Vísir - 17.04.1975, Side 6
6
Visir. Fimmtudagur 17. april 1975.
vísrn
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Bírgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
y Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessön
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Áskriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Misnotaður þjóðarauður
Nýlegar tölur um þjóðarauð íslendinga eru (
ekki til. En með hliðsjón af verðbólgu siðustu ára )
og árlegri fjárfestingu má gizka á, að hann nemi \
nú um 400 milljörðum króna á núverandi verð- í
lagi. Er þetta um tvær milljónir króna á hvert (
mannsbarn. )
Eftir skiptingu árlegrar fjárfestingar mætti \
ætla, að helmingur auðsins eða 200 milljarðar séu (
i atvinnutækjunum, fjórðungur eða 100 milljarðar /
i ibúðarhúsnæði og f jórðungur eða 100 milljarðar )
i opinberri eigu. (
Þetta hljóta að vera mjög ónákvæmar tölur, en /
gera samt sitt gagn. Til gamans má geta þess, að )
samkvæmt þeim nemur þjóðarauðurinn á hvert \
mannsbarn að meðaltali einni milljón króna i at- (
vinnutækjum, hálfri milljón i ibúðarhúsnæði og /
hálfri milljón i opinberum stofnunum. )
Nýjustu tölur um árlega fjárfestingu eru frá (
árinu 1973. Þá nam fjárfesting i atvinnuvegunum, (
ibúðarhúsnæði og opinberum mannvirkjum þeim (
hlutföllum, sem að ofan greinir. Höfðu hlutföllin \
þá haldizt svipuð i mörg ár. (
í fyrra varð á þessu breyting, einkum vegna of- (
fjárfestingar hins opinbera á kostnað almenns )
ibúðarhúsnæðis. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- \
unar voru þá fjárfestir 20 milljarðar i atvinnulif- (
inu, 10 milljarðar i ibúðum og 13 milljarðar hjá (
hinu opinbera. )
Erfitt er að ræða um framleiðni eða arðgjöf \
þeirrar fjárfestingar, sem fer i mannvirki hins (
opinbera og ibúðir almennings. En hinar grófu (
tölur, sem hér hafa verið birtar, benda til þess, að )
200 milljarða auður i atvinnulifinu framleiði 20 (
milljarða á ári til fjárfestingar i atvinnulifinu. (
Þetta gæti bent til þess, að hringrás fjármagns- )
ins i verðmætasköpuninni á íslandi taki um tiu \
ár. Hver króna i þjóðarauðnum sé um tiu ár að (
búa til nýja krónu til viðbótar i þjóðarauðinn. (
Erlendis eru mörg dæmi um, að fjárfesting sé )
þrjú til fimm ár að skila jafnvirði sinu til baka til \
nýrrar fjárfestingar. Bankar erlendis gera oft þá (
kröfu, að fjárfestingarfé skili sér til baka á fimm (
árum. Þeir krefjast nákvæmra áætlana um arð- )
gjöf fyrirhugaðra framkvæmda, leiðrétta þær og (
lána siðan i þá fjárfestingu, sem þeir telja gefa af (
sér skjótastan arð. )
Ef við næðum þvi marki, að fjárfestingarfé \
skilaði sér til baka á fimm árum i stað tiu, hefð- (
um við brátt tvöfalt meira fjárfestingarfé til um- (
ráða til uppbyggingar islenzks atvinnulifs. Á nú- )
verandi verðlagi væri árleg fjárfesting þá 40 \
milljarðar i atvinnulifinu i stað 20, eins og nú er. (
En hér er handbæru fjármagni ekki beint i arð- (
bærasta farveg. Það er þvert á móti lánað með )
sjálfvirkum hætti um kerfi stofnlánasjóðanna og (
annarra framkvæmdasjóða til atvinnuþátta, sem (
hafa pólitiskan forgang. Arðsemiskröfur skipta ))
engu máli i þessu viðamikla áveitukerfi. \
Litt arðbærir og óarðbærir forgangsatvinnu- (
þættir hafa ótakmarkaðan aðgang að háum lán- (
um með lágum vöxtum til langs tima og með )
rikisábyrgð, ef þarf. Þeir fá styrki', uppbætur og \
niðurgreiðslur og njóta innflutningsbanns. Þeir (
fá jöfnunargjöld, tekjutryggingu og sjóðamilli- (
færslur. )
Þetta er skýringin á þvi, af hverju við höfum (
aðeins 20 milljarða á ári til fjárfestingar i at- (í
vinnulifinu, en ekki 40, eins og við gætum haft, ef (/
pólitisk forréttindi vikju fyrir markaðslögmál- )i
um. —JK ((
Volkswagenverk-
smiðjurnar, sem eitt
sinn voru eitt arðbær-
asta fyrirtæki Vestur-
Þýzkalands, eiga nú i al-
varlegum vandræðum
með einn fimmta þeirra
133.000 manna, sem við
verksmiðjurnar hafa
starfað, en sjá núna
fram á uppsagnir.
,,Sannleikurinn verð-
ur ekki umflúinn leng-
ur”, skrifaði eitt af
helztu blöðum Þjóðverja
um siðustu helgi.
„Volkswagen verður
ekki bjargað, nema þær
aðlagi sig minnkandi
sölu”.
,,En er það nú allur sannleikur-
inn”, skrifar Frankfurter Alle-
gemeine Zeitung skömmu á eftir.
Meðan mönnum sýndist i fyrstu
sem örðugleikar verksmiðjanna
stöfuðu einvörðungu af sölu-
tregðu á útflutningsmörkuðunum
og almennum samdrætti i orku-
kreppunni, þá hafa æ fleiri leitað
sakarinnar hjá öðrum siðan.
Nefnilega hjöllunni sjálfri.
Eftir að hinn bjöllulaga Volks-
wagen lagði undir sig heiminn og
för jafnvel fram úr vinsældum
,,Tin Lizzy” Henry Fords, þá hafa
vinsældir hans farið dvinandi og
til eru þeir, sem kalla hann orðið
gamaldags.
Volkswagen var hannaður fyrir
40 árum, en fjöldaframleiðsla
hófst á honum skömmu eftir
seinni heimsstyrjöldina og hefur
haldið áfram til þessa dags.
Framleiðendurnir eru stoltir af
þvi, að þeir hafa ekkert breytt
ytra útliti bilsins að ráði, þótt þeir
hafi framleitt auðvitað aðrar teg-
undir að auki, skyldar bjöllunni,
en gjörólikar um margt.
Það átti ekki litinn þátt i vel-
gengni verksmiðjanna um tima,
að þessi stefna þeirra sparaði
þeim þaðfé, sem t.d. bandariskir
bilaframleiðendur lögðu i útlits-
breytingar á sfnum bilum ár frá
ári.
Nú hafa framleiðendurnir verið
sakaðir um skammsýni fyrir að
byggja rekstur sinn á einni gerð
bifreiðar aðallega og að hafa látið
undir höfuð leggjast að hanna
þróaðri arftaka hans.
Meðan aðrar bilaverksmiðjur i
Vestur-Þýzkalandi, eins og Ford-
og Opelverksmiðjurnar banda-
risku, B.M.V. i Bæjaralandi og
Mercedes Benz segjast vera að
rétta smám saman aftur úr kútn-
um eftir oliukreppuna, þá verða
Volkswagenverksmiðjurnar enn
að láta vinna styttri vinnuviku,
sem tekin var upp, þegar mest
kreppti að.
Ford og Opel skýrðu frá þvi
fyrr I mánuðinum, að þeir væru
að bæta við sig fólki, hundruðum
nýrra verkamanna, til þess að
fullnægja eftirspurn á heima-
markaði. En Volkswagenverk-
smiðjurnar greindu frá þvi i
fyrradag, að þær ætluðu að fækka
við sig um 25.000 manns.
Toni Schmucker, forstjóri,
sagöi, að fyrirtækið ætlaði að sjá
til um sinn og ganga úr skugga
um, hversu marga væri hægt að
setja á eftirlaun og hve margir
mundu ganga að þvi að segja upp
af sjálfsdáðum með þvi að fá
nokkurra mánaða kaup greitt um
leið. — Þessar fyrirhuguðu upp-
sagnir hafa legið i loftinu nokk
um tima og orðið pólitiskt hita-
mál. Starfsmenn verksmiðjanna
hafa staðið að mótmælagöngum,
og málið hefur blandazt inn i
kosningaundirbúninginn i iðnað-
arhéraðinu Norður-Rin og West-
falen, en þar eiga kosningar að
fara fram eftir mánuð. Aðalmál
kosninganna er atvinnuleysi.
Eins og Volkswagen urðu Ford
og Opel að draga úr framleiðsl-
unni og stytta vinnuvikuna og
greiða þvi starfsfólki uppbætur,
sem segja vildi upp. En öfugt við
Ford og Opel, þá treystu verk-
smiðjurnar i Wolfsburg meira á
útflutninginn. I fyrra voru 820.977
framkvæmdastjórn fyrirtækisins
um áætlun hans að reisa sam-
setningarverksmiðju Volkswagen
i Bandarikjunum.
Það féll i hlut Schmuckers i
janúar að láta i veðri vaka, að
verksmiðjurnar kynnu að neyðast
til þess að segja upp fjölda starfs-
t orkukreppunni hlóðust viða upp óseljanlegir bilar. Loks núna eru
sumir, en ekki allir bilaframleiöendur farnir að laga sig að nýjum aö-
stæðum og rétta úr kútnum.
bilar seldir á erlendum mörkuð-
um, en aðeins 334.515 heima fyrir.
Útflutningur Volkswagens
minnkaði um 20% i fyrra. A
Bandarikjamarkaði — stærsta
markaði Volkswagen — dróst sal-
an saman um 29,8%. Allt þetta
leiddi til 31,862 milljón króna taps
hjá verksmiðjunum.
Fyrsta skref Toni Schmuckers
til að mæta tapinu var að greiða
hluthöfunum (800.000) engan arð.
— Schmucker tók við stjórn fyrir-
tækisins af Rudolf Leiding, sem
stýröi þvi um þriggja ára bil, en
lét af störfum heilsu sinnar
vegna, eftir þvi sem sagt var.
Ýmsir töldu þó, að uppsögnin
hefði verið vegna ágreinings við
manna.
Fyrirtækið rekur sex
Volkswagenverksmiðjur og fjór-
ar Audi — N.S.U.-verksmiðjur,
sem það keypti 1969.
Eftir margra mánaða óvissu,
verkföll og mótmælaaðgerðir var
starfsfólki Volswagen — alls um
133.000 manns — skýrt frá þvi
núna I vikunni, að um 100.000
þeirra gætu verið viss um að
halda starfi sínu. Hin 33 þúsundin
voru þá I hættu, og nú hefur verið
tilkynnt, að sennilega verði um 25
þúsund þeirra látin fara.
Það urðu margra vikna viðræð-
ur, áður en trygging fékkst fyrir
þvi, að engri verksmiðjunni yrði
lokað.
Tekst honum að ná vinsældum „bjöllunnar”? VW Golf, billinn, sem
Volkswagenverksmiðjurnar settu nær allt sitt traust á, enn er allt I
óvissu með framtiðina, á meðan aðrar bilaverksmiðjur bæta við sig
mönnum.
Uppsagnir hjá
Volkswagen
Umsjon: