Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Fimmtudagur 17. april 1975. cTVIenningarmál TÓNABÍÓ • „Mafian og ég” Leikstjóri: Iienning örnbak Aðalhlutverk: Pirch Passer. Allt í sömu hrollvekjunni Leitið og þér munuð finna. Dirch Passer I einu af gervum sinum i myndinni „Mafian og ég”. A litiu myndunum á siðunni hér við hliöina má sjá nokkur af gervum hans til viöbótar. Bregður sér í 11 gervi Dirch Passer hafði ekki leikið i kvikmynd i tvö ár þegar hapn tók að sér hlutverk Viktors i myndinni „Mig og Mafiaen”, sem Lise Nörgaard hafði samið fyrir hann. Það er eins og Passer hafi viljað bæta upp fjarveru sina og i þessari einu mynd sjáum við hann i ellefu mismunandi gervum. Taka myndarinnar stóð i tvo mánuði og á öllum þeim tima fékk Passer aðeins tvo fridaga. Hann er með i næstum hverju einasta atriði og stöðugt er hann að skipta um andlit. Hann bregður sér nokkrum sinnum i gervi kvenna, einnig i gervi auðmanns, lögfræðings, þjóns, fréttaljósmyndara, hers- höfðingja og kaþólikka. Atburðarásin er hröð og áhorfendur standa allan timann á öndinni af hlátri. En maður fær aldrei of stóran skammt af Dirch Passer. Það er hreint ótrúlegt, hvað þessi leikari get- ur brugði- upp margvislegum svipbrigðum. „Mig og Mafiaen” er gerð árið 1973, þegar myndin um Godfather hefur slegið i gegn. Hér fer Passer með hlutverk Viktors, sem vinnur við að pretta náungann. Eitt skiptið gengur hann of langt: Hann fer að troða mafiunni um tær. Hann hafði haft 10 milljónir sænskra króna út úr ítala, sem möglunarlaust hafði greitt þá upphæð fyrir að fá Carl Gustaf fyrir tengdason. Viktor hefur einig orðið fyrir þvi óláni að svindla á „Klumpinum,”, sem er dansk- ur stórbófi. Sá vill umsvifalaust myrða Viktor, en morð- tilraunirnar mistakast hver af annarri, þvi útsendarar mafiunnar eru jafnan á næstu grösum i þeim tilgangi að vernda Viktor. Mafian vill nefnilega ógjarnan missa Viktor undir græna torfu, áður en þeim hefur tekizt að endur- heimta 10 milljónirnar, sem 'áður eru nefndar og komnar voru inn á bankareikning i Sviss. Félagi Viktors i svindlinu hafði lagt peningana i bankann og týnt lifinu, áður en hann gat sagt Viktori nafn bankans og númer reikningsins. Hann hafði þó náð að skrifa hjá sér upplýsingarnar, áður en hann lézt: A bakhluta fjögurra vinkvenna sinna. Og nú má Viktor fara á stúfana með les- gleraugun sin.... Þessi mynd gerði mikla lukku i Danmörku og þvi var farið út i að gera aðra mynd i framhaldi. I þeirri mynd hefur Viktor gengið i lið með mafiunni og fyrsta verkefni hans er að selja arabiskum oliusheik Sivala turninn i Kaupmannahöfn. Þegar Viktor heldur á greiðslunni i höndunum, 10 milljónum danskra króna, kemst hann að þeirri niður- stöðu, að það fari betur á þvi, að upphæðin sé óskipt og slær eign sinni á alla upphæðina. Mafian lætur sér það ekki lynda. Eltingaleikurinn er hafinn! En hvað um það. Það er fyrri mafiu-myndin, sem núna er verið að sýna. Það er öhætt að mæla með henni fyrir hvern þann, sem vill hlæja duglega i 90 minútur. Vonandi fáum við svo að sjá framhaldið innan tiðar. bæði tónlist og myndatökuvél- um er beitt á kunnáttusamlegan hátt. Myndín fjallar um kaupsýslu- mann i Kataniu á Sikiley, sem hefur misst konu sina frá þrem ungum sonum. Þegar feðgarnir koma heim frá útförinni tekur á móti þeim ung og falleg stúlka, sem segistvera nýja vinnukon- an. Frúin hafi pantað eina slika frá ráðningarskrifstofunni rétt fyrir andlátið. Stúlkan, sem heitir Angela er myndarleg og þrifin og allt i röð og reglu i húsinu. Fyrr enn varir hefur myndazt óþægilegur þrihy rningur, heimilisfaðirinn Don Ignazio og þrettán ára gamall sonur hans, Nino, verða báðir yfir sig hrifnir af Angelu. Heimilisfaðirinn vill ólmur ganga i hjónaband með Angelu, en til þess að það geti orðið krefst séra Cirillo þess, að synirnir og móðir Don Ignazio samþykki ráðahaginn. Nino litli á erfitt með að kyngja þvi, að sú sem hann elskar eigi að verða stjúpmóðir hans og hann þrjózkast við að gefa samþykki sitt. Segir að móðir sin heitin komi til sin á nóttunni grátandi yfir fyrirætlunum eftirlifandi manns sins. Þannig togast feðgarnir um Angelu áhorfendum til mikillar skemmtunar! Þaö er eins og ekki sé lengur hægt aö framleiöa kvikmynd án þess aö punta upp á hana meö stripuöu kvenfólki. Hér er Laura I einu atriöi myndarinnar „Maliza”. LAUGARASBÍÓ: „Scream..and die ” Leikstjóri: Joseph Larraz Aðalhlutv.: Andrea Allan. ,,Scream....and die” er ekki eins afleit og maður hafði gert sér i hugarlund, áður en maður gekk inn i sýningarsalinn. Hröð atburðarás, þokkaleg kvik- myndataka óg rétt notkun tóna gerir myndina að þvi sem hún er. Leikararnir eru aftur á móti fremur lélegir og mesta furða, hvað leikstjóranum tekst að bjargast með þá. Þegar upp er staðið að sýn- ingu lokinni, fer maður að velta þvi fyrir sér, hvað það hafi ver- ið, sem hélt athygli manns vak- andi allan sýningartímann. Við nánari ihugun kemst maður að þeirri niðurstöðu, að það hafi i rauninni verið óþarfi að fara og sjá þessa mynd. Hún er, þegar allt kemur til alls, ekkert annað en safn sýnishorna gamal- kunnra hrollvekjuatriða. Hér er tjaldað til öllu þvi, sem aðrar myndir hafa selzt út á undan farið, nefnilega geðbiluðum morðingja, nauðgunum, blóði, rassaköstum, draugalegheitum og öðru þviumliku. Sagan segir frá eftirsóttri ljósmyndafyrirsætu i London, sem verður vitni að hrottalegu morði i afskekktu húsi úti i sveit. Það er nótt og stúlkukind- in hleypur út úr húsinu með morðingjann á eftir sér. Henni tekst að komast undan, en morðinginn hefur uppi á henni og gerir henni lifið leitt.... Blóðidrifið atriöi úr myndinni ,,Scream...and die”. KVIKMYNDIR RASSAKÖST I w w BIOUNUM um og eftir siðustu helgi eru komnar sin úr hverri áttinni. Ein er frá Danmörku, önnur frá Italiu og hin þriðja frá Bret- landi. Allar eiga þessar myndir það þó sameiginlegt að skarta berrassa kvenfólki. Engin myndanna getur þó talizt til klámmynda (eina atriðið, sem mætti fara minna fyrir er ástar- leikur fullorðnu konunnar og smástráksins i myndinni, sem Laugarásbió sýnir). Myndin „Allir elska Angelu”, sem Austúrbæjarbió hóf sýning- ar á i gær, gengur út á sexið frá upphafi til enda. Það er gert á jafn léttan og skemmtilegan hátt og i t.d. Rúmstokks- myndunum. Það er þó langt i frá, að hægt sé að bera saman handbragð þessarar myndar og Rúmstokksmyndanna. Þessi mynd er yfirvegaðri og þar af leiðandi eftirminnilegri. Hið eina, sem er athugavert við hana eru litirnir. Þeir eru eitthvað undarlegir. En allt annað verður að teljast til þess betra er sést á hvita tjaldinu og flokkast undir grin og gam- an. Það er valinn leikari i hverju hlutverki og leikstjórn er afbragðs góð. Hraðinn er jafn og Laura AntonelM og Turi Ferro I hlutverkum slnum I myndinni „Malizia”, sem Austurbæjarbió hóf sýningar á I gær. eftir Þórarin J. Magnússon AUSTURBÆJARBtó: „Maiizia” Leikstj.: Salvatore Samperi Aðalhlutverk: Laura Antonelli, Alessandro Momo og Turi Ferro. Þær þrjár biómyndir, sem komu nýjar i kvikmyndahúsin

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.