Tíminn - 19.07.1966, Síða 16
Þjóðhátíðin íEyjum
verður 5.-7. ágúst
Þjóðhátíð Vestmannaeyja verð-
ur haldin dagana 5. 6. og 7. ágúst
í Herjólfsdal. Að þessu sinni stend-
ur íþróttafélagið Þór fyrir hátíð-
inni og er undirbúningur þegar
hafinn. Framkvœmdir eru að hefj-
ast í Dalnum og verður hann fag-
urlega skreyttur að venju. Bál-
köstur mikill verður á Fjósakletti.
Dagskrá verður vönduð og fjöl-
breytt, m.a. bjargsig, íþróttir hvers
konar og kvöldskemmtanir. Þar
koma fram óperusöngvararnir
Svala Nielsen og Guðmundur Jóns
son, leikararnir Árni Tryggvason
»g Klemenz Jónsson, Samkór Vpst
mannaeyja syngur, Lúðrasveit Vest
mannaeyja leikur og auk þess verð
ur margt fleira til skemmtunar.
Dansað verður á pöllum þrjár
nætur í röð, meðan bálið brenn-
ur á Fjósakletti og skrautflugeld-
um er skotið.
Fyrir nýju dönsunum leika hin-
ir vinsælu „Logar,“ en fyrir dömlu
' dönsunum leikur hljómsveitin
i „Nemo“ frá Akureyri.
J Stórt veitingatjald verður í
Dalnum, þar sem seldar verða alls
'konar veitingar. Hátíðargestir fá
i afslátt af fargjöldum Flugfélags
íslands, sem gildir frá 1. til 10.
ágúst. Kynnir Þjóðhátíðarinnar
'verður Stefán Árnason, frv. yfir-
I lögregluþjónn.
Forseti Luxemborgarþings og ráðu-
neytisstjóri koma hingað
EJ-Reykjavík, mánudag.
Á morgun, þriðjudag, koma hing
að til lands í boði Loftleiða Victor
Bodson, forseti þings Luxembourg
ar, og Pierre Hamer, ráðuneytis-
stjóri, ásamt eiginkonum. Munu
gestirnir dvelja hér til sunnudags,
og m.a. heimsækja Grænland.
Victor Bodson hefur gegnt
störfum sem ráðherra í Luxem-
bourg um langt árabil, og árið
1964 varð hann forseti þingsins.
Pierre Hamer hefur gegnt ýmsum
Framhald a ois 14
TAUGAVEIKI I
ÞÝZKALANDI
FB-Reykjavík, mánudag.
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá landlækni um
að vart hafi orðið taugaveiki í
Þýzkalandi: Borizt hefur tilkynn-
ing um, að taugaveiki hafi komið
upp í nágrenni Bonn í Þýzkalandi.
27 manns hafa þcgar veikzt, og
27 tilfelli cru grunuð. Mönnum,
sem hafa í hyggju að ferðast til
Bonn eða nágrennis, er ráðlagt
að láta bólusetja sig gegn tauga-
veiki.
86 ára gömul kona í göngu-
ferð yfir Berufjaröarheiði
Tveir bílar fóru út af
Vatnsendavegi í gær
EN ÞAR ÞURFTU MENN AÐ AKA VEGNA MALBIKUNAR HAFN-
ARFJARÐARVEGAR.
HZ-Reykjavík, mánudag.
Malbikun Hafnarfjarðarvegar
hófst á föstudaginn og er nú
í fullum gangi. Nýtt slitlag, 6
sm þykkt verður sett á veginn
frá gatnamótunum við Álfta-
nesafleggjara og inn að Kópa-
vogsbrú. Það er Vegagerð rík-
isins, sem stendur fyrir verk-
inu, en íslenzkir Aðalverktakar
sjá um framkvæmd. í dag var
unnið að vegakaflanum frá Silf
urtúni að Arnarnesi og var eng
um leyft að aka um veginn
nema strætisvögnum og vöru-
og þungabifreiðum. Hinir urðu
að aka upp á Vatnsenda og
F'ramhald á Ols. (4
Malbikunarflokkur íslenzkra ASalverktaka leggja slitiagið á Hafnarfjarðarveginn hjá Arnrnesinu.
Verkfræðingurinn er að reikna út meðalþykkt slitlagsins til vinstri. Tímamynd: HZ
Saltað var af
krafti á Raufar-
höfn um helgina
HH-Raufarhöfn, mánudag. i Hér er mjög gott veöur, og
Nú er mjög líflegt um að litast komst hitinn upp í 22 stig í dag.
á söltunarstöðvunum. Söltun hófst1
ÞS-Djúpavogi, mánudag.
Húfreyjan í Kelduskógum í
Berufirði, sem er 66 ára gömul
og 17 barna móðir, fór i gær í
gönguferð yfir Berufjarðarheiði,
sem nær um 600 m hæð. Hús-
af krafti fyrir hádegi í gær og
stóð yfir með hvíldum í gærkvöld
og nótt, cn í morgun var saltað
á öllum stöðvunum.
Síldin er stór og feit, og nýting
hennar betri en verið hefur. Afla
hæsta skipið sem kom hingað var
Gísli Áirni með 250 lestir og voru
saltaðar úr honum um 1000 tunn-
ur.
Mest af síldinni, sem fer lík-
lega á Svíþjóöarmarkað, er krydd
söltuð.
Allir sem vettlingi geta valdið
vinna við síldina. Þorskafli er
freyjan var í fylgd með manni enn góður og lét kaupfélagið loka
sínum, sem er á líkum aldri, og | skrifstofu sinni og sendi skrif
var erindi þeirra að heimsækja j stofumennina tvo til að verka
dóttur sína er býr í Flögu í Breið-; þorskaflann!
dal. Gönguferðin tók fjóra tíma,
og þótti fólki hér um slóðir þetta
vel af sér vikið.
Reykjaborg kom með ísaða
síld til Seyðisfjarðar.
IH, Seyðisfirði, mánudag.
í gærkvöld komu tveir bátar
með síld til Seyðisfjarðar, Reykja
borg með 800 tunnur og Arnar
með 1100 tunnur. Síldin sem
Reykjaborg kom með hafði verið
ísuð um borð og tókst að salta
um 400 tunnur af aflanum hjá
Ströndinni og þykir það mjög
sæmileg nýting eftir svo langa
siglingu. Fisikiðjan saltaði á 3ja
hundrað tunnur af afla Arnars.
í dag er hér mjög gott veður.
lítil sól en mikill lofthiti. Á
þriðja tímanum í dag var 24 stiga
hiti og þá sólarlaust, og er það
óvenjulega mikill hiti.
Framh. á bls. 14.
Norrænt bruna-
varðamót
sett í gær-
morgun
HZ-Reykjavík,mánudag.
Norrænt brunavarðamót var
sett í slökkvistöðinni nýju
í morgun, og mun það
standa í Reykjavík fram á
föstudag. Myndin hér að neð
an er frá mótinu. Geir Hall
grímsson, borgarstjóri setti
mótið með ávarpi, einnig
fluttu ávörp Tryggvi Ólafs-
son, formaður Brunavarðafé
lags íslands og fulltrúar er
lendra gesta. Að ávörpun-
um loknum flutti Eirar Ey-
fells, verkfræðingur erindi
um brunavarnir í Reykjavik.
Erlendii þátttakendur
eru 32 talsins, 6 frá an-
mörku, Finnlandi og Nor
egi, 12 frá Svíþjóð og 2 >gest
ir frá Bretlandi. Fastir full
trúar íslands eru 3, en auk
þess er öllum meðlímum
Brunavarðafélags Reykja-
Framhald á bls. 14
IIÉRADSMÓT FRAMSQKNAR-
MANNA Á SNÆFELLSNESI
Verður háldið að Breiðabliki
sunnudaginn 24. júlí n. k. og
hefst kl. 9. Ávörp flytja Jón
SVaftason alþingismaður og Gunn
ar Guðbjartsson, Hjarðarfelli. Æv-
a- Kvaran Icikari skemmtir, og
F íóið syngur. Að lokiun leikur
h’jómsveitin Straumar fyrir dansi. Gunnar Jón