Tíminn - 19.07.1966, Page 12
n
JÞRÓf T|R
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 19. júlí 1966
Latidslieppniii í frjálsum tþrótfum við SkofSand:
Skotar hafa 19 stig
yfir eftir fyrri dag
Skotar höfðu mikla yfirburði í
iarBfifekepjHitarii í frjálswm íþrótt
um, sem hófst á Laugardatevelli í
gæikvölöi, og það var nokkuð til
í Jwí, sem eirui áhorfandinn sagði:
„Það er tvöfaldur Skoti í hverri
grein”, en alls unnu Skotar tvö-
faldan sigur í sex greinum, og
átíxt sigurvegaí.a í öðrum f jórum,
af þeim 12 greinum, sem keppt
var í. Stigatalan var 62 gegn 43,
Skotum í vil í karlagreinum, og
í kvennagreinunum hlutu skozku
stúlkurnar „fullt hús”, hlutu 16
stig gegn 6.
Það var aðeins í hástökki og
kringlukasti, sem íslendingar si’gr
nðu. Jón Ólafsson hafði gífurlega
yfirburði í hástökkinu og náði á-
gætum árangri, stökk 2.04 metra,
og í kringlukastinu sigraði Þor-
steánn Alfreðsson, og í þeirri
grein vann ísland tvöfaldan sigur.
Áður en keppnin hófst flutti
Ingi Þorsteinsson, formaður FRÍ,
STAÐAN
Urslit- í leikjunum á HM á láugardag urðu þessi. England-Mexicó 2-0 Þýzkaland-Argcntína 0-0 Portúgal-Búlgaría 3-0 Sovétríkin-ftalía 1-0 Staðan í riðlunum er nú þannig:
Riðill 1.: England Uruguay Frakkland Mexíkó 2 1 0 0 2:0 3 2 1 0 0 2:1 3 2 0 1 1 2:3 1 2 0 1 1 1:3 1
Riðill 2: V-Þýzkaland Argentína Spánn Sviss 2 1 2 0 5:2 2 2 1 2 0 2:1 3 2 1 0 1 3:3 2 2 0 0 2 1:7 0
Riðill 3: Portúgal Brazilía Ungverjaland Búlgaría 2 2 0 0 6:1 4 2 1 0 1 3:3 2 2 1 0 1 4:4 2 2 0 0 2 0:5 0
Riðill 4: Sovétríkin ftalía Chile N-Kórea 2 2 0 0 4:0 4 2 1 0 1 2:1 2 2 0,1 1 1:3 1 2 0 1 1 1:4 1
ávarp og bauð keppendur vel-
komna. Síðan lúk lúðrasveitin
Svanur þjóðsöngvana. Mótið
hófst með keppni í spjótkasti, þrí
stökki og 1500 m hlaupi, og alls
staðar unnu skozku fþróttamenn
imir auðveldan sigur. Þeir náðu
yfirleitt sæmilegum árangri, og í
tveimur greinum voru sett ný
skozk met. f þrístökki sigraði
Walker, stökk 14.66 m og í 3000
m hindrunarhlaupi setti W. Ew-
ing nýtt met, hljóp á 9:05.9. Hins
vegar gekk lítið í haginn hjá land
anum. Valbirni misheppnaðist í
110 m grindahlaupinu á næst síð-
ustu grind, og varð síðastur, en
þangað til hafði hann veitt Skot-
uiti harða keppni, og einnig tókst
honum illa upp í spjótkastinu.
Keppninni lýkur í kvöld, en úrslit
í gær urðu þessi:
110 m grindahlaup:
1. Brown 15.5
2. Muxrey 15.6
3. Þorvaldur Benediktsson 16.8
4. Valbjörn Þorláksson 17.2
Þrístökk:
1. Walker 14.66
2. Guðmundur Jónsson 14.46
3. Karl Stefánsson 14.16
4. Seale 12.81
Kringlukast:
1. Þorsteinn Alfreðsson 43.69
2. Erlendur Valdimarsson 43.46
3. Scott 33.85
Hinn keppandi Skota gerði öll
köst sín ógild.
400 m hlaup:
1. Baille 48.6
2. Hodlet 49.4
3. Þorsteinn Þorsteinsson 50.2
4. Þórarinn Ragnarsson 50.8
100 m hlaup:
1. Wood 11.1
2. Ragnar Guðmundsson 11.3
3. Piggott 11.6
4. Einar Gíslason 11.7
Mikill mótvindur var í hlaupinu.
3000 m ^ hindrunarhlaup:
1. Ewing 9:05.9
2. McLatehie 9:43.3
3. Agnar Leví 10:03.6
4. Kristleifur Guðbjörnss. 10:12.4
2.04
1.85
1.85
1.80
62.77
57.04
56.38
44.85
Hástökk:
1. Jón Þ. Ólafsson
2. Kilpatrich
3. Kjartan Guðjónsson
4. Walker
Spjótkast:
1. Mitehell
2. Valbjörn Þorláksson
3. Björgvin Hólm
4. Seale
1500 m hlaup:
1. Ballantyne 3:54.6
2. McLatchie 3:55.4
3. Halldór Guðbjörnsson 4:00.7
4. Þórður Guðmundsson 4:14.8
KONUR.
80 m. grindahlaup:
Brown 12.4
Hutchinson 12.5
Björg Ingimundardóttir 14.6
Halldóra Helgadóttir 14.6
200 m hlaup:
McLeish 26-1
Linaker 26.5
Björg 28.5
Halldóra 29.4
Skozka sveitin sigraði með yfir
burðum í 4x400 m boðhlaupi krala.
Sumarmót í KerímgurfjöHum
Um síðustu helgi var haldið hið
árlega sumarmót skíðamanna í
Kerlingafjöllum. Á laugardag hófst
keppni kl. 2 e.h. í glampandi sól
og sumarhita. Keppt var í svigi
í öllum flokkum. Mótið fór fram
með mestu ágætum og var öll
framkvæmd mótsins til hins mesta
sóma fyrir Valdimar Örnólfsson,
„Kerlingafjallabónda", en mót
þetta var haldið á vegum Fann-
borgar (Skíðaskólans í Kerlinga-
fjöllum). Um kvöldið var kvöld-
vaka í Fannborg og voru þá af-
hent verðlaun fyrir svigmótið. Mik-
ill mannfjöldi var samankominn
í Kerlingafjöllum um þessa helgi
og var dalurinn á að líta sem
ein tjaldborg, en auk þess var skáli
Ferðafélags fslands og Fannborg
þéttskipaðir fólki á öllum aldri.
Á sunnudagsmorguninn átti mót-
ið að halda áfram og var fyrir-
huguð keppni í stórsvigi í öllum
flokkum. En veðurguðirnir gripu
all óþyrmilega í taumana, því er
mönn vöknuðu á sunnudagsmorg-
uninn var komin úrhellisrigning
og hvassviðri svo svigmótinu var
frestað þar til seinna í sumar.
Kvennaflokkur:
Jóna E. Jónsd., ísaf. __ 72.7
Hrafnhildur Helgad„ Árm. 72.7
Guðrún Björnsd.^ Árm. 92.1
Þórunn Jónsd., Árm. 95.9
Áslaug Sigurðard., Árm. 101.0
Kristín Þorsteinsd., K.R. 119.0
Drengjaflokkur:
Tómas Jónsson, Árm.,
62.0
2. Eyþór Haraldss., Í.R. 62.5
3. Haraldur Haraldss., f.R. 68.4
Karlaflokkur:
1. Kristinn Benediktss., ísaf. 75.0
2. Björn Ólsen, Siglufirði 75,9
3. Guðni Sigfússon, f.R. 76.3
4. Haraldur Pálsson, Í.R. 84.5
5. Einar Þorkelsson, K.R. 85.7
5. Georg Guðjónsson, Árm. 85.7
6. Leifur Gíslason, K.R. 86.1
Metí
mílu!
Hinn 19 ára bandaríski
hlaupari Jim Ruyn setti
á sunnudag nýtt heimsmet
í miluhlaupi, hljóp á hrnum
frábæra tíma 3:51.3 mín. —
og er það 2.6 sek- betra en
eldra heimsmetið, sem
Frakkinn Jazy átti. Síðan
Roger Bannister hljóp fvrst
ur manna míluna innan víð
fjórar mín. 1954, hafa meir
en 70 hlauparar hlaupíð inn
an við fjöggurra mínutna
markið — og það yfir 200
skipti. Síðan 1954 hefnr
heimsmetið verið bætt
þannig:
1954 Bannister 3:59.4
Landy, Á 3:58.0
1957 I-botson, Eng. 3:57.2
1958 Elliott, Á. 3:54.5
1962 Snelí, N-S. 3:54.4
1964 Snell, N-S. 3:541
1965 Jazy, Frakkl. 3:53.6
Ruyn setti heimsmetið á
móti í Berkley í Kalíforntu,
sem kom í stað landskeppn
innar við Pólland, seim Pól-
verjar hættu við vegna hern
aðar Bandaríkjamanna í Vi
et-nam. Frábær árangur náð
ist í mörguim greinum. Art
Waltoer setti bandarískt met
í þrístökki 16.65 m. A1 Oet-
er kastaði kringlu 62.65 m.
Poul Wilson stökk 5.03 m. i
stangarstökki og heimsmet-
hafinn Bob Seagren sömu
hœð. Ron Larrieu hljóp 10
km. á 28:54.1, sem er bezti
tími sem náðst hefur í
Bandaríkjunum á þeirri
vegalengd, og bandarísk úr-
valssveit hljóp 4x100 m. á
39.1 sek., annar bezti tími,
sem náðst hefur.
Akureyringar náðu stigi af KR
r
Tvö heimsmet í sundi
NTB—Moskvu, sutmudag.
Tvö ný heimsmet, eitt Evr-
ópumet, tvö norsk met, fjögur
sovézk og eitt pólskt voru sett
á alþjóðasundmóti í 50 m laug
við Lenin-leikvanginn. Hin 13
ára Irina Posdyakova setti
heimsmet í 200 m bringusundi
synti á 2:43,0 mín og bætti
met Ólympiumeistarans Galinu
Prozumenschikova um 1.6 sek.
Meistarinn synti á 2:44,3 mín,
en setti heimsmet í 100 m
bringusundi á 1:15.7 mín. Evr
ópumetið var sett í 400 m
skriösundi af Belits-Geiman, So
vét, sem synti á 4:14,1 mín.
Nelson, USA, varð annar á
4:18,3 og Norðmaðurinn Ulf
Gustavsen fimmti á 4:23,3,
sem er norskt met.
Hinn frægi Don Sehollander
keppti á mótinu og sigraði í
100 m skriðsundi á 52,3 sek.,
en Ilyichev setti sovézkt met
er hann varð annar á 53,5, á
undan Reryck, USA, sem synti
á 53.6. Sehollander sigraði einn
ig í 200 m. skriðsundi á 1:57.8
Ilyichev setti aftur sovézkt met
synti á 1:58,3 og Nelson, USA.
varð þriðji á 1:59.4.
Islandsmeisturum KR tókst
ekki að sigra Akureyringa í 1.
deildarkeppninni á laugardag þeg
ar liðin mættust á Laugardalsvell
inum. En þeir geta engum nema
sjálfum sér um kennt. Strax í
byrjun fengu KR-ingar fjögur
mjög góð tækifæri til að skora úr
— en ekkert heppnaðist, meira
að segja Eyleifur spyrnti yfir, þeg
ar enginn var í markinu. Lið,
sem fer þannig með tækifærin, get
ur ekki búizt við sigri — enda fór
svo undir lokin, að KR-ingar
máttu þakka fyrir að hljóta annað
stigið.
Þegar rúmar þrjár mín. voru til
leiksloka og staðan var 1:1 náðu
Akureyringar góðu upphlaupi.
Innherjinn Sævar Jónatansson
fékk knöttinn á vítateigslínu og
skoraði með ágætu skoti efst í
markhornið. 2:1 fyrir Akureyri
og sigurinn virtist i höfn, en KR
ingarnir gáfust ekki upp og réttri
mínútu fyrir leikslok brauzt Þórð
ur Jónsson laglega í gegn og sendi
knöttinn til Eyleifs, sem tókst *ð
skora.
í heild var leikurinn lélegur.
KR var meira í sókn í fyrri hálf-
leik en uppskeran var aðeins eitt
mark. sem Gunnar Felixson skor
aði rétt fyrir hlé. Akureyringar
jöfnuðu á 18. mín.. þegar dómar-
inn, Valur Benediktsson. dæmdi
vítaspyrnu á KR, og Guðni Jóns-
son skoraði örugglega. Hins veg-
ar sleppti hann Akureyringum við
mjög áberandi víti litlu síðar.
Hörður Markan brauzt í gegnum
vörn Akureyringa og átti mark-
vörðinn einan eftir, þegar hon
um var brugðið illilega aftan frá.
En dómarinn lokaði algerlega aug
unum fyrir þessu áherandi broti.
Eftir þennan leik er staðan þann
ig í mótinu:
Valur
Keflavík
Akranes
KR
Akureyri
Þróttur
4 2 11
4 2 11
4 12 1
4 12 1
5 12 2
3 0 2 1
8:3
9:4
5:5
5:5
5:12
3:6
★ Á sunnudaginn léku Kefl
víkingar við þýzka liðið Sport
club 07, sem hér er á vegum
þeirra, og sigruðu í skemmri-
legum leik með 5-2 á Njarðvík
urvelli- í hálfleik var staðan
2-2. Ungur piltur, Einar Gunn
arsson, vakti mikla athygli í
þessum leik, en hann skoraði
þrennu fyrir lið sitt. Hin mörk
in skoruðu Jón ólafur og Jón
Jóhannsson. Þýzka liðið, sem
' skipað er áhugamönnum, iék
oft nokkuð góða knattspymu,
en markvarzlan var mjög slæm
í leiknum. Á morgun leikur lið
ið við úrvalslið landsliðsnefnd-
ar á Laugardalsvelli.
if Hin 15 ára gamla sundkona
Patty Careto setti á laugardag
inn nýtt heimsmet í 880 yards
skriðsundi, þegar hún synti
vegalengdina á 9:52.3 mín. á
móti í Los Angeles. Fyrra met
ið átti hiún sjálf, 9:53.2 mín.
•k Wemer von Moltke setti
um helgina nýtt, þýzkt met i
tugþraut á móti í Hamm. Hann
hlaut 7961 stig, sem er aðeins
17 stigum minna en Evrópumet
Juri Kutenko, Sovétríkjunum,
og sett var 1961- Fyrra metiö
áttí Manfred Kock og var það
7950 stig. — Árangur Werners
í einstökum greinum var þessi.
10.7 í 100 m. 7-31 í langstökki,
15.11 í kúluvarpi, 1.81 i há-
stökki, 50.6 í 400 m. 14.9 í 110
m. grindahlaupi, 50.97 í kringlu
kasti, 4.30 í stangarstökM, 64.
23 í spjótkasti og 4:45.4 mín. í
1500 m. hlaupi.