Tíminn - 19.07.1966, Side 1

Tíminn - 19.07.1966, Side 1
161. tbl. — Þriðjudagur 19. júlí 1966 —- 50. árg. Enn eitt banaslysið: BARN DRUKKNAR Á HVAMMSTANGA BS—Hvammstanga, mánudag. Laugardaginn 16. júlí vildi það slys til rétt fyrir liádegi, að dreng ur á öðru ári féll í sjóinn og drukknaði. Þetta var á grunnu vatni. Systkini drengsins þrjú voru að leik úti, er slysið átti sér stað Drengurinn hafði ráfað frá svstkinum sinum. og er þau urðu þiss vör, að hann vantaði. fóru þ->” að leita hans og fundu hann fijótt. Kramhald á bls 14 BÆNDUR KREFJAST STfTTARSAM BANDSFUNDAR UM SÖLUSTÖÐVUN AK.Rvík, 18. júlí. — Héraðsnefndir bænda hinar söniu og héldu fund um sölu- og framleiðslumál landbúnaðarins í Rvk 20. júní s. 1. komu saman til fundar á Akureyri fyrir helgina, og var þar samþykkt einróma eftirfarandi ályktun: „Fulltrúafundur bænda, hald inn á Akureyri 16. júlí 1966 bar sem mættir voru fulltrúar ui Múlasýslum, Þingeyjarsýslum. Eyjafirði, Skagafirði, Austur- Húnavatnssýslu og Árnes- og Rangárvallasýslum, telur með öllu óviðunandi þá níðurstöðu, sem fengizt hefur við kröfura fulltrúafundar bænda í Reykja vík frá 20. júní s- 1. samkvaamt tilkynningu framleiðsluráðs landbúnaðarins, 13. þ. m. Því vill fundurinn endurtaka og árétta kröfur fundarins í Reykjavík til stjórnar stéttar- sambandsins, að boða tafarlaust til aukafundar samtakanr.a, fil þess að taka ákvörðun um sölu stöðvun landbúnaðarvara, eða aðrar aðgerðir. Verði stjórn stéttarsamibands ins ekki við þessum kröfum um aukafund í stéttarsambandina, felur fundurinn framkvæmda nefnd þeirri er fundur héraðs nefnda kaus í Reykjavík að leita þess við fulltrúa Stéttar sambandsins að fylgja þessan kröfu fram.“ Fjórfættur hænuungi GS—Breiðdalsvík, mánudag. Fyrir nokkrum dögum gerðist sá atburður á Gilsá í Breiðdals. vík að þar kom úr eggi hænuungi með fjórar lappir. Aukalappirnar eru heldur visnar. Að öilum líkind um verður hænuunginn sendur suður, svo að sérfræðingar þar megi líta á gripinn. 3SÍLDAR / 40 NET IH—Seyðisfirði, mánudag. Um' helgina komu hingað þrír norskir reknetabátar. Alls eru 13 norskir reknetabátar komnir á ís landsmið, en engir snurpunóta- bátar. Norsku bátarnir hafa ekki fengið neina síld; vitað var um einn bát. sem lagði 50 net á 3ja hundrað míiur út af Langanesi og fékk hálfan stamp og annar lagði 40 net á leiðinni milli Færeyja og íslands og hafði þrjár síldar upp úr krafsinu! Hrafnsungi í l/esturbænum HZ—Reykjavík, mánudag. Blaðam. og Ijósmyndari Tím- ans GE hittu í dag á förnum vegi Lárus Salómonsson, iög- regluþjón, og hélt hann á hrafnsunga. Spurðum við hann hvar hann hefði náð í ungann. — Eg var sendur vestur í bæ til þess að ná í þennan hrafnsunga, sem var að flögra um í görðum. — Hvernig heldurðu, að hafi staðið á fcrðum hans þar? — Það er vitað, að hrafnar verpa ekki i Reykjavík. Þar af leiðandi hefur unginn verið fluttur af manna völdum til borgarinnar. Einnig virðist rétt að álíta, þar sem unginn er flugvana, að fólkið hafi haft hann innilokaðan i nokkurn tíma. — Hvað hyggstu gera við krumma? — Honum verður bezt borg. ið hjá einhverjum dýravernd- ara eða fuglagæzlumanni, sagði Lárus. Urskurður Alþjóðadómstólsins í málinu um Suðvestur-Afríku VÍSAÐI MÁLINU FRÁ! NTB-Haag og Jóhannesarborg, mánudag. Alþjóðadómstóllinn í Haag vís aði á bug ákæru Líberíu og Eþíópíu gegn Suður-Afríku vegna stjórnar Suður-Afríku í Suðvestur-Afríku. Vísaði dóm- s'óllinn ákærunni á bug á þeim forsendum, að hvorki Líbería né Eþiópia hefðu lagalegan rétt til þess að hefja mál út af Suð- vestur-Afríku. Á þennan hátt slapp Alþjóða- dómstóllinn við að dæma um kjarna málsins, nefnilega, hvort aðgerðir Suður-Afríkustjórnar í Suðvestur-Afríku og apartlieid- stefnan, sem er framkvæmd þar, sé f samræmi við umboðið frá þjóðabandalaginu. Dómstóllinn ræddi mál það ekkert, heldur einungis það lögfræðilega atriði, hvort ríkin, sem ákærðu Suður- Afrfku, hefðu lagalegan rétt til þess að taka afstöðu til aðgerða stjórnar Verwoerds f Suðvcstur- Afríku. Dómstóllinn skiptist til helm- inga f afstöðu sinni til málsins, og formaðurinn, Sir Percy Spend er frá Ástralíu, notaði rétt sinn til tvöfalds atkvæðis til þess að fella dómlnn gegn Líberíu og Eþíópfu. Bandaríski dómarinn P. C. Jessup segir i séráliti, að hann harmi að þurfa að lýsa því yfir, að hann telji að úrskurður dómstólsins hafi alls engan laga- legan grundvöll. Framhaid á bls. 14. Geimferð Gemini-10 hófst í gær NTB-Kennedyhöfða, mánudag. Bandaríska geimfarinu Gemini-10 með geimfarana John Young og illichael Collins innanborðs var í kvöld (íslenzkur tími) skotið á loft frá Kennedyhöfða á Florida, og eiga þeir samkvæmt áætluninni að dveljast þrjá sólarhringa úti f geimnum. Geimfararnir eiga að fara lengra út í geiminn en nokk- ur annar maður og einnig eiga þeir að eiga „stefnumót" við tvær eld- flaugar úti í geimnum. Geimfarinu var skotið á loft kl. 20,20 að íslenzkum tíma, eins og áætlað var. 100 mínútum áður var Agena-eldflaug skotið á loft og komst hún á fyrirhugaða braut umhverfis jörðu. Ætlunin er. að Gemini-10 hitti Agena-eldflaugina á fjórða timan- um í nótt að íslenzkum tíma, og verður geimfarið þá yfir Suður- Atlantshafi. Þrem tímum síðar eiga geimfararnir að tengja geim- farið við eldflaugina. Tveim tímum þar á eftir á erf- iðasti þáttur geimferðarinnar að hefjast. Þá er ætlunin að geim- fararnir noti Agena-eldflaugina sem orkugjafa til þess að flytja geimförin. sem verða tengd sam- an, í átt tii annarrar Agena-eld- flaugar, Agena-8. sem er á braut umhverfis jörðu l 393 kílómetra fjarlægð. eða 106 km iengra frá jörðu en Gemini-10. Þetta verður i fyrsta sinri að mannað geimfar notar annað geimfar sem orku- gjafa úti I geimnum. Ef þetta „stefnumót“ tekst. mun það eiga sér stað um 47 klukkustundum eftir að Gemini-10 var skotið á loft. Collins á þá að fara út úr

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.