” —HH Stal skjaldar- merki sendiróðsins Ljóshærður piltur læddist að sendiráði Bandarikjanna að- faranótt fimmtudagsins með stiga, reisti hann upp við aðal- dyrnar, kleif upp stigann og tók-að skrúfa skjaldarmerki sendiráðsins af veggnum. Þetta var um klukkan þrjú um nóttina. Það sást tii ferða piltsins og var lögreglunni gert viðvart. Pilturinn var þó allur á bak og burt, er að var komið, og hefur hvorki hann né skjaldarmerkið fundizt ennþá. Aftur á móti gripu sendiráðsmenn þegar til vara- forða sendiráðsins og á fimmtudaginn var nýtt skilti komið yfir aðaldyr sendiráðs- ins við Laufásveg. —JB Bingó — Bingó — Bingó AGOÐI TIL LAMAÐRA OG FYRIR HJARTABÍL Sigölduvirkjun hefur kostað 2000 milljónir — Energoprojekt hefur ótt í erfiðleikum ,,0kkur þykir mjög leitt, að greiðsludráttur hefur orðið á ýmsum reikningum til is- lenzrka verktaka og viðskiptafyrirtæk ja ”, segja júgóslavnesku verktakarnir við Sig- öldu I tilefni fréttar Visis um ,,skuldseiglu” þeirra. „Astæður fyrir þessu eru ýmsar”, segja Júgóslavarnir. „I fyrsta lagi má geta þess, að frá miðjum desember hafa fram- kvæmdir gengið mjög erfiðlega oghægt vegna óhagstæðs veður- fars. Verðlag og verðbólga i land- inu hefur haft verulegan kostn- aðarauka i för með sér. Og I þriðja lagi getum við nefnt það, að rekstrarlán hefur reynzt mjög erfitt að fá innan- lands og raunar einnig á alþjóða penin gam örkuðum ’ ’. „Það má gjarnan koma fram”, segja Júgóslavarnir ennfremur, „að Energoprojekt hefur þegar keypt tæki, efni, þjónustu og vinnukraft fyrir samtals tvö þúsund milljónir króna vegna Sigölduvirkjunar. Hér er þvi um að ræða mjög lit- inn hiuta heildargreiðslna eða um eitt prósent”. —ÞJM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.