Vísir - 21.04.1975, Side 5
Vísir. Mánuttagur 21. aprll 1975.
5
TLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Þessi simamynd barst VIsi I morgun, en hiin var tekin á „einingarhátiö” sösfalista i Lissabon I gær, en
þar er kosningabaráttan aö færast I aukana fyrir kosningarnar á föstudaginn.
Monnréttínda-
menn ókœrðír
fyrir óhróður
Mannréttindafrömuð-
urinn Andrei Sakharov
skýrði frá þvi i gær, að
rithöfundur frá Úkrainu,
sem er félagi i mann-
r éttinda hrey f in gunni
„Amnesty Internatio-
nai”, hafi verið ákærður
fyrir að breiða út and-
sovézkan óhróður.
En rithöfundurinn, sem heitir
Mikola Rudenko, var látinn laus
aftur í gær, en hann hafði þá verið
tvo sólarhringa I haldi hjá lög-
reglunni I Kiev. Áður en honum
var sleppt, varð hann að skrifa
undir loforð þess efnis, að hann
mundi ekki yfirgefa borgina,
meðanrannsókn færi fram á máli
hans. — Reynslan hefur sýnt, að
sllkar réttarrannsóknir geta tekið
nokkurárog jafnvel aldrei endað,
ef verkast vill.
Ákærumar á hendur Rudenko
fylgja I kjölfar handtökunnar á
eölisfræðingnum Andrei Tver-
dokhlebov, sem er formaður
„Amnesty International” I Sovét-
rlkjunum, en þessi alþjóðahreyf-
ing hefur annars aðalstöðvar sin-
ar i London. Hann var handtekinn
á föstudag, en um leið fóru fram
hUsrannsóknir á heimili tveggja
félaga hreyfingarinnar í Moskvu.
Dr. Sakharov, sem sjálfur hef-
ur sætt svipuðum ofsóknum
vegna mannréttindabaráttu sinn-
ar, greinir frá því, að lögreglan
hafi sagt Rudenko, að verk hans á
vegum hreyfingarinnar sönnuðu
glæpi hans. — Rudenko afsagði þó
að fara að fyrirmælum lögregl-
unnar og segja sig úr félags-
skapnum.
Lögreglan gerði húsleit hjá
honum og fjarlægði af heimili
hans handrit, sem hann hafði i
smiðum og ýmis plögg varðandi
félagsstarfið.
Samkvæmt lögum þessa félags-
skapar mega félagar hans ekki
berjast fyrir náðun til handa póli-
tiskum föngum I föðurlandi sínu,
en hins vegar fá til þess félaga er-
lendis.
Rudenko getur átt yfir höfði sér
þriggja ára þrælabúðavist fyrir
afbrotin, sem honum eru gefin að
sök.
Norðmenn œtla að
fœra fiskveiðilögsög-
una úr tólf út í
fimmtfu mílur
Noregur hyggst efna til við-
ræðna undir lok næsta mánaðar
um tttfærslu fiskveiðilögsögu
Noregs úr tólf milum i fimmtiu
milur. — Jens Evensen, fiski-
málaráðherra, skýrði frá þvl I
gær, að stjórn hans hygði til við-
ræöna við Sovétrlkin, Bretland og
önnur lönd, sem þetta mái snerti.
Evensen var að flytja ræðu á
landssambandsþingi Verka-
mannaflokksins i Noregi, þegar
hann greindi frá þessu. Sagði
hann þar, að 50 mílna lögsaga
yröi fyrsta skrefið I átt til 200
milna fiskveiöilögsögu.
Norðmenn hafa áður átt við-
ræður við ofannefndar rikis-
stjómir og sömuleiðis Þýzkaland
vegna fyrri fiskverndunarað-
gerða sinna, þegar þeir lokuðu
ákveðnum svæðum undan
Noregsströndum fyrir togveiði.
Khleu Samphna, leiðtogi Rauðu
Khmeranna, og Sihanouk prins.
RÆÐA MÖGULEIKA KJARNORKU
Fulltrúar nær 50 landa
koma saman i París i
dag tH vikulangrar ráð-
stefnu um kjarnorku.
Tilgangur hennar er að
reyna að finna grundvöll
fyrir alþjóðlega sam-
vinnu við að finna orku-
gjafa, sem leyst gæti af
hólmi oiiuna.
Að ráðstefnunni standa
fimmtán evrópsk kjarnorkurfki,
sem mynda Evrópusamband
kjarnorkulanda. Aðalmál hennar
verður llka kjarnorkuvæðing
Evrópu, en alls munu sitia ráð-
stefnuna, 2,830 fulltrúar frá
Evrópulöndum og Ameriku og 700
áheyrnarfulltrúar frá öörum
hlutum heims, þar á meðal frá
oliuframleiðslurlkjum Austur-
landa.
Þetta er fyrsta ráðstefnan, sem
haldin er um kjarnorku sem
hugsanlegan arftaka oliunnar,
sem hefur fimmfaldazt I verði á
tæpum tveim árum.
„Þurfum ekki
að sleikja
hermanna-
stígvélin"
segir leiðtogi sosíalista í Portúgal.
Tœp vika til kosninganna
Talið er, að um 100.000
manns hafi flykkzt til
Lissabon i gær á ,,ein-
ingarhátiðina”, sem
sósialistar efndu til, en
nú fer i hönd siðasta
vika kosningaundirbún-
ings þeirra tólf stjórn-
málaflokka, sem bjóða
fram i Portúgal. —
Kosningar fara þar
fram á föstudag.
Mario Soares, leiðtogi sósial-
istaflokksins, ávarpaði mann-
fjöldann, er safnazt hafði saman
á iþróttaleikvangi höfuðborgar-
innar. Sagði hann, aö flokkur
hans væri einlægur bandamaður
stjórnmálahreyfingar hersins
(sem öllu ræður i landinu), ,,en
viö þurfum ekki að sleikja her-
mannastigvélin dag hvern”.
Soares hefur sætt gagnrýni af
hálfu nokkurra hinna vinstrisinn-
aðri herforingja fyrir að vera of
Ihaldsamur. „Þeir saka okkur um
smáborgarahátt”, sagði hann.
,,En ef við erum smáborgarar, þá
eru sex milljónir portúgalskra
kjósenda smáborgarar”.
Kommúnistar efndu til útifund-
ar i Oporto i gærkvöldi og söfnuð-
ust þar saman um 50.000 manns.
Kosningabaráttan er hin ákaf-
asta, þótt fiestir flokkanna hafi
látið þröngva sér til þess að
undirrita yfirlýsingu, sem felur i
sér, að herinn hafi öll æðstu völd I
landinu næstu þrjú eða fimm ár-
in.
Þessi mynd var tekin I aðalstöövum Rauðu Khmeranna skömmu fyrir
fail höfuðborgarinnar, Phnom Penh, en þeir rákualian timannútvarps-
stöð og komu I gegnum hana boðskap sinum áleiðis.
Sihanouk sakar
CIA um falsaðar
útvarpsfréttir
frú Asíu
Norodom Sihanouk,
prins Kambodiu, sakaði
i dag CIA leyniþjónustu
Bandarikjanna um að
reka leppaða útvarps-
stöð, sem flytti falsaðar
fréttir af grimmdar-
verkum Rauðu
Khmeranna.
Prinsinn sagði fréttamönnum i
morgun, að þama væri um aö
ræöa útvarpsstöð, sem ranglega
væri sögð á vegum Rauðu
Khmeranna og bæri fyrír fréttum
sinum hinar og þessar fréttastof-
ur. — Hann sagði hana staðsetta I
einhverju nágrannalanda
Kambodiu og rekna af CIA.
„Tilgangur hennar er að varpa
rýrö á endurbyggingarstarf
Rauðu Khmeranna,” sagði prins-
inn.
Shiano.uk, sem hefur sagzt
mundu móta utanrikisstefnu
Kambodiu, þegar hann snýr
heim, sýndi fréttamönnum orð-
sendingar þriggja landa, sem
áöur studdu stjórn Lon Nols, en
viðurkenna nú hina nýju valda-
menn Kambodiu. Fjöldamörg
lönd hafa lýst yfir stuðningi við
væntanlega stjórn sigur-
vegaranna.
En Sihanouk segist ekki ginn-
keyptur fyrir viðurkenningu
sumra þeirra landa, sem áður
studdu Lon Nol-stjórnina.