Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 12

Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 12
12 Visir. Fimmtudagur 17. april 1975. Laus staða Dósentsstaöa í svæfingafræöi viö læknadeild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Staöa þessi er hlutastaöa og fer um veiting hennar og tilhögun samkv. ákvæöum 2. gr. laga nr. 67/1972, um breytingu á lögum nr. 84/1970, um Háskóla Islands, m.a. aö þvi er varöar tengsl viö sérfræöistörf utan háskólans, Gert er ráö fyrir, aö væntanlegur kennari hafi jafnframt starfsaöstööu á sjúkrahúsi I Reykjavik. Umsóknarfrestur er til 10. mai n.k. Laun samkv. gildandi reglum um launakjör dósenta i hluta- stööum i læknadeild I samræmi viö kennslumagn. tJmsækjendur um dósentsstööu þessa skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmiöar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Menntamálaráðuneytið, 8. april 1975. Lausar stöður Eftirtaldar dósentsstöður I verkfræöiskor verkfræöi- og raun- vlsindadeildar Háskóla íslands eru lausar til umsóknar: Dósentsstaöa I vélaverkfræöi.Dósentinum er ætlaö aö starfa á sviöi rekstrarfræöi. Dósentsstaöa I rafmagnsverkfræöi. Fyrirhugað er aö rann- sóknir og aðalkennslugreinar veröi á sviöi eins eöa fleiri þessara greinaflokka: a) slmafræðigreina, b) merkjafræöigreina og c) rásafræðigreina. Dósentsstaöa I byggingarverkfræði. Fyrirhugaö er aö rann- sóknir og aöalkennslugreinar veröi á sviöi tveggja eða fleiri þessara greinaflokka: a) efnisfræöi byggingarefna, b) húsa- geröar og c) hagnýtrar buröarþolsfræöi. Umsóknarfrestur er til 15. mal 1975. Laun samkv. launakerfi starfsmanna rlkisins. Umsækjendur um dósentsstööur þessar skulu láta fylgja um- sókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unniö, ritsmlöar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Tvær slöasttöldu dósentsstööurnar, I rafmagnsverkfræöi og byggingarverkfræði, voru áöur auglýstar I Lögbirtingablaöi nr. 19/1975 meö umsóknarfresti til 1. þ.m. en umsóknarfrestur er hér meö framlengdur til framangreinds tlma. Menntamálaráöuneytið, 14. april 1975. VÍSIR VÍSAR Á VIÐSKIPTIN Smurbrauðstofan Wjálsgötu 49 — Simi 15105 VÍSIR Norðurlandamót í hœttu vegna verk- falls flugmanna! — Lyftingamenn hafa miklar áhyggjur „Þvi er ekki að neita, aö Norðurlandamótiö okkar, sem á að fara fram i Laugardalshöllinni 26. og 27. þessa mánaðar, er I yfirvofandi hættu, ef til verkfalls flugmanna kemur aðfaranótt fimmtudagsins” sagði Ómar Úlfarsson formaður Lyftinga- sambands tslands, þegar viö töluðum viðhann um þetta mál i gær. „Erlendu keppendurnir og þeirra fólk — samtals fimmtiu manns — ætluöu að koma til landsins frá Kaupmannahöfn á föstudaginn. Ef af verkfallinu veröur, er ekkert flug fyrr en eftir helgi, og þá er ekkert víst að þeir geti komið, og þá höfum við ekk- ert hús til að keppa i. Eins og málin standa nú, vitum við ekkert hvernig þetta fer — eða hvort nokkuð verður af þessu móti. Það verður okkur óbætan- legt tjón, ef það fellur niður, en við ætlum að vona i lengstu lög, að til þess komi ekki.” Um næstu helgi á að fara fram i Laugardalshöllinni Norðurlanda- mót I júdó — nánar verður sagt frá þvi I blaðinu á morgun — en þar er engin hætta á ferðum, þvl að keppendurnir verða farnir utan, þegar til verkfallsins kemur á miðvikudagskvöldið. Júdómenn geta þvi andað léttar, en lyftinga- mennirnir verða að svitna þar til séö verður, hvort af þessu verk- falli verður eða ekki. Ólafur Unnsteinsson frjáls- Iþróttaþjálfari, sem starfar i Danmörku, hefur sent okkur upp- lýsingar um þá fimm Dani, sem keppa á Norðurlandamótinu i lyftingum. Þá þekkir hann mjög vel, þar sem hann hefur æft lyftingar með sumum þeirra s.l. tvö ár. ólafur hafði þetta um Danina að segja: „John Schou keppir I yfir- þungavigt, og á bezt 320 kg i tvi- þraut. Preben Krebs á 330 kg I þungavigt. Þeir ætla báðir að sigra Islendinga í sinum flokkum. Erling Johansen á 300 kg i milli- þungavigt. Varny Bærntsen 270 kg og Jakob Hansen 220 kg i fjaðurvigt. Ég hef á liðnum tveimur árum æft með lyftingafélginu „Gotha” hér I Höfn. Félagið varð Dan- merkurmeistari I félagakeppni i lyftingum um siðustu helgi. John Schou og Jakob Hansen keppa fyrir Gotha. John er jafnframt þjálfari og geta Islenzkir lyftinga- menn mikið af honum lært. Preb- John Schau, 111 kg. keppir I yfirþungavigt á Noröurlandamótinu — Hann á safn af bronzverðlaunum frá NM, en sagði Ólafi Unnsteinssyni, að hann ætlaði sér að sigra Hrein Halldórsson! en Krebs frá Álaborg þjálfaði ég fyrir nokkrum árum og þá stökk hann 6.70 í langstökki. Nú er hann bezti lyftingamaður Dana og kast ar 15.00 m í kúluvarpi. Þvi miður vantar Benny Risnæs i hópinn. Hann á 325 kg í þungavigt á liðnu ári. Hann er jafnframt Kaup- mannahafnarmeistari I kúluvarpi og sleggjukasti og keppir fyrir Atletikklubben af Köbenhavn 73.” — klp — Jafntefli og Mark nýliðans. Ted MacDougall, Norwich, fimm minútum fyrir ieikslokf landsleik Svia og Skota f Gautaborg I gær- kvöldi, bjargaði skozka liðinu frá tapi. Marka-Ted lék þarna sinn fyrsta landsleik. Sviar byrjuðu betur og rétt fyrir hlé skoraði nýliðinn Thomas Sjöberg eftir sendingu Ralf Edström. Sjöberg var rangstæður — 2-3 metra innan várnarinnar og var það álit sænskra sem skozkra blaðamanna. Þegar 25 min. voru eftir komu þeir Billy Hughes, Sunderland — fyrsti landsleikurinn — og Derek Johnstone, Rangers, I stað Lou Macari, Manch. Utd. og Graham Souness, Middlesbro, og skozka liöið sótti meira I lokin. Bezti maður Skotlands, Bobby Robin- son, Dundee, átti stangarskot áður en Ted skoraði. Aður hafði Derek Parlane, Rangers, komið knettinum i sænska markið, en sigur markið var dæmt af. MacDougall fór illa með gott tækífæri — átti einn I höggi við markvörðinn — svo og Sjöberg, sem hitti ekki knöttinn I opnu færi. A undan aðallandsleiknum léku landslið Sviþjóðar og Skotlands, leikmenn 23ja ára og yngri, á sama velli. Skotland sigraði. Tommy Craig, Newcastle, skoraði tvivegis fyrir skozka liðið en Jan Sjöberg jafnaði á 54.min. Crai gskoraði á 42. og 68. min. og Skotar sigruðu þvi með 2-1. hslm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.